Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1964, Side 4
Hallgrímur Pétursson og
Saurbær á Hvalfjaröarströnd
Prófastshjónin í Saurbæ, séra Sigurjó n Guðjónsson, prófastur, og Guðrún
I»órarinsdóttir. Hallgrimskirkja í Saurb æ í baksýn.
í DAG mun þess verða mirrnzt
við guðsþjónustur víða um land, að
á þessu ári eru liðin 350 ár frá fæð-
ingu Hallgríms Péturssonar „Svo
lítil frétt var fæðing hans“, að
hvorki vita menn fæðingarstað né
fæðingardag höfimdar Passíusálm-
anna. í hugum allra Íslendinga er
hann svo fast tengdur Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd, að sjaldan er sá
staður nefndur að maður minnist þá
ekki Hallgríms um leið. Saurbæjar-
stað hafa margir merkir klerkar
setið. Nú er þar prestur sr. Sigurjón
Guðjónsson prófastur Borgfirðinga.
Kona hans er Guðrún Þórarinsdóttir
Þorlákssonar, listmálara.
E nda þótt Hallgrímur Pétursson
væri Skagfirðingur að ætt og uppruna
og þótt hann ætti 15 ára dvöl á Suður
r.esjum er nafn hans óslítanlega tengt
við Saurbæ á Hvalfjairðarströnd. Þetta
er sjálfsagt ekki sízt vegna þess, að
í Saurbæ orti hann sitt höfuðverk —
Pass'iusálmana. — Svo er jafnan talið,
að mikið hafi skipt um til batnaðar
fyrir Hallgrími Póturssyni þegar hann
fluttist frá Hvalsnesi og upp á Hval-
fjarðarströnd. Er raunar enginn vafi á
því, að þar hafa orðið mikil viðbrigði,
enda segir sr. Vigfús í Hítardal í sinni
greinargóðu ævisögu, að hann hafi þakk
að bæði Guði og yfirvöldunum fyrir
þau umskipti að hann slapp frá Hvals-
nesi. Að Saurbæ kemst hann í næsta
nágTenni við vin sinn og velgerðar-
mann, Árna lögmann Gíslason, sem bjó
á Ytra-Hólmi, enda talið að hann hafi
hjálpað honum til að fá Saurbæ. Það
hetfur verið eittíhvað annað nágrenni
heldur en það sem hann átti við að
búa af hálfu „þrælanna í hraununum."
að er bjart og fagurt yfir veru
Hallgríms í Saurbæ. Staðurinn er svo
hugþekkur bæði vegna legu sinnar og
landslags og þeirra sögulegu minninga,
sem við hann eru tengdar eftir bú-
setu hins mikla snillings þar. Saurbær
er bújörð í betra lagi, einkum hefur hún
verið talin góð fjárjörð meðan Vatna-
skógur var notaður til beitar. En það
er nú liðin saga. Hann er nú orðið á
vegum skógræktarinnar, þar sem skóg-
armenn K.F.U.M. gróðursetja fjölda
plantna á ári hverju. Prestum hefur yf-
irleitt búnazt vel í Saurbæ og er höf-
undur Passíusálmanna engin undantekn
ing. Sr. Helgi Thordarsen, síðar biskup,
byrjaði prestskap sinn í Saurbæ árið
1820 og var þar í fimm ár. Síðan varð
hann prestur í Odda, einu bezta brauði
landsins, eftir Steingrím biskup. Um
þessa tvo staði — Saurbæ og Odda —
fórust sr. Helga svofelld orð: f Saur-
bæ gxaaddi ég, en Oddinn át sig upp.
Þetta segir sína sögu. Saurbær er
hæg jörð og vel í sveit sett. Þar eru
engar náttúruhamfarir, sem valda spjöll
um eða áföllum. Landið liggur vel við
sói og suðri, tún eru grasgefin og gróð-
ur lifnar snemma á vorin. Allt þetta
hefur komið prestum staðarins til góða
ir.eðan þeir studdust við búskap, nóg
fólk var til að nytja jörðina og gæði
hennar. Allt bendir til að Hallgxímur
hafi verið bóndi í meðallagi. Enda þótt
almenningur hafi lengst af talið að hann
hafi verið snauður — jafnvel öreigi —
mun hitt réttara, að afkoma hans hefir
verið vel viðunandi. Til þess benda út-
tektargerðir frá Hvalsnesi og Saurbæ.
Hann hefur gengið að öllum bústörfum
með fólki sínu eins og ýmsar sögur
benda til og algengt hefur verið um
embættisbræður hans fram á þennan
dag. Hann var nógu alþýðlegur til þess,
þótt embættismaður væri, og hann hef-
ir ekki talið sér neina minnkun að því
að reyna á likamskraftana við hvaða
störf sem til falla bæði um slátt og á
öðrum árstíma enda eru til ýmsar
sagnir um það sem fyrir kom, þegar
sa\ Hallgrímur var að störfum með
piltum sínum.
INÍokkur örnetfni eru enn í Saurbæ,
sem minna á Hallgrím Pétursson, enda
þótt senn séu 3 aldir síðan hann var otfar
moldu. Þar er Hallgrímssteinn. f skjóli
hans sat skáldið er hann orti Passíu-
sálmana. Þar er Hallgríxnslind, þar sem
hann þvoði „líkþrár fúasár“. Lind þessa
blessaði Hallgrímur eða vígði. Síðan
hefur vatn hennar lækningamátt. Leg-
steinn er á gröf Hallgríms í kirkju-
garðinum, settur þar 1820 að undirlagi
Stefáns amtmanns á Hvítarvöllum. Magn
Eftir séra Gisla
ús bróðir hans Konferensráð sá um
verk þetta, er Stefán var látinn.
Grafskriftin, sem samin er af Magn-
úsi, er á þessa leið:
Lét stein þenna landshöfðingi
sárast saknaður hver sannri trú
af alhug unni ættmenn rista
eftir sinn dag að auldnum moldum
Háleits sálmaskálds
Hallgríms fræga
Saurbæjarprests Péturssonar
Lifi beggja minning í landi blessuð.
MDCCCXI
Skammt frá þjóðveginum fyrir of:.n
Saurbæ er svonefndur Bænasteinn.
Kann hann bæði að drag/a nafn af bæn-
um Hallgríms eða bænagerð kirkju-
fólks er það var á leið til messu á
staðnum.
E nda þótt Saurbær sé fyrst og
frtmst svo fast tengdur nafni Hallgríms
Péturssonar vegna þess að þar orti
hann Passíusálmana skal hér að lokum
minnzt á atburð, sem skeði í Saurbæ
og var tilefni eins af fegurstu ljóðum
Hallgríms fyrir utan Passíusálmana.
Það var þegar bærinn brann þar aðfar-
arnótt 16. ágúst 1662. Bærinn brann til
kaldra kola og með svo skjótum hætti,
að heimafólk bjargaðist nauðuglega og
förukarlinn, Ólafur skozkur, sem var
þar nætursakir, fórst í eldinum. Það
má geta nærri að fáu sem engu hetfur
verið bjargað af húsmunum og skaðinn
því orðið tilfinnanlegur. — Út af þess-
um atburði yrlcir svo Hallgrímur sálm,
er hann nefnir „Hugbót“ „og er óhætt
að segja, að tiginmannlegri sálmur hetf-
ur varla verið ortur út af stórskaða,**
(M.J.):
HUGBÓT
Ort þegar húsbrxminn varð í Saurbæ
1662.
Guð er minn Guð, þó geysi nauð .
og gangi þanninn yfir.
Syrgja skal spart, þó missta ég margt
máttugur herrann lifir.
Af hjarta nú og hreinni trú
til hans skal ég mér venda.
Nafn Drottins sætt fær bölið bæ-tt.
Blessað sé það án enda.
Gaf mér hans náð gott lukku ráð,
að gleðinnar eflist kraftur.
Frjálst á hann þá og fullvel má
frá mér taka það aftur.
Hans náðin blíð á hverri tið
huggun virðist mér senda.
Nafn Drottins sætt fær bölið bætt
Blessað sé það án enda.
Tók ei djöfull né töfrafull
tilviljun burt eign mína.
Sá, sem það gaf, svipti því af.
Sorgin skal öll því dvína.
Mitt bætir ráð með mildi og náð
hans miskunn þúsundkennda.
Nafn Drottins sætt fær bölið bætt.
Blessað sé það án enda.
Guð elskar þann, sem hirtir hann.
Hef ég þá trúna vissa.
Vil ég með hind, vesæl barnkind,
á vönd föðurins kyssa.
■ Heilsu, lán, féð og heiður með
hans náð vil ég afhenda.
Nafn Drottins sætt fær bölið bætt
Blessað sé það ná enda.
Af mér þó féð og auðlegð með
óffum svo ganga megi,
grátbæni ég nú, góði Jesú,
gleymdu mér þó aldreigL
Lát mig hjá þér, þá héðan fer,
\í himnasælu lenda.
Nafn Drottins sætt fær bölið bærtt,
Blessað sé það án enda.
Brynjólfsson
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
10. tðlublað 1964