Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1964, Page 14
Messuvínið á Sauðafelli
Láti hann þessi ljóðin mín
loða i eyrum sínum:
góði Fúsi gefðu vín
guðsbörnunum þínum.
Þessar vísur eru sennilega um
250 ára gamlar og samt eru engin
ellimörk á þeim. Nú er eiílmitt
messuvín á dagskrá, hversu
sterkt skuli vera og á hvem hátt
bruggað. Sennilega hefði Dala-
mönnum í byrjun 18. aldar þótt
þunnt að fá saft eina sam^n þeg-
ar þeir fóru til altaris.
Vísumar eignar gott handrit
séra Guðmundi Eiríkssyni sem
þjónaði Miðdalaþingum 1709 —-
1734. Guðmundur dmkknaði 1734
og var þá 52 ára. Hann var hag-
mæltur vel. Aðrir eigna vísumar
Sigurði Gíslasyni á Bæ í Miðdöl-
um eða Jóni syni hans. Þeir eru
báðir kunnir fyrir kveðskap og
þó einkum Jón fyrir Tímarímu,
sem ort mun 1709. Ekki er ljóst
hvaða Vigfús er hér nefndur.
Vigfús Eiríksson var prestur í
Miðdalaþingum 1695-1707 og sat á
Sauðafelli, ,hamn dó í stómbólu
1707 þrjátíu og sjö ára gamall.
Hér gæti líka verið um að ræða
Vigfús Jónsson frá Kvenna-
brekku, sá er kunnur var
undir nafninu Leimlækjar-
Fúsi. Hann ólst upp í
Dölum og þar var hann
einmig í elli sinni og dó víst þar
vestra. Ekki hef ég rannsakað
hvort Fúsi hefur haft með mál-
efni Sauðafellskirkju að gera, en
það gæti þó verið. Sauðafells-
kirkja var bændaeign og Fúsi átti
allmiklar eignir. Leimlækjar-
Fúsi dó 1728 og var þá um átt-
rætt.
Um þetta kann ég ekki fleira
að greina en vísa málinu til fróð-
ari manna, en vísumar standa
sjálfar fyrir sínu.
11-5 — 1964.
Sveinbjörn Beinteinsson
Hjartans blíða heilsanin
með hverskyns óskasafni;
heill og sæll með hár og skinn
höfðingjanna jafni.
Skipað var mér að skila til þín
því skilur á milli vegur:
á Sauðafelli vantar vín
Vigfús elskulegur.
Svo hefur gengið sérhvert ár,
sig mætti einhver gretta,
láttu nú fara litlu skár
ljúfurinn eftir þetta.
Koma láttu kúta þrjá,
klögun mikil gengur,
Domine frater dragðu ei frá
drottins húsi lengur.
Ef þú gerir engin skil
áttu vom á þykkju,
fólkið mun þá fá mig til
að færa þig saman í lykkju.
Nú hef ég téðan tilgang minn,
trúðu boðum sönnum
og gefðu ám dvalar sopann sinn
Sauðafellskirkj umönmum.
Gosið
við
Vest-
manna-
eyjar
Eftir Þorstein L
Jónsson
Forláttu af frómleik þín
fljótlega línur skráðar,
og kærleiksful-la kveðju mín
keyrðu í mæðgur báðar.
Surtur heldur sýning hér,
sindrið lætur fjúka.
Utantil við yztu sker
frá aflin-um sést rjúka.
Út ég fór að hitta hal
hels við óðam gíginm.
Þeytti hátt á himinsal,
heityrtur og tiginn.
Eldur kyntur umdir var,
ekki vantar brenmi.
Kyndarann, sem kyndir þar,
kalla ég afarmenni.
Víst er það ei visins hömd,
er vikurglóð þá nærir:
Af regindjúpi rísa lönd,
með regimnætti hrærir.
Fyrrum Eyja byggðist band,
beitt var sömu rökurn.
Nú verður bráðum numið land
og nýtt með öðrum tökum.
21. marz 1964. =
l«Ílllllllllllllll?tHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIillllllllllillllllllllllllllllllllllllllÍ|j
iljiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini
Ú r a n náIu m m i ðaIda
Guðmundur Guðni
1182
D. Valdemar I, hinn mikli, Dana
konungur.
Knútur VI, sonur Valdemars, verð
ur konungur yfir Danaveldi eftir
að landsmenn í Danmörk höfðu
valið hann til konungs og frá
1182 til 1660 voru Danakonungar
kjörnir af dönsku þjóðinni.
F. Frans af Assisi hinn heilagi.
D. 1226. Hann stofnaði munka-
reglu þá sem við hann er kennd
og kölluð Fransmunkaregla. Hún
breiddist ört út um Evrópu, Asíu
og Afríku.
Island
Þorlákur biskup helgi ferðast um
Vestfirði í fyrsta sinn.
Grasleysusumar kallað.
1183
Orrusta í Björgvin í Noregi.
ísland
p. Sturla (Hvamms-Sturla) Þórð
arson, ættfaðir Sturlunganna er
Sturlunga-öldin dregur nafn af.
Sturla var þá 67 ára.
Hér hefst íslendingasaga Stuilu
Þórðarsonar lögmanns.
Guðmundsson iók
1184
Hinrik, sonur Friðriks Barbar-
ossa, gerður að rómverskum keis
ara.
Sjóorrusta nálægt Sogni í Noregi
milli Sverris konungs og Magn-
úsar konungs Erlingssonar, er
féll. Varð Sverrir þá konungur
yfir Noregi öllum.
ísland
D. Tumi Kolbeinsson, höfðingi
Skagfirðinga.
Flateyjarklaustur flutt að Helga-
felli.
1185
Stjórnarbylting í Miklagarði.
Keisarinn Andríoníkus hinn síð-
asti keisari af hinni merku
Komnenaætt var drepinn en til
keisara tekinn fsak Angelus.
ísland
Karl ábóti Jónsson fer til Noregs
á fund Sverris konungs.
Guðmundur Arason hinn góði
vígður prestur.
Ferst Grænlandsfar .
saman
D. Páll prestur Sölvason í Reyk-
holti.
D. Einar Þorgilsson á Staðarhóli
höfðingi Dalamanna. Hann dó af
sárum er konur og unglingar
veittu honum er hann vildi ræna
Þorbjörgu á Heinabergi nautgrip
um. Hélt hún sjálf í kápu hans
en tveir piltungar særðu hann þá
á höfði.
1186
Sverrir konungur flytur hina
frægu ræðu sína í Noregi
ísland
Þórður Sturluson fær Helgu dótt
ur Ara sterka Þorgilssonar á
Staðastað á Snæfellsnesi.
Ari sterki fer út til Noregs og
með honum Guðný, ekkja
Hvamms-Sturlu. Ari dó af slysi
í Noregi í þessari ferð. Hann var
að bera siglutré ásamt öðrum
mönnum, en þeir bekktust við
hann og hlupu undan trénu, ætl-
uðu að vita hvað hann væri sterk
ur. Ari dó stuttu eftir atburð
þennan .Ari var sonar-sonur Ara
fróða.
Stofnað fyrsta nunnuklaustur á
íslandi að Kirkjubæ á Síðu. Það
var Benediktsregla.
Kallað hið illa vor á íslandi.
Þegar Ari sterki lézt fékk Þórður
Sturluson Stað ásamt mannafor-
ráðum þar.
1187
Saladín soldán Egypta vinnu'-r
Jerúsalem og tekur konunginn
þar höndum.
D. Giraldus Combrensis, sagn-
fræðingur.
ísland
Helgastaðamál.
Guðmundur dýri tekur af- Vaðla-
þing.
Nautadauðavetur kallaður á ís-
landi.
Ekkert skip kemur frá Noregi til
íslands.
1188
D. Eysteinn Erlendsson, erkibisk
up í Noregi.
Jón kuflungur, íoringi flokks
þess er við hann var kenndur
og kallaðir voru Kuflungar, fellur
fyrir mönnum Sverris konungs í
Noregi. Jón var munkur og taldi
sig vera son Inga konungs. Kufl-
ungar tvístrast.
Drepnir allir Gyðingar á Eng-
landi.
Vígður Jón Grænlendingabiskup.
ísland
Magnús Gizzurarson fer tvær ferð
ir frá íslandi til Danmerkur.
*
Ingimundur prestur Þorgeirsson
fer verzlunarferð til Englands.
Guðmundi dýra gefið Fljóta-
mannagoðorð.
1189
Ríkharður ljónshjarta verður kon
ungur yfir Englandi er faðir hans
Hinrik II dó.
Hefst hin þriðja krossferð til
landsins helga. Fyrir henni stóðu
þeir þrír, Friðrik Barbarossa keis-
ari Þjóðverja, Filippus Ágúst kon
ungur Frakka og Ríkharður ljóns
hjarta Englandskonungur.
ísland
Ingimundur prestur Þorgeirsson,
föðurbróðir Guðmundar góða
íerst í Grænlandsóbyggðum.
Ilann var á skipi er hét Stangar
foli. Skip það fannst 14 vetrum
síðar og 7 menn látnir í hcllis-
skúta. Vax var og þar hjá þeim
og rúnir þær er sögðu atburð
um líflát þeirra. Fræðimenn
telja að Ingimundur hafi krotað
rúnirnar með málmstíl á vaxbor-
ið tréspjald.
Ásmundur kastanrassi kemur frá
Krosseyjum á Grænlandi til
Breiðafjarðar. Skip hans var tré
neglt og sinbundið.
14 LESBOK MORGUNBLAÐSINS
20. tölublað 1964