Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Side 10
M
i oðir Mini er illu heilli afskap-
lega óframfærin og hrædd. Ef hún heyr-
ir hávaða á götum úti eða sér fólk á
leið heim að húsinu okkar, heldur hún
einlægt að þar séu á ferðinni þjófar eða
drykkjurútar, snákar eða tígrisdýr,
malaría, kakalakar eða margfætlur.
Og þó hún sé nú nokkuð komin til ára
sinna, hefur henni enn ekki tekizt að
sigrast á þessum ótta sínum við allt og
alla. Þess vegna var hún full grunsemda
gagnvart manninum frá Kabúl og bað
mig alltaf blessaðan að hafa nú auga
með honum og þeim Mini litlu.
Ef ég reyndi að fá hana ofan af þessu
með því að stríða henni svolítið eða
gera gys að henni, setti hún bara upp
alvörusvip og spurði eitthvað á þá leið,
_ hvort það væri ekki satt, að það væri
ennþá þrælahald í Kabúl? Og kom það
ekki líka stundum fyrir, að börnum
væri rænt? Og var það svo óskaplega
fáránlegt að ímynda sér, að þessi stóri
maður gseti hæglega rænt svona litlu
barni og haft á brott með sér?
Auðvitað reyndi ég eftir beztu getu að
koma henni í skilning um, að þótt það
væri eflaust ekki ómögulegt, væri það
í hæsta máta ósennilegt, en hún lét sig
ekki og var jafn-hrædd um Mini litlu
eftir sem áður. En þar sem hún hafði
ekkert fyrir sér er rennt gæti neinum
rökum undir þessa hræðslu hennar, var
einhvern veginn engin ástæða til að
meina manninum frá Kabúl aðgang að
heimilinu. Þau héldu því uppteknum
háttum, Mini mín litla og maðurinn frá
Kabúl og alltaf fór jafnvel á með
þeim.
Einu sinni á ári, um miðjan janúar-
mánuð, var Rahman, maðurinn frá
Kabúl, vanur að fara til síns heima-
lands og þegar leið að þeim tíma var
hann yfirleitt mjög önnum kafinn við
að ganga hús úr húsi og innheimta
skuldir. En þetta ár gat hann samt alltaf
fundið sér einhverja stund til að hitta
Miini litlu að máli. Ókunnugum hefði
jafnvel getað virzt sem einhvers konar
leynimakk væri þeirra í milli, því gæti
hann ekki komið að morgni dags, brást
ekki að hann birtist í gættinni er leið
að kvöldi.
Meira að segja mér brá oft í brún,
er þessi hávaxni, lausklæddi maður birt-
ist allt í einu, pinklum hlaðinn, í dimmu
skoti herbergisins — en þegar Mini
litla kom hlaupandi inn og hrópaði:
Ó, Kabuliwallah, Kabuliwallah, og þau
tvö tóku upp sitt vanahjal, hlógu og
sögðu hvort öðru sögur og skrítlur eins
og áður, varð mér rórra.
S vo var það einn dag, skömmu
áður en hann hafði ætlað að leggja af
stað heimleiðis, að ég var að leiðrétta
*' prófarkir í vinnustofu minni. Það var
kalt í veðri og daufir geislar sólarinn-
ar, sem skinu inn um gluggann og á
fætur mér voru kærkominn ylur. Klukk-
an var nærri átta að morgni og nokkuð
manna á ferli. AUt í einu heyrði ég
ólæti utan af götunni, leit út og sá þá
Rahman leiddan brottu, milli tveggja
lögreglumanna, en á eftir fór hópur
forvitinna stráka. Það voru blóðblettir
á fötunum hans og annar lögreglu-
mannanna hélt á hnífi í hendinni. Ég
flýtti mér út, fór í veg fyrir þá og
spurði hvað um væri að vera. Af því
sem mér var sagt svona sitt úr hverri
áttinni, komst ég að þeirri niðurstöðu,
að einhver þarna í grenndinni hefði
skuldað farandsalanum fé fyrir sjal eitt
fagurt er hann hafði selt honum og var
♦ frá Rampuri, en er hann var krafinn
um borgun, hefði hann þverneitað að
hafa keypt sjalið og enga peninga viljað
láta af hendi rakna. Þeir hefðu svo
þráttað um þetta og Rahman loks sinn-
azt svo að hann hefði stungið manninn
hnífi. Sjálfur valdi bandinginn í æsingn-
um andstæðingi sínum ýmis orð og þau
ekki af betra taginu. En allt í einu
birtist Mini litla uppi á svölum hússins
okkar og hrópaði upp yfir sig, rétt eins
og venjuiega: „Ó, Kabuliwallah, Ka-
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
buliwallah!" Rahman leit upp til hennar
og það birti yfir svip hans. Hann var
ekki með neinn pokann þennan daginn,
svo hún gat ekki spurt hann hvað hann
hefði í pokanum, eins og hún var vön.
Þess vegna tók hún þá fyrir næsta mál
á hefðbundinni dagskrá þeirra og spurði:
„Ertu að fara til hans tengdaföður
þíns?“ Rahman hló við og svaraði: „Já,
það er ég reyndar, litla vina!“ En þegar
hann sá, að barninu var hreint ekkert
skemmt, lyfti hann bundnum höndun-
um og sagði: ,,Og væri ég ekki bund-
inn, eins og þú sérð, skyldi hann svo
sannarlega fá fyrir ferðina, hann tengda-
faðir minn“.
Rahman var sekur fundinn um meint
manndráp og dæmdur til margra ára
fangelsisvistar.
T íminn leið og smám saman
gleymdum við Rahman, manninum frá
Kabúl. Lífið gekk sinn vanagang á okk-
ar vanalegu slóðum og okkur varð sjald-
an hugsað til fjallabúans forðum frjálsa,
sem nú eyddi ævinni innan þröngra
veggja fangelsisins. Meira að segja hún
Mini mín, kát og léttlynd, gleymdi sín-
um gamla vini. Eftir því sem hún elt-
ist, var hún meira samvistum við aðrar
stúlkur á sínu reki og það svo, að hún
hætti næstum því að koma inn í vinnu-
herbergið til hans föður síns og ég tal
aði sjaldan nokkuð við hana að ráði.
Það liðu mörg ár og aftur var komið
haust og við vorum í óða önn að undir-
búa brúðkaupið hennar Mini okkar. Það
átti að fara fram á Puja-háíðinni. Þegar
Durga hyrfi til Kailas myndi sólargeisl-
inn okkar einnig hverfa úr húsi föður
síns til húss eiginmanns sins og þá yrði
skuggsýnt eftir heima.
Það var bjartur morgunn og fagur,
rigningarnar undanfarið höfðu hreinsað
loftið og geislar sólarinnar sindruðu eins
og skíra gull. Þeir voru svo skínandi
bjartir, að meira að segja óhreinir og
ótútlegir múrsteinsveggirnir húsanna í
öngstrætum Kalkútta voru eins og gulli
slegnir. Blásið hafði verið í brúðkaups-
flautur síðan í dögun og mér fannst
hjarta mitt ætla að bresta. Þetta
„Bhairavi" jók á sársaukann sem það
vakti mér að þurfa að skiljast við Mini
mína, en við því var ekkert að gera:
í kvöld átti hún að giftast.
Allan morguninn hafði mikið ver-
ið um að vera í húsinu. í húsagarðin-
um þurfti að koma fyrir sóltjaldinu
á bambusstöngunum, í herbergjunum
öllum og á svölunum urðu að vera ljósa-
stikur með klingjandi bjöllum. Alls stað-
ar var ys og þys. Ég sat inni í vinnu-
herbergi mínu og fór yfir heimilisreikn-
ingana, þegar einhver kom allt í einu
inn, heilsaði kurteislega og nam staðar
frammi fyrir mér. Það var Rahman,
maðurinn frá Kabúl. Ég kom honum
ekki fyrir mig í fyrstu, hann hafði eng-
an poka meðferðis, síða hárið hans var
klippt stutt og þrek hans frá því forð-
um var eins og þorrið og að engu orðið.
En svo brosti hann við mér og þá þekkti
ég hann aftur.
„Hvenær komstu, Rahman?“spurði ég.
„í gærkvö!di“, sagði hann. „Ég var
látinn laus“.
Mér hraus hugur. Ég hafði aldrei
áður talað við mann sem afplánað
hafði fangelsisdóm fyrir meint mann-
dráp og mér leið illa, er ég gerði mér
þess grein, því mér fannst sem dagur-
inn hefði verið betri og heillavænlegri
ef hann hafði ekki birzt.
,,Það eru hátíðahöld hér í húsinu“
sagði ég, „og ég er mjög vant við lát-
inn. Gætuð þér kannske komið aftur
seinna?“
Hann snerist þegar á hæli og var á
leið til dyra, en nam þar allt í einu
staðar, hikaði og sagði: ,,Má ég ekki
aðeins fá að sjá litlu stúlkuna herra,
bara rétt sem snöggvast?“ Hann hélt
þá að Mini væri eins og áður, lítil
stúlka, sem kæmi hlaupandi til hans
eins og hún var vön að gera og hróp-
aði ,,0, Kabuliwallah, Kabuliwallah!
Hann hafði haldið að þau myndu aftur
tala saman og gera að gamni sínu eins
og í gamla daga. Hann hafði meira að
segja, minnugur þess sem áður var,
komið með dálítið af hnetum og rúsín-
um, sem hann hafði einhvern veginn
fengið hjá einhverjum landa sinna, því
að af peningum átti hann ekkert lengur,
til þess að færa Mini.
En ég endurtók það sem ég hafði
áður sagt: „Það eru hátíðahöld hér í hús-
inu og engan að hitta að máli í dag“.
Svipur hans þyngdist, hann horfði á
mig stundarkorn, fullur saknaðar, en
kvaddi og fór.
]Vlér leið illa, þótti fyrir undir-
tektum mínum og var í þann veginn
að kalla aftur, þegar hann kom inn
öðru sinni af sjálfsdáðum. Hann gekk
til mín, rétti mér gjöf sína og sagði:
,,Ég kom með þetta til að færa litlu
stúlkunni, herra. Viljið þér ekki gefa
henni það frá mér?“
Ég tók við því og ætlaði að fara að
borga honum, en hann varnaði mér
þess og sagði: ,,Ég þakka gæzku yðar,
herra, en bjóðið mér ekki greiðslu fyrir
þetta. Þér eigið litla stúlku hérna. Sjálf-
ur á ég aðra litla stúlku, eins og hana,
heima hjá mér. Ég hugsa til hennar
þegar ég kem með þetta handa barn-
inu yðar“.
Hann stakk hendinni inn í víða, laus-
fallandi skikkju sína og tók þaðan lít-
inn og óhreinan bréfmiða, breiddi vand
virknislega úr honum á borðinu og
slétti með báðum höndum. Á miðanum
var far eftir litla hönd, ekki ljósmynd,
ekki teikning, bara far eftir litla
hönd, sem roðin hafði verið bleki og
þrýst á pappírsbleðilinn. Þessa snert-
ingu handar dóttur sinnar hafði Rah-
man alltaf borið næst hjarta sér er
hann kom til Kalkútta ár eftir ár til
til þess að selja vörur sínar á stræt-
um stórborgarinnar.
Tárin komu fram í augu mér. Ég
gleymdi að hann var bara fátækur far-
andsali frá Kabúl, en ég — og þó,
hvað var ég annars annað og meira en
hann? Átti hann ekki dóttur eins og
ég? Farið eftir hönd litlu Parvati-
stúlkunnar hans ofan úr fjarlægu, fjöll-
óttu heimalandi þeirra, minnti mig á
Mini mina litlu.
Ég lét senda eftir Mini og bað hana
koma fram. Miklar mótbárur voru
fram bornar við þessu uppátæki mínu,
en ég hafði þær að engu. Klædd brúð-
arskarti sínu úr rauðu silki, með sandal
viðarsmyrsl á enni sér, kom Mini mín
og stóð þarna allt í einu frammi fyrir
mér, undirleit og feimin.
Maðurinn frá Kabúl var eins og
furðu lostinn er hann leit þessa veru,
sem þarna birtist honum allt í einu.
Hann gat ekki endurlífgað gamlan
kunningsskap þeirra svona í einni svip-
an. Loks brosti hann hægt og sagði:
Hagalagöar
Þyrfti a3 kæra.
Almenningur í Kolfreyjustaðarsókn
og Reyðarfirði kvartaði mjög um
ónýti fiskifæranna og hákarlavað-
anna. Segja þeir, að þetta stafi af
linum snúð á fyrsta spunanum, en
síðan hafður of harður snúður, þegar
þættirnir eru undnir saman en auk
þess hafa menn komizt að raun um
að í hákarlalínunum er einn þáttur-
inn venjulega gamall. Þetta þyrfti að
sanna með vitnaleiðslu og kæra sið-
an fyrir yfirstjórn verzlunarinnar,
sem sannarlega mundi ekki láta drag-
ast að ráða þar bót á.
(Ferðabók Olavíusar).
Jæja, litla vina, ertu nú loks að fara
heim til hans tengdaföður þins?
En Mini vissi nú, hverja merkingu
mátti leggja í orðin „hús tengdapabba“
og gat ekki svarað eins og í gamla
daga en roðnaði bara, þagði og var
feimin.
E g minntist dagsins þess er þau
höfðu fyrst hitzt, maðurinn frá Kabúl
og hún Mini mín og ég var hryggur
í bragði. Þegar Mini var farin and-
varpaði Rahman þungan og settist nið-
ur á gólfið. Eflaust var hann farinn
að hugsa um það, að dóttir hans hlyti
líka að hafa vaxið úr grasi allan þenn-
an tíma sem hann hafði verið fjarri
og að hann myndi þurfa að kynnast
henni á nýjan leik líka. Að minnsta
kosti var það öruggt og víst, að hún
myndi vera allt öðru vísi en þegar hann
skildi við hana síðast. Og hver gat líka
vitað, hvað hefði komið fyrir hana á
þessum átta árum, sem umliðin voru?
Brúðkaupsflauturnar hjöluðu og mild
haustsólin umvafði okkur geislum sín-
um. En Rahman sat þarna inni í einni
af ótal þröngum götum Kalkútta og
horfði innhverfum augum heim til
hrjóstrugra fjallanna í Afganistan.
Ég tók seðil úr vasa mínum, rétti
honum og sagði: Farðu heim, Rahman,
til dóttur þinnar, sem bíður þin í landi
þínu og megi hamingjan, sem ykkar
fundum fylgi, færa barni mínu bless-
un“.
Þessi gjöf mín varð til þess að ég
varð að skera ýmis útgjöld við brúð-
kaupið nokkuð við nögl mér. Ég gat
hvorki haft rafmagnsljósin, sem ég
hafði ætlað mér, né heldur fengið hljóm-
sveitina úr hernum eins og til hafði
staðið og kvenfólkið í húsinu var ekki
sem skilningsríkast. En sjálfum þótti
mér hálfu bjartara yfir brúðkaupsdegi
dóttur minnar fyrir þá sök að okkar
vegna bar saman í fjarlægu landi, eftir
mörg ár og löng, fundum annars föður
og einkadóttur hans.
Sonja Diego þýddi.
Vetrar-
skraut
Eftir Sigurð
Jónsson frá Brún
Haustið eitt skyndihláka
hrími frá köldum nóttum
eyddi — öllu saman.
ísrósum skreytta fláka
gerði að votum vöngum
vættum af gleðitárum,
gerði að grátnum vöngum.
Glysið hélu varð fljótt um.
Vetri buðlungi bárust
bráðum fregnir af þíðu,
hvernig hans vorblóm vóru
velkt eftir stundarblíðu.
Sú þótti fréttin sárust.
Svellakápunni stóru
vatt hann um votar lendar,
vafði að gleðitárum.
ísperlur eftir voru.
Hanga í brjóstum hlíða,
hanga við kinnar dala
vatnstærar perlur vetrar,
vindar um djásnin líða,
láta þau hljóma, hjala,
hringja með köldum rómi.
Nú er hélurós haustsins
harðnaður vetrarblómi.
r" — — - i 1 i
- 24. desember 1965