Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1968, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1968, Blaðsíða 14
Vanmegna vœngir P’ramliald af bls. 3 ingar'oaráttunnar. Skáldin finna til fæð- ar sinnar, en þau skynja einnig, að þau eru ómissandi: hin þjóðlega til- finning þeirra virðist geyma í sér minn- inguna um afturför, uppgjöf og nýaf- staðna ósigra. Það er þess vegna, sem við finnum í fari margra þeirra undar- iegt, næstum fáránlegt, sambland íhalds- semi og tryggðar við hefðina annars vegar, og framúrstefnu og alþjóða- hyggju hins vegar. -í essi tengsl, þessir fjötrar gæt: maðui sagt, sem íþyngja stöðugt helztu skáldum okkar, hafa tvenns konar af- leiðingar í för með sér: Annars vegar (og það getur verið tvíeggjað) bjarga þau þeim frá því að villast í völund- arhúsi öfganna, bjarga þeim frá gagns- lausu flakki um vegleysur tilgerðarinn- ar, þar sem talið er eðlilegt að af- neita listinni: þau þyrma þeim einnig við vitfirringu ofdirfskunnar — og við veitum því eftirtekt, að tilraunir, hið listræna „tour de force“, hið fárán- iega, öfgafulla og exotíska þekkist ekki í króatískum skáldskap nema sem sérstakt afbrigði, ekki sem meginþátt- ur, og birtist í tæknilegum smáatrið- um fremur en í anda verksins, per- sónuleik þess eða stefnu: hins vegar hindra þessi tengsl óhjákvæmilega, þau eru eins konar vofa, sem gengur aftur í skáidinu sjálfu, í andrúmsloftinu í kringum það, í meðhöndlun þess á efn- inu: skáldið er fullt varfærni, verður stöðugt að líta til baka, verður að fara troðnar slóðir, verður að réttlæta og leiða rök að hverju því, sem það tekur sér fyrir hendur, sanna gagnsemi verka sinna: það er í hlekkjum. En það er ekki hægt að ræða um króatiskar bókmenntir án þess að minn- ast á þjóðfélagsfræði smáþjóðarbók- n,ennta: bókmenntalegar kröfur lítillar þjóðar leggja þungar byrðar á herðar píslarvottinum í sinni eilífu og óleys- anlegu baráttu við guðina: hann verður að taka á sig þungar skyldur, honum eru gefin ákveðin verkefni tii að fjalla um: vængir hans eru stífðir. Skáldið finnur, að það er ekki aðeins venjuleg- ur þegn meðal samborgara sinna heldur ábyrgur verndari þjóðernisins. Og með íáeinum undantekningum er þjóðfélags- leg saga króatisks skáldskapar saga píslarvotta, saga uppreisnarmanna, sem efast um gildi uppreisnarinnar, saga hugsjónamanna, sem óttast að þeir verði viðskila við uppruna sinn, saga örvænt- ingarfullra Prómoþeusa, saga barna, sem eru rifin úr tengslum við anda samtíðarinnar. En þrátt fyrir þennan naflastreng, sem gefur barninu næringu, en getur jafnframt kæft það, þrátt fyrir þessar óhjákvæmilegu viðjar, lofsyngur skáldið ekki aðeins ættjörðina, heldur einnig hinn sanna tón evrópskrar nútíma- menningar alveg frá tímum symbólism- ans og expressionismans fram til hins ófyrirleitna sundurlyndis eftirstríðsár- anna. í fyrsta skipti síðan á dögum Raguso—Dalmatíu bókmenntanna er eins og við finnum ekki lengur til þess, að við séum á eftir, að við séum van- þróaðir — við eigum það að þakka stórskáldum eins og Kranjcevic, Matos, Simie, Krleza og Ujevic (allir þessir menn máttu gjalda samtímanum dýru verði, baráttan kostaði þá stundum ær- una, og þeir unnu hana ekki aftur fyrr en á stund frelsisins), að bilið læfur minnkað, og í dag eigum við í Mihalic og Slamning glæsileg nútíma- skáld, menn, sem eru ekki aðeins sam- tímamenn okkar, sem erum fimmtíu ár- um á eftir öðrum Evrópuþjóðum, heldur einnig viðurkenndir heimsborgarar, og hafa unnið sér þegnrétt í hinum flókna skaldskaparheimi nútímans. Okkar kyn- slóð er sú fyrsta, sem hefur tekið hönd- um saman við aðrar Evrópuþjóðir: á meðal samtímaskálda okkar, svo sem f-nskra, skipa fulltrúar okkar ef til vill ekki háan sess, en þeir eru samt engin tímavilla, anachronismi, eins og sum fyrri tíma skáld okkar, sem voru hin glæsilega tímavilla. Ef til vill skynjum við ekki einung- is mátt hinnar óvenjulegu þróunar skáldskapar okkar síðustu fimmtíu árin, heldur einnig vissa þreytu, varfærni, minnkandi áhrif framúrstefnunnar, jafn vel einhvers konar úrræðaleysi í ev- rópskum bókmenntum, við skynjum sí- vaxandi afturhvarf til hefðarinnar eft- ir leiftursnögga og róstusama innrás inn á ókönnuð svæði hins nýstárlega. Kennileiti skáldskapar okkar, hin arf- genga tortryggni gagnvart öfgastefn- um, ættjarðarböndin, óttinn við að missa fótfestuna, allt þetta bendir til þess, að við höfum rétt fyrir okkur. Þýð. Bryndís Schram. Enn um Dalvísur í Lesbók hafa að undanförnu orðið nokkrar umræður um Dalvísur Jónasar. Vegna þessara skrifa finnst mér rétt sð birta hér grein séra Tómasar Hall- grímssonar á Völlum (1847—1901) um þetta efni, enda mun hún ekki mörgum kunn: birtist í III. árg. blaðsins Stefnis, bls. 88. „Foss sá, x) er Jónas kveður um, er í djúpu og skuggalegu gljúfragili í fjallinu fyrir ofan Steinsstaði. Foss þessi er talsvert hár og þverhníptur, og væri mjög fagur, ef vatnsmegin væri nóg, en það er eigi nema í leysingum. Öll önnur örnefni í kvæðinu voru og eru í Stein- staðalandi. „Góða skarð með grasahnoss" er í fjallinu beint upp undan Steins- staðabænum, og fór Jónas þangað stund um á uppvaxtarárum sínum til grasa, því að honum þótti þar fagurt um að litast, með systur sinni Rannveigu, er síðar varð húsfreyja á Steinsstöðum, því að þau unnust mjög. Hefir hún skýrt mér frá þessu, því að ég ólst upp hjá henni á Steinsstöðum, og mörgu fleira viðvíkjandi bróður sínum, og er það miklu áreiðanlegra en ýmislegt gambur þeirra manna, er þóttust vita, en vissu ekki. x) Þ.e. Gljúfrabúi. Kristmundur Bjarnason. 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 31. marz 1968

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.