Lesbók Morgunblaðsins - 10.08.1969, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 10.08.1969, Blaðsíða 13
Garðar Halldórsson: GEIMF3EÐ * % \ 4 % í goðra manna « L P 0 • L L M % 0 • o% o. • 03 £0* V 4° vf'« S 4 * *!ry £ íf ^ . A/ • 01, .© L® AT <í i J* rM i—I 5> a&* r q.'eni jctxÆj * -<4 4 %r’ v 4. v ^ <y v <H <D Í3D & 4 a v V, & . ° \. átam*, sem ár fram líði af fjöllum ofan og hringi sig milluitt heiðavatna“. Silfurlindinn, sem er „lagður hagiega með laufkvifcum enda, er blaktir tii á báða vegu“, hann minnir á „öidukvikt eyjabelti“, er „leikur við íslands öldnu strendur í svalri hafgolu 6 sumri miðju, er sölgáruð hrönn að sandi rennir gulltypptu iöðri geisla kvikut' Niðurhiutinn sameinast upp- hlutnum „sem iðjagraent grösugt sléttlendi með geirum þéttum sameinast dökkum dalahlíðum'". Og að síðustu er svo skreyt- ingin á pilsfaldinum „sem dögglituð á dags raorgni sólu mót af sunnanblæ hreyfð blá og gul valia- blóm á sumrum glitri um íslands grundir og fún“. Þannig mínnir sérhver eind þessa fagra búnings á fóstur- jörðina í sínu fegursta skrúðL IH. Ekki var það ætlunin að minnast svona rækilega allra þeirra ágætu listamanma, sem eiga Ijóð í umræddri bók, en því hef ég farið svo mörgum orðum um þessa elztu, að áður þekktum við svo lítið til þeirra. þótt þeir hafi verið okkur hug- leiknir, hver á sinn hátt. En að þessum þremur fráskildum höf- um við verið í persónúiegri snertingu við höfimda Lásta- mannaijóSa, virt fyrir okkur verk þeirra í söftium, skólum og öðrum opinberum bygging- um, í stofum kunningjanna eða á okkar eigin veggjum. Auk þess eru þeir svo persönulegir kunningjar okkar eða vinir. Það væri sannaTlega að fara í geit- arfeús að leita uliar, ef maður vildi fara að blaða í Ijóðum þeirra til þess að finna þar listaverk, sem stæðu framar eða jafnfætis þeim verkum, sem þeir hafa gert með peaisli eða meitli. Þó enu ekki alls staðar þær ómælisvíddir, að ekki imegi tengja í xnilli og fá nokkrar hliðstæður. Ég tek sem dæmi meistara meistaranna, Jóhannes Kjarval. Þött ég væri staddur meðal fegurstu málverka hans, Uði mér ekki ur mimni málverkið, sem hann gefur í Listamaima- ljóðum af stórtorotimni speglun Seyðisfjarðar: „Pjallhringsins tvöfalda tal togar skynsemd að upphafs- lindum. Hnjúkurínn sína fegurð ei fal, — sem firðinum lyftir á eigin síns tindum“. I blæbrigðum spegiunarinnar verður einn hrikalegur fjall- garður „sem ryðgað sverð út í himinsins heim“. Þá finnst mér þessi staka vera málverk, sem ekki líður úr minni: „Hátt við sólar æsku átt elds hjá ljósastjökum geisla móðir gengur hátt gulls á f jallabökum“. Og í mínum augum sveipast eins og helgiltn um öll hans listaverk þessar Ijóðlínur: „Eitthvað nýtt þú átt að finna endurgjaldið það er vinna ágóðinn verður átakið æðri köllun öllum þjóðum. Endurheimt úr jarðar sjóðum Aleiga þín er áræðið“. IV. Ef nútímamálarar okkar, sem kvæði eiga í listamannaljóðum, hefðu skilað kynslóð aldamót- anna síðustu þessum Ijóðum sín um, þá hefðu bókmenntamenn- irnir dæmt Kjarval siórbrotn- asta skáldið, en líklega hefði Ríkarður Jónsson notið mestr- ar alþýðuhylli. Eorsjónin bjó Bíkarð þess háttar listgáfu, að frá upphafi var hún ekki bund- in einstefnuakstri. Þegar ég sá Ríkarð í fyrsta sinn, og stðan hefur meira en háift hundrað ársóla gengið til viðar, þá söng hann bassa í tvísöng á móti Einari heitnum Indriðasyni Þá hafði ég aldregi fyrr heyrt þvílíkan bassa, djúpan oghrein an. Síðan þykist ég hafa spurt það með sanni, að í útlandinu hafi kunnáttumenn hvatt hann til að leggja inn á brautir þeirr- ar listar og talið, að þar myndi biða hans mikiil frami. Mér er fil efs, að vanmáttarkennd gagnvart viðfangsefninu liafi valdið því, að sú braut var ekki valin, eða ástleysi í garð þeirr- ar listgreinar. Hitt þætti mér líklegra, að þar hafi meiru valdið sterkari hneigð til sköp unar eigin verka en túlkunar annarra. Rikarður skóp sér þjöðfrægð fyrir meðhöndlan sina á trjáviði, grjóti og málm- um, og verk hans hlasa við veg- farendum almannaleiða víðsveg ar um land. Höggmyndalist og útskurður í tré eru þær grein- ar, sem hafið hafa nafn hans á loft, en hann hefur einnig kynnt listfengi sitt í formi lína og Ijósbrigða á pappa með rit- blýi og svartkrít, svo að vel muna þeir, er kynnzt hafa. Og svo yrkir Ríkarður ljóð. Það eru engin frammúrljóð. Hann fylgir meitluðum formum ís- lenzkrar Ijóðagerðar með sömu nákvæmni og öryggi sem hann væri að meitia líkan af vini sin- um. Hann seilist ekkert langt eftir yrkisefnum. Kvæðin hans í Listamannaljóðum eru fyrst og fremist tækifærislkvæði og ekki ætlað neitt sérstakt hlut- verk utan síns tækifæris. Hann yrkir til fagnaðarauka við álfa dans á Ðjúpavogi og fetar þar í fótspor hins ágæta Austfirð- ings Jóns Ólafssonar: „Tökum spirett ljúft og létt, ljóma slær á gjá, lengi brennur ástareldur álfun um hjá“. Þegar austfirzkir bændur koma hópferð til Suðurlands, þá flytur sá ágæti Austfirðing- ur Ríkarður Jónsson þeim ljóð á sjálfum Þingvelli við Öxará og lofsyngur þar íslenzka mold og íslenzk fjöll og þó sérstak- lega austantil á landinu, bví að þar er allt fremst, og svona langt gengur hann í Austfjarða- lofi sínu: „Og austfirzka þokan, er faðmar sín fjöll, er fegursta þokan á allri jörðu“. Svo viðheldur Ríkarður þeim þjóðlega sið að mæra gengna merkismenn í ljóði, og þar má sjá ófá nákvæm meitilförin í ætt við þau, sém við sjáum í högg- myndunum, sem hann hefur gert af samborgurum sínum. Það vissi ég fyrir nokkru, að Jón nokkur í Skjálg í Kolbeins- staðahreppi myndi lítt gleym- anlegur þeim er honum kynnt- ust. Hann var sóknarbarn og nágranni séra Áma Þórarins- sonar, var einn ágætasti vinur hans og kvaldi hann mest allra manna. Þessum manni kynntist Ríkarður persónulega og meitl- ar minningu hans í 60 ljóðlín- um, þar sem þessar er að finna meðal annarra: „Hreinskilni og hispursleysi helzt var ljóður þinn: það sem einna sízt má segja, er sannleiksþátturinn. Furða samt, hve fáa stungu fyndnu meinhornin“. Um þetta kvæði sagði séra Árni: Þetta er alveg heims- frægt kvæðL og þó að allir Snæfellmgar væru spyrtir saman á afturlöppunum og hengdir upp í eldhús og ættu að vinna sér það til lífs að gjöra eina einustu af þessum vísum, þá hefðu þeir fyrr orð- ið að láta drepa sig en að geta það. Og manni hafa orðið minn- isstæð ósnjallari vísuorð og myrkari en þessi, sem Ríkarður yrkir að séra Árna látnum: „Þó ég yrði þúsund ára, þekki ég aldrei slíkan mann“, og „þvílíkt líf og ljós og hiti leiftrar kringum fáa menn“. V. Með hverjum þeirra lista- manna, sem ljóð eiga í þessari bók, hef ég dvalið nokkra stund í góðu tómi, og ég hef notið þeirra stunda. Þegar við lesum Ijóð þessara manna, sem við þekkjum í gegnum iist þeirra eða persónuleg kynni eða hvort tveggja, þá finnum við slegið á hina margháttuðustu strengL — Hér rekst ég á vísu eftir Gunnfríði Jónsdóttur, sem hún segir orta á ferð til Guð- mundar frá Nesi i Selvogi: „Þá er ég vinar fer á fund, finn ég skjólið hverju sinni, þó ei sé nema stutta stimd, það styrkir mig í framtíðinni“, Gunnfríður hefur sjálfsagt kynnzt Guðmundi, þegar hun vann að listaverkinu sínu, sem stendur við Strandarkirkju sem tákn hins góða engils, sem breiðir út vængi á strönd hins mikla ólgusjávar lífsins og vm- ar leið gegnum brimgarða hörm unganna. Gunnfríður yrkir til Guðmundar frá Nesi, og það skil ég svo, að þá hafi hann verið fluttur til Reykjavíkur, þegar listakonan leggur leið sína til hans í leit að skjóli og styrk. Þá er Guðmundur hnig- inn að aldri, og blindur var hann síðustu ár ævinnar. En okkur, sem þekktum Guðmund persónulega, þennan einstæða bónda að gáfum og skapstyrk og bókfræði, þykja það ekki ótrúleg tíðindi, að fram til hinztu stundar hans hafi and- að frá honum styrkjandi straum um þeim til handa, sem leita skapfestu leitandi sálar, sem aldrei hefur látið bugast í bar- áttu lífsins. En slíkur var Guð- mundur, sem einu sinni hét Guð- mundur í Borgum í Hornafirði. — Guðmundur frá Miðdal yrk ir til skálds: „Þú ert eins og úthaf hinna eilífu storma, sem ekki veit sinn óþrjótandi mátt“. Hann yrkir líka mikið ásta- kvæði um drottningu hjarta síns: „Á ómælisleiðum allt var hljótt. Hvíldum við á skýjum þá ham- ingjunótt“. En svo: „Skilur okkur úthaf og skapanom reið. Drottning er nú engin á Dynskógaheið". — Og hér er Freymóður Jó- hannesson og elskar hana mömmu sína, eins og þegar við vorum saman í Gagnfræðaskól- anum á Akureyri fyrir 56 ár- um: „Og þegar blessuð sólin gegnum glugga, með geislum sinum strýkur vanga minn, mér finnst það vera hönd þín mig að hugga — og hjartað öðlast ró við barminn þinn“. — Listamennirnir hafa auga fyrir hversdagsfyrirbærum lífs ins. Ásgeir Bjamþórsson labb- ar niður heiðina og virðir fyr- ir sér sveitina, „þarna sem blessaður bóniinn búinu unir vel og þurrkar reifið af rollu á ryðgaðri sláttuvél“. — Ólafur Túbads reikar inni á eyðiheiðum: „allt er kyrrlátt, blítt og rótt farandsveini á förnum leiðum, fagra, ljúfa júlínótt.“ Við könnumst ósköp vel við tóninn. ólafur Túbals er alinn upp í Fljótshlíðiani eins og Þor steinn Erlingsson, og auðvitað hefur hann kunnað kvæðin hans um Fljótshlíöina orði til orðs sem og fleiri. Vissulega getum við með sanni sagt, að lítið fari fyrir sjálfstæði lærisveinsins gagnvart meistaranum í Ijóða- gerðinnL en rétt væri að vfir- vega í rólegheitum, hvaða þátt ást listmálarans á Ijóðum fyrir rennarans hefur átt í því að opna augu hans fyrir beirri fegurð, sem hann síðar festi á léreft með systkinum sínum til unaðarauka. Og það hygg ég raunar ókannað mál, hve mik- inn þátt ljóðagerð fyrri alda snillinga hefur átt í hinni miklu grósku í myndlist þessar ar aldar og hvar sjá mætti augijós merki þess. Þetta hygg ég að vera mætti merkilegt ranansóknairefm út af fyjir sig. VI. Ljóðlínur þær, sem ég hef vilnað til í þessu snjaili mínu, hafa allar verið gerðar að hefð bundnum kvæðaháttum íslenzk um. En ljóðform bessara Lista- maimaljóða er hið fjölbreyti- legasta. Það spannar allt frá fornvrðislagi og dróttkviðum til hringhendra ferskeytlna og oft FramhaW á bte. 15. lð. ágúsit 1969 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.