Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1970, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1970, Blaðsíða 11
 Gr ímsbæ j ar-lýsing Kristjáns Albertssonar Einn ág-ætur vinur Lcsbókar- innar þakkar fyrir nýlega birta þætti Asgeirs Jakobssonar, „f jörlega samda lofgerð um hina miklu menningarborg og bjór- paradis, Grímsbæ á Englandi“. Þar sé því fagurlega lýst hve íbúar lians neyti mikils af hin- um „mjög heilnæma drykk“, og því haldið fram, að „bjórieys- ið“ muni vera ein af ástæðum þess, að við fslendingar séum Iivergi nærri eins hraustlegir út lits og nágrannaþjóðir okkar. En vinur Lesbókarinnar bend ir jafnframt á, að sínum augum líti hver á silfrið, að til sé í bók menntum okkar lýsing sem vafa lítið eigi við Grímsbæ, þar sem kveði við annan tón, og spyr hvort ekki geti verið fróðlegt að prenta hana upp til saman- burðar. Þessa lýsingu sé að finna í ritgerð eftir Kristján Albertsson frá 1951 Vinur vor er þeirrar skoðun- ar, að Grímsbær sé einmitt mjög merkilegt umhugsunarefni fyrir Ég gekk einu sinni fyrir mörgum árum lengi dags um göturnar í enskum hafnarbæ, og horfði á hvem mann sem ég mætti, og mér virtist þorrinn vera niðjar margra kynslóða af drykkjumönnum. Ég hugsaði til hins sívaxandi ófrýnilega drykkjuskapar í annarri hafn- ar- og fiskimannaborg, Reykja- vik við Kollafjörð — bænum sem við erum að vona að verði með nokkrum sóma höfuðsetur íslenzkrar menningar, þar sem fegurst sé lifað á Islandi. Gat það hugsazt að svona fólk ætti eftir að byggja Reykjavík eftir nokkra mannsaldra? fslendinga, vegna þess að enn sé deilt um livort æskilegt sé að Ieyfa hér neyzlu á sterku öii, og liverjar afleiðingar það kunni að liafa. Telji margir að „liið fremur bjánalega, sífellda gosdrykkjaþamb æskunnar, í tíma og ótíma“ muni þá að miklu leyti breytast í bjór- þamb, og sé nauðsynlegt að ýmis fræðsla hjálpi þjóðinni að glöggva sig á því, hvort líklegt sé, að þau umskipti myndu horfa tii heilia. Kristján Albertsson staðfest- ir, að í lýsingu sinni sé átt við Grímsbæ. Hann liafi dvalið þar mikinn liiuta úr degi árið 1928, gengið fram og aftur um hafn- argöturnar og alþýðuhverfin, en að kvöldi krotað niður hvernig honum kom bærinu fyr ir sjónir, og síðar fellt minnis- blað sitt inn í grein, þar sem hann m.a. talar um áfengisböl- ið á f slandi. Lýsing lians á Grímsbæ fer liér á eftir. Megnið af þessu fólki var eins og útslitið frá blautu barns beini, vesalingar á vöxt og svip frá móðurlífi, andlitin óbragð- leg og hrukkótt þegar á unga 1 aldri, og hið sligaða þrek virt- ist herða sig upp til vinnu af gömlum vana, og af þörf fyrir bjór og tóbak. Flestir voru hoknir og flatbrjósta, allur fjöldinn auk þess eitthvað bækl aður, kubbað framan af nefi, djúp hola inn I háls eða kjálka, margir skekktir í vexti eða halt ir. Og flestir voru skítugir hátt og lágt, margir i rifnum fötum, svo að skein í nærklæðin eða bert holdið, algengasti liturinn á spjörunum spansgræna eða gljái á svartri skán á olnboga eða húfuderi. Kvenfólkið var yfirleitt tætu legt og subbulegt — ein stór sýning á öllum hugsanlegum fyr irbrigðum kvenlegs ógeðsleika: Skvapaðar, magamiklar, ósæl- legar konur, með rautt áfengis- nef yfir tannlitlum munni, visn- ar, renglulegar stúlkur, með þunnar, gular kinnar og sljó augu, luralegar, slæptar, óhrein ar, ekki vottur af tilhaldi. Fólk sem hefur staðnæmzt á neðsta þrepi margra alda áfengisúr- kynjunar, og virðist vanta þrek til að geta þokað sér upp á við. Nær önnur hver kona með ung barn á armi og dálítinn uppvax andi hóp i eftirdragi — ellileg, hrukkótt börn, veikluleg, föl, hás, hóstandi, svartkámuð í framan, með hortauma niður á varir og drulluga fingur uppi í sér — allt án þess að mæðrun- um fyndist ástæða til að skipta sér af því. Sumar þeirra voru auðsæilega undir áhrifum áfeng is. En eins ber líka að geta — ég leit inn á margar knæpur þetta kvöld, og sá hvergi neinn mann haga sér illa. Þetta var friðsamlegt, rólynt og lágmælt fólk, öll framkoma þess gerólík þeim brjálæðislega rosabrag, sem alltof oft er á Islending- um við vín. Það leyndi sér ekki að hin gamla, fagra hegðunar- menning Bretans náði til hins smæsta og aumasta af þessu gæfulitla fólki. Og ef maður spurði barn eða fullorðinn til vegar, kom svarið með þeirri ljúfmennsku, þeirri „kindness", sem er tíðast einkenni brezkra augna og brezkra brosa. (Kristján Albertsson: í gr6- andanum (1955), ritgerðir og ræður, bls. 251—252). ekki raunin á. Nú virðist „hnefarétturinn“ aftur vera farinn að vinna á í voru landi og að vísu í mörgum öðrum svokölluðum menningarríkj- um. Með samtökum nokkurra borgara — kjósenda — eru atvinnutœki stöðvuð, ef á- stœða þykir til að lagfæra kaup, afurðaverð eða vinnu- tíma fáeinna manna, sem við þau vinna. HANDHAFAR FAST- EIGNA, húsa og lóða, sem tal in eru standa í vegi fyrir sam- þykktum skipulags bœjar- eða sveitarfélaga, hafa i sí- fellt fleiri tilvikum neitað að hlíta mati þeirra manna, sem kjörnir hafa verið til þess að verðleggja þessar eignir þrátt fyrir möguleika til áfrýjunar 'til yfirmatsnefndar og að því er vir&ist mjög svo sann- gjarnra skaðabóta (ef hœgt er að nota það orð) og þar með staðið í vegi fyrir eða tor- veldað nauðsynlegar fram- kvæmdir til skaða viðkom- andi byggðarlagi. Þó hefur hnefarétturinn, eða beinar hernaðaraðgerðir lítt komið við sögu til skamms tíma, ef undanskilin eru smá uppþot, sem almennt liafa verið kennd við síðhœrða drengi og aðra óráðna ungl- inga. NÚ HEFUR AFTUR Á MÓTI verið brotið blað í sög- unni og hið forna handalög- mál tekið upp, ekki af œstum unglingum, heldur ráðsettum bændum og héraðshöfðingj- um, og mannvirki, sem kost- að hefur verið til stórfé bók- staflega eyðilögð með her- valdi. HVORT ÞINGEYSKIR BÆNDUR eiga að fá fleiri eða fœrri milljónir fyrir land- spjöll á jörðum sínum en þeim hafa verið boðnar, skal hér enginn dómur lagður á, en verknaður þeirra minnir meira á víkingaöld fyrstu byggðar fslands en rólega íhugun og félagshyggju tutt- ugustu aldarinnar. ÞVÍ MIÐUR VIRÐAST MARGIR, sem engra hags- muna eiga að gæta í þessari hatrömmu deilu milli þing- eyskra bœnda og Rafveitu Akureyrar og/eða Landsvirkj unarinnar, hafa mikla samúð með þessum hermdarverkum og telja þau eðlileg og jafn- vel sjálfsögð. EF ÞESSAR AÐGERÐIR verða dœmdar réttlœtanlegar til þess að ná settu marki, hvort sem það hefúr verið sett til þess að friða sérkenni- legt land eða af öðrum hvöt- um, virðist, að við getum átt von á ýmstim voveiflegum að- gerðum í nœstu framtíð. — G.Þ. 4. ofctóiber H970 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.