Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1973, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1973, Blaðsíða 13
Vinsælasta viðfangsefnið: Jólasveinn og jólatré. Teiknað hefur Auður f Björg, 8 ára, Hraunbæ 136, Reykjavík. Tiltölulega mjög fáar teikningar bárust af fæðingu Jesú í Bethlehem, en þeim mun fleiri af jólasveinunum og tveimur þjóðlegum persónum: Grílu og Leppalúða. Jólasveinn eftir Ólaf Þ. Gunnarsson, 8 ára, Giljum Mýrdal, Vestur Skaftafellssýslu. BOMIN TOIfflí OG SKRIFA Þessi ægilega skepna er jóla- kötturinn og vonandi fer eng- inn i hann á þessum jólum. Teiknað hefur Erika Lind ísaksen, 5 ára, Gauksstöðum i Garði. í skýringu með myndinni segir teiknarinn, Hallfriður Blöndal, 12ára, Búlandi 11 í Reykjavík, að þetta séu Gríla gamla og Leppalúði fyrir framan hellinn sinn. 0 Hér er mikil fantasía á ferð- inni: Víkingaskip og einkennilegir fiskar. Teiknað hefur Fjölnir Geir Bragason, Ásgarði 105, Reykjavík._—, Hjá tannlækninum EINU sinni var lítil stelpa. Hún var með tannpínu. Hún fór til tannlæknis, en tann- læknirinn var sjálfur með tannpínu. Litla stelpan átti að setjast í stólinn. Þegar tann- læknirinn fór að ná f borinn fékk hann svo mikinn verk að það láku tár úr augunum á honum. Þá sagði litla stelpan: Sestu í stólinn, ég skal bora í þína tönn svo þér batni tannpínan. Svo settist tannlæknirinn í stólinn og litla stelpan boraði og boraði alla karíusana og baktusana úr tönninni. Svo setti hún steypu i holuna, þá batnaði tannlækninum. Svo fór hann að bora í tönnina á stelpunni, hann boraði og boraði, svo setti hann steypu í holuna. Hvað kostar þetta sagði stelpan? Ekkert sagði tannlæknirinn, af því þú gerðir svo vel við mína tönn. Svo fór hún heim og burstaði vel tennurnar oft á dag. Ari Eyberg Sagan um köttinn og risann Einu sinni var risi, sem átti stóran bát. Þegar hann fór einn dag út að sigla, þá brotnaði bátur- inn í tvennt. Aumingja ris- inn datt í sjóinn og sökk á bólakaf og sökk niður á hafsbotn. Þegar hann opnaði augun, þá sá hann kött. Þá hrópaði hann: „Þetta er einmitt það sem mig vantar. Ég er alltaf svo einmana. Nú verðum við tveir í hellinum mínum á jólunum." „Mjá," sagði kisa. Svo stóð risinn upp og óð í land með kisu. Svo löbb- uðu þeir tveir heim í hellinn. Þórarinn Sveinsson, 6ára, Eiðum. Auður Guðrún Eyjólfsdóttir 11 ára, Bólstaðarhlið 60, Reykjavík. joi-A k '6t rtifmnv Jólasveinninn kemur brátt opnar gluggann upp á gátt Eitthvað gott í skóinn þinn eins og kannski brjóstsykurinn alltaf skaltu vera hlýðin annars færðu ekkert gott því jplasveinn þá heldur brott. Hanna Jónsdóttir 11 ára. Brátt líður aS jólunum, þá verSur frí í skólunum. Það verður kátt og gaman, þá verða allir saman. Við göngum kringum jólatréð Og höfum öll í pakkana séð. Við borðum góðan jólamat, mamma ber inn stærðar fat. Nú eru jólin \ garðin gengin. Allir fá þá eitthvað nýtt. Þá verða líka allir glaðir. Því að þá fæddist Jesú. Þetta er víst atóm-ljóð. Margrét B. Jóhannesd. Á þessari skemmtilegu mynd sjást jólasveinar, sem Una Margrét, 7 ára, nefnir ekki hvar hún á heima. ofan komu af fjöllunum, en höfundurinn. Jólasveinar af fjöllum renna með gjafir á öxlunum, enda eru þeirekki nízkir. Þeirhafa stóran poka sem þeir geyma gullin í. Eitthvað hafa þeir börnum að segja frá. Hrafn Jökulsson, 8 ára. Skyrgámur er ekki árennilegur. Hann er eftir Hrafnkel Guðnason, 6 ára, Öldugötu 27. Reykjavik. Bílarnir þrír EINU sinni var lítiil drengur. Hann fór út í búð. Hvað ætlar þú að fá sagði búðarkonan. Ég ætla aðfá bil, voða, voða stóran, sem er eins stór og risi. Hann er ekki til sagði búðarkonan. Þá fór hann í næstu búð. Ég ætla að fá bil, sagði hann við búðarkonuna. Hann á að vera stór eins og skessa, er hann til? Nei, væni, hann er ekki til sagði búðarkonan. Strákurinn fór í aðra buð. Hvað er það fyrir þig? sagði búðar konan. Ég ætla að fá bil sem er litill eins og fluga, er hann til? sagði strákurinn. Nei, því miður, kannski hann sé til í útlöndum. En áttu bíl, sem er eins stór og risi eða skessa? Nei, en kannski eru þeir til í útlöndum, sagði búðarkonan. Þá fékk litli Vitringar frá Austurlöndum færa jólabarninu gjafir. Teiknað hefurjón Kári, 8 ára, Klettahrauni 19, Hafnarfirði. strákurinn sér bát og sigldi til útlanda. Svo kom hann heim með þrjá bila til að sýna mömmu sinni og pabba og systur sinni. Þá voru jólin að koma og hann gaf öllum bömunum i bænum jóla- gjafir. Hann keyrði bilinn sem var stór eins og risi. í bílnum sem var stór eins og skessa voru allir jólapakkarnir. Það var mikil hrúga, þaðvartroð- fullur bíll. En litli bíllinn sem var lítill eins og fluga fékk að vera ofan á öllum pökkunum og hann sá best öll jólaljósin. ARI EYBERG 6 ára, Æsufelli 2, Reykjavík. Gömul jól og ný jól kallar höfundurinn þessa mynd. höfundurinn Ragnheiður dóttir, er 1 heima á 14 í Ljc&ié /oc|d<; /jö-S bivtu f.il

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.