Lesbók Morgunblaðsins - 12.01.1980, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 12.01.1980, Blaðsíða 11
Ástin lengir lífið Þaö sem meðal ungs fólks er taliö bera vott um lífsgleði, er tíðum litiö á sem ellimerki eöa kölkun hjá þeim, sem farnir eru aö eldast, löngun þeirra og leit eftir ást og blíöu skoöuö sem einhvers konar óeöli. Samdráttur milli roskins fólks, ástaratlot, sem geta leitt til kynlífs, þykir á þessum tímum æskudýrkun- ar og eftirlátsemi við ungt fólk vera „ósiösamlegt" og „ósæmilegt" at- hæfi eöa fyrirbæri. Og fólki, sem hætt er aö vinna fyrir aldurs sakir og skilar því ekki lengur neinum afköst- um í samfélaginu, er gjarnt aö halda, aö þaö geti heldur ekki gert kröfu til þess aö njóta ástalífs eins og fólk í fullu fjöri. Um þaö eru kvenlæknar og elli- fræðingar um allan heim sammála, aö „sá lifi lengur, sem lengi elskar" eða aö ástin lengi lífið. Dr. Josef Böger segir í leiöbeiningariti sínu, „Aö eldast með gát“: „Þó aö kynlíf dvíni eöa hætti á efri árum, helzt þó þörfin á ástarsambandi. Aö auðsýna ástarhót og njóta er vörn gegn einsemd og ótímabærri líkamshrörn- un.“ Eöa meö öörum orðum: Ástin þekkir engan eftirlaunaaidur. Amélie von ta Hausse, sem í 44 ár hefur veitt forstööu einni af virtustu hjónabandsmiölunum í Bæjaralandi, þekkir vel vandamál einstæöra og einmana kvenna í efri aldursflokkum. (í Vestur-Þýzkalandi eru nú yfir 4 milljónir ekkna.) Hin menntaöa og fágaöa kona snýst öndverö gegn því, aö 55—60 ára gamlar konur séu dæmdar gamlar í orðsins eiginlegu merkingu. „Sumar konur hjá okkur eru 70 til 75 ára,“ segir hún hreykin og hróðug, „og flestar þeirra leggja á þaö ríka áherzlu, aö hinn væntanlegi maki þeirra hafi áhuga á kynlífi." Frú Amélie veit, hvað hún syngur og getur sagt af eigin reynslu, aö margir karlmenn girníst sér eldri konur. „Sjálf hef ég kynnzt manni, sem er 18 árum yngri en ég. Hann kom fyrir tveimur árum á skrifstofu mína, og tveim dögum síðar birtist hann aftur meö stóran rósavönd. Þá kviknaöi eldur,“ segir hún Ijómandi, „og hann brennur enn. Er þaö ekki dásamlegt? Er það ekki eins og kvæöi? Hann segir, aö ég sé fyrsta konan, sem hafi haft svo kynæsandi áhrif á sig. Ég er svo hamingjusöm — aö öllu leyti." Aö kynlíf skyldi um aldir aöeins vera umboriö frá sjónarmiði æxlun- ar, stuölar vissulega aö hinni fjand- samlegu afstööu gagnvart kynlífi, sem giröir fyrir þaö, aö margar rosknar konur fái notiö ævikvöldsins í sátt viö lífið. Og fyrir konu, sem af börnum og barnabörnum er aðeins kölluö „amrna" meö tilheyrandi tón, er þaö harla erfitt aö finna fullnægj- andi samband tveggja manneskja, þar sem hún er frú eða kona, en ekki lengur amma. Astfangin amma er fyrir umheim- inum í bezta falli broslegt fyrirbæri, þó aö allir þrái ástúö og öryggi í ellinni, þegar hættan á einsemd er svo mikil. Og meira aö segja Henry Miller, hinn mikli gamli maður amerískra kynlífsbókmennta, sem fjallaö hefur um þetta vandamál bæöi fræðilega og af eigin raun í áratugi, saknar orösins „ástar“ nú á dögum. Hinn 87 ára gamli rithöfundur lætur þessi orö falla í hinu íburöarmikla húsi sínu viö Kyrrahafsströnd: „Menn rannsaka kynlífiö, en gleyma um leið ástinni." Og um leiö strýkur hann blítt vanga hinnar 31 árs gömlu konu sinnar, Brendu Venus. Roskni maöurinn og unga konan er hið sígilda tilbrigði ástarsam- banda, sem samfélagið hefur um- boriö. Sjáum Curd Jiirgens og Mar- gie Schmitz, Stavros Niarchos og Ferial prinsessu, Charlie Chaplin og Oona O’Neill. Annars vegar lífs- reynsla karlmannsins, hins vegar æska og fegurö. En þaö sem hinum venjulega manni er lagt til lasts, eru frægir menn oft virtir fyrir. Einn er sagöur vera orðinn hálfvitlaus fyrir hiö sama og öörum er hælt fyrir. í samfélagi okkar er litiö á mjög misjafnan hátt á slík sambönd sem þessi — hin Framhald á hls. 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.