Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1981, Side 11
V - Ȓi'*
Eitt beittasta vopniö í baráttunni við Japani á að vera þessi Chevrolet
Cavalier — og til samanburöar er erkióvinurinn, Toyota Corolla. í
fljótu bragði mætti halda, að hér væri einn og sami bíllinn.
hafa talsvert lengra milli fram- og afturhjóla
en tíökast á jafn stórum japönskum bíl,
fæst meiri mýkt og hreyfingarnar veröa
líkari því sem gerist í stórum bíl en smáum.
Viöbragöið er mjög höflegt, liölega 15 sek í
hundraöiö, en á móti fær eigandinn þá
yfirburði, sem framhjóladrif hefur í snjó og
hálku. Hvort þetta dugar til aö hressa viö
minnkandi sölu, á eftir aö koma í Ijós. Þar
kemur ýmislegt fleira við sögu, háir vextir
til dæmis. Bandaríkjamenn eru vanir því aö
kaupa sér nýjan bíl meö lítilli útborgun, en
þegar vextirnir eru komnir yfir 20%, eru
menn ekki lengur áfjáöir í lán.
Hafi nú einhver hér hug á aö panta
þennan grip, þá verður aö segja þau
ótíöindi í leiöinni, aö hann fæst ekki til
útflutnings í eitt eöa tvö ár. Fyrst á aö vinna
Japani á heimavígstöðvunum áöur en fariö
veröur aö flytja út. Veröiö í Bandaríkjunum
er 6500—7000 dalir og þaö samsvarar víst
175 þús. nýkrónum. Sem sagt, nokkuð dýr
bíll, en ef til vill yrði útflutningsveröiö
lægra. Þaö er þó óþarft umhugsunarefni á
meðan hann fæst ekki. GS
Haldið verður áfram að framleiða
Monte Carlo, Pontiac Grand Prix,
Oldsmobile Cutlass og Buick Regal
árið 1982 eins og þeir eru núna. Þeir
heita einu nafni A-special. Að ööru
leyti veröur þessum sömu tegund-
um breytt; þeir minnka og fá allir
framhjóladrif og munu líta út eitt-
hvað svipað þeim Oldsmobile, sem
sést á teikningunni.
bílar eru meö framhjóladrifi og fjögurra
strokka vél. Þaö hafa þeir vestra einnig
lært af Japönum aö hafa hina venjulegu
útfærslu betur búna en tíökast hefur.
Útlitið er nú fyrst og fremst evrópskt, en
útfærslan eins og tíðkast hefur meö þrennu
móti: Meö skotti, skutbyggingu eöa sveigö-
ir niöur aö aftan og þá hurö á afturenda.
Þegar hinn nýi Chevrolet Cavalier var
kynntur, fóru talsmenn General Motors
ekkert dult meö, aö honum væri stefnt
beint gegn innfluttum bílum. Þaö vakti
athygli, aö hann var svo til nákvæmlega
jafn stór og Toyota Corolla, sem hefur selzt
í ótrúlegu magni í Bandaríkjunum. Og ekki
aöeins það: Cavalier er í aöalatriöum
hannaöur á nákvæmlega sama hátt:
tveggja dyra og þar aö auki opnast öll
afturrúöan. En gagnstætt því aö Toyotan
er meö afturhjóladrifi og frekar gamaldags
í tæknilegum efnum, er Cavalier meö
framhjóladrifi og sneisafullur af tækni-
legum nýjungum, sem GM hefur veriö aö
þróa uppá síðkastiö. Samkvæmt ættfræði-
bókinni byrjaði þessi bíll sem Opel Kadett í
Þýzkalandi, síöan varö til Chevrolet Vega,
þá Chevette og að lokum Monza. Meö
smábreytingu á honum í útliti og gerbreyt-
ingu í tækni, hefur þessi nýi Cavalier oröið
til og bandarísk bílablöö eru á þeirri
skoðun, að hann sé trompiö á hendi
gagnvart þeim japönsku og öörum innflutt-
um bílum til Bandaríkjanna. Nú er allt fínt
og fágaö að innan, mælaborð mjög vel
hugsað og útfært og sömuleiðis sætin. Hin
kunnu amerísku þægindi eru líka öll fyrlr
hendi ef maöur vill: Kælibúnaöur, veltistýri,
sjálfskipting, AM/FM stereó-útvarp,
sportfjöörun meö fljótvirkara stýri og aö
sjálfsögöu aflhemlar- og stýri. Meö því aö
Nýrogstyttri
EAGLE
Jeppi og vel búinn fólksbíll
undir einu þaki
Varla fer á milli mála, aö íslendingar
eru þjóö meö sérþarfir, þegar bílar eru
annarsvegar. Meiriparturinn af þeim
bílum, sem nú um stundir flytjast til
landsins, eiga harla lítiö erindi á misjafna
malarvegi, enda margir bíleigendur á
höfuðborgarsvæðinu, sem foröast aö
fara á þeim út af malbikinu. Stór hluti
landsmanna á því miður ekki því aö
fagna aö geta daglega ekiö á vegum
meö bundnu slitlagi. Og fyrir daglega
brúkun á meira og minna holóttum
vegum, þarf æöi sterka bíla, sem þar að
auki mega ekki vera of lágir. Jeppar
ýmiskonar hafa verið algengasti kostur-
inn, en lengi hefur menn dreymt um bíl,
sem sameinaöi kosti lúxusbíls og jeppa;
væri meö drif á öllum, kæmist yfir
ófærur á sama hátt og jeppar, en aö
ööru leyti búinn þægindum vandaðra
fólksbíla.
Nokkrir framleiðendur hafa reynt aö
koma til móts viö þessar óskir. Wagon-
eer-jeppinn frá American Motors Comp-
any hefur þótt sameina þetta aö ein-
hverju marki, en er þó fyrst og fremst af
jeppaættinni. Sá japanski Subaru hefur
náö mikilli útbreiöslu hér á landi og
viröist í fljótu bragöi sæmilegur kostur.
En þegar betur er aö gáö er talsvert
lægra undir hann en venjulegan jeppa
og hann er afskaplega mikiö fjarri því að
vera eins ánægjulegur í akstri og
virkilega góöur fólksbíll. Þetta er mála-
miðlun, sem er góö og gild við ákveðnar
aöstæöur, en nær engan veginn því
markmiöi aö sameina jeppa og góöan
fólksbíl.
Sá sem hingað til hefur komizt
langsamlega lengst í þessu efni er
Örninn frá American Motors — Eagle
eins og hann heitir af hálfu framleiöand-
ans. Samkvæmt Revue Automobile, sem
er áreiðanleg uppsláttarbók, eru 20 cm
undir lægsta punkt á honum, en 18,5 á
Blazer og 20 á Ford Bronco, 20 á
Willies-jeppanum og 20 á Wagoneer. En
einn þessara bíla er Eagle innréttaöur
eins og velbúinn fólksbíll — í þessu
tilfelli eins og Concord frá AM, sem hann
er aö verulegu leyti byggöur á. Meö
sjálfskiptingunni finnst harla lítill munur
á aö aka Eagle og ámóta ameriskum
fólksbílum, nema hvaö hann liggur eins
og hann sé límdur niöur. En hann er
hljóöur eins og hinir, ágætlega mjúkur á
fjöörum og vinnur vel. Hægt hefur veriö
aö fá hann meö 4 strokka, 88 hestafla
vél, eða 6 strokka, 116 hestafla; kannski
álitlegri kostur fyrir bíl sem er 1455—
1485 kg.
Minni vélin er talin eyða 12—17 lítrum
á hundraðið, en sú stærri 13—22.
Þear talað er um hæð undir lægsta
punkt, þá segir þaö ekki alla söguna.
Miklu máli skiptir, hversu langt er milli
hjóla. Willies-jeppinn hefur haft yfirburði
í torfæruakstri vegna þess hve stutt er
þar á milli fram- og afturhjóla. Á
upphaflegu gerðinni af Eagle var nokkuö
langt á milli hjóla, sem takmarkaöi getu
bílsins á torfærum. Nú er aftur á móti
komin til skjalanna minni gerö af Eagle
— bæöi Eagle sedan, sem er fjögurra
dyra og einnig tveggja dyra útgáfa, sem
er styttri — og þá einnig styttra á milli
hjóla. Þegar svo er háttaö, hættir bílnum
aö vísu til aö hoppa á holóttum vegi líkt
og smábílar gera og styttingin hefur ekki
kosti nema á torfærum og svo til að létta
hann og minnka þannig bepsíneyðslu.
Stærri geröin er aftur á móti líkleg til aö
taka holótta vegi betur, en óhætt er aö
slá því föstu, að meö Eagle hefur tekizt
aö framleiöa farartæki, sem hentar
íslenzkum vegum vel.