Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1986, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1986, Blaðsíða 11
'IléRTú? til &.cfip5tá féíag^ymjlis og fá aridlegfl ■ uppðrvun, ég'éitt aðaleinkenni borgfafmenn- ingarinnar. Það vitnar' um upprunalegan opinn kraft hennar, sem er í vissri andstöðu við lokaðan heim þorpsins, sem mætir því sem kemur að utan, með varkárni ef ekki andúð. ÞORPIÐ MÓÐURRÍKI Á öldunum kringum lok ísaldar, hafði þróast jarðyrkjumenning í fijósömum dölum og ósum stórfljótanna í Litluasíu og Indlandi og allt austur til Kína. Með föstum bústað og jarðyrkju virðist hafa orðið kynbylting, sem færir stjórnina frá hinum veiðandi karlmanni í hendur konunnar, sem hneigist að afkvæmi sínu og annast allt ungt. Hér munu hæfileikar konunnar, umhyggja og alúð fyrir því sem vex hafa gefið henni aðalhlutverk þessa menningarskeiðs. Konan meðhöndlaði prik og haka, annaðist garðinn, skapaði meistaraverk í ræktun og krossun jurta, breytti villtum • sortum í fijósamar næringarríkar tegundir. Hún þróaði fyrstu ílátin, fléttaði körfur, gerði fyrstu leirkerin. Þorpinu gaf hún form sitt, því hvað annað sem þorpið gat verið, var það allavega hreiður hópsins, fyrir uppeldi og umönnun ungviðisins. Hér var tími barnanna til að leika áhyggjulausu lífi lengur, sem var svo þýðingarmikill fyrir frekari þróun mannsins. Þorpið skapaði nágrannann, sem er eins og Herodót lýsir „fljótur til hjálpar, vakir með þeim sem eru illa haldnir, samgleðst í brúðkaupi og við fæðingu". Þessi samstaða og viðhorf innan samfélagsins er grundvöll- ur að heilbrigðri þróun einstaklingsins. Það sem við köllum „moral“ kemur frá „mores" þörf til að breyta lífsháttum sínum. Móðurmenning þorpsins á yngri steinöld, fyrir fimm til tíu þúsund árum, er ekki frumstig borgarinnar, þorpið ekki upphafið að borginni, þvert á móti, að vísu verða vissir þættir úr menningu þorpsins til að hjálpa til við tilkomu borgarinnar, og ýmsir siðir og venjur þorpsins yfirfærðust á menn- ingu borgarinnar. Borg eða þorp er ekki spuming um magn eða umfang. Við þekkjum þorp með tíuþús- und íbúum og borgir með fimm þúsund íbú- um. Munurinn liggur á gjörólíku inntaki menningarinnar. Garðyrkjumenning steinaldarþorpsins, myndaði vistfræðilegan hring, markaðan af því sem náttúran gaf af sér, háð frjósömum svæðum. Þess vegna fínnum við fyrstu ummerki um þorpin í fijósömum dölum og ósum stórfljótanna í Indlandi og Litluasíu. Lífið er hringrás fæðingar og dauða, öflun og trygging næringar, fijósemi og fróvgun, umönnun og vemdun lífsins. Samfélagið styðst við einföldustu verkfæri og ílát. Þetta menningarform hafði náð vissri fullkomnun, sem fullnægði öllum frumþörf- um mannsins, tryggði honum næringu og vernd, fijósemi og gleði samfélagsins. Hver Höll Sargons II í Khorsabad. Teikningfrá 19. öld. Standmyndir við Lúxor í Egyptalandi. sem þýðir lífsviðhaldandi siður þorpsins. Ef þessi upprunalegu bönd bresta verður úr „við“, villtur hópur af „égurn" og öll önnur bönd verða of veik til að hindra sundrun hins borgaralega samfélags. Regla og stöð- ugleiki þorpsins og móðurleg vemd yfír- færðist á borgina, og þó hún hafí glatast í útbreiðslu hennar má þó enn finna hana í samfélagi nágrannanna. Tilvera konunnar skín í gegn í þorpinu ekki síst í ytri mynd þess. Vemdandi garður eða gerði umhverfis þropið sem sumir vilja gefa djúpa merkingu. Næring, umhyggja og öryggi em eiginleikar og verk konunnar, sem birtist alls staðar í þorpinu við hús og komgeymslu við búr og bmnn. í egypsku grafletri getur táknið „borg“ eða „hús“ líka staðið fyrir „móðir“. Þannig em hinar uppmnalegu byggingar þorpsins hringlaga og hvelftar, eins og fyrsta skálin sem samkvæmt grískri goðsögn, var mótuð eftir bijósti Afrodites. Frá sögulegum tíma er pallus og Vúlfa þýðingarmikil í töfra- og fijósemissiðum þorpsins. í öðm formi birtast þau okkur síðar í borginni, sem obeliskar • og súlur, turnar og hvelfingar. í miðju garða sinna myndar þorpið nýtt form tilvem mannsins. Nýtt samfélag manna, dýra og plantna sem á allt rætur í bújörðinni. Atburðir dagsins em viðhald og endumýjun lífsins, næring og fróvgun. Hver íbúi þorpsins er heill maður, gerir öll störf sem henta aldri hans, þar á meðal andleg störf og helg. Maðurinn á ekki jörðina, sem hann býr á heldur er hluti af henni. Svo lengi sem umferð á vatni var ekki þróuð, myndaðist heimur út af fyrir sig í þorpinu. Syfjulegur hugur og sjálfspeglun urðu kannski frekar til þess en ytri hindranir. Þessi einangrun var þó aldrei algjör, því stundum var nauðsynlegt að fara og fá lánuð verkfæri eða að fanga brúði. Hugsjón þorps- ins var eins og Lao-Tse lýsir löngu seinna „að njóta næringar sinnar, vera stoltur af sparifötunum sínum og gleðjast yfir siðum þorþsins, þá geta þeir lifað í sjónmáli við næsta þorp heyrt hana þeirra gala, samt orðið gammlir og dáið án þess að hafa heimsótt hvern annan.“ Þannig gat þorpið orðið til og vaxið án þess að fínna hjá sér og einn íbúi var fullur þátttakandi í menn- ingu sinni, lifði í líkamlegri, félagslegri og andlegri vídd hennar. Þetta samfélag studd- ist aðeins við einföldustu hluti, og þróaði menningu sem var innhverf, þ.e. átti sér stað innra með manninum. Það er því ekki að undra að innhverf menning, viska og speki er að mestu upprunnin, og enn fyrir hendi á svæðum hinnar upprunalegu garð- ménningar;áT lridlándi: 'Þar hefur'.mennipg : ; án hluta, sém ijýggir þróuií si'na á inrihverfu sem mundar í djúphyggju og tendrun verið ræktuð, og tekist að vernda hana fyrir stormsveipi borgarmenningarinnar. Inntak þessarar menningar er borgarmenningunni sem hulin bók. Þróunarleið og möguleikar þessarar menningar sömuleiðis. Við vitum því ekki hver lífræn þróun mannsins hefði orðið og yrði í framtíðinni, ef mannkynið hefði valið þennan menningar- veg. Þess vegna vitum við ekki hvaða möguleikar hefðu opnast slíkri menningu. En þroski og vitund hefur borist okkur með síðbúnum blómum þessa menningarforms (gúrus). Það urðu hinsvegar ekki örlög mannkynsins að fara þennan menningarveg, því það valdi borgarmenninguna. Borgar- menningin fer aðra leið, hún finnur inntak sitt í því að breyta umhverfinu. Upphaf Borgarinnar Borgarmenningin varð til að ijúfa sjálf- speglandi draum þorpsins. Inntak þessarar nýju menningar er í andstöðu við menningu þorpsins, sem var innhverf og byggði allt sitt á næringu, fijósemi og siðum þorpsins. Andstætt þessu er borgin vaxin af hugar- heimi mannsins, og er efnisleg mynd hans. Borgin samstillir alla krafta við að færa hugarlíf mannsins yfir í efnisveruleikann. Borgin breytir umhverfinu. f upphafi borg- arinnar hverfur valdið úr höndum móðurinn- ar til föðurins. Nú var ekkert því til fyrirstöðu að hóa saman fólki úr görðum hinna fijósömu dala og þvinga það til vinnu að verkefnum borg- arinnar. Ekki aðeins til að reisa stíflugarða og grafa fyrir áveitum til að auka afköst borgarinnar heldur og að færa hugarheima mannsins yfír í heim moldar og steina, vatns og gróðurs. Grafhýsið og musterið voru steinrunnið efni þessa heims. Grafhýsið var bústaður fyrir annan heim, brú yfir mögu- legan endanleika mannlegs lífs yfir í fijó- sama paradísargarða sem maðurinn ræktaði í hugarheimum sínum. Musterið var hliðið á milli þessara heima. Sjálft hlutorðinn vitn- isburður og tákn um þennan heim sem óx hið innra með manninum. í egypsku musteri kristallast goðsögn um sköpun jarðar, súl- urnar sem líkja eftir papírus-plöntu Nílar, opna sig til að taka á móti sólguðinum þegar hann rís og vex upp úr fijósömu vatni Nílar og allt varð til. I þessu sambandi minnumst við fyrsta samfundarstaðar mannsins, sem við kölluðum „stað hins hugræna" og sjáum hinn andlega heim sem nú steinrennur í kjarna borgarinnar. Borgin var mynd af öðrum heimi og útópía alltaf fastur liður í stjórnarskrá hennar. Borgin var nýtt ævin- týri, nýr menningarvegur. Fyrstu ummerki um borgir fyrir fimm til sjö þúsund árum, bera þess merki að minni- hluti hafí ráðið yfir meirihluta. Þessi minni- hluti bjó í steingerðu virki í miðju borgarinn- bar (cittadelle). Aðrir borgarar bjuggu í einföldum smáhýsum, sett saman úr leir og lífrænum efnum. Þessi gljúpa byggð umlýk- ur kjarna borgarinnar eins og ferskjan ferskjusteininn. Á sama hátt og kjarni ferskjunnar inniheldur mynd ferskjutrésins og framtíð ferskjunnar, var mynd og inntak borgarmenningarinnar falið í kjarna hinnar ungu borgar. Borgin rís nú eins og eyja úr hafi. Fyrst lá þétt byggð, smáhýsi hins almenna borg- ara og á milli þeirra örmjóir stígar og sund. Þegar dregur nær miðju rísa háir múrar kjarnans. Þar standa mikil ljón og ernir hoggin í granít eða sandstein og gæta hliða með vísa inn í kjarnann. Inni í kjarnanum sjálfum eru mikil torg en við þau rísa hallir og musteri borgarinnar. Stofnanir hennar í frumformi sínu spegla nýja menningu, nýja leið mannkynsins. Auk hins stjórnmálalega valds, eru það prestamir sem eru höfundar og lærimeistarar innan kjamans. I þeim birtist okkur fmmvísir að mennta- og hug- vitsmönnum borgarmenningarinnar. Hverfum nú frá framlagi veiðimannsins til borgarinnar og snúum okkur að hinum þættinum sem undirbjó menningu borgar- innar. En sá þáttur liggur í menningu þorps- ins. Vaxandi kunnátta við garðyrkju í móður- ríki þorpsins, gaf ekki aðeins ömggari uppskem heldur og meira magn, sem á sinn hátt leiddi til tómstunda. Þær vom þá notað- ar til dundurs eins og fegran fláta eða jafn- vel umframframleiðslu á þeim. Þetta bauð upp á skipti og verslun sem var í höndum karlmannsins og styrkti stöðu hans. Við tilkomu borgarinnar verður þetta einhver snarasti þáttur í menningu hennar. Borgin breytir umhverfinu, i borginni verða óskir og draumar að hlutum og hlutirnir að vöm á markaði borgarinnar. Borgin fínnur upp aðferð til að framleiða og færa til hlutorðnar óskir sínar. En menning hlutorðinna drauma er í i l I 1 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19.APRIL1986 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.