Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1987, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1987, Blaðsíða 2
Erlendar baakur Guðbrandur Siglaugsson tók saman Studs Terkel: „The Good War“ An Oral History of World War Two. Pengnin Books 19S6. Engu stríði hafa verið gerð skil á prenti og plasti til jafns við seinni heimsstyijöld- ina. Ógrynni bóka hafa verið ritaðar um hetjudáðir, sorg og gleði þessa stríðs sem kannski má kalla indælt af því að dýrslegri þjóðfélagsskipan var komið fyrir kattamef með samstilltu átaki og fómum þjóða sem bjuggu við ólíkt stjómarfar. En það er langt í frá að það hafí verið dásamlegt. Nú em vitni þessa hildarleiks að týna tölunni eitt af öðm og í tíma tók Studs Terkel sig til og náði tali af stóm hundraði manna og kvenna sem upplifðu árin 1939—1945. A síðum þessarar bókar segir fólkið frá. Her- menn úr fremstu víglínu sem og þeir sem vom í nokkm skjóli, konur sem unnu fram- leiðslustörf, fómarlömb áróðurs og fleiri og fleiri lýsa reynslu sinni. Þetta er skínandi bók og tæplega hægt að búast við betra innleggi í baráttu fólks fyrir friði en þessar oft á tíðum grátlegu lýsingar. Jocelyn Baines: Joseph Conrad A Critical Biography. Penguin Books 1986. Sæfarinn Józef Teodor Konrad Korzeni- owski ólst upp í Póllandi þar sem hann fæddist í desember árið 1857. Ellefu ára stóð hann uppi munaðarlaus og tóku amma hans og frændi hann undir vemdarvæng sinn. Tæplega tvítugur hélt Józef til Frakk- lands og settist um kyrrt í Marseilles. Hann entist ekki í landi og hvarf til sjós. Einum sex áram síðar settist hann að á Englandi og fór að skrifa sögur. Sjómennskan var honum dijúg og flestar sögur hans em tengdar hafinu og lífínu á því. Hann skrif- aði á ensku og þykir hann með betri rithöf- undum sem skrifað hafa á þá tungu og það þó pólska hafi verið móðurmál hans. Fræg- ustu bækur hans em Lord Jim, Nostromo og Heart of Darkness. Jocelyn Baines hefur hér unnið mikið verk og gott með þessari ævisögu Conrads. Maðurinn Conrad og rithöfundurinn skiljast betur en áður eftir lestur þessarar bókar. Júnígreinin Skyggn á ferð EFTIR JÓNU RÚNU KVARAN erindum mínum hjá ýmsum félögum undanfarin ár hef ég oft til gagns og gamans sagt frá eigin dulrænni reynslu, jafnframt því sem ég hef lagt áherslu á mikilvægi jákvæðrar hugsunar. Hér á eftir ætla ég að bregða upp dæmi um slíka dulræna reynslu. Þetta gerðist í Connecticut í Banda- ríkjunum. En þangað fór ég fyrir nokkmm ámm með góðri vinkonu minni, sem átti það erindi að heimsækja systur sína. Ætlunin var að við dveldumst hjá þessari konu í nokkrar vikur, en hún bjó með tveim fullorðnum sonum sínum. Þegar þangað var komið fengum við vinkonumar til afnota kjallara hússins. Það vom notaleg húsakynni. Eg vil geta þess áður en lengra er haldið, að þegar flugvél okkar flaug yfír Bandaríkin, fann ég mér til mikillar undmnar sterka tilfínningu sorgar, næstum óbærilegrar hryggðar, og fylit- ist einhvers konar óskiljanlegu vonleysi. Þessar einkennilegu kenndir færðust í aukana, þegar að lendingu kom. Það var engu líkara en ég færi gegnum haf af hugsanagerfum, tengdum átökum mannlegra tilfínninga og kennda, sem virtust standa í einhveiju sambandi við ofbeldi, átök og styijaldir. En hugsanagerfi kalla ég fyrirbæri, sem líkja mætti við ósýnileg ský, sem aðeins skyggnir fá séð og skynjað, en þau er að fínna yfír löndum, borgum og reyndar hvarvetna þar sem mannleg samskipti hafa átt sér stað. Þau em lif- andi afl, mynduð af hugsunum manna, sífellt á hreyfíngu og mjög virk, ýmist til góðs eða ills, eftir því úr hvers konar hugsunum þau hafa skapast. í augum skyggnra em litbrigði þeirra því ýmist fögur eða skuggaleg. Áhrif þeirra á mannssálina geta því verið mjög jákvæð eða beinlínis lamandi. Þetta sýnir Ijós- lega mikilvægi hugsunarinnar. Þess vegna hvarflaði að mér við lendingu, að hér hlytu að vera ýmsir óuppgerðir hlut- ir í samskiptum látinna og lifenda. Það kom mér því ekki beinlínis á óvart fyrsta kvöldið mitt í kjallaraíbúðinni, þegar ég sá og skynjaði að þar var fyr- ir hópur látinna. Mér er vitanlega Jjóst, að ýmsir sem lesa um slíkt og em efa- semdarmenn, og óskyggnir, rnunu telja þetta hugaróra eina. Um slíka afstöðu hef ég ekkert annað að segja en bað, að mér er þetta 'ullkominn veraleiki, j þótt öðram sé Iiann hulinn. Það er ekki i öllum gefíð nð trúa því, sem oeir geta í ekki sjálfír skynjað, jafnvel þótt það sé j stutt fullum rökum. En áfram með söguna. Mér varð fljótt j Ijóst í nálægð þessa iöngu látna fólks, ! að ein veran reyndist hafa sterkasta j iöngun til cjáskipta við mig. Þetta er ung, forkunnar fögur indíánastúlka, sér- lega hárprúð með hátt gáfulegt enni, dökkan augnumbúnað og óvenjulega hrífandi, næstum töfrandi augnaráð. Hún gekk hægt að rúminu mínu og horfði fast á mig, fögmm tárvotum aug- um, sem endurspegluðu í senn eftirvænt- ingu, hryggð og einhvers konar ótta. Hún rétti fram hendur, eins og í bæn, og var með grátstafínn í kverkunum, full trúnaðar og* vonar: Hún sagði: „Hjálpaðu mér. Elsku hjálpaðu mér. Ég fínn ekki bamið mitt. Ég er svo örvænt- ingarfull. í langan tíma hef ég reynt að komast í samband við þá sem hér hafa verið, en árangurslaust. En þegar ég sá þig vaknaði von mín. Þú sérð mig og heyrir í mér. Ég veit og trúi því, að þú getir hjálpað mér í neyð minni, þreyttri og örmagna." Ég varð bæði undrandi og snortin. Hvað átti ég að gera? Hver var þessi stúlka? Og hvers vegna var hún á reiki í þessu húsi? Og af hverju hafði hún orðið viðskila við bamið sitt? Að vísu hef ég verið gædd bæði skyggnigáfu og dulheym frá bamæsku. Jafnvei þótt ég hafí í mörg ár reynt að létta Iifandi fólki lífíð, þá efaðist ég um að það væri á mínu valdi að sefa sorg látinnar vem. Einhverra hluta vegna ýtti ég þessu frá mér, því satt að segja taldi ég mig ekki ráða við þetta vanda- mál. En það breytti engu, því þessi elskulega en óhamingjusama stúlka hélt áfram að birtast mér, kvöld eftir kvöld, og endurtók sífellt það sama. Ég ákvað þá að gera allt sem í mínu valdi stæði henni til stuðnings. Ég ákvað að fara ieið bænarinnar. Ef það væri vilji Guðs, að ég yrði farvegur til lausnar í þessu máli og stúlkunni yrði að óskum sínum, þá væri ég reiðubúin til þess. Ég fór ekki fram á annað en skynsamlega og réttláta lausn fyrir hana í raunum henn- ar, sem virtist aðallega liggja í vilja hennar til þess að fínna bamið sitt. Henni létti strax við bænir mínar og skömmu seinna birtust tvær bjartar ver- ur, sem leiddu hana hljóðlega á brott. Eftir þetta birtist hún mér ekki um tíma og ég taldi málið þannig úr mínum höndum. Svo var það eitt af síðustu kvöldum dvalar okkar þama vestra, að okkur vin- konum var boðið til kunningja gestgjafa okkar. Ég vil taka það fram, að ég hafði í trúnaði sagt vinkonu minni frá sam- skiptum mínum við indíánastúlkuna. En mér til mikils ama og undmnar eram við varla fyrr sestar í boðinu, en vinkona mín fer að segja heimilisfólkinu þar, eins og ekkert sé eðlilegra, frá samskiptum mínum og indíánastúlkunnar. Ekki varð ég síður hissa, þegar ég varð vör við gífurlegan áhuga húsbóndans á þessari frásögn. Hann hlustaði með mikilli at- hygli og upplýsti síðan þá staðreynd, að á þessum stað þar sem við höfðum dval- ist, hefðu einmitt staðið tjaldbúðir indíána til foma. Og að í sögu Banda- ríkjanna væri að finna frásögn af hemaðarlegum átökum hvítra manna og indíána einmitt á þessum stað. Þótt ég í upphafí hafi verið vinkonu minni lítt þakklát fyrir að fara að brydda á þessu leyndarmáli mínu hjá ókunnugu fólki, fór þó svo, að ég varð henni að lokum í rauninni þakklát, því að upplýs- ingar mannsins staðfestu, að bað cem ég hafði séð átti sér rætur í raunvem- leika fortíðarinnar. Síðasta kvöld mitt í Bandaríkjunum var einhver elskulegasta stund sem ég hef lifað. Um miðnætti birtist mér enn indíánastúlkan mín, geislandi af ham- ingju, full af þakklæti. Við hlið mér hafði hún dæmalaust fallega og fíngerða litla stúlku, sem virtist vera dóttir henn- ar. Erfítt er að lýsa þeim tilfínningum sem um mig fóm. Ég varð enn vissari um mátt og vilja Guðs til þess að koma þeim sem minna mega sín að liði, ef lögmál leyfa. Ég efaðist ekki um að þessar mæðgur áttu að hittast. Og það var dásamlegt fyrir mig, að fá þama tækifæri til að rétta fram hjálparhönd í gegnum hlýjar hugsanir og fullkomið traust á vilja Guðs. Við horfðumst í augu andartak og hún sagði við mig: „Elsku vina, ef ég get einhvem tíma einhvers staðar á leið þinni í jarðlífinu létt þér gönguna þá mundu, að ég á enga ósk heitari en að fá tækifæri til þess að endurgjalda þér það sem þú í einlægni gerðir fyrir mig og bamið mitt.“ Síðan brosti hún gegnum tárin og hvarf sjónum mínum. Eftir að ég kom heim hef ég oft fund- ið nálægð hennar, eins og hún væri að minna mig á loforð sitt. Þess vegna datt mér í hug í vor að biðja hana að hlúa að persónu, sem ég hef verið að styðja og er mér mjög kær, en býr yfír miklum dulrænum hæfíleikum. Það er eftirtektarvert að framangreind persóna telur sig þegar hafa orðið vara við um- hyggju og kærleika þessarar látnu vem, séð hana og hefur getað lýst henni. Skynjun okkar á þessari indíánastúlku fer því saman og er það mjög örvandi fyrir mig. Mér er alveg ljóst að þessi frásögn mín mun ekki breyta miklu í dagfari fólks, en það er þó von mín, að það veki einhvem til umhugsunar um að breyta rétt og kristilega. Ef innflytjendur Bandaríkjanna hefðu gert það, hefði aldrei komið til, að dulræn kona frá ís- j landi hefði verið beðin um hjálp, vegna [ afleiðinga fomra óhæfuverka. I þessari jj frásögn, sem er sönn, endurspeglast það j! hróplega óréttlæti, sem fmmbyggjar Ameríku urðu fyrir af hendi hvítra manna og hvemig afleiðingar þess geta [ birst skyggnum augum í hinum ömurleg- j ustu myndum iöngu síðar. Sálrænir hæfileikar Þareð ég var í tíu ár ntstjóri tímaritsins Morguns, sem Sálarrann- sóknafélag Islands gefur út og meðal annars fjallar tim sálræna hæfileika, er mér vel um það kunnugt, að slíkir hæfiieikar leyn- ast með ýmsum hér á landi. Enda hef ég fært að því nokkur rök eða a.m.k. líkur, að skilyrði fyrir slíkar gáfur séu mjög góð hér á íslandi, enda hafa erlendir miðlar, sem hingað hafa komið, mjög tekið eftir því. Sumir íslendingar eru þannig bæði gæddir skyggnigáfu og dulheym. Aðrir hafa af vanþekkingu mjög óskað sér að hafa slíka hæfileika. En þeir geta verið tvíeggjað sverð. Það er ekki alltaf þægilegt að hafa fleiri skilningarvit þroskuð en þessi fímm, sem flestir verða að láta sér nægja. Slíkt getur því vakið tortryggni, sem ekki er alltaf til góðs. Sérstaklega hef ég kynnst slíkum hæfileikum hjá einni manneskju. Það vill nefni- lega svo til, að eiginkona mín, Jóna Rúna Kvaran, hefur fengið að vöggugjöf bæði skyggnigáfu og dulheym, ásamt fleiri sálrænum hæfíleikum. Þegar ein besta vin- kona hennar ákvað því fyrir nokkrum árum að skreppa til Bandaríkjanna til þess að heilsa þar uppá ættingja sína, fór hún þess á leit við Jónu, að hún færi með henni í þessa ferð. Eg fékk strax mikinn áhuga á því, að úr þvi gæti orðið. Skal ég ekki leyna því, að mikinn þátt í þessum áhuga mínum á Ameríkuferð Jónu, átti vitan- lega forvitni mín. Myndu sálrænir hæfíleikar hennar koma með einhveijum hætti í Ijós þama hinum megin við Atlantshafíð, eins og þeir ekki höfðu Ieynt sér héma heima á íslandi? Frásögn hennar af því sem gerðist í þessu ferðalagi þótti mér svo athyglisverð, að ég linnti ekki látum fyrr en hún hafði skrifað hana upp. Ég hygg að lesendur Lesbókar hefðu vafalaust einnig mjög mikla ánægju af að heyra þessa frásögn, og þess vegna fékk ég að lokum leyfí Jónu Rúnu til þess að birta hana hér, þar sem ég oft skrifa greinar um sitt af hveiju, þótt frásagnir af sálrænum hæfíleikum íslendinga hafí hingað til ekki verið aðalumræðuefni mitt. Hér að ofan fer því frásögn Jónu Rúnu Kvaran af þessu merkilega ferðalagi, að því leyti sem það snerti sálræna hæfileika hennar. ÆVAR R. KVARAN

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.