Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Blaðsíða 10
p E U G E O T 4 0 5 G R S K U T B M 1 L L Peugeot 405 GR. Þægilegur í umgengni og duglegur í ófærð Bílar frá Peugeot verksmiðjunum frönsku hafa á síðari árum átt auknum vinsældum að fagna og staðið sig vel í harðri samkeppni. Einkum á það við um minnsta bílinn og millistærðina og reyndar var 405 bíllinn, sá stærsti, kosinn bíll ársins í Danmörku, Noregi og í Evrópu þegar hann var fyrst kynntur á síðasta ári. Jöfur tók við umboðinu á íslandi af Hafra- felli fyrir fáum árum og fellur framleiðsla Peugeot vel að öðrum bílum sem Jöfur býð- ur og eykur breiddina. í dag skoðum við gerðina 405 GR sem ér skutbfll með sjálf- skiptingu en 405 gerðin er fáanleg sem skutbfll frá og með árgerðinni 1989. Um- sögnin markast að nokkru af aðstæðum sem ríktu hér í lok janúar er furðumikil snjókoma truflaði umferð og var því ekki farið eins víða við fjölbreyttar aðstæður og eðlilegt hefði verið. í dag eru fáanlegar fjórar stærðir Peuge- ot bfla hérlendis, gerðirnar 205, 309, 405 og 505. Sá síðastnefndi er þeirra stærstur og vel kynntur í leigubflaakstri í Reykjavík en hann þarf að panta sérstaklega. Hinar gerðirnar eru yfirleitt til hjá umboðin. Tvær þær fyrmefndu eru með framdrifi en ekki stærri gerðimar. Verðið á 205 bílunum er frá liðlega hálfri milljón króna upp í tæpar 950 þús. kr. og eram við þá að tala um kraftmikinn sportbfl. Af 309 gerðinni era einnig til margar gerðir sem kosta frá 630 þús. kr. upp í um 970 þús. kr. Peugeot 405 er til sem fólksbfll, ijögurra dyra, fimm gíra með 1580 eða 1905 rúms- entimetra vélum og hann er líka fáanlegur með sjálfskiptingu. Nú er einnig fáanlegur skutbfll og er hann með stærri vélinni og fáanlegur sjálfskiptur eða beinskiptur. Fólksbfllinn kostar frá 840 þús. kr. upp í um 1.100 og ódýrari skutbfllinn kostar tæp- ar 1.100 þús. kr. en sá dýrari um 1.200 þús. kr. Skutbfllinn 405 GR er með 1905 rúms- entimetra vél sem er 110 hestöfl. Vélin er búin rafeindakveikju, yfirliggjandi knastás og era strokkstykki og lok úr álblöndu. Eldsneytisdæling fer um tvöfaldan blöndung með sjálfvirku innsogi. Sjálfskiptingin er Qögurra þrepa, diskahemlar era að framan en skálahemlar að aftan. Þá nýjung má nefna hjá Peugeot að þver- bitinn að framan er úr trefjaplasti og vegur 7,5 kg en iðulega er þessi biti fimm sinnum þynjgri. Utlit 405 bflsins er í raun mjög látlaust, hér er á ferðinni stflhreinn bfll með mjúkum línum og homum og hann er allur eins og sléttur og felldur. Bfllinn er 4,398 m að lengd, 1,714 m á breidd og 1,445 m á hæð. Lengd milli hjóla er 2,669 m og breidd milli hjóla 1,443 m og hæð undir lægsta punkt er 14 cm. Gott útsýni Óhætt er að segja að vel fer um öku- mann sem farþega í Peugeot. Það sem vek- ur strax athygli er sérlega gott útsýni. Á það við um alla glugga og þó að það eigi eflaust við um fleiri bfla þá er eins og hér fái menn meiri yfirsýn um það sem er að gerast í umferðinni. (Gott fyrir þá sem sitja aftur í og vilja hjálpa ökumanni við stjóm- ina!) Menn 'sitja fremur hátt sem telja má kost í bíl sem má búast,við að sé notaður til ferðalaga. Ökumannsætið er allgott en af einhveij- um ástæðum tók nokkum tíma að finna bestu stillingu sætisins. Þegar hún er feng- in er ekki yfír neinu að kvarta og rétt er að benda mönnum á að prófa sig rækilega áfram með stillingar sem þessar. Gott er að minna á ráð ökukennarans að sitja beinn í baki og halla sér vel aftur í sætisbakið. Með því ættu ökumenn helst að geta verið afslappaðir við aksturinn. Hægt er að stilla bakhallann og stuðning við mjóhrygg og að sjálfsögðu að færa það fram og aftur. Með veltistýrinu getur ökumaður enn frekar komið sér vel fyrir. Bfllinn er búinn dagljósabúnaði og má segja að þar með þurfi ekki að hafa áhyggj- ur af ljósanotkun - það er séð um þá hluti fyrir menn. Beltið verður ökumaður hins vegar að spenna sjálfur en það er líka auð- lært. Alla venjulega mæla má finna í mæla- borðinu og hér er ekki fyrir hendi hvimleið- ur galli sem oft er í bflum að stýrið skyggi á hluta mælanna. Þótt það sé í lægstu stöðu skyggir það aldrei á mælaborðið. Bensín- mælir sýnir ekki hið hefðbundna 1/1 - - eða $$, heldur lítrana 70 - 35 - eða 0 og það er auðvitað mjög þægilegt eftir að hafa fyllt bflinn fyrir 2.600 krónur að sjá nálina standa á 70 lítrum tilbúnum til eyðslu. Eyðslan er Sögð verða 6 lítrar á hundraðið miðað við 90 km hraðan akstur en vitanlega talsvert meiri í borgarskakinu ekki síst nú í ófærð og hálku. Nálin hafði þó engan veginn nálgast 35 lítrana eftir liðlega 150 km akstur í borginni. í borgarakstri er hann sagður eyða 9,5 lítram. Miðstöð er fljót að vinna verk sitt á köldum degi og raftnagn í framsætum hitar skrokkinn líka fljótt og vel. Duglegur í ófærð Sjálfskiptur 405 GR er mjög lipur og þægilegur í akstri. Bfllinn vegur eitt tonn og er í góðu jafnvægi. í þriggja daga notk- un í þeirri ófærð og hálku sem var á suð- vesturhomi landsins á dögunum kom vera- lega á óvart hversu vel bfllinn skilaði sér áfram. Vissulega var hann á nýjum og góð- um vetrarhjólbörðum en viðbragðið og heml- un komu engu að síður á óvart. Sjálf skiptingin virkaði vel á mann, stund- um var eins og bíllinn skipti sér full fljótt upp en hún svaraði fljótt og vel þegar kall- að var eftir snöggu viðbragði. Hröðunin er líka sögð vera 10,8 sekúndur í hundraðið og hámarkshraðinn 187 km. Sem fyrr segir er sérlega gott útsýni úr bflnum ekki síst vegna þess að setið er frem- ur hátt. Það kemur sér ætíð vel í umferð í Reykjavík ekki síst þegar menn þurfa að nota hvem sentimetra í bflastæðum. Þá er gott að vera viss um hversu mikið pláss þarf og útispeglar á báðum hliðum hjálpa þar vel til. Allur umgangur um bílinn er þægilegur. Auðvelt er að renna sér í aftursæti sem framsæti og gott að hlaða hann dóti aftur í. Einn galla verður að nefna sem reyndar kemur aðeins fram við íslenskt vetrarveður. Sé þess ekki gætt að sópa snjó af þaki bflsins við hurðimar getur hann hranið inn í sæti. Þetta er hins vegar hlutur sem not- endur bflsins læra eftir að hafa lent í þessu einu sinni - þeir vara sig á þessu næst. Alhliða bíll Eigi að reyna að fá fram einhveija niður- stöður má kannski draga saman helstu at- riðin: Vandaður og rúmgóður alhliða bfll til notkunar í borgarsnúningum jafnt sem á sveitavegum. Sjálfskipting og vökvastýri gera aksturinn gjörsamlega áhyggjulausan jafnvel í hálku og bfllinn er í alla staði þægilegur viðskiptis. Fyrir 1.200 þúsund krónur fá menn því allnokkuð fyrir pening- mn. Jóhannes Tómasson Vel fer um ökumana jafht sem farþega í fram- og aftursætum. Mælaborðið er í raun ósköp venjulegt og þægilegt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.