Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1992, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1992, Blaðsíða 11
PÁLMI EYJÓLFSSON Undir aprílsól Hjá birkitrjánum er skaflinn að skreppa saman, það skín á hann aprílsólin, svo björt í dag og geisiar ieika um glugga hússins að framan, en gatan þornar og fær á sig nýjan brag. Og áður en jörðin grænkar folöldin fæðast svo fljótlega á mjóum fótum er lífsgangan háð, en kisa, sem inni kúrði er farin að læðast með klókindi í augum sigtar aftur á bráð. — En gömul kona fer garðinn sinn enn að pæla af gullauga hennar er uppskeran jafnan vís. Hjá trjám og rósum býr sálubót hennar og sæla, að sýsla við mold er hin jarðneska paradís. Svo víða má sjá, að vorhugur er til staðar, og vangarnir roðna, því aprílsólin er hlý. Er raddir vorsins berast þér bernskuglaðar, sem barn í hjarta verður þú enn á ný. — Höfundur býr á Hvolsvelli. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11.APRÍL 1992 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.