Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 17

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 17
fáorðar um háttu marmennla en þó er vitað að þeir fást við búskap á líkan hátt og stund- aður var í bændasamfélaginu og eiga fá- gæta góðar kýr, þær eru sægráar að lit og hafa blöðru milli nasanna eða framan á grönunum. Stundum koma heilir hópar af sækúm á land sjálfkrafa og kúasmali jafn- vel með þeim. Hann leitast við að reka þær sem mest hann má aftur í sjóinn. Þá gefst snarráðum tækifæri til að komast í nánd við gripina og sprengja blöðruna. Þá kom- ast kýmar ekki aftur í sjó og verða spakar, annars yerður ekkert við þær ráðið. Sækýr eru góðár mjólkurkýr og góðar til undaneld- is, þær hafa stundum komist í eigu ís- lenskra bænda með því að þeir hafa náð að sprengja blöðm þeirra eins og áður er getið, eða að marmennlar sem dregnir hafa verið í land hafa sent þeim sækýr í þakkar- skyni fýrir að flytja þá aftur til heimkynna þeirra því það eitt þráir marmennill sem numinn er á brott. Marmennlar eru fáorðir en vitrir. Þeir vita um fólgna hluti og spá fyrir um framtíð- ina. Komist þeir undir manna hendur láta þeir ekkert af hæfileikum sínum nema á móti komi frelsi og flutningur á sama stað og þeir voru dregnir á færið. Marmennlar eru friðsamir og meinlausir og valda mönnum engu tjóni nema hvað þeir hafa gaman af að leysa öngla af færum og þarf að láta hnúta liggja í kross til að veijast því. Á því má merkja að marmennl- ar séu illa kristnir og eiga það sammerkt með vættum. Marmennill við uppáhaldsiðju sína: Að leysa öngla af færum fiskimanna. ÞÁ Hló Marbendill í þjóðsögum Jóns Árnasonar er þessi saga af viðskiptum marmennils við mennska: „Einu sinni reri bóndi nokkur til fiskjar og dró marbendil. Bóndi leitaði margra vega máls við hann, en marbendill þagði við og svaraði engu nema því að hann bað bónda að sleppa sér niður aftur en bóndi vildi það ekki. Síðan hélt bóndi til lands og hafði marbendil með sér. Kemur þá kona hans til hans í fjöruna og fagnar bónda sín- um blíðlega: Hann tók því vel. Þá hló mar- bendill. Síðan kemur til bónda hundur hans og flaðrar upp um hann ofur vinalega, en bóndi slær hundinn. Þá hló marbendill ann- að sinn. Eftir það heldur bóndi heim til bæjar síns, á leiðinni dettur hann um þúfu og meiðir sig. Bóndi reiðist við og lemur þúfuna alla utan. Þá hló marbendill þriðja sinn. í hverst sinn er marbendill hló þá spurði bóndi hann að hveiju hann hafi þá hlegið, en marbendill þagði æ og svaraði engu. Bóndi hafði nú marbendil hjá sér um ár og fékk þó aldregi orð af honum. En að annarri jafnlengd frá því er bóndi hafði dregið marbendil þá biður hann bónda að flytja sig til sjóar og hleypa sér niður aft- ur. Bóndi sagðist skyldi gera það ef hann segði sér að hveiju hann hefði hlegið þrisv- ar þá er hann flutti hann heim með sér. Marbendill kvaðst það ekki gera mundu fýrr en hann hefði flutt sig á sjó fram þang- að sem hann hefði dregið sig í fýrstu og léti sig þar niður fara. Bóndi gerir nú svo, að hann flytur mar- bendil á hið sama mið er hann hafði hann upp dregið; og sem þeir eru þar komnir þá segir marbendill: „Hið fýrsta sinn hló ég, að því er kona þín fagnaði þér svo blíðlega, því að hún gerði það af falsi, en eigi af elsku, og hefir hún fram hjá þér. Annað sinn hló ég að því er þú barðir hund þinn, því að hann fagnaði þér af tryggð og ein- lægni. Hið þriðja sinn hló ég að því er þú lamdir þúfuna, en peningar eru fólgnir í þúfunni og vissir þú það eigi.“ Síðan fór marbendill niður, en bóndi gróf í þúfuna og fann þar mikið gull.“ Allt reyndist það satt sem marbendill sagði. Hafmenn Þó marmennlarnir væru mestu mein- leysisgrey var ekki sama um nábúa þeirra hafmennina að segja. Þeir eru mestu meinvættir og ráða mönnum bana ef minnstu möguleikar skapast. Margar misvísandi lýsingar eru af hafmönnum og kunna sumar að stafa af þeim sið þeirra að á stund- um sveipa þeir sig ýmsum sjávargróðri rétt eins og við veljum okkur fatnað. Gömul lýs- ing kveður þá „svipa til karlmanna ... og hafi eins og mannshöfuð og sé það skeggj- að, en hvirfillinn sé hvass upp, og sé svipað- ast því sem á honum sé nokkurskonar mit- ur. Háls og herðar séu eins og á manni, en hendur séu engar. Fyrir neðan geirvörtur sjáist eitthvað svipað trésvigum, sem kopp- arar gyrða með tunnur." í fjölda annarra hafmannasagna, sem allar eru frá Norður- og Austurlandi, er mun meira mannsmót á þeim. Þeir eru nokkru stærri en mennskir menn og ramm- ir að afli, fráir á fæti og fimir að klifra. Þeir eru mannætur og tilgreint er sumstað- ar að þeir séu svartir að lit. Þeir eru hálir og harðir viðkomu eins og gler og oft þakt- ir skeljum að utan eins og væru þeir klædd- ir í skeljastakka og á einum stað er talað um skeljaröggvarfeld. Þetta eru engar venjulegar skeljar því að högl hrökkva af þeim líkt og vatn af gæs og komi högg á þær heyrist líkt og blágrýti sé barið. Þó er allraf óvarinn blettur á hafmanni hvað vel sem hann brynjar sig. Hann er á bijóstinu og er þeim bani búinn ef tekst að koma þar á þá höggi. Hafmaðurinn í Sköruvík Þessi saga sem hér fer á eftir er dæmi um hversu viðskotaillir hafmenn geta verið, en einhver veginn er það þó svo að íslensk- ir garpar sigra ætíð að lokum. „Sigurður hét bóndi, er bjó í Sköruvík snemma á þessari öld. Hann var maður fjáð- ur vel, og átti fjölda sauða, enda byggði hann sér sauðahús langt frá bænum, þar sem jarðsælast var á vetrum. Það var við sjó og skerst lítill vogur inn í landið. Fýrsta aðfangadagskvöld eftir að húsið var byggt hvarf sauðamaður bónda. Hans var leitað en það kom fyrir ekki. Næsta ár fór allt á sömu leið og vildu nú fáir ráðast til bónda en svo fór þó að lokum að hann fékk dug- andi fjármann. Þegar leið að jólum brýndi Sigurður bóndi alvarlega fyrir sauðamanni sínum að hýsa sauðina fýrir dagsetur að- fangadagskveldið, en hann gaf því lítinn gaum og kvaðst fara sínu fram. Svo fór sem áður, að sauðamaður kom ekki heim um kveldið. Bóndi gekk til smiðu sinnar í býtið jóladagsmorguninn og stóð þar til kvelds. Hafði hann þá smíðað sér atgeir úr stáli sem var hálf önnur alin á lengd og hið mesta tröllvopn að sterkleika. Auk þess hafði hann smíðað sér langa stöng og digra úr íslenskum rekavið, og festi þar í atgeir- inn. Jóladagskveldið gekk bóndi til sauða- hússins og var þá hálfrokkið. Tungl var í fyllingu en ekki runnið þegar bóndi kom að húsinu. Hann beið þar nú nokkra stund og bar ekki til tíðinda. Litlu síðar rann máninn svo gjörla mátti sjá hvað gerðist. Logn var á víkinni og bárust aðeins litlir öldugárar að landi. Nú sér bóndi að boðar rísa á víkinni og öslaði svartur maður ákf- lega stórvaxinn upp að fjörunni og gljáði á hann allan í tunglskininu. Bóndi þóttist vita að þetta væri hafmaður og lét ekki á sér bæra. Þegar hafmaðurinn er í fjörunni geng- ur hann að stórum þarabing og tætir hann allan í sundur og dró út úr honum ræfil af mannslíkama og hóf að naga ketleifarnar. Þóttist bóndi sjá afdrif sauðamanns síns og gerði háreisti nokkra svo hafmaðurinn heyrði. Hann réðist umsvifalaust á bónda. Hafmaðurinn átti upp bakka að sækja Hafstrambi rekur höfuð og axlir upp úr djúpinu. og þegar hann er komin upp í hann miðjan leggur Sigurður atgeirnum fyrir bijóst þess- um Ijanda og fylgir fast eftir. Þetta gengur svo nokkra hríð en hafmaðurinn mátti ekki komast upp bakkann þar sem atgeirinn stóð í bijósti hans og rakst ætíð í sjávarkamb- inn. Hann mátti því snúa við og skreið hel- særður til sjávar en Sigurður saknaði aldrei sauðamanns eftir þetta. Hér hefur verið fjallað um furðuverur sem búa í söltu vatni við strendur landsins sem skipta má í hópa eftir svipuðum einkennum og nöfnum sem koma aftur og aftur fýrir í þjóðsögum. Ótölulegur fjöldi skrímsla og einstakra fyrirbæra liggur óbættur hjá garði að sinni. í næstu grein verður m.a. sagt frá fjörulalla, urðarketti, moðormi, dýrakóngi og Lagarfljótsorminum. HÁLFMENNI í erlendum sögum er mikið um verur sem eru menn til hálfs við einhveija dýrategund, nægir þar að nefna kentára, sem voru menn og hestar og Minotaurus _sem var naut að ofan en maður að neðan. Á íslandi eru fáar sögur af slíkum verum. Einna ítarlegast er sagt frá Nadda sem var viðskotaillur hálf- maður á 16 öld. Hann var austfirðingur og hafði bústað sinn í Njarðvíkurskriðum milli Njarðvíkur og Borgarfjarðar. Nafn sitt fékk hann af því þegar hann hreyfði sig um glamraði í fjörugijótinu, það hét á aust- firsku að nadda. Hann varð brátt svo magn- aður að hann sat fýrir mönnum og veitti þeim bana. Svo rammt kvað að þessu háttar- lagi að þjóðleiðin um Njarðvíkurskriður lagðist niður. Ólafur Davíðson segir sig ráma í sögur um að Naddi hefði verið í hundslíki að neðan. Ekki kemur það heim og saman við frásögu mannsins sem sigraði óvættina, hann segir Nadda hafa verið í dýrslíki að ofan en tilgreinir ekki tegundina. í Bolabás austanundir Reynisfjalli í Skaftafellssýslu bjó annað ferlíki, Urðar- boli. Hann var maður ofan mittis en annað hvort í selslíki eða nautslíki þar fyrir neðan. Hann hljóðaði ákaflega í vondum veðrum en gerði engum manni mein sem ekki abbað- ist upp á hann að fýrra bragði. Urðarboli hafði það fram yfir Nadda að tala manna- mál og hafa spádómsgáfu, hann lagði m.a. lánleysi á mann sem gerði sér far um að sjá hann, en slíkt var honum illa við enda var hann ljótur og vesældarlegur. Þriðja vætturin af þessu tagi var í heim- inn borinn í Stagley á Breiðafirði. Þar bar kýr skrýmsli hálfu í selslíki en í mannslíki afturparturinn. Ekki er svo að sjá að fjósa- manninum hafi á nokkurn hátt verið bland- að í rnálið, en svo hræddir urðu menn að þeir köstuðu ódáminum rakleiðis í hafið. Ári síðar kom vætturin úr hafínu og lagðist í básinn þar sem hún hafði í heiminn kom- ið. Engum gerði dýrið mein og hélt til hafs á ný. Svo virtist sem það hafi komið af þeirri einu hvöt að vitja æskustöðvanna. Naddasaga Af endalokum Nadda er þessi saga: Jón hét bóndi á Gilsárvöllum í Borgar- firði, hann var í heimsókn hjá sínu fólki í Njarðvík. Hann var seinn fyrir og ákvað að fara Njarðvíkurskriðurnar. Menn báðu hann að hætta sér eigi skriðurnar undir nótt. En hann skeytti því engu og fór af stað. Þegar hann kom í dýpsta gilið í vestan- verðum skriðunum, þar sem óvætturin hafð- ist við og heitir síðan Naddagil (Naddahell- ir er þar ofar frá). Þá kemur óvætturin á móti honum og ræðst þegar á hann. Er eftir honum haft að hún væri í dýrslíki að ofan en maður að neðan. Sótti Naddi á að færa hana niður að sjónum. Urðu nú ærið harðar, illvígar og langar sviptingar með þeim. Varð þó óvætturin að þoka austur skriðurnar undan Jóni því sagt er að hann hafi haft járnstöng í hendi og var mesta heljarmenni sem þeir feðgar allir. Þegar kom á háan meljaðar litlu austar í skriðunum varð leikurinn svo harður að Jón sá tvísýnu á lífi sínu. Gerði hann þá það heit að ef hann sigraði, skyldi hann reisa þar minnis- mark um guðs vernd á sér. Þá brá svo við að björtum ljósgeisla sló sem eldingu niður á milli þeirra Jóns. Við það ómætti Nadda. Hrökk hann þá niður úr götunni og dragnað- ist ofan gjögur í sjóinn. En Jón komst mar- inn og blár og blóðugur í Snotrunes, sagði tíðindin og hvað eigi framar mundi verða mein af Nadda. Síðan lét hann reisa kross á jaðrinum með faðirvori á latínu og þeirri áskorun að hver sem færi þar síðar um skyldi kijúpandi lesa þar Faðirvor. Þar á var líka vers. Hélst sá siður fram á miðja 19.öld. Framhald í Lesbók eftir áramót. Höfundur er myndlistarmaður. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. DESEMBER 1992 17

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.