Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1996, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1996, Blaðsíða 6
Hverjir eiga Hveravelli? Fær svipmót öræfanna að ríkja þar áfram? Asíðustu vikum hefur orðið allnokkur titringur eftir að kynnt var nýtt deiliskipulag Svína- vatnshrepps í A-Húnavatnssýslu fyrir Hvera- velli á Kili. Samkvæmt skipulagslögum nr. 19/1964, eru hreppar landsins skipulagsskyld- Ekki hefur í heild verið tekið á grundvallar- spurningunni um eignarhald á hálendinu en dómar sem hafa gengið, aftaka með öllu eignarhald einstakra hreppa. Svínavatns- hreppur og Torfalækjar- hreppur telja sig eiga Hveravelli og hafa látið vinna að deiliskipulagi þar sem gert er ráð fyrir umfangsmiklum bygg- ingum. Eftir GÍSLA SIGURÐSSON ir, en í vitund almennings eru hrepparnir eitt og afréttir á hálendinu annað. Þess- vegna reka menn upp stór augu og það er spurt spuminga um eignarhald sem nær yfír frægar náttúruperlur. Hverjir eiga til dæmis Hveravelli? Ferðaþjónustan verður mikilvægari stoð undir efnahagslífinu með hveiju árinu og hálendisferðir eru ekki sízt það sem sótzt er eftir. Á einstaka vinsælum ferðamanna- stöðum, svo sem í Landmannalaugum og á Hveravöllum gæti eignarhald hugsanlega orðið ábatasamt. Séu sett lög sem réttlæta eignarhald og alger yfirráð einstakra hreppa yfir ferðamannastöðum á hálend- inu, þá er varla hægt að líta á slíkt öðru- vísi en sem mistök, því slík lög rekast á við réttlætiskennd alls almennings. Það er í skjóli skipulagslaganna, sem ráðamenn í Svínavatnshreppi í Austur Húnavatnssýslu telja sér ekki aðeins heim- ilt, heldur beinlínis skylt, að ráðskast með deiliskipulag, tilfærslur mannvirkja og ný mannvirki á Hveravöllum, eftir því sem oddviti þeirra, Jóhann Guðmundsson bóndi í Holti, tjáði mér nýlega. Eg spurði hann fyrst þeirrar grundvallarspurningar, hvort hann teldi að Svínvetningar ættu Hvera- velli, og hann svaraði því játandi með tilvís- un til fyrrnefndra laga. Það er söguleg staðreynd að fáeinar jarð- ir á íslandi áttu heimalönd fram eða inn til jökla; Reykjahlíð við Mývatn suður á bungu Vatnajökuls og Auðkúla í Svína- vatnsshreppi var talin eiga yfirráð yfir landflæminu Auðkúluheiði og var teygt á heiðinni suður fyrir Kjöl. Auðkúluprestar höfðu tekjur af því að bændur notuðu þetta flæmi til upprekstrar, en þrír hreppar í Húnaþingi keyptu það - eða réttindin, þó að námum og fossum frátöldum. Afsalið undirritaði ráðherra íslands árið 1918. Frá fornu fari var þetta einnig afréttar- land fyrir fé Biskupstungnabænda, sem EYVINDARTÓFT eða Birgið, minjar um dvalarstað Fjalla-Eyvindar og Hfíllu í hraunsprungu við hverasvæðið. Ljósm.:Grétar Eiríksson. BLÁHVER er einn hinna sérstæðu ogfögru hvera á HveravöIIum. Ljósmynd: Hjálmar R. Bárðarson. hittu Húnvetninga við Seyðisá, þar sem dregið var í sundur. Um 1940 girtu sauðfjárveikivarnir milli Langjökuls og Hofsjökuls, um 10 km. fyrir norðan Hvera- velli og síðan hefur Tungnamannaafréttur í reyndinni náð þangað. Árið 1979, segir Jóhann oddviti í Holti, náðist samkomulag um hreppamörk á vatnaskilum efst á Kili og um það er enginn ágreiningur. Það stendur hinsvegar í mörgum að kyngja því að Hveravellir séu „í Svínavatnshreppi“ og ég vona að sunnanmenn fari seint að tala um Hvítárnes í Biskupstungahreppi. Merg- urinn málsins er sá, að hér er grundvallar- mál sem þarf að taka á, en það er enn í lausu lofti.. Skipulagsstjóri ríkisins hefur nú lagt fram fyrstu drög að skipulagningu miðhá- lendisins og eru héraðsnefndir að yfirfara drögin. Það er spor í rétta átt, en Stefán Thors skipulagsstjóri sagði í viðtali í Morg- unblaðinu um miðjan janúar sl. að eignar- hald á hálendinu væri ekki til neinnar umfjöllunar í því svæðisskipulagi sem nú er unnið að. Hér eins og í hvetju máli þarf að byija á byijuninni, undirstöðunni, og hún er einmitt sú að ákveða eignarhald- ið. Þar verður Alþingi að taka til hendi og vonandi ríkir þar skilningur á því að hálend- ið, helmingurinn af flatarmáli íslands, hljóti að vera eign íslenzku þjóðarinnar. Þá er átt við alla þjóðina en ekki aðeins þá hreppa sem eiga rétt til upprekstrar og veiði í ám og vötnum á hálendinu. Eins og kunnugt er hefur Ferðafélag íslands lagt fram stjórnsýslukæru til um- hverfisráðherra vegna Hveravallamálsins. í greinargerð með kærunni er vitnað í skýrslu nefndar, sem lögð var fyrir Alþingi 1990-1991. Formaður hennar var Páll Líndal ráðuneytisstjóri. Þar segir m.a. svo: „...virðist rétt að miða við mörk byggð- ar eins og áður hefur verið bent á og þá eðlilega að jafnaði við mörk heimalanda, nema sérstök rök komi gegn. Menn virðast nokkuð sammála um, að öræfa-og jökla- svæði svo og almenningar séu utan sveitar- féiaga. Sama virðist eiga almennt við um afrétti... “ dómar Hafa Gengið Á ElNN VEG Svo gæti farið að Ferðafélagið yrði að lokum að leita til dómstóla til að fá hnekkt skipulagi sem sýnist nokkuð gerræðislegt gagnvart því sem félagið hefur gert á Hveravöllum. Það yrði þá ekki í fyrsta sinn sem leitað yrði úrskurðar dómstóla um yfirráða- og eignarrétt á hálendinu. Þess er skemmst að minnast að nokkrir hreppar í Rangárvallasýslu fóru í mál við ríkisvald- ið vegna eignarréttar á Landmannaafrétti. Þar er um að tefla veruleg verðmæti; fjölf- arnar ferðamannaslóðir, Landmannalaugar og Veiðivötn. Niðurstaða Hæstaréttar í þessu máli varð sú að engir þessara hreppa teldust hafa eignarréttinn. Um annan vinsælan ferðamannastað, Þórsmörk, varð rejptog milli Eyfellinga og Fljótshlíðinga. Úr því var skorið með dómi og taldist hvorug sveitin eiga Þórs- mörk. Ekki var síður athyglisverð niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í nóvember. sl. þegar Landsvirkjun var sýknuð af bótakr- öfu vegna Eyvindarstaða- og Auðkúlu- heiða. Niðurstaðan: Hrepparnir eiga ekki heiðamar. Stefnendur, Svínavatns- og'Torfalækjar- hreppur, gerðu bótakröfur fyrir fallréttindi (virkjunarréttindi) í Blöndu; einnig um bætur fyrir land á Auðkúluheiði sem Lands- virkjun og ríkið hefðu fengið til ótímabund- inr.a umráða og afnota í þágu Blönduvirkj- unar, - nánar tiltekið fyrir land undir uppi- stöðulón Blönduvirkjunar. í apríl 1993 höfðuðu hreppamir tveir eignardómsmál og gerðu þær dómkröfur, að viðurkenndur yrði með dómi „fullur og óskoraður eignar- réttur þeirra að afréttarlandinu Auðkúlu- heiði í Svínavatnshreppi, Austur-Húna- vatnssýslu, með öllum gögnum þess og gæðum, að engum réttindum undanskild- um...“ í dómsniðurstöðum segir að Auðkúlu- heiði sé afréttarland, sem hafi aldrei verið undirorpið fullkomnum eignarrétti nokk- urs einstaklings eða stofnunar. Heiðin hafi einvörðungu verið notuð til upprekstr- ar á fyrri öldum og þannig verið nýtt sem afréttur eða almenningur. Hún hafi aldrei verið hluti heimalands jarðarinnar enda fjarri henni og í mikilli hæð yfir sjávar- máli og því ekki hentug til búskapar. Af hálfu stefnanda hafi engin gögn verið leidd fram sem styðji að fullkominn eignarrétt- ur hafi nokkru sinni stofnast yfir þessu landsvæði í þeirra hendi eða fyrri heimild- armanna. Einnig segir svo: „Það eru grundvallar- reglur í eignarrétti að sá, sem telur til eign- arréttinda yfir landi, verði að færa fram heimildir fyrir tilkalli sínu og að sá, sem afsalar landi, geti ekki veitt viðtakanda sínum víðtækari rétt en hann átti sjálfur." Og að lokum: „Dómurinn telur að takmörk- uð not stefnenda af heiðinni feli eigi í sér eignarhald sem geti leitt til stofnunar eign- arréttar fyrir hefð á grundvelli laga nr 46/1905.“ Ferðafélag Íslands Og Hveravellir í stuttu samtali sem ég átti við forseta Ferðafélags íslands, Pál Sigurðsson laga- prófessor við Háskóla Islands, spurði ég hann fyrst sem lögfróðan mann hvort hann teldi miklar líkur á að Hæstiréttur kæmist að annarri niðurstöðu en Héraðsdómur Reykjavíkur um fyrrgreint mál, ef til þess kæmi að áfrýjað yrði. Páll kvaðst þess fullviss að niðurstaðan þar yrði hin sama. Um nýja deiliskipulagið fyrir Hveravelli er hann mjög ósáttur og sagði: „Um gerð þessa skipulags var aldrei haft samráð við Ferðafélagið; samt var gert ráð fyrir að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.