Lesbók Morgunblaðsins - 07.03.1998, Síða 20
.jjÆISEy
■xpmú-
Mbl/Einar Falur
GONDÓLAR SORGARINNAR
FRANZ Liszt
ingur sem „djúpið“ hafi valið handa honum,
djúpið sem vilji ná inn til mannanna án þess
að sýna andlit sitt.
Efth-farandi ljóðlína lýsir Sorgai-gondól
Liszts og aðdáun Tranströmers á píanó-
verkum: „Píanóið sem í Parsifal hefur verið
þögult (en hlustað) fær loksins að komast að.“
Ljóðið er látið gerast um áramótin 1882-
1883, en þá er Liszt í heimsókn hjá dóttur
sinni, Cosimu, og manni hennar, Richard
Wagner, í Feneyjum. Wagner á skammt eftir
ólifað.
Franz Liszt er vanur ferðalögum og ef trúa
má Tranströmer bar hann ferðakoffortið sitt
sjálfur. Síðustu dagana sem hann lifði, í júlí
1886, er hann í Bayreuth hjá Cosimu dóttur
sinni sem stjórnar tónlistarhátíðinni þar.
Cosima hefur verið ekkja Wagners í þrjú ár
þegar faðir hennar deyr 31. júlí. Hún óttast að
fráfall Liszts muni varpa skugga á hátíðahöld-
in og ákveður að fresta því að tilkynna lát
hans nema í innsta hring.
Liszt er grafinn í Bayreuth, borg Wagners
og er sagt að ekki einu sinni dauðinn hafí að-
skilið vinina.
RICHARD Wagner
Tveir karlar, tengdafaðir og
tengdasonur, Liszt og
Wagner,
búa við Canal Grande
með eirðarlausu konunni sem
er gift Mídasi konungi
honum sem breytir öllu sem
hann snertir í Wagner.
Grænt kul hafsins brýst upp
um hallargólfið.
Wagner hefur farið aftur,
Kasper-vangasvipurinn kunni
er þreytulegii en áður
andlitið hvít veifa.
Gondóllinn er drekkhlaðinn lífi
þeirra, tveir miðar fram og
aftur
og einn aðra leiðina.
1 þessu merka ljóði, áreiðanlega
meðal helstu Ijóða Tranströmers,
stendur líka að við hlið tengdasonar-
ins, manni tímans, sé Liszt mölétið
öldurmenni. Það sé aftur á móti bún-
Richard Wagner lést í Feneyjum. Tengdafaðir hans,
Franz Liszt, samdi tónverk í minningu hans, m. a. tvö
íanóverk sem hann kallaði Sorgargondóla. JOHANN
--y--------------------------------------------------
i i a i l a a nrr/'NW i • r ^ ■ / l I •
HJÁLMARSSON segir fró Dessum tónverkum og Deim
aðstæðum sem urðu til Dess að dou voru samin.
IFEBRÚAR 1883 lést Richard Wagner
af völdum hjartaáfalls í Feneyjum. Sum-
arið áður var síðasta verk tónskáldsins,
Parsifal, frumflutt. Vinui- og tengdafaðir
Wagners, Franz Liszt, samdi nokkur
tónverk til minningar um hann, meðal
þeirra eru tvö píanó-
verk sem heita Sorgargondóll I og Sorg-
argondóll II, á ítölsku La lugubre gondola,
þýsku Die Trauergondol.
Hlutar Parsifals bergmála í verkum Liszts,
L d. Feierlicher Marsch zum Heiligen Gral og í
minningarverkunum Am Grabe Richard
Wagners og R.W.-Venezia. Sorgargondóll I er
styttri en Sorgargondóll II, harmrænn en ekki
jafnmyrkur. I síðara verkinu er harmurinn
dýpri og tjáningin ákafari.
Að mati Hans-Gunnars Petersons (Artes, 4.
1996) eru sorgartónverk Liszts bundin atburð-
um sem hafa skipt hann sjálfan miklu máli en
eru líka hluti opinbers lífs í heimi lista og
stjórnmála. Verkin eru innhverf, lýsa einstak-
lingi sem berst einn og sér við örlögin og tón-
listin er sérstök. Peterson fínnur hliðstæðu hjá
fianska skáldinu Stéphane Mallarmé, en mörg
ljóða sinna kallaði Mallarmé grafljóð. Slík ljóð
orti hann til minningar um Charles Baudelaire,
Paul Verlaine, Edgar Allan Poe og eitt langt
um Théophile Gautier, einnig hyllingu til
Wagners.
skáldin á lokaskeiði sköpunar og ævi, þeir
hafa gengið í gegnum miklar breytingar og
beita hæfileikum sínum óspart til að særa
fram dul einmanakenndar og dauða.
Nýjasta bók sænska skáldsins Tomasar
Tranströmers heitir Sorgegondolen (Bonni-
ers 1996). Sorgargondóll Tranströmers sækir
nafn til Liszts, lengsta Ijóðið í bókinni er
Sorgargondóll nr. 2. Að þessu ljóði hefur áð-
ur verið vikið hér í blaðinu, en sakar ekki að
endurtaka:
Einmanakennd og dawði
Meðal samtímatónskálda fínnu.r Peterson
arftaka Liszts í Stravinskí. Undir lok sjötta
áratugar og í byrjun áttunda samdi Stravin-
^ skí mörg verk sem hann tileinkaði minningu
vina sinna: T. S. Eliots, Aldous Huxleys, Dyl-
an TTiomas.
Á ytra borði er erfitt að greina skyldleika
en innra eiga þessi tónskáld margt sameigin-
legt. Þegar verkin verða til eru bæði tón-
SÓFINN í Feneyjum, en á honum endaði Richard
Wagner ævi sína.
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNtNG/LISTIR 7. MARZ1998