Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1998, Page 2
FLUGELDASÝNING í
ÍSLENSKU ÓPERUNNI
Morgunblaðið/Kristinn
AUÐUR Gunnarsdóttir sópransöngkona og Jón Rúnar Arason tenórsöngvari munu njóta
fulltingis Gerrits Schuil píanóleikara á lokatónleikum vetrarins hjá Styrktarfélagi íslensku
óperunnar í dag.
JÓN RÚNAR Arason tenórsöngvari og Auður
Gunnarsdóttir sópransöngkona koma fram á
tokatónleikum starfsársins hjá Styrktarfélagi
íslensku óperunnar í dag kl. 17. Gerrit Schuil
leikur með á píanó. Á efnisskrá verða íslensk
og ítölsk sönglög, óperuaríur og dúettar.
„Mikil flugeldasýning,“ eins og Auður tekur til
orða.
Jón Rúnar og Auður voru samferða í gegn-
um Söngskólann í Reykjavík á sínum tíma en
eftir útskrift lágu leiðir þeiiTa í ólíkar áttir.
Auður hélt til náms við tónlistarháskólann í
Stuttgart í Þýskalandi, þaðan sem hún útskrif-
aðist með láði í fyrra, en Jón Rúnar nam söng
í Lundúnum, Kaupmannahöfn, Mflanó og nú
síðast Róm.
Jón Rúnar hefur komið fram við ýmis tæki-
færi hér á landi, mörgum er eflaust í fersku
minni túlkun hans á þjóðsöngvum íslands,
Noregs og írlands fyrir knattspyrnulands-
leiki á Laugardalsvellinum í fyrra, en hann
hefur ekki í annan tíma komið fram á ein-
söngstónleikum. Var þetta ekki löngu tíma-
bært?
„Jú, það má kannski segja það; Annars eru
tónleikar ekki mín sérgrein. Eg er meiri
sviðstenór, lýriskur spintó, og kem til dæmis
aldrei til með að syngja Vetrarferðina eða
sambærileg verk. Þetta verða aftur á móti ör-
ugglega skemmtilegir tónleikar, enda flestar
mínar uppáhaldsaríur og -dúettar á efnis-
skránni, að ekki sé talað um íslensku sönglög-
in, sem eru algjör gullnáma. Eg held aldrei
tónleika án þess að troða einu eða tveimur ís-
lenskum lögum inn í prógrammið. Þetta er í
blóðinu."
Oft er sagt um óperusöngvara að þeir búi í
ferðatöskum - til að leggja áherslu á annríki
þeirra um allar trissur. Sjaldnast er þetta þó
raunin í orðsins fyllstu merkingu, nema í til-
viki Jóns Rúnars - hann býr raunverulega í
ferðatöskum. „Ég er bækistöðvalausi tenór-
inn,“ segir hann. „Bý bara þar sem ég er að
vinna hverju sinni. Þessa dagana bý ég á Is-
landi en þar áður í Osló, þar sem ég var að
syngja í Rigoletto eftir Verdi, og í Gautaborg,
þar sem ég fór með hlutverk í Madame Butt-
erfly eftir Puccini. Eftir helgina flyt ég síðan
til Færeyja, þar sem ég mun taka þátt í flutn-
ingi á Sálumessu Verdis."
Segir Jón Rúnar þetta stafa af því að það
henti sér betur að vera lausráðinn en fastráð-
inn söngvari. Á þessu stigi ferilsins vilji hann
vera sjálfs sín herra. „Færi ég að fastráða mig
við óperuhús yrði mér bara jaskað út. Það
kæri ég mig, eðli málsins samkvæmt, ekki um.
Þá er ómetanlegt að hafa tíma fyrir sjálfan sig
á milli verkefna, til að meta stöðuna, bæta
tæknina og vinna úr vandamálum, sem koma
upp annað slagið. Ef maður er fastráðinn við
hús gefst enginn tími til að gera þessa hluti.“
Anrsir hjá Auði
Þótt tónleikarnir í íslensku óperunni séu
aðalástæðan fyrir koma Auðar, sem búsett er í
Þýskalandi, til landsins að þessu sinni, hyggst
hún nýta dvölina til fleiri góðra verka, meðal
annars að syngja á fernum tónleikum Karla-
kórsins Fóstbræðra í næstu viku.
Við komuna til Þýskalands bíða hennar tón-
leikar ásamt bassasöngvara og píanóleikara í
útjaðri Stuttgart, þar sem söngleikjatónlist
verður á boðstólum. Þá hefur hún nýlokið upp-
tökum fyrir útvarp og geislaplötu á verkum
eftir Joseph Martin Kraus ásamt fflharmón-
íukórnum í Stuttgart og Stuttgarter Kammer-
orchester. I júní kemur hún síðan fram á tón-
leikum með sama kór og hljómsveit og frá og
með nóvember mun Auður fara með hlutverk
Ánchen í óperu Webers, Freischútz, í óperu-
húsinu í Balingen. Söngkonan kvartar því ekki
undan verkefnaskorti.
En þótt starfsvettvangur Auðar sé aðallega
í Þýskalandi segir hún nauðsynlegt að koma
eins oft og unnt er heim til íslands og halda
tónleika - ekkert jafnist á við að syngja fyrir
,;sitt fólk“. Það fær hún tækifæri til að gera í
Islensku óperunni í dag.
Nýtt verk eftir
Svein Einars-
son í Lundúnum
MUTTER HELGAR
ÁRIÐ BEETHOVEN
THE Icelandic Take Away Theatre (ITAT)
frumsýndi „The daughter of the Poet“ nýtt
verk eftir Svein Einarsson í Lundúnum á
fimmtudagskvöld.
ITAT er fyrsti og eini íslensku atvinnuleik-
hópurinn sem starfræktur er í Bretlandi og er
þetta þriðja verkefni hans.
Sveinn Einarsson er höfundur og leikstjóri
verksins sem byggt er á Egils sögu og Lax-
dælu. „Leikritið er tflraun til að segja sögu
Þorgerðar Egilsdóttur sem er mikilvægur
karakter í báðum sögunum án þess að vera
hetjan í þeim. Hún fléttar saman völdum þátt-
um þannig að úr verður ein heild sem gefur
innsýn í h'f hennar sem dóttir skáldsins, eigin-
kona höfðingjans og móðir hetjunnar,“ segir
m.a. í kynningu.
Fimm leikarar og einn tónlistarmaður taka
þátt í uppfærslunni, þeir eru; Ágústa Skúla-
dóttir, Ásta Sighvats, Glódís Gunnarsdóttir,
Neil Haugie, Árni Pétur Reynisson og Arngeir
Heiðar Hauksson. Búningahönnuður er Katrín
Þorvaldsdóttir, sviðsmynd er í höndum Jóns
Trausta Bjarnasonar og lýsingu annast Þórður
Orri Pétursson.
Magnús Magnússon KBE er verndari leik-
hópsins og hefur verið ötull liðsmaður í að
kynna verkið. Greinar hafa þegar birst í The
Times, What’s On og Evening Standard
Verkið er flutt á ensku og verið er að leggja
drög að leikferð með það í haust.
ÞÝSKI flðluleikarinn Anne Sophie Mutter
hefur ákveðið að leika aðeins fiðlusónötur
eftir Ludwig van Beethoven í ár. í samtali
við Aftenposten segist hún vita að þetta
hljómi fráleitt en hún hlakki til að takast á
við þetta verkefni, sem hún hefur sjálf sett
sér. Undanfarin ár hefur Mutter leikið tölu-
vert af samtímatónlist en er nú að snúa sér
aftur að sígildu meisturunum.
Mutter hefur dregið nokkuð úr tónleika-
haldi, segist hafa skorið fjölda tónleikanna
niður í sextíu á ári. Einn þeirra verður í
Björgvin í maí, þar sem Mutter leikur þrjár
sónötur fyrir fiðlu og píanó í Grieg-höllinni.
Alls eru sónöturnar tíu og leikur Mutter
þær á þremur kvöldum, í þeirri röð sem tón-
skáldið samdi þær. Segir hún þetta eins og
að upplifa fimmtán ár af lífi Beethovens. Sú
fyrsta sé samin er hann var ungur maður
undir áhrifum frá Mozart og Haydn en svo
breytist þær eftir því sem skilningur hans á
hljóðfærinu aukist og hann átti sig á því að
fiðlan sé félagi hljóðfæraleikarans. Ætlunin
er að taka flutning Mutter og píanóleikarans
Lamberts Orkis upp og verður það gert á
tónleikum í Wiesbaden í ágúst. Gallinn er
bara sá að oft er mjög heitt í þeim mánuði og
ekki er hægt að hafa loftkælinguna á, á slík-
Anne Sophie Ludwig van
Mutter Beethoven
um tónleikum. Því segist Mutter biðja til
Guðs að ágúst verði kaldur þetta árið.
Næsta stóra verkefni kallar Mutter „2000“
en fyrri hluta þess árs ætlar hún aðeins að
leika verk sem samin voru fyrir fiðlu á 20.
öldinni og verða fyrstu tónleikarnir í New
York um áramótin. Síðari hluta ársins ætlar
hún hins vegar að hvíla sig.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinss.
Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti
Opið laug. og sun. kl. 13.30-16. Leiðsögn á
sunnudögum kl. 15. Höggmyndagarðurinn er
opinn alla daga.
Gallerí Listakot - Laugavegi 70
Iréne Jensen. Til 25. apríl.
Gallerí 20 fm, Vesturgötu lOa
Gallerí Sýnibox: Helgi Ásmundsson sýnir.
Gallerí Hlust: Willie Bell flytur nýtt verk.
Síminn er 551 4348.
Gallerí Bannur: Massimo Morossi.
Gallerí Hornið, Hafnarstræti
Sigrún Ögmundsd. og Anna Snædís Sigmarsd.
sýna til 6. maí.
Hallgrímskirkja
Teikn. Valgerðar Bergsd. Til 14. maí.
Kvennasögusafn íslands, Þjóðarbókhlöðu
Auður Ólafsd. er myndlistarm. aprílm.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugar-
nestanga
Sýning vetrarins nefnist Svífandi form. Verk
eftir Sigurjón Ólafsson. Til 5. maí.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Ólöf Nordal. Til 10. maí.
Kjarvalsstaðir, Flókagötu
Georg Guðni og Bernard Moninot sýna til 17.
maí.
Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7
Erlend verk í eigu safnsins til 10. maí.
Norræna húsið, Hringbraut
Norrænt grafíkþríár: Helle Frosig, Antti
Tanttu, Marius Olsen, Anne-Birthe Hove,
Hafdís Ólafsdóttir, Sonja Krohn, Urban
Engström og Stanislaw Wejman. Til 26. apríl.
Gallerí Fold við Rauðarárstíg
Gunnlaugur Stefán Gíslason sýnir til 5. maí.
Gerðuberg - Gerðubergi
Sjónþing Huldu Hákon til 17. mai.
Nýlistasafnið, Vatnsstig 3b
Afmælissýning tími/rými er haldin í tilefni 20.
ártíðar Nýlistasafnsins. Sýnendur eru félagar
í Nýlistasafninu fyrr og nú.
SPRON, Álfabakka 14, Mjödd
Bragi Ásgeirsson. Til 5. júní.
Stofnun Áma Magnússonar, Árnagarði
v/Suðurgötu
Handritasýning. Til 15. maí.
Stöðlakot, Bökhlöðustig 6
Guðrún Marinósdóttir og Sif Ægisdóttir sýna
til 3. maí.
Listasafn ASI, Freyjugötu 41
Guðrún Gunnarsdóttir og Camilla Vasudeva
sýna til 10. maí.
Gallerí Smi'ðar & Skart, Skólav.stíg 16a
Brynhildur Guðmundsdóttir sýnir til 14. maí.
Skotið, Hæðargarði 31
Samsýn. 13 kvenna á silkimyndum til 8. maí.
Haukshús, Álftanesi
Steinunn Helgad. sýnir í dag og á morgun.
TÓNLIST
Laugardagur 25. apríl
Styrktarfélagstónl. í íslensku óperunni kl. 17;
Auður Gunnarsdóttir sópran og Jón Rúnar
Arason tenór. Tónlistarsk. í Reykjavík; Burt-
fararpróf Áka Ásgeirssonar trompetl. í Fella-
og Hólakirkju kl. 17. Stórsveit Reykjavíkur
heldur tónl. í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 17.
Kyrjumar halda vortónleika í Víðistaðakirkju
kl. 17. Kvöldvaka með Steinunni Sigurðardótt-
ur og Carli Möller í Haukshúsum, Áílftanesi kl.
20.30.
Sunnudagur 26. apríl
Vortónl. Kariakórs Selfoss í Þorlákskirkju,
Þorlákshöfn kl. 16. Kór aldraðra með tónleika
í Hjallakirkju kl. 16. Sinfóníuhljómsv. áhuga-
manna í Neskirkju kl. 17. Tónl. á vegum Tón-
listarsk. í Reykjavík í Fella- og Hólakirkju kl.
20.30. Kór Hafnarfjarðarkirkju heldur vor-
tónl. í Hafnarfjarðarkirkju kl. 16.
Þriðjudagur 28. apríl
Stórsveit Reykjavíkur heldur tónl. á sal Fjöl-
brautarskóla Suðurnesja kl. 20.30. Vortónl.
Tónlistarsk. Kópavogs á sal skólans kl. 18.
Fimmtudagur 30. apríl
Vortónl. Tónlistarsk. Kópavogs á sai skólans
kl. 20.
LEIKHÚS
Þjóðleikhúsið
Óskastjarnan, sun. 26. apr., mið.
Fiðlarinn á þakinu, lau. 2. maí.
Grandavegur 7, fös. 1. maí.
Meiri gauragangur, lau. 25. apr., fim.
Pojjpkorn, lau. 25. apr., fim.
Gamansami harmleikurinn sun. 26. apr., fös.
Borgarleikhúsið
Sex í sveit, lau. 25. apr., fim., fös., lau.
Loftkastalinn
Bugsy Malone, lau. 25. apr.
Fjögur hjörtu, sun. 26. apr., lau.
Trainspotting, fos. 1. maí.
Nóttin skömmu fyrir skógana, sun. 26. apr.
Kaffileikhúsið
Svikamylla, lau. 25. apr., sun., fim., fös.
Leikfélag Akureyrar
Söngvaseiður, lau. 25. apr., sun., fös., lau.
Markúsarguðspjall sun. 19. apr.
Möguleikhúsið
Einar Áskell sun. 26. apr.
Sálir Jónanna ganga aftur lau. 25. apr., sun.
Ilafnarfjaröarleikhúsið
Síðasti bærinn í dalnum lau. 25. apr., sun., lau.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 25. APRÍL 1998