Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.2000, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.2000, Blaðsíða 16
H ATIÐART ON LEIKAR OG HATIÐARMESSA A ÞINGVOLLUM A SUNNUDAG 1 \ Jp , V ' - : , I . ,a la Lít LÍ Morgunblaðið/Kristinn Hátíðarkór Kristnihátíðar, einsöngvarar og Sinfóníuhljómsveit íslands hafa að undanförnu æft saman í herbúðum KR við Frostaskjól. KOMINN MEÐ TOLUVERÐA STRENGI í HANDLEGGINA Óhætt er að segja að það verði í mörg horn að líta hjá Herði Áskelssyni á Kristnihátíð á Þingvöllum um helgina. Auk þess að vera tónlistarstjóri hátíð- arinnar stjórnar hann Sinfóníuhljómsveit Islands og gríðarstórum kór á hátíðartónleikum og blás- arasveit og enn stærri kór við hátíðarmessu á morg- un. MARGRÉT SVEIN- BJÖRNSDÓTTIR heim- sótti Hörð í vikunni og heyrði í honum hljóðið. LÚÐRAÞYTUR frá börmum Al- mannagjár kl. 13 á morgun, sunnudag, markar upphaf hátíðar- messu kristnihátíðar sem fram fer á útisviðinu á Völlunum. Það er inngöngustef Tryggva M. Baldv- inssonar, „Intrada", sem þar verð- I ur frumflutt en verkið var skrifað sérstaklega fyrir þetta tækifæri að beiðni kristnihátíðamefndar. Yfirumsjón með tón- listarflutningi við messuna hefur Hörður Ask- elsson, tónlistarstjóri hátíðarinnar, en þar syngja hátíðarkórar barna og fullorðinna, alls um 400 söngvarar, og málmblásarasveit og hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit ís- lands leika. Hátíðarkór fullorðinna er samsettur úr Dómkómum, Kór Langholtskirkju, Mótettu- kór Hallgrímskirkju, Schola cantorum og blönduðum kór úr byggðum landsins. Hátíð- arkór bama er skipaður bömum úr Graduale- kór Langholtskirkju, Skólakór Kársness og blönduðum barnakór úr byggðum landsins. Hörður segir messuna bæði hátíðlega og áhrifamikla og umgjörð hennar óvenjulega. „Þegar gengið er til messu í kirkju sest organistinn við orgelið og tekur fram þær bækur sem þarf til að spila undir en þarna er náttúrulega ekki orgel. Við urðum að fá blás- ara úr Sinfóníuhljómsveit Islands til þess að „leika á orgel“ - og ég stjóma þeim, svo eigin- lega spila ég á orgelið eftir sem áður,“ segir hann. BOLUR Morgunblaðið/Kristinn Mikið mæðir á Herði Áskelssyni, tónlistarstjóra Kristnihátíðar, um helgina. „Til þess að útsetja sálmana fyrir blásara- sveit var fenginn mjög reyndur og þekktur maður á þessu sviði, Þorkell Sigurbjömsson. Sálmarnir eru reyndar flestir vel þekktir enda ætlast til þess að fólk geti sungið með. Allir textar eru prentaðir í hátíðardagskránni sem hefur verið send á öll heimili í landinu og vonandi verða allir hátíðargestir með bókina með sér. I messunni verður rifjuð upp saga kristninnar og þar með kirkjulegrar tónlistar og þess vegna em þama líka eldgamlir söngv- ar sungnir á latínu. Ekki má gleyma nýsköp- uninni svo það var efnt til samkeppni um lag við sálminn „A mótum tugalda“ sem herra Sigurbjöm Einarsson orti. Fyrstu verðlaun hlaut Veigar Margeirsson sem síðan útsetti lagið á afskaplega glæsilegan hátt og verður það fmmflutt við hátíðarmessuna,“ segir Hörður. Ennfremur verður framflutt verkið „Sanctus" eða „Heilagur, heilagur" sem Þorkell Sigurbjömsson samdi sérstaklega fyrir þetta tækifæri. „Hann bjó til mjög snúið, kröfuhart og smellið stykki fyrir sex radda kór og málmblásara," segir Hörður, ánægður með útkomuna. Hraðar hendur tækni- og sviðsmanna Þegar messunni lýkur um klukkan þrjú verður að hafa hraðar hendur því þá þurfa tækni- og sviðsmenn að breyta sviðinu í tón- leikasvið. „Þar sem altarið var koma stólar og púlt fyrir strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar- innar sem ekki er með í messunni. Klukkan fjögur hefjast svo hátíðartónleikarnir," segir Hörður sem er síður en svo laus allra mála að messunni lokinni því hann stjórnar einnig 160 manna hátíðarkór, einsöngvumm og Sinfóníuhljómsveitinni á tónleikunum. Hátíð- arkórinn skipa Dómkórinn, Kór Langholts- kirkju, Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola cantomm. Fyrst á efnisskránni er lag Sigvalda Kalda- lóns „ísland ögram skorið“ og er ætlast til að viðstaddir taki undir. Þá verður sunginn upp- hafskór „Alþingishátíðarkantötu“ Páls ísólfs- sonar sem fmmflutt var á Þingvöllum 1930. Næst verða fluttir hlutar úr óratóríunni „Messíasi“ eftir Hándel. Gunnar Guðbjöms- son tenór syngur tvær aríur, „Comfort ye“ og „Every valley", Sigrún Hjálmtýsdóttir sópr- an syngur aríuna „I know that my Redeemer liveth“ og hátíðarkórinn flytur tvo kóra; „And the glory of the world“ og „Hallelújakórinn". Þá verður fluttur 1. og. 4. kafli úr „Þjóðhvöt" Jóns Leifs og eftir Jón Nordal verður fram- flutt í nýjum búningi „Sólhjartarljóð" úr „Óttusöngvum á vori“. Einsöngvarar í því era þau Sigrún Hjálmtýsdóttir og Sverrir Guð- jónsson kontratenór. Gunnar Guðbjörnsson syngur „Agnus Dei“ eftir Bizet, kórinn flytur „Sanctus" úr H-moll-messu Bachs og tónleik- unum lýkur með almennum söng þjóðsöngs- ins eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Bæði tónleikarnir og messan verða send út í hátöluram yfir svæðið auk þess sem þeim verður bæði útvarpað og sjónvarpað. Góður andi og vaxandi samkennd í hópnum Undanfarna daga hefur allur hópurinn æft í íþróttahúsi KR við Frostasly'ól á sérsmíðuð- um kórpöllum sem nú hafa verið fluttir á Þingvelli. Lokaæfingin var svo á útisviðinu á Völlunum í gær. Hörður segir andann í hópn- um mjög góðan og samkenndina vaxandi. „Þegar kórar koma saman er eðlilegt að fólk sé með ákveðinn fyrirvara og sumum finnst þeir vera í samkeppni um hvaða kór sé bestur og hver nái flestum áheyrendum á tónleika. Kollegar mínir sem koma með sína kóra inn í þetta samstarf, þeir Jón Stefánsson í Lang- holtskirkju og Marteinn H. Friðriksson, stjórnandi Dómkórsins, eru alveg feikilega góðir samstarfsmenn og ég finn ekki fyrir neinu sem gæti heitið rígur milli kóranna.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Hörður stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni en það hefur hann gert nokkrum sinnum í tengslum við Kirkjulistahátíð Hallgrímskirkju. Hann við- urkennir þó að þetta sé ekki hversdagslegt verkefni. Auk þess sé hann kominn með tölu- verða strengi í handleggina af að stjórna hópnum sökum þess hve hópurinn sé stór og fjarlægðirnar því miklar. En að öðru leyti ber tónlistarstjórinn sig vel og hlakkar til helgar- innar. Og vonar að veðrið verði gott. 1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 1. JÚLÍ 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.