Tíminn - 22.04.1967, Blaðsíða 14

Tíminn - 22.04.1967, Blaðsíða 14
4 M TÍMINN EINVfG Framhals af bls. 1. yrði hætt. En iþegar ég komst að raun um, að andstæðinguxinn var ekki naunverulega særður fór ég íram á, að haldið yrði áfram. Læknar og einvígisvottar féllust á það. Ribiere sagði: Ég særðist ekki. Þetta voru aðeins rispur. Ég er ekki óánægður þegar litið er til þess, að þetta er fyrsta einvígi mitt. í næsta skipti ferst mér kannski meðhöndlun vopna betur úr hendi. Ég segi ekki þar með, að ég eigi eftir að berjast aftur. Ribiere sagði ennfremur, að Deff erre hlyti að vera vanur skilm- ingamaður. Eins og fyrr segir var ástæða þessa einvígis sú, að í miklum deilum í franska þinginu í gær, benti Defferre á Ribiere og öskr- aði: Fáið þennan asna til að halda kjafti. Ribiere hafði engin um- svif%n skoraði Deferre á hólm og bauð honum að veljá einvígisvopn, þegar Defferre neitaði að taka orð sín aftur. Þegar Deferre varð að því spurð ur eftir einvígið í dag, hvort hann héldi enn fast við ummæli sín sagði 'hann: Já hann er asni, fædd ur ásni. SVETLANA Framhals af bls. 1. Haft er eftir opinberum heim ildum í Washington, að bandarísk ir einstaklingar muni kosta ferð Svetlönu, annað hvort lögfræði- skrifstofur í New York eða útgef endur, sem hyggjast gefa út bók um líf hennar í Kreml. Áður en Svetlana hélt frá Sviss í dag sendi hún frá sér tilkynn ingu, þar sem hún þakkar Sviss urum fyrir gestrisni þeirra. Segir þar, að hún hverfi af fúsum vilja til Bandaríkjanna, en muni ætíð geyma í hug sér hlýjar minningar um dvöl sína í Sviss. Svetlana hef ur dvalið í Sviss frá 11. marz s. 1. Fyrir um mánuði síðan viður- kenndi bandariska utanríkisráðu- neytið, að Svetlana hefði sótt um hæli í Bandaríkjunum sem póli- tískur flóttamaður. Nú er haft eftir frönskum vini hennar í Wash ington, að Svetlana ætli að ferð ast víða um í heiminum, áður en hún setzt að í Bandaríkjunum. Svetlönu hafa verið boðnir tug ir milljóna, vilji hún skrifa endur minningar sínar og þá einkum um lífið í Kreml á valdadögum föður hennar. En vinur hennar, rithöf undurinn Manuel de la Vigerie, sagði í gær, að Svetlana hataði pólitík. Svetlana er eina eftirlifandi barn Jósefs Stalíns. Einn bróðir hennar féll í stríðinu, en annar lézt fyrir um tuttugu árum. Svet lana á son og dóttur í Moskvu, þar sem hún bjó í kyrrð allt frá dauða föður síns árið 1953. GÆZLUVARÐHALD F’rainnau a) ois , Reykjavik fór utah til að kynna sér málið, hefur haft með það að gera síðan, og síðast í dag munu hafa verið réttarhöld í sakadómi Reykjavíkur vegna miáls þessa. Talið er að fleiri kaiipsýslumenn en Páll Jónas- son séu meira eða minna við- riðnir mál þetta. BYLTING Framhals af bls. 1. í nótt var birtur konungsúr- skurður, þar sem sagði, að herinn hefði tekið öll völd. Hefði það verið nauðsynlegt vegna þess, að viss öfl innanlands ógnuðu öryggi ríkihns. Að öðru leyti hefur ekk- ert beint heyrzt frá konunginum. Síðusiu fréttir herma þó, að hin nýja stjórn muni sverja honum trúna?areiða í kvöld. Rért eftir miðnætti tóku her- menn. ásamt skriðdrekasveitum, sér stöðu viö allar mikilvægar byggingar, einnig höll konungs. Flugvcllurinn í Aþenu, pósthús, símshðvar og útvarpsstöðvar eru á vatdi hersins. Útgöngubann var fyrirskipað og því lýst yfir, að hver sá, er væri á ferli á götum höfuðborgarinnar eftir myrkur, yrði s'kotinn á staðnum. Háskólum og öðrum menntastofnunum var lokað, einnig bönkum og öðrum penir gastofnunum. Bannað var að taka peninga út úr bönkum. Hver sá er hamstrar matvöru verðnr dreginn fyrir herrétt. Allt frá því er Papandreou fór ÞAKKARÁVÖRP Ég þakka kærlega alla vinsemd á sjötíu ára afmæli mínu 16. apríl 1967. Guð blessi ykkur öíl. Einar J. Eyjólfsson. Öllum vinum mínum nær og fjær, sem minntust mín á margan hátt á 60 ára afmæli mínU hinn 8. apríl síðastliðinn, þakka ég af alhug. Guð blessi ykkur öll. Lifiö heil. Guðbjörg Jónasdóttir, Skíðbakka. Innilegar þakklr til allra naer og fjær sem sýndu okkur samúö og styrktu í orði og verki viS fráfall og jarSarför sonar okkar og bróSur Jóns Inga Magr.ússonar, Hvammi, Eyjafjöllum SigriSur Jónsdóttir, Magnús Slgurjónsson, systkini hins látna og aSrir vandamenn. nwru iiiiiwiii Þökkum innilega auSsýnda samúS og vináttu viS andlát og jarS- arför Páls Björgvinssonar, Efra-Hvoli Sérstakar þakkir viljum viS færa hreppsnefnd Hvolshrepps og Hvolhrepplngum fyrir veitta aSstoS. Ingunn Ósk SigurSardóttir, RagnheiSur Sigrún Páisdóttir, Helga Björg Pálsdóttir, Elísabet Björgvinsdóttir, Þorlákur Helgason. frá vcldum að kröfu konungs, hef- ur það vofað yfir Grikklandi, að herf.m tæki þar völd. Eins og kunnugt er, var ástæðan til brott- viknir.gar Papandreous deila út af auk.num áhrifum hægri sinnaðra öfgamanna í yfirstjórn hersins. Papandreou vildi fjarlægja for- sprakka þessara afla, en konung- ur neitaði. Hann óttaðist, að slíkar aðgeiðir myndu auka völd vinstri manna innan hersins. Deilan jókst enn, er upp komst um samsæri vinstrisinnaðra herforingja. Var þar um að ræða leyniihreyfingu, sem nefndi sig Aspida, skjöldur- inn. Takmark þeirrar hreyfingar var að steypa stjórn landsins, segja Grikkiand úr NATO og lýsa landið úr tengslum við öll bandalög. Þann 16. marz s.l. voru 15 herforingjar dæmdir í fjögurra til átján ára fangelsi fyrir þátttöku í samsær- inu. Á timabili var talið, að sonur Papandreous, Andreas, væri þátt- takandi í samsærinu, en tilraun til að svipta hann þinglhelgi bar ekki árangur. Sérstök þingnefnd felldi tillögu þar að lútandi. Allt frá því er Papandreou fór frá, hafa verið við völd í Grikk- landi veikar stjórnir. Miklar mót- mælaaðgerðir vinstrimanna urðu, er Papandreou var rekinn frá völd um. Sama varð uppi á teningnum, er Konstantin konungur fól Kan- elloP'.Jus að mynda bráðabirgða- stjórn, þar til kosningar færu fram. Enn jukust mótmælaöldurn ar, er konungur leysti þingið upp. Var þvi óspart hampað, að kon- ungur hefði misnotað völd sín með stjórnmálaafskiptum sínum. Haft er eftir heimildum við sendiráð Belgíi’ í Grikklandi, að hlutverk hersins væri aðeins að tryggja ró og spekt í landinu. Borgaraleg stjó-n væri við völd. Benti þetta til, að Kanellopolus hefði verið með i ráðum. Hann og samráð- herrar hans hefðu aðeins verið handteknir ásamt öðrum stjórn- mólarrönpum til þess að sýna, að ekki xræri gert upp á milli í því tillitii Þess vegna væri við því búizt, að róðherrunum yrði sleppt lausum innan tíðar. FORSTOFUÞJÓFUR Framhald aí bls. 16 þessi eigi þar ekki greiða leið um. Lögreglunni í Hafnarfirði hafa bor- izt iýsingar af manninum, og er máli? í rannsókn þar syðra. DRENGJAKÓR Frf.mbalU u nis i UM‘s Centralforeninig — og hef- ir bækistöð sína á íþróttasvœði fé- lagsin í Emdrup — KFUM‘s Id- rætepark — oig dregur nafn sitt þar af: PARlKDRENGEiKORET. í sönglkórmuTn (konsert-kórn- um) eru 26 drengir á aldrinum 9-14 ára, en auk aðalkórsins starf- ar ævimgakár til endurnýjunar söngkórnum eftir þörfum, — þ.e. þegar eldri dremgirnir fara í mút- ur. — Kórinn hefir haldið meira en þúsund stærri ag minni söng- sfciemmtanir í Danmörku, Sví- þjóð, Noregi, Finnlandi, ísilandi, Englandi, Þýzfcalandi oig í Tókfcó- slóvakíu. Á 25 ára aflmæliisárinu — 1968 — er í ráði að kórinn fari í sömglíör til B-andíarfkjanna. Undirbúning og móttöku dremgjakórsins hér annast sömu aðiilar og 1954 og 1956, þ.e. hóp- ur vina kórsins innan KFUM. Með an kórinn verður hér 4.-18. júlí n.k., er ráðgert eins og fyrr að koma drengjunum fyrir á einka- heimilum, 1-2 drengjum á hverju heimili. Gamlir vinir kórsins og aðrir, sem gjarnan vilja opna beimili sín fyrir kórdrengjunum meðan þeir dvelja hér, geta nú þegar — eða síðar tilkynnt það til húsvarða KFUM oig K, Amt- mannsstíg 2B, sími 17536. í sumar mun kórinn eins og áður hafa sönigsbemmtanir í Reyfcjavífc og úti á landi, en enn- þá er efciki ful'lráðið hme viíða kór- inn fer hér um að þessu sinni, Söngskráin verður fjölbreytt og vönduð oig sönglieik mun kór- inn einnig flytja nú eins og fyrr. LEIKFiMISÝNING Framhald af bls. 2 Miðbæjarskólinn — kennari Kolfinna Sigurvinisdóttir. Mela- skólinn — kennari I-Iannes In-gi- bergsson. Breiðagerðissfcölinn kennarar Þórir Kjartansson og Magnús Gunnlauigsson. Laugar- nesskólinn — kennari Jónína Tryiggvadóttir. Hagaskólinn benn- arar Oilga Magnúsdóttir og Viðar Símonarson. Gagnfræðask. við Lindargötu kennari Enla Fredrek sen. Ga'gnfræðasfc. Vesturbæj- ar kennari Jens Magnússon. Gagn fræðastk. Auisturbæjar kennari Vignir Andrésson. Vtegna fráfall's B'enedikts Jafcobs son-ar, sem hafði forgön'gu um þessa sýningar, hefur sýningunum seinfcað oig þvi gátu tveir skólar, Kennaraskóli íslands (kennari Ragna Lár Ragnarsd.) og Mennta- sikólinn í Reyikjavík (fcennari Valdi mar Örnól'fsson), ekki orðið með þar sem viðkomandi nemendur voru farnir í uppilestrarleyfi. Stjórnendur þessa kynnimgar- móts á leikfimi skólanna verða iþróttiafulltrúarnir Stelfán Kristjánsson og Þonsteinn Einars- son. ÍÞRÓTTIR En þetta stóra forskot virtist ekki ætla að nægja Fram, þótt órúlegt væri. Næstu mínúturnar voru mjög taugastrekkjandi fyrir báða aðila. FK-ingar reyndu hvað eftir annað að skora — í hálfgerðri örvæntingu — en Þorsteinn varði flest skot þeirra. Hefði allt verið eðliiegt, hefði Fram átt að geta gert út um leikinn algjörlega á þessum mínútum, en þá brást sókn arieikurinn. Ingólfur var mikið til út af og Gunnlaugur og Guðjón aðalmennirnir í sókninni, en þeir náðu ekki að skapa verulega ógn- un. Og smátt og smátt saxaði FH á forskotið. Örn skoraði 8. mark FH og Einar Sigurðsson bætti því 9. við. 17 mínútur liðnar. Geir skoraði á 18. mín. 10. mark FH og á 21. mínútu jafnaði hann úr vítakasti 11:11. IIi“ ótrúlega liafði gerzt jafntefli — 0g spennan í liápunkti aftur. Gunnlaugur Hjálmarsson, sem löngum hefur haft „FH-komplex“ náði forustu fyrir Fram aftur á 22. mmútu og var það mjög þýð- inga.rnikið mark í stöðunni, eitt hveri þýðingarmesta mark leiksiiis að mínu áliti. Ekki tókst Gunnlaugi eins vel mínútu síðar, þegar hann reyndi mark- skot — máttlaust skot, sem Karl Jónsson í FH-markinu varði. Næstu mínútur voru mjög spenn andi og fullar af mistökum beggja liða. Gunnlaugur skoraði 13:11 fyr ir Fnam úr vítakasti, þegar 5 mín- útur voru eftir. En þrátt fyrir tveggja marka forskot gat allt skeð enn þá. Og þannig skoraði Auðunn Óskarsson 12. mark FH tveimur mínútum fyrir leikslok. Þá var staðan 13:12 Fram i vil. Á síðustu tveim mínútunum kom Fram út sem sterkari aðilinn og var það ekki sízt að þakka Þor- steini í markinu, sem varði af mikilli snilVI, þótt taka verði með í reikninginn, að sum af skotum FH hafi verið reynd í örvæntingu. Sigurður skoraði 14:12, Ingólfur 15:12 — þegar hér var komið, voru FH-ingar hættir — og Gunnlaag ur kórónaði sigur Fram með því að skora 16:12 mcð skoti aftur fyrir sig. Lið Fram og FH eru mjög jöfn að styrMeika. í gær átti _ Fram góðan dag, en FH-ingar náðu ekki sínu bezta, en það var ekki nógu gott hjá Fram, að þurfa að vinna leikinn á góðri markvörzlu Þor- steins undir lokin. Eins og staðan LAUGARDAGUR 22. aprfl 1967. var um tíma í síðari hálfleik, hefði liðið haft alla möguleika á að vinna FH með stórum mun, en missti forskotið niður. Fyrir utan Þor- stein var Ingólfur Óskarsson bezt ur í Fram-liðinu. Keppnisákafinn var mikill og IngóKur skoraði sjálfur 5 mörk, auk þess, sem hann var mjög virkur í spilinu. Þá átti Sigurbergur Sigsteinsson mjög góðan leik — bæði í sókn og vörn. Sigurbergur er verðandi landsliðsmaður. Gunnlaugur var góður á köflum, en stundum of ragur í sókninni. Hann skoraði i mörk, þar af 2 úr vítum. Sigurður Einarsson var góður á línunni, öruggari en oftast áður í vetur. Hann skoraði 2 mörk. Gylfi var undir smásjá FH-inga og náði sér aldrei á strik. Hann skoraði 2 mörk. Hinrik Einarsson var einn sterkasti maður varnarinnar. Ekki bar mikið á Guðjóni, en hann ógn aði þó alltaf með línusendingum. FH-liðið var nokkuð sannfærandi í fyrri hálfleik Og þá var Ragn ar Jónsson áberandi bezti maður liðsins. En það var greinilegt, að FH-ingar áttu erfitt með að finna leið framhjá Fram-vörninni, erfið ara en í fyrri leiknum. Sérstaklega höfðu varnarmenn Fram gott auga með Erni og Birgi. Geir var fyrir bragðið virkari, en náði þó ekki sínu bezta. Ekki veit ég hvað það átti að þýða hjá FH að skipta um markvörð eins og þeir gerðu í leiknum. Karl kom inn á fyrir Kristófer og gekk Frömurum mun betur að skora hjá honum. Leik- menn Fram hafa löngum átt í erfiðleikum með að skora hjá Kristófer — og sálrænt séð, var það skakkur leikur hjá FH að halda honum fyrir utan. Mörkin skoruðu: Geir 5, Ragnar og Örn 2 hvor, Páll, Auðunn og Einar 1 hver. Þegar á heildina er litið, var þessi leikur mun lakari — þrátt fyrir mikla spennu — en leikur liðanna s. 1. sunnudag. Karl Jóhannsson dæmdi og slapp nokk uð vel frá erfiðu hlutverki, en þó get ég ekki gert að þvi, að mér fannst hann dæma Fram nokkuð í óhag í fyrri hálfleik. Eyfirðingar Framsóknarfélögin í Arnarness-, Skriðu-, Glæsibæjar- og Öxnadals- hreppum efna til fundar um land- búnaðarmál að Melum í Hörgár- dal næst komandi föstudag kl. 21. Frummælendur verða Stefán Val- geirsson, bóndi og Jónas Jónsson, ráðunautur. Allt áhugafólk um landbúnaðarmál velkomið. — Stjórnirnar. Akranes Framsóknarfélag Akraness heldur aðalfund sinn í Fram- sðknarhúsinu, Akranesi, sunnu daginn 23. apríl n. k. kl. 4 síðdegis. Auk þess verður rætt um kosningaundirbúninginn og fieira. ELDUR í BÁT GÞE-Reykjavík, föstudag. Troilbáturinn Ver VE 200 frá Vest.mönnaeyjum, var hætt kominn í gæt'KVÖldi, er eldur kom upp í vélarrúmi, en báturinn var á leið austu, í bugtir út af Meðallands- sandi Magnaðist eldurinn óðum, en báíurinn Gissur hvíti frá Horna firð'. tr staddur var á þessum slóðum, kom slcjótlega á vettvang, og aóstoðaði við að ráða niður- löguíi eldslns. Þá var kallað á lóðsinn i Vest- manii^eyjum, orá nann skjótt við kom á vettvang og tók bátinn í tog. Var hann kominn til Eyja um hálf eittleytið í nótt. Skemmd ir á bátnum hafa reynzt tals- verð»r en talið er, að kviknað hafi í út frá rafmagni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.