Alþýðublaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 16
Sam ’87 Listsýning félagsmanna Hamragarða í dag 1. maí kl. 15.00 verður opn- uö í hamragörðum, Hávallagötu 24, listsýning 37 félagsmanna í að- ildarfélögum Hamragarða, en það eru starfsmannafélög samvinnufyr- irtækjanna í Reykjavík og Nem- endasamband Samvinnuskólans. AIIs eru rúmlega 80 verk á sýn- ingunni og er þar um að ræða olíu- myndir, vatnslitamyndir, grafík, acrylmyndir, blýants og pastel teikningar og hlutir gerðir úr bein- um. Flest verkin eru til sölu. Sýningin verður opin frá 1. maí til 10. maí og opin daglega frá kl. 16.00 til 20.00 virka daga og um helgar frá kl. 14.00 til 22.00. SAM-hópurinn hélt síðast sýn- ingu árið 1983 á sama stað, en þessi sýning núna er m.a. haldin í tengsl- um við 50 ára afmæjj Starfsmanna- félags Sambandsins 10. mai n.k.. Kvenfélag Alþýðuflokksins: Síðdegiskaffi á 1. maí Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík stendur fyrir síðdegis- kaffi 1. maí í Naustinu við Vestur- götu. Húsið er opið fyrir alla milli klukkan 15 og 18. Að sögn Jóns Baldurs Lorange, framkvæmdastjóra Alþýðuflokks- ins, verður síðdegiskaffið með hefðbundnu sniði. 1 fyrra var troð- fullt hús og komust færri að en vildu. Skemmtiatriði verða á dagskrá auk þess sem flutt verða ávörp. Jó- hanna Linnet mun syngja nokkur lög og Jón Baldvin Hannibalsson mun flytja stutt ávarp. Alþýöuflokkurinn í Hafnarfirði: 1. maí kaffi í Alþýðuhúsinu Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði hefur að venju opið hús í Alþýðu- húsinu 1. maí að loknum hátíða- höldum verkalýðsfélaganna. Þar verður á könnunni og tæki- færi til þess að ræða málin yfir kaffibolla. Kjartan Jóhannsson al- þingismaður mun ræða um ástand og horfur í stjórnmálunum út frá kosningaúrslitunum og könnunar- viðræðum síðustu daga um stjórn- armyndun. Kjartan mun einnig svara fyrirspurnum. Allir eru hvattir til að líta inn og taka þátt í umræðunni. Verið velkomin! Alþýðublaðið sendir íslenskri alþýðu baráttukveðjur 1. maí. oeins aregnir ur seldum miðum SUBARU Sedan 1800 GL áKr.610þúsund ■pnm MITSUBtSHI Pajem Turbo-Diesel áíir.825þúsund V0LV0240GL áKr.690þúsimd ; c .£ : - , v. :Tú . im okkar traustu viðskiptavinum og bjóðum nýja velkomna. EFLUM STUÐNING VIÐ ALDRAÐA. MlDi Á MANN FYRIR HVERN ALDRAÐAN.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.