Alþýðublaðið - 16.05.1987, Síða 3
Laugardagur 16. ma! 1987
3
Kristín Á. Ólafsdóttir:
Veljum forystu á grund-
velli niðurstaðnanna
„Ég held að umræðurnar á þess-
um miðstjórnarfundi muni fyrst og
fremst snúast um ástæðurnar fyrir
fylgistapi flokksins í kosningunum
og núverandi stöðu hans“, sagði
Kristín Ólafsdóttir, þegar Alþýðu-
blaðið hafði samband við hana í
gær. Kristín segist ekki útiloka
þann möguleika að skipta þurfi um
forystu í fiokknum í framhaldi af
slíkri athugun. Hún segist telja
fremur ólíklegt að Alþýðubanda-
lagið sé í stakk búið til að taka þátt
í myndun ríkisstjórnar og kveðst
alls ekki hrifin af hugmyndum um
nýsköpunarstjórn.
Þegar Kristín er spurð um af-
stöðu til forystuskipta í flokknum,
sem talsvert hafa verið til umræðu
að undanförnu, segist hún engar yf-
irlýsingar vilja gefa um það. „Mér
finnst mjög rangt að nálgast málið
á þennan hátt“, segir Kristín. „Mér
finnst að við eigum að byrja að átta
okkur á því í hverju vandinn liggur:
Hefur stefna flokksins verið svona
röng? Hafa áherslurnar verið svona
vitlausar? Hefur vantað mikið á að
starfsaðferðirnar séu eins og gott
getur talist?“
Kristín telur að svör þurfi að fást
við þessum spurningum og á því
verði byrjað á miðstjórnarfundin-
um. „Þetta þurfum við svo auðvit-
að að ræða áfram og í ljósi þessara
niðurstaðna hljótum við svo að
velja okkur forystu. Það er ekkert
ótrúlegt að niðurstöður leiði það í
ljós að það þurfi kannski annað
fólk í forystu. Ég útiloka það ekki. “
Að því er varðar spurninguna um
það hvort landsfundi Alþýðu-
bandalagsins verði flýtt, kveðst
Kristín vera þeirrar skoðunar að
landsfund eigi að halda í haust áður
en þing kemur saman. Hún segist
hins vegar ekki munu leggjast á
sveif með þeim sem kunni að vilja
halda landsfundinn í sumar.
Um hugsanlega þátttölu Alþýðu-
bandalagsins í nýsköpunarstjórn,
segir Kristín:
„Ég er ekki spennt fyrir nýsköp-
unarstjórn. Ég sé ekki málefnalega
fleti á því. Ég sé t.d. ekki að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi kúvent í
stefnu sinni í utanríkismálum. Ég
nefni líka efnahags- og kjaramál og
í þeim málum sé ég ekki neina
stefnubreygtingu hjá Þorsteini
Pálssyni frá því sem var á síðasta
kjörtímabili"
í umræðum um nýsköpunar-
stjórn að undanförnu hefur talsvert
borið á þeirri hugmynd að í slíku
stjórnarsamstarfi væri auðveldara
að framfylgja ákveðinni launa-
stefnu sem mörkuð væri af aðilum
vinnumarkaðarins. Um þetta segir
Kristín:
„Þú ert væntanlega að tala um þá
launastefnu sem hefur verið ríkj-
andi, svokallaða þjóðarsáttastefnu.
Ég er andvíg þeirri stefnu."
Varðandi utanríkismálin telur
Kristín ekki koma til greina að Al-
þýðubandalagið taki þátt í stjórn
sem setji allt á fulla ferð í sambandi
við hernaðarframkvæmdir í land-
inu. Hún nefndir í þessu sambandi
þær hugmyndir sem nú eru uppi um
flugvöll á Sauðárkróki og undir-
búning að stjórnstöðinni í Keflavík
o.s.frv. „Ég get aldrei séð fyrir mér
að Alþýðubandalagið taki þátt í
stjórn sem gefur áfram grænt ljós á
þessa hluti. “
Hins vegar segist Kristín vera op-
in fyrir öllum hugmyndum um sam-
starf og samvinnu við Alþýðu-
flokkinn. Slíkt samstarf segist
Kristín þó sjá fyrir sér í stjórnar-
andstöðu eða í fjögurra flokka rík-
isstjórn með Kvennalistanum og
Framsókn. „Kvennalistinn gegnir
mjög stóru hlutverki í mínum huga
þegar ég hugsa fram í tímann varð-
andi nálgun vinstri aflanna."
Verða mikil og hatrömm átök á
miðstjórnarfundinum um helgina?
Um það segir Kristín:
„Ég sé fyrir mér mjög mismun-
andi mat og túlkun á ástæðum
kosningaósigursins.“ Hún segist
ennfremur álíta að miðstjórnar-
fundurinn muni meira snúast um
þetta atriði en hugsanlega stjórnar-
þátttöku, enda segist hún telja
miklu minni líkur fyrir því að Al-
þýðubandalagið verði aðili að ríkis-
stjórn á næsta kjörtímabili þótt
hún treysti sér ekki til að útiloka
það með öllu.
Áhugi fyrir
nýsköpun
í lágmarki
Hjörleifur Guttormsson segist
ekki sjá neina ástæðu til að flýta
landsfundi Alþýðubandalagsins,
heldur telur eðlilelgt að hann verði
haldinn „með haustinu“. „Við
þurfum að fara yfir stöðuna", segir
hann og telur að ekki veiti af sumr-
inu til þess. í samtali við Alþýðu-
blaðið segist Hjörleifur ekki vera
sérlega spenntur fyrir nýsköpunar-
stjórn og kveðst álíta að allt tal um
slíka stjórn sé runnið frá einum og
sama aðilanum, nefnilega Alþýðu-
flokknum.
„Við höldum þennan fund í
framhaldi kosninga", sagði Hjör-
leifur. „Það verður sjálfsagt farið
yfir mörg efni og það getur vel verið
að stjórnarmyndun beri á góma, en
ég hef ekki trú á að það verði neitt
meginmál.“
Um nánari samvinnu eða hugs-
anlegan samruna A-flokkanna,
segist Hjörleifur halda að áhugi
fyrir slíku sé í lágmarki innan Al-
þýðubandalagsins um þessar
mundir. „Það hefur alltaf komið
upp í tengslum við stjórnarmynd-
anir, einhver umræða um þetta, en
ég held að þessi áhugi sé minni en
oft áður. “
Um hugsanlega aðild Alþýðu-
bandalagsinxs að nýsköpunar-
stjórn, segir Hjörleifur:
„Ég hef ekkert legið á því að ég
tel það fjarstæðu. Eg hef ekki séð
að það væri nein málefnaleg staða
uppi sem geri, slíkt umræðuvert.
Andstæður í stjórnmálum eru milli
hægri og vinstri og ég sé ekki að það
sé neinn bilbugur á hægri flokkun-
um. Ég get ekki lesið neitt í þá átt út
úr úrslitum kosninganna.“
Hjörleifur segist heldur ekki sjá
nein teikn á lofti sem bendi til þess
að aukið samstarf eða jafnvel sam-
runi A-flokkanna sé nú nærtækari
hugmynd en verið hefur undan-
farna áratugi.
Hjörleifur kveðst yfirleitt ekki
hafa séð nein merki um að bilið
milli A-flokkanna sé að styttast.
„Alþýðuflokkurinn er ekki sósíal-
demókratískur flokkur", segir
hann. „Hann er miðjuflokkur og
hægri flokkur. Hann er alveg út úr
mynstri annarra krataflokka og
hefur verið það lengi. Og á meðan
þetta er ekki jafnaðarmannaflokk-
ur nema að nafninu til, sé ég ekki
nein efni til fyrir sósíalískan flokk
að hafa við hann nána samvinnu.
Það er öllum ljóst sem horfa á þetta
utan frá að Alþýðuflokkurinn er al-
veg sérstakt fyrirbæri í korti krata-
flokka.“
Jón Danfelsson skrifar
Miöstjórnarfundur Alþýöubandalagsins:
skekin - en átökum frestað
Vopnin
Miðstjórnarfundar Alþýðu-
bandalagsins sem hefst í dag hefur
verið beðið með miklum spenningi
og liggja til þess ýmsar ástæður.
Vitað er að innan flokksins eru
býsna skiptar skoðanir um þátttöku
í næstu ríkisstjórn, en fyrir liggur
augljós áhugi Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks um að fá Alþýðu-
bandalagið til samstarfs að
Kvennalistanum frágengnum.
Þetta strandar þó m.a. á formlegri
yfirlýsingu aðalfundar miðstjórn-
arinnar á s.l. hausti, þar sem sam-
starf við Sjálfstæðisflokkinn er úti-
lokað. En innan Alþýðubandalags-
ins er líka að hefjast mikil nafla-
skoðun og vitað er að sú hugmynd
að skipta þurfi um forystu flokks-
ins heldur snarlega, á mikinn
hljómgrunn, meðal almennra
flokksfélaga.
Trúlegt virðist að naflaskoðunin
verði aðalmál fundarins um þessa
helgi, en þó verður varla hjá því
komist að ræða einnig um mögu-
leika flokksins til að taka þátt í
stjórnarmyndun. Hugmyndirnar
um þátttöku í nýsköpun eiga eink-
um fylgi að fagna í verkalýðsarmin-
um, en andstæðingar slíks sam-
starfs eru margir innan flokksins og
þeir munu væntanlega ekki hika við
að vísa opinberlega til stjórnmála-
ályktunarinnar frá í haust ef til þess
kemur að viðræður um nýsköpun-
arstjórn hefjist af einhverri alvöru.
Þáð var Svavar Gestsson sjálfur
sem lýsti því yfir á blaðamanna-
fundi eftir aðalfund miðstjórnar-
innar í haust að stjórnmálaályktun-
ina bæri að túlka þannig að „Al-
þýðubandalagið neitaði því að fara
í stjórn með Sjálfstæðisflokknum“.
Að þessu athuguðu, virðist það
því ekki lengur vera bara spurning
um áhuga, heldur þyrfti miðstjórn-
arfundur Alþýðubandalagsins nú
um helgina að breyta formlega um
afstöðu, ef einhver möguleiki ætti
að vera til þess að Svavar Gestsson
geti tekið þátt í myndun ríkisstjórn-
ar.
Það hefur annars verið álit flestra
að miðstjórnarfundurinn um helg-
ina muni á einhvern hátt skera úr
um það hvort nýsköpunarstjórn
verði inni á möguleikakorti Al-
þýðubandalagsins. Jafnvel þótt
Svavar Gestsson, formaður flokks-
ins, kunni sjálfur að hafa áhuga
fyrir myndun nýsköpunarstjórnar,
hefur fram að þessu verið talið að
hendur hans væru gersamlega
bundnar í því efni fram yfir mið-
stjórnarfundinn. það hefur hins
vegar verið talið afar hæpið að
Svavar, né nokkur annar úr þingliði
eða forystusveit flokksins, léti sér
koma til hugar að fara fram á ein-
hvers konar umboð af hálfu miðs-
tjórnarinnar til að taka þátt í slík-
um stjórnarmyndunartilraunum.
Með tilliti til yfirlýsingar Svavars
frá í haust, verður þó varla hjá því
komist, ef ætlunin er að halda opn-
um möguleikanum á nýsköpunar-
stjórn.
Það er annars athyglisvert í þessu
sambandi að svo skorinorðar úti-
lokunaryfirlýsingar munu ekki
hafa verið gefnar af íslenskum
flokksleiðtogum í ríflega 30 ár. Síð-
ast þegar það gerðist var um að
ræða formann Alþýðuflokksins
sem lýsti því yfir fyrir kosningarnar
1956 að samstarf við Alþýðubanda-
lagið kæmi ekki til greina. Að lokn-
um kosningunum var svo mynduð
vinstri stjórnin sem kölluð var ein-
mitt með þátttöku Alþýðuflokks,
Alþýðubandalags og Framsóknar-
flokks.
Eins og nú standa sakir eru mest-
ar líkur fyrir því að mynduð verði
stjórn þriggja flokka. Slíkt er ekki
unnt nema með þátttöku Sjálfstæð-
isflokksins og þótt mörgum Al-
þýðubandalagsmanninum sé áreið-
anlegra hugleiknara að mynda
stjórn án þátttöku sjálfstæðis-
manna, verða þeir að bíta i það súra
epli að um slikt verður tæplega að
ræða.
Inn í myndina verður líka að taka
þá staðreynd, að innan Alþýðu-
bandalagsins er talsverður áhugi
fyrir nánara samstarfi við Alþýðu-
flokkinn og þar sem raddir um slíkt
samstarf eru nú líka sterkar innan
Alþýðuflokksins, sjá margir Al-
þýðubandalagsmenn nú gullið
tækifæri til að reyna að skapa
aukna samstöðu með þessum fornu
erfðaféndum. það vekur lika at-
hygli í þessu sambandi að hug-
myndirnar um aukna samstöðu A-
flokkanna eru alls ekki bundnar við
ákveðinn arm eða arma innan Al-
þýðubandalagsins. Þessi áhugi er
mikill innan verkalýðsarmsins, en
hann er líka talsverður meðal and-
stöðuliðsins þótt vera kunni að
ólíkar ástæður liggi að baki.
Innan Alþýðubandalagsins eru
ríkjandi bæði margar og ólíkar
skoðanir á orsökum þess að flokk-
urinn fór jafnilla út úr kosningun-
um og raun ber vitni. Ýmsir vilja
kenna flokksforystunni, og þá
einkum Svavari Gestssyni, um
hrakfarirnar. Aðrir eru þeirrar
skoðunar að þjóðarsátt sú sem
verkalýðsforysta flokksins gekkst
fyrir á sínum tíma hafi aflað
flokknum mikilla óvinsælda og sé
þannig höfuðorsök vandans.
Þriðja kenningin er svo þvert á móti
fólgin í því að sú mikla andstaða
sem þjóðarsáttin mætti innan
flokksins, eigi sökina.
Allar þessar kenningar og miklu
fleiri verða viðraðar á fundi alþýðu-
bandlagsmanna uppi í Borgarfirði
um helgina. Þess er ekki að vænta
að menn komist að sameiginlegri
niðurstöðu um hvar rætur vandans
liggja, en þess er þó ekki vænst að
verulega sjóði upp úr á fundinum, í
þeim skilningi að þar muni fara
fram neitt endanlegt uppgjör milli
andstæðra afla í flokknum.
Trúlega munu fundarmenn kom-
ast að þeirri sameiginlegu niður-
stöðu að naflaskoðunin eigi að
halda áfram og þegar hafa komið
fram hugmyndir innan flokksins
um að nefnd verði komið á laggirn-
ar til að annast einhverja úttekt á
ástæðum núverandi ástands í mál-
efnum flokksins.
Raddir hafa verið uppi um það
innan flokksins að flýta beri lands-
fundi og halda hann í sumar. Nú
orðið er þó ljóst að af þessu verður
ekki. Engu að síður er nú talið afar
líklegt af þeim sem best þekkja til,
að landsfundinum verði flýtt og
hann haldinn í september, nokkru
áður en þing kemur saman. Sá
landsfundur gæti orðið afdrifarík-
ur fyrir framtíð Alþýðubandalags-
ins.
Menn velta að vonum nokkuð
fyrir sér framtíð Svavars Gestsson-
ar sem formanns Alþýðubanda-
lagsins. Staða hans er að vonum
veik eftir kosningaósigurinn, en
hún virðist þó alls ekki vonlaus og
fráleitt unnt að útiloka að Svavar
muni sækjast eftir endurkjöri á
landsfundinum í haust.
Vel getur farið svo að gerð verði
bein atlaga að formennsku Svavars
á miðstjórnarfundinum. Það er
hins vegar ljóst fyrirfram að slík at-
laga mun ekki skila árangri. Svavar
situr áfram sem formaður a.m.k.
fram á haustið. Ef misheppnuð at-
laga yrði gerð að honum nú, gæti
það hins vegar orðið til að styrkja
stöðu hans fremur en hitt.
Raunar eru styrkleikahlutföllin á
miðstjórnarfundinum ekki vel
þekkt fyrirfram. Kunnugir menn
sem Alþýðublaðið hefur haft sam-
band við, telja að þau muni að veru-
legu leyti ráðast af fólki sem kemur
utan af landi en þar hafa margir
fram að þessu litið á vanda flokks-
ins sem eins konar innanbæjar-
vandamál Reykjvíkinga. Eftir
kosningaósigurinn er þetta hins
vegar ekki lengur mögulegt.
Alþýðublaðið hefur eftir áreið-
anlegum heimildum að eftir viðtal
Þjóðviljans við Kristínu Á. Ólafs-
dóttur fyrir rúmri viku, hafi talsvert
verið um það að Alþýðubandalags-
fólk utan af landi hafi haft sam-
band við hana og vel gæti farið svo
að margt af þessu fólki muni standa
að baki henni á miðstjórnarfundin-
um. Kristín er svo sem kunnugt er í
hópi andstæðinga þjóðarsáttarinn-
ar og þar með á öndverðum meiði
við verkalýðsforystu flokksins og
stóran hluta af þeim armi sem
kenndur hefur verið við flokksfor-
ystuna.
Það virðist hins vegar fullljóst
m.a. af orðum Kristínar í samtali
við Alþýðublaðið í gær, sem birtist
hér ofar á síðunni, að hún muni
ekki taka af skarið eða knýja fram
uppgjör á miðstjórnarfundinum.
Niðurstöður miðstjórnarfundar-
ins munu liggja fyrir eftir helgi.
Þangað til skal því spáð að því upp-
gjöri sem margir telja nú óumflyj-
anlegt innan flokksins, verði frest-
að fram í september og afstaða Al-
þýðubandalagsins til stjórnar-
myndunarviðræðna muni ekki
skýrast verulega á þessum fundi. Á
fundinum kann að verða talsvert
vopnaskak, — en átökunum verður
frestað.