Alþýðublaðið - 16.05.1987, Qupperneq 7
Laugardagur 16. maí 1987
7
Minningarorð
Stefán Pjetursson
Seint barst mér andlátsfregn
Stefáns Pjeturssonar, þjóðskjala-
varðar og ritstjóra, og fylgdi með,
að hann hefði óskað, að útförin
færi fram í kyrrþey. Þessi gamli vin-
ur var horfinn, en minningarnar
sóttu því fastar á.
Ég kynntist Stefáni 1938, er ég
byrjaði að skrifa íþróttafréttir fyrir
Alþýðublaðið. Hann var þar og
skrifaði um erlend málefni og
fleira, en Finnbogi Rútur Valdi-
marsson var ritstjóri. Vilhjálmur S.
Vilhjálmsson (Hannes á horninu),
Karl ísfeld og ýmsir fleiri komu við
sögu.
Ritstjóri hafði Iítið herbergi með
útsýn yfir Arnarhól og höfnina.
Þarna komu ýmsir valdamenn,
Stefán Jóhann Stefánsson þó oft-
ast. Þá söfnuðumst við af ritstjórn-
inni þangað inn og stóðum kring-
um ritstjóraborðið, af því að ekki
var nema einn stóll í herberginu.
Var skipst á fréttum og skeggrætt
um pólitíkina, og þarna hafa leiðar-
ar vafalaust orðið til í hugum rit-
stjóranna.
Stefán tók við ritstjórn blaðsins
1940. Hann var samviskusamur og
stefnufastur ritstjóri, eins og leiðar-
ar hans báru vitni, harður í horn að
taka á vissum sviðum stjórnmál-
anna. Á ritstjórninni var hann
mildur húsbóndi og hjálpsamur en
Stefán var svo fróður um heima og
geima, að sjaldan þurfti að fletta
upp í alfræðiorðabók, þegar hann
var til taks.
Árið 1942 var Alþýðublaðinu
breytt úr síðdegisblaði í Morgun-
blað. Það stækkaði úr 4 í 8 síður og
Til sölu einbýlishús í Búðardal
Tilboð óskast í húseignina Ægisbraut 7, Búðardal, stærð
hússins er 593 m3 og bílskúr 50 m3.
Húsið verðurtil sýnis i samráði við Pétur Þorsteinsson sýslu-
mann, sími (93) 4404.
Tilboðseyðublöð liggja frammi i húseigninni og á skrifstofu
vorri.
Kauptilboðum sé skilað á skrifstofu vora, Borgartúni 7, fyrir
kl. 11:00 f.h. miðvikudaginn 27. maí 1987, en þá verða tilboðin
opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðendæ________ _____
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartuni 7, simi 25844
Tilboð óskast í eftirtalin tæki ofl. sem verða til sýnis næstu
daga í áhaldahúsi Hafnarmálastofnunar I Fossvogi og á Víf-
ilsstöðum.
1. Steypuhrærivél LOMBARDNI.
Mótordrifin. (Bensín) 450, LTR.
2. Steypuhrærivél LOMBARDNI
Rafdrifin (3 fasar) 450, LTR.
3. COLCRETE. Hrærivél með tilheyrandi dælu.
4. Gólfslípivél. MASTER.
5. Beltaborvagn. ATLAS COPCO. Árgerð 1974.
6. P.H. krani, 15 tonn. árgerð 1959.
7. Krókvigt, 30 tonn.
8. Díselvél. International 65-8 hestafla með 30 kw. ráfal, 220
wolta.
9. Kartöflu-niðursetningavél.
10. Kartöflu-upptökuvél.
11. Úðadæla.
Liður 1-7 til sýnis í áhaldahúsi Hafnarmálastofnunar I Foss-
vogi. Upplýsingar þar veitir Gústaf Jónsson forstöðumaður.
Liöur 8-11, til sýnis á Vífilsstöðum. Upplýsingar þarveitir um-
sjónarmaður [ sima 42800 og bústjóri i síma 42816.
Tilboðseyöublöð liggja frammi á ofangreindum stöðum og á
skrifstofu vorri.
Tilboðin verða opnuð fimmtudaginn 21. maí n.k. kl. 15:00 e.h.
á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, að viðstöddum bjóðendum.
Réttur er áskilinn til að hafna þeim tilboðum sem ekki teljast
viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍK.ISINS
Borgartuni 7, simi 25844
Laus staða
Staða forstöðumanns Stofnunar Sigurðar Nor-
dals er laus til umsóknar.
Ráðið verður í stöðuna til 3-5 ára. Laun sam-
kvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins (forstöðu-
maður háskólastofnunar).
í reglugerðfyrirstofnuninasegirsvo (2. gr.: „Hlut-
verk stofnunarinnar skal vera að efla hvarvetna f
heiminum rannsóknir og kynningu á íslenskri
menningu að fornu og nýju og tengsl íslenskra og
erlendra fræðimanna á því sviði.“ í samræmi við
þetta er áskilið að umsækjendur hafi lokið kandí-
datsprófi eða sambærilegu prófi i einhverri grein
hugvísinda og lagt sérstaka stund á íslensk
fræði. Góð málakunnátta er einnig áskilin.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilegaskýrslu um námsferil sinn og störf, rann-
sóknir og ritverk.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. júli n.k.
Menntamálaráðuneytið
14. maí 1987.
varð jafnstórt Morgunblaðinu.
Undir stjórn Stefáns var blaðið sem
heild endurteiknað með mörgum
nýjungum í dagblaðamennskunni,
sem síðan breiddust út. Blaðið
hafði 3.000 eintaka útbreiðslu, en
Morgunblaðið um 6.000. Á 2—3 ár-
um tókst að auka Alþýðublaðið
upp í rúm 6.000, og um skeið var
það jafn útbreitt og jafn stórt og
keppinauturinn mikli. Þar hafði
Alþýðublaðið beitt öllum sínum
fjárhagsstyrk, en Morgunblaðið
hafði varla snert á sínum. Keypti
það nýjar prentvélar fyrir stærra
blað og tók á rás — þá rás, sem enn
stendur yfir. En þetta var spennandi
tímabil á Alþýðublaðinu undir
stjórn Stefáns Pjeturssonar.
Þær stundir áttum við, oft þegar
dagsverki lauk eftir miðnætti, þeg-
ar Stefán lagði þunga ritstjóra-
starfsins og pólitíkina til hliðar.
Birtist þá bráðskemmtilegur fagur-
keri, víðfróður um listir og sögu,
sem var ekkert mannlegt óviðkom-
andi. Þær stundir voru ungum
blaðamönnum ógleymanlegar.
Stefán Pjetursson fæddist 1898
að Núpum við Skjálfanda, sonur
Pjeturs Stefánssonar bónda og síð-
ar verkamanns á Húsavík, og Helgu
Sigurjónsdóttur. Hann varð stúd-
ent 1920 og hélt til Berlínar til að
nema sagnfræði. Hann las og nam
svo að hann varð með fróðustu
mönnum á sínu sviði, og jós úr
þeim brunni þekkingar af skörpum
gáfum. En hann komst einnig í
kynni við kommúnismann í kaffi-
húsum stúdenta í Berlín, sem ekki
var óalgengt þar í borg á þeim tím-
um. Sökkti hann sér djúpt í flokks-
starf og komst til áhrifa og ábyrgð-
ar. Fór hann meðal annars til
Moskvu pólitískra erinda, en þá
hafði leiðir skilið og komst hann
heim við illan leik. Hann var alla tíð
fámáll um þetta tímabil í ævi sinni,
og mun þó vera mikil saga að baki.
Hins vegar varð baráttan gegn
kommúnismanum að leiðarljósi
hans eftir þessi nánu kynni, og sótti
hann það mál af mikilli festu. Rit-
stjórastóll Alþýðublaðsins var góð-
ur vettvangur fyrir þá baráttu
nokkrum árum eftir klofninginn
1937, meðan fylking sósíaldemó-
krata var enn í sárum.
Öll pólitísk störf taka enda eftir
sínum eigin lögmálum, þar á meðal
pólitísk ritstjórn. Stefán tók til
starfa á Þjóðskjalasafni og varð
síðar þjóðskjalavörður. Þar naut
sín hin víðtæka sögulega menntun
hans, fróðleikur, vandvirkni og
samviskusemi. Við, sem héldum
áfram í pólitík og blaðamennsku,
sáum hinn gamla húsbónda okkar
sjaldnar, en fengum góðar móttök-
ur þegar við áttum erindi á Þjóð-
skjalasafnið.
Stefán Pjetursson var áhrifa-
maður í íslenskum stjórnmálum á
miklu umbrotaskeiði. Þáttur hans
var meiri en flestir gerðu sér grein
fyrir, og rödd hans lifir á gulnuðum
síðum dagblaðanna, sem eru
gleggsta myndin af sögu þeirra ára.
Samstarfsmenn og vinir Stefáns frá
þeim árum minnast hans með virð-
ingu og hlýjum hug.
Kona Stefáns var Sonja Bienek,
ættuð frá Efri-Slesíu.
Bcncdikt Gröndal.
Félagsstarf aldraðra í Reykjavík
Sumarferðir
í sumar eru áætlaðar ferðir innanlands á vegum
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Upplýsingareru i sumardagskráfélagsstarfs aldr-
aðra.
Dagskrárnar hafa verið póstlagðar til allra Reyk-
víkinga 67 ára og eldri.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsstarfs aldr-
aðra Hvassaleiti 56-58 símar689670 og 689671 frá
kl. 9-12.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Útboð
Hafnarsjóður Sandgerðishafnar auglýsir.
Óskað er eftir tilboðum í að leggja vatnslagnir,
ídráttarpípur fyrir raflagnir og steypa þekju alls
1300 fermetrar á stálþilsbakka í Sandgerðishöfn.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Miðness-
hrepþs frá og með 21. maí.
Tilboðum óskast skilað á sama stað kl. 14.00 29.
maí og verða þau opnuð þar af þeim bjóðendum
viðstöddum sem þess óska.
Sveitarstjóri Miðnesshrepps.
Laus staða
sérfræöings viö eðlisfræðistofu Raun-
vísindastofnunar Háskólans sem veitt
er til 1-3 ára.
Staða sérfræðings við eðlisfræðistofu Raunvísinda-
stofnunar Háskólans er laus til umsóknar. Staðan
verður veitt frá 1. september n.k.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða til-
svarandi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við
rannsóknir.
Starfsmaðurinn verður ráðinn til rannsóknastarfa, en
kennsla hans við Háskóla íslands er háð samkomu-
lagi milli deildarráðs raunvísindadeildar og stjórnar
Raunvísindastofnunar Háskólans og skal þá m.a.
ákveðið hvort kennsla skuli teljast hluti starfsskyldu
viðkomandi starfsmanns.
Umsóknir, ásamt itarlegri greinargerð og skilrfkjum
um menntun og vísindaleg störf og rannsóknaráætl-
un, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverf-
isgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 12. júni n.k.
Æskilegt er, aó umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dóm-
bærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um
menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar
skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál og má
senda þær beint til menntamálaráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytid
11. maí 1987
Utboð
Otradalur 1987 —
Bíldudalsvegur í Arnarfirði
Vegagerð rikisins óskareftirtilboðum i of-
angreint verk.
Lengd vegarkafla 4.1 km, neðra burðarlag
6.100 m3, fylling 2.500 m3, ölduvörn 1.500
m3.
Verki skal lokið 15. júli 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rík-
isins á Isafirði og i Reykjavík (aðalgjald-
kera) frá og með 19. maí n.k.
Skilaskal tilboðum ásömu stöðum fyrirkl.
14:00 þann 1. júní 1987.
Vegamálastjóri.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Bygg-
ingardeildar óskar eftir tilboðum i framkvæmdir við
niðurrif og endurbyggingu á steyptum vegg í kringum
gæsluvöll við Hringbraut. Útboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3 Reykjavik gegn kr.
15.000.- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama
stað miðvikudaginn 3. júní n.k. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Posthóll 878 — 101 Reykjavik