Alþýðublaðið - 04.12.1987, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 04.12.1987, Blaðsíða 4
4 Föstudagur 4. desember 1987 Kennarastörf eftir- sóknarverð Hið íslenska kennarafélag, HÍK, setti á stofn starfskjara- nefnd með kjarasamningun- um í mars sl. Nefnd þessi hefur nú lokið störfum og hefurafhent menntamálaráð- herra, fjármálaráðherra og formanni HÍK skýrslu sína sem og tillögur undirritaðar af öllum nefndarmönnum. Launakerfi og vinnutilhög- un kennara er tekin til gagn- gerrar athugunar í skýrslunni. I samningum frá f vor er gert ráð fyrir að aðilar taki upp samninga á grundvelli til- lagna nefndarinnar og mun stjórn HÍK fara fram á að við- SMÁFRÉTTIR ræður hefjist þegar í stað. Kennarar binda miklar vonir við að í þeim samningum verði unnt að breyta kjörum kennara þannig að störf þeirra verði eftirsóknarverð fyrir duglegt og vel menntað fólk. Frímerki Fyrstu frímerkin á árinu 1988 koma væntanlega út í febrúar. Verða það tvö fri- merki í flokknum „Merkir ís- lendingar“ og sýna þau myndir af skáldunum Davlð Stefánssyni og Steini Steinarr. í maí koma út Evrópufrímerki í tveimur verðgildum og verða þau að þessu sinni helguð nútíma flutninga- og samskiptatækni. Tvö blóma- og tvö fuglafrímerki koma út á árinu 1988 og frímerki I til- efni Olympiuleikanna í Seoul. Þá hefur verið ákveðið að gefa út frímerki með tileink- un um „Heilbrigði, fyrir alla“ en það eru einkunnarorð Al- þjóðaheilbrigðismálastofnun- arinnar 1988. Á degi frímerk- isins kemur út smáörk, blokk og auk þess er I undirbúningi að gefa út í hefti frlmerki með landvættunum, með breyttu verðgildi. FYRIRPEKI ÞnT STENDUR BETUR í STAÐGREÐSLU - ef undirbúningurinn ergóðui Staðgreiðsla opinberra gjalda kemur til framkvæmda 1. janúar 1988. Frá þeim tíma er launagreiðendum skylt að reikna út og halda eftir staðgreiðslu af launum starfsmanna sinna svo og eigin launum og skila mánaðarlega til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt skilagrein. Vegna þessa lykilhlutverks launagreið- enda er mikilvægt að þeir þekki skyldur sín- ar í staðgreiðslu til hlítar. Launagreiðendur munu fá sendan sérstakan bækling með ítarlegum upplýsingum um hlutverk þeirra. Er þess vænst að þeir kynni sér efni hans vel. Góð þekking í upphafi kemur fyrirtæk- inu til góða við framkvæmd staðgreiðslu. HVERJIRERU LAUNAGREBENDUR? Launagreiðandi telst sá vera sem greiðir einhverjum laun. Þeir sem eru með sjálfstæðan rekstur teljast launagreiðendur, hvort sem þeir greiða öðrum laun eða ekki, og þeim ber að reikna sér endurgjald af starfseminni. Allir launagreiðendur eru á launagreið- endaskrá og nýjum launagreiðendum ber að tilkynna sig þangað. Þar með er tryggt að þeir fái sendar upplýsingar sem við koma skyldum þeirra og auðvelda þeim hlutverk sitt í stað- greiðslu. ÖLL LAUNERU STAÐGREÐSLUSKYLD Staðgreiðsia er reiknuð af öllum launum og launatengdum greiðslum, svo og hvers kyns fríðindum og hlunnindum. Greiðslur til verktaka eru ekki stað- greiðsluskyldar. Af bílapeningum, dagpeningum og ferða- peningum er ekki dregin staðgreiðsla ef greiðslurnar eru sundurgreindar með færslu akstursskýrslna, akstursbókaog annarra tilskil- inna gagna, nema um sé að ræða fastar fjár- hæðir á hverju launatímabili. Athugið: Staðgreiðsla er dregin af heildarlaunum að meðtöldu orlofsfé og í hvert sinn sem laun eru greidd. SJÁLFSTÆÐUR ATVINNUREKSTUR Manni sem vinnur við eigin atvinnurekstur ber að reikna sér endurgjald vegna starfsem- innar og draga staðgreiðslu af því og skila mánaðarlega. Sömuleiðis ef maki og böm inn- an 16 ára aldurs vinna við starfsemina. Ríkisskattstjóri ákveður lágmark reiknaðs endurgjalds fyrir upphaf staðgreiðsluárs. PERSÓNUAFSLÁTTUR Sérhver launamaður fær árlegan persónu- afslátt, sem kemur til frádráttar við útreikning staðgreiðslu hans. Persónuafslættinum er skipt jafnt á alla mánuði ársins og á skattkortinu er þessi mán- aðarlegi persónuafsláttur tiltekinn. Ef launamaður afhendir launagreiðanda skattkort maka síns ber launagreiðanda að taka tillit til 80% þess persónuafsláttar sem fram kemur á kortinu og draga f rá staðgreiðslu. Athugið: Persónuafslátt má launa- greiðandi aðeins draga frá staðgreiðslu hafi hann skattkort launamanns í vörslu sinni. Ef laun eru greidd oftar en einu sinni í mánuði þarf að taka tillit til einhvers hluta per- sónuafsláttar í hvert sinn sem greitt er, þó fari heildarafsláttur mánaðarins aldrei fram úr mán- aðariegri heimild. SJÓMANNAAFSLÁ TTUR Sjómannaafsláttur kemur til frádráttar staðgreiðslu á sama hátt og persónuafsláttur. Upphæðin kemur ekki fram á skattkorti. Það er því á ábyrgð launagreiðanda að sjómanna- afsláttur komi réttilega til frádráttar. Kynntu þérskyldurþínarí staðgreiðslu -það margborgar sig SKATTKORT Fyrir upphaf staðgreiðsluárí maður afhenda launagreiðanda sl skattkortinu eru persónubundnai ásamt skatthlutfalli staðgreiðslu ( legum persónuaíslætti sem kortið Hafi launagreiðandi ekki sl aukaskattkort) launamanns undir hann ekki draga persónuafslátt frá Launamaður greiðir þá fullt skatthl Launagreiðandi ber fulte skattkortinu meðan það er í hai Launamaður getur afhent anda skattkort (eða aukaskattkoi ef makinn nýtir ekki persónuafslá Þá tekur launagreiðandi tillit til £ persónuafslætti sem fram kemur i

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.