Alþýðublaðið - 29.05.1990, Síða 1
JWBUBLMÐ
78. TÖLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR
-™——°™—IH——™
ÞRIÐJUDAGUR
29. MAÍ 1990
LOGBROT: Talsvert meira hefur verið flutt út af ísuðum
fiski en leyfi hefur verið veitt til. Hjá Aflamiðlun segja
menn að lög hafi verið þverbrotin og hafa leitað eftir sam-
starfi við tollayfirvöld til að reyna að tryggja að farið verði
að lögum. Magnið sem flutt hefur veriö út umfram leyfi er
á annað þúsund tonn.
BERKLAR ! Nemandi í einum af skólum Reykjavíkur hef-
ur veikst af berklum. Frá þessu var greint í sjónvarpsfrétt-
um í gærkveldi. Þrír aðrir nemendur sama skóla greindust
jákvæðir við skoðun. Smitberinn hefur ekki enn fundist
þrátt fyrir ítarlega leit.
MEIRIHLUTAÞREIFINGAR: Út um allt land eru ný-
kjörnir sveitarstjórnarmenn nú að reynaað koma sér sam-
an um meirihlutamyndun. Nokkur spenna ríkir um meiri-
hlutamyndun í Kópavogi þar sem framsóknarmaðurinn í
bæjarstjórn hefuroddaaðstöðu. Svipuð staða er í Keflavík.
Á Ákranesi eru taldar líkur til að Alþýðuflokkur og Fram-
sóknarflokkur myndi meirihluta saman. Á lsafirði eru
hafnar Viðræður D og í lista. Á Eskifirði þykir líklegt að
Framsóknarmenn myndi meirihluta með öðrum hvorum
A-flokkanna. í Borgarnesi eru viðræður í gangi milli Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
SJONVARPSFRETTIR: Sjóvarpsfréttirnar veröa að
líkindum kyrrar á sínum stað, kl 20 á kvöldin. Sjónvarpiö
fékk Gallup á íslandi til að kanna viðhorf landsmanna til
hugsanlegs flutnings á fréttatímanum og voru niðurstöð-
urnar birtar í sjónvarpsfréttum í gærkveldi. Yfir 80% vildu
hafa fréttirnar kyrrar.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ: Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins kemur saman til fundar í dag til að ræða
stöðu flokksins eftir kosningarnar um helgina. Alþýðu-
bandalagið tapaði allviða nokkru fylgi og missti m.a. for-
ystuhlutverkið semflokkurinn hefurlengi haft í minnihlut-
anum í borgarstjóm Reykjavíkur. Fyrirfram hafði verið bú-
ist við fylgistapi flokksins og jafnvel reiknaö með að þaö
yrði1 mun meira en raun varð á. Þannig hélt t.d. Alþýðu-
bandalagið meirililuta sínum í Neskaupstað nokkuð ör-
ugglega. Engu að síður má búast við að hörð hríð veröi
gerð að formanninum, Ólafi Ragnari Grímssyni og að
undanförnu hafa ýmsir haft á orði að rétt væri að kalla
saman landsfund í haust beinlínis til að setja hann af.
ENDURTALNING: Atkvæði voru í gær talin aftur á
Húsavík að ósk Alþýðubandalags sem tapaði þar manni
mjög naumjega. Endurtalningin leiddi þó ekki til neinna
breytinga. í Vestmannaeyjum verður trúlega talið aftur
síðar í vikunni. Framsóknarmenn hafa farið fram á endur-
talningu en þeir misstu mann sinn í bæjarstjórn með að-
eins sex atkvæða mun.
LEIÐARINN Í DAG
Úrslit sveitarstjórnárkosninganna er til umfjöll-
unar í leiðara Alþýðublaðsins í dag. Blaðið er
þeirrar skoðunar að úrslit kosninganna hafi
styrkt stöðu Alþýðuflokksins og jafnaðar-
manna um land allt. Stórsigur Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði gerir það að verkum að horft er til
bæjarins sem líkans að því samfélagi jöfnuðar,
réttlætis og velferðar sem íslenskir jafnaðar-
menn vilja byggja upp um land allt.
Landsbyggðin
kaus öðruvísi
Eitt af því sem kemur á óvart
í úrslitum kosninganna er að
talsverður munur er á útkom-
unni eftir landshlutum. Sjálf-
stæðisflokkurinn vinnur á suð-
vestanlands en úti á landi kaus
fólk öðruvísi.
Hver er þessi
Sigurjón?
Nærmynd af Sigurjóni Sig-
hvatssyni kvikmyndaframleiö-
anda í Kalíforníu. Hann erfram-
leiðandi myndarinnar sem fékk
gullpálmann í Cannes í fyrri
viku.
4
Mesta kjarabót
síðari tíma
IÞær breytingar á húsnæðis-
lánakerfinu sem nú eru að taka
gildi hafa miklar breytingar á
högum fólks í för með sér. Sæ-
mundur Guðvinsson kallar
þær mestu kjarabót síðari
tíma, þegar hann skyggnist
bak við fréttimar.
wltÍHHWWtWrttS
nwi
Bæjarfulltrúar Alþýöuflokksins i Hafnarfirði sigri hrósandi. Frá vinstri: Guömundur Árni Stefánsson, Ámi Hjörleifsson, Valgeröur
Guömundsdóttir, Tryggvi Harðarson, Jóna Ósk Guðjónsdóttir og Ingvar Viktorsson.
Hafnarfjöröur:
Siórsigur!
Alþýðuflokkurinn með hreinan meirihluta
„Þetta er glæsilegasti
kosningasigur Aþýðu-
flokksins í Hafnarfirði í 40
ár. Við Alþýðuflokksmenn
höfum ekki náð hreinum
meirihluta hér í Hafnar-
firði frá árinu 1950 og er-
um að vonuin glöð að hafa
endurheimt hann. Þessi
sigur okkar hér byggist á
sterkri málefnalegri stöðu
flokksins og bæjarbúar
hafa greinilega kunnað að
meta það sem við höfum
verið að gera sl. fjögur ár.
Okkar fólk hefur unnið
saman sem ein órofa heild
og þeir eru ófáir sem eiga
þátt í þessum glæsilega
sigri okkar,“ sagði Guð-
mundur Árni Stefánsson
bæjarstjóri Hafnfirðinga
eftir stórsigur Alþýðu-
flokksins þar í kosningun-
um á laugardaginn.
Alþýðuflokkurinn í Hafnar-
firði fékk um 48% greiddra
atkvæða í bæjarstjórnarkosn-
ingunum á laugardaginn.
Hann fékk kjörna 6 fulltrúa í
bæjarstjórn og þar með
hreinan meirihluta. Sjálf-
stæðisflokkurinn hélt sínum
fjórum fulltrúum og sama er
að segja um Alþýðubanda-
lagið sem hélt sínum eina
fulltrúa. Frjálst framboð,
klofningsframboð út úr Sjálf-
stæðisflokknum fyrir fjórum
árum, bauð ekki fram og
vann Alþýðuflokkurinn það
sæti.
Alþýðuflokkurinn í Hafnar-
firði vann fyrst hreinan meiri-
hluta í Hafnarfirði árið 1926
og hélt honum samfellt til árs-
ins 1962, að vísu með stuðn-
ingi Alþýðubandalagsins (Só-
síalistaflokksins) síðustu tvö
kjörtímabilin. Árið 1966
klófnaði Alþýðuflokkurinn
með framboði Oháðra borg-
ara en það átti tvotil þrjá bæj-
arfulltrúa í bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar allt til ársins 1986 er
þeir náðu ekki bæjarfulltrúa.
Alþýðuflokkurinn vann þá
þrjá bæjarfulltrúa, fékk fimm
og myndaði meirihluta með
fulltrúa Alþýðubandalagsins.
Það var síðast fyrir 40 árum
að Alþýðuflokkurinn hlaut
hreinan meirihluta í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar.
Sigurínn verður ekki tax-free!
Tungumálaerfiöleikar
urðu ungu knattspyrnu-
mönnunum frá Albaníu
að fótakefli á Heath-
row-flugvelli í gærdag.
Reuter-fréttastofan hafði
það eftir lögreglunni í
l.ondon að hinir ungu og
fótlipru Albanir hefðu
misskilið skilti þar sem á
stóð: „TAX FREE SHOP“.
Þeir skildu orðið ,,free“
og töldu að þarna mætti
taka sér muni að vild, —
ökéýpis. Það gerðu hinir
ungu leikmenn Albana
líka svo um munaði, tóku
i sjálfsafgreiðslu muni aö
upphæð nálægt 200 þús-
und krónum íslenskum.
Þeir í Tax Free voru
ekki aldeilis á því að gefa
eitt eða neitt, — en til í að
selja ódýrt. Náðu þeir í
fulltrúa hinnar virðulegu
stofnunar, Scotland Yard,
og tóku þeir til yfir-
heyrslu 30 félaga úr lið-
inu.
Ensku Bobbíarnir eru
menn skilningsríkir, eink-
anlega þegar um er að
ræða knattspyrnumenn.
Náðu þeir um síöir í al-
banskan túlk, og að þvi
loknu voru sakir upp
gefnar og liðsmenn Ál-
baníu fóru undir leiðsögn
lögreglumanna um borð í
hina ágætu Flugleiðavél
sem beið þeirra. Höfðu
allir horfnir munir þá
komiö fram, — auk við-
unandi skýringar.
Annað kvöld er svo
leikur íslands og Albaníu
í Evrópukeppni landsliða.
íslendingar vonast eftir
sigri — það verður ekkert
gefið eftir — ekkert tax-
free þar.