Alþýðublaðið - 12.05.1990, Blaðsíða 6
6
Laugardagur 12. maí 1990
íþróttafélag í sviðsljósi
STÓRVELDIÐ KR
Stofnað:
16. febrúar 1899.
Formaður:
Sveinn Jónsson.
Höfuðstöðvar:
Iþróttavellir og íþróttahús
í Frostaskjóli 2,
sími 18177.
Skíðaskálinn í Skálafelli.
íþróttagreinar:
Knattspyrna, frjálsar
íþróttir, sund, skíði,
handknattleikur,
körfuknattleikur, lyftingar,
glíma, borðtennis,
fimleikar og badminton.
KR er sannkallað stórveldi i islenskum íþróttum,
ekki aðeins iþróttalega, heldur i öllu starfi og skipu-
lagi. Fólagið hefur kappkostað að skapa KR-ingum
sem besta aðstöðu til iþróttaiðkana og þau glæstu
mannvirki, sem fólagið hefur reist i Frostaskjjóli ó
undanförnum óratugum, bera vott um þann kraft og
dugnað, sem KR-ingar eru þekktir fyrir. Þessi
iþróttamannvirki eru i notkun alla daga fró þvi
snemma ó morgnana og langt fram ó kvöld.
Upphaf KR___________________
KR er fyrsta íþróttafélag lands-
ins, sem stofnað er með knatt-
spyrnu sem aðalgrein, en það
gerðist í mars 1899 og félagið er
því 91 árs. Kn það ber aldurinn vel,
síungt í leik og starfi. Upphaflega
hét félagið fótboltafélag Reykja-
víkur, en árið 1915 var nafninu
breytt í Knattspyrnufélag Reykja-
víkur. Við skulum vitna í einn af
frumherjum KR og fyrsta formann
félagsins, Þorstein Jónsson, en
hann segir m.a. um upphafið:
„Byrjunin var sú, að aðeins var
hugsað um að eignast 1—2 „fót-
bolta" til að spraka í suður á Mel-
um, eftir að við höfðum séð ensku
sjóliðana af herskipunum aefa sig
þar. Melarnir voru þýfðir og
óruddir og dytti engum nú í hug
að nota slíkan leikvöll. Marksteng-
ur voru engar, aðeins steinar með
réttu millibili, en hæðarinnar varð
maður að geta sér til um, ef ein-
hverjum tókst eftir miklar þvæl-
ingar og erfiði að spyrna knettin-
um milli steinanna."
Nu eru iðkadar 11___________
iþróttagreinur hjé KR
I áðurnefndri tilvitnun segir, að
vellirnir hafi verið þýfðir og
óruddir á árdögum knattspyrn-
unnar. Þá dettur manni í hug hinn
ótrúlegi dugnaður, áhugi og eld-
móður frumherjanna, sem seint
verður fullþakkaður. Ýmsar hindr-
anir og erfiðleikar urðu á vegi for-
ystumanna í þróttamanna, en þær
voru allar yfirstignar. íslenskt
þjóðfélag væri öðruvísi í dag, ef
ekki væri gróskumikið og fórnfúst
starf íþrótta-ungmennafélaga. Þar
er KR í forystusveit.
Fyrst var það knattspyrnan hjá
KR, en í dag eru alls ellefu íþrótta-
greinar iðkaðar hjá félaginu, en
þær eru: knattspyrna, frjálsar
íþróttir, handknattleikur, skíða-
íþróttir, körfuknattleikur, glíma,
badminton, sund, fimleikar, lyft-
ingar og borðtennis.
Sigrur og meistaratitlar
KR-ingar hafa unnið marga sigra
á íþróttasviðinu, bæði innanlands
og þá ekki síður í erlendri grund.
Ef það ætti að tíunda það allt sér,
þyrfti mörg Alþýðublöð til þess.
Hér verður því aðeins getið um
það helsta.
Sigurkast Gunnars Huseby, KR, á
Evrópumeistaramótinu í Ósló 1946.
Hann varöi titilinn í Brússel 1950.
íslandsmeistaratitillinn í knatt-
spyrnu er það sem flestir KR-ingar
þrá heitast, en þann titil hefur KR
unnið oft eða alls 20 sinnum og
m.a. þegar keppt var um hann í
fyrsta sinn áricS 1912. KR hefur
orðið bikarmeistari sjö sinnum,
oftast allra félaga. KR-ingar hafa
oft haft frumkvæði í málefnum
íþróttamanna og m.a. tóku þeir
fyrst allra íslenskra félaga þátt í
Evrópukeppni félagsliöa í knatt-
spyrnu og fengu Liverpool sem
andstæðinga! Félagið hefur náð
góðum árangri í handbolta og
körfubolta og eru núverandi ís-
landsmeistarar.
Fjórum sinnunt________________
Evrópumeistaratitil
Fræknustu afrekin hafa KR-ing-
ar unnið í frjálsum íþróttum, en fé-
lagsmenn hafa fjórum sinnum
hlotið Evrópumeistaratitill í þeirri
íþróttagrein. Gunnar Huseby
tvisvar í kúluvarpi 1946 og 1950,
Torfi Bryngeirsson í langstökki
1950 og Hreinn Halldórssqn i
kúluvarpi innanhúss 1977. — I öll-
um greinum hafa KR-ingar ótal
sinnum hlotið íslands- og Reykja-
víkurmeistaratitla og átt fjölmarga
þátttakendur í flokkum, sem
keppt hafa á Ólympíuleikum,
heimsmeistaramótum og Evópu-
meistaramótum.
Framtið KR er björf
og eftirvæntingafull
Barátta KR, eins og annarra
samtaka snýst um nútíð og
framtíð, þó aö ávallt sé gott og
gagnlegt að rifja upp það liðna og
byggja framtíðina á verkum
fortíðar. — Eins og flestir vita, sem
fylgjast með íþróttum er unniö
feikigott félagslegt starf innan KR.
Yngri flokkum i öllum
íþróttagreinum er sinnt af alúð, því
aö þeirra er framtíðin.
íþróttamannvirki félagsins að
Frostaskjóli bjóða upp á fyrsta
flokks aðstöðu fyrir flestar íþrótta-
greinar. Ekki má gleyma Skíða-
skálanum í Skálafelli. Góðir sigrar
hljóta því aö falla KR-ingum í skaut
í náinni framtíö. Körfuknattleikn-
um er vel stjórnað hjá félaginu og
nú nýveriö varð KR íslandsmeist-
ari á sannfærandi hátt.
Örn Eiðsson
Alltof margir hverfa
úr starfi er
iþróttaferli lýkur___________
Við skulum Ijúka þessu spjalli
um gamla góða KR með því að
vitna í orð formannsins, Sveins
Jónssonar í 90 ára afmælisblaði fé-
lagsins, en þar segir hann m.a.
þetta um nýjasta íþróttahús KR:
„Húsið er sérhannað sem þrek-
miðstöð. Það veröur í framtíðinni
búið tækjum til lyftinga og heilsu-
ræktar, auk gufubaðs, nuddpotta,
Ijósalampa o.fl. Þá er gert ráð fyrir
kaffistofu og félagsaðstööu. Það er
von okkar að þrekmiðstöðin komi
sér vel til æfinga fyrir allar deildir
félagsins. Jafnframt skapar hún
hinum fjölmörgu KR-ingum, sem
ekki stunda æfingar með keppni í
huga, möguleika til líkamsræktar
og afþreyingar á félagssvæðinu.
Reyndar er mjög æskilegt að við
getum boðið fyrrverandi keppnis-
fólki áframhaldandi þátttöku í
starfsemi félagsins. Alltof margir
hafa horfið úr starfi, er íþrottaferli
þeirra lýkur. Einnig er vonast til
þess, að sem flestir Vesturbæingar
notfæri sér aðstöðu félagsins til
aukinnar þátttöku í trimmi og
íþróttum."
Hreinn Halldórsson, KR, Evrópu-
meistari í kúluvarpi innanhúss
1977.
Torfi Bryngeirsson, KR, i stangar-
stökki, en þaö var hans aðalgrein.
Hann varð aftur á móti Evrópu-
meistari í aukagreininni, langstökki
1950.
ÖLL HELSTU mu*
tisiu iþróttáfélöij höfuöborgar-
inrtar, Glímuféluijid Armunn,
Knattspyrnufélutf Reykjavíkur
(KR), Iþróttafélajj Reykjavíkur (ÍR)
(>H knattspyrnufélöi’in Víhinjjur,
Valur oj> Frum eru stofnuö fyrir ojj
eftir síöustu aldumót.
Tvö þeirra, Armann op
Knuttspyrnufélajj Reykjuuíkur
voru stofnuö fyrir aldamót.
Hin félöjjin fjoyur vuru öll
stofnuö nokkrum úrum síöur. A
næstu mónuöum mun Al-
þýöubfaöiö kynna þessi félöp Oj>
starfsemiþeirra í duf> Síöar veröur
fjulluö um fleiri félöjf, bæöi liér á
hofuöborjjarsiHeöinu oi> úli á
landsbygjjöinni. h'vrst á dujjskrú er
KR.
íslandsmeistarar, bikarmeistarar og haustmeistarar 2. flokks sumarið 1988. Þetta var 6. íslandsmeistaratitill
'69-árgangsins í yngri flokkunum, sem er íslandsmet. Nú er hafin alvara meistaraflokksáranna. Verða þeir íslands-
meistarar?