Alþýðublaðið - 02.07.1993, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 02.07.1993, Blaðsíða 14
Föstudagur 2. júlí 1993 Doktor Hilmar Malmquist, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs með áhugasömum Kópavogsbúum af yngri kynslóðinni. Náttúrufrœðistofa Kópavogs Alhliða náttúrufræðisafn sem ætlar sér stóra hluti Hin tíu ára gamla Nátt- úrufræðistofa Kópa- vogs er staðsett við Digranesveginn. For- stöðumaður hennar er dr. Hilmar Malmquist. Hann hóf nám sitt við líffræðideild Háskóla íslands og lauk þar BS-prófi. Þaðan lá leiðin til kóngsins Kaupmannahafnar þar sem Hilmar ritaði dokt- orsritgerð sína um bleikjustofninn í Þing- vallavatni og fæðuvist- fræði. Alþýðublaðið hafði samband við Hilmar og spjallaði við hann vítt og breitt um starfsemi Náttúrufræði- stofunnar. Hverskonar stofnun erNáttúru- frœðistofa Kópavogs? „Þetta er alhliða náttúrufræði- safn. Sérhæfing okkurer í lindýrum eins og kuðungum, skeljum og smokkfiskum og uppistaðan í safn- inu er safn Jóns Bogasonar, starfs- manns á Hafrannsóknastofnun. Þetta lindýrasafn hans er einstxtt á öllu landinu og þótt víðar væri leit- að. Þess má geta að síðastliðinn vet- ur var hann heiðraður af Háskóla Islands fyrir einstakt framlag til ís- lenskra náttúrufræða. Jón safnaði þessum dýrum í fjölmörgum leið- öngrum sínum á vegum Hafrann- sóknastofnunar. Einnig skipti hann mikið við erlenda aðila á eintökum og því er safnið nokkuð vel birgt af erlendum tegundum lindýra. Enn fremur er auðvitað að finna í safhinu íslensk spendýr. Hér er ágætt safn fugla og góður vísir að steinasafni. Stefnan er að leggja aukna áherslu á fiska, jafnt úr sjó sem vötnum. Við höfum komið okkur upp nokkurskonar mini-sæ- dýrasafni með lifandi sjávardýrum í körum og búrum og ætlum að auka við það í framtíðinni." Hvemig fer starfsemin að öðm leyti fram? „Nú. gestir okkar hingað til hafa verið mestmegnis skólafólk og krakkar úr leikskólum. Við höfum tekið á móti hópum, verið með leið- sögn um safnið og síðan hafa krakkamir unnið verkefni því tengd. Stefna mín er að færa safnið meira út til almennings, ef svo má segja og fá hingað mun fleiri gesti með því að stórefla kynningarstarf- ið. En auk þess höldum við að sjálf- sögðu áfram að sinna skólafólkinu af alúð. Meðalíjöldi gesta á ári hverju hefur verið á milli 1000 og 1500 en í ár stefnir í metár og að gestir verði um 2500 talsins. Hlutur af þessari fjölgun á gestum eru kynningar sem við höfum verið með. Til að mynda vomm við með kynningu á rauðbrystingi síðastliðið vor í sam- vinnu við Fuglavemdarfélag ís- lands. Þá vomm við með sérstök upplýsingaspjöld um rauðbrysting- inn á safninu og svo gat fólk farið með fuglafræðingum og skoðað hann í öflugum sjónaukum. Þetta heppnaðist mjög vel og yfir hundr- að manns mættu á safnið þennan dag. Það mun vera tæp 10% gesta í meðalári og það á einum degi.“ Hveniig er með þátt bœjaryfir- valda í starfsemi ykkar? „Þar má kannski helst nefna að bæjarstjóm Kópavogs hefur sent bréf til umhverfismálaráðherra vegna nýsamþykktra laga sem kveða á um náttúmfræðistofur í öll- um kjördæmum landsins. I bréfinu tilkynnti bæjarstjómin að þeir væm fyrir sitt leyti samþykkir því að Náttúmfræðistofa Kópavogs yrði að Náttúmfræðistofu Reykjaness. Einnig em bæjaryfirvöld að at- huga með byggingu nokkurskonar menningarmiðstöðar sem yrði þá við hlið Listasafns Gerðar Helga- dóttur. Ef af verður þá er ætlunin að Náttúmfræðistofa Kópavogs, Tón- Iistarskóli Kópavogs, Bókasafn Kópavogs og Myndlistaskóli Kópavogs verði þar sameinuð und- irsamaþaki. Þetta yrði ómetanlegt fyrir allar þessar stofnanir því plássleysi og annað hefur staðið okkur mjög fyr- ir þrifum. Við á Náttúmfræðistof- unni erum til dæmis í standandi vandræðum vegna vöntunar á geymslurými." En þið eruð ekki bara í safn- störfum heldur líka í rannsóknar- störfum, segðu okkur nánar frá því „Við höfum að sjálfsögðu beitt okkur mest á hinu afmarkaða rann- sóknasviði Náttúmfræðistofunnar; vistfræði íslenskra vatna. Það kem- ur sér vel fyrir mig því mín sér- menntun er einmitt á því sviði. Varðandi rannsóknavinnuna er meginmálið verkefni sem við emm að vinna í samvinnu við Veiðimála- stofnun, Líffræðistofnun Háskóla íslands og Hólaskóla í Hjaltadal. Eg er verkefnisstjóri í þessu verk- efni þannig að Náttúmfræðistofan er þama í fararbroddi. Verkefnið er styrkt af Vísindasjóði, Pokasjóði Kaupmannasamtakanna og Land- vemdar og þar að auki er nú um- hverfisráðuneytið að koma inni í þetta starf. Við höfum rætt verkefnið við Össur Skarphéðinsson umhverfis- ráðherra. Hann hefur verið afar já- kvæður í okkar garð og er spenntur fyrir þessu. Við þurfum á talsverðu Ijánnagni að halda þvf ætlað er að kanna um tuttugu vötn á hverju ári í fimm ár. Fjármagnsþörfin er á milli 6 og 8 milljónir króna, ár hvert.“ / hverju felst þetta merkilega verkefni? „Verkefnið er í stuttu máli það að búa til samræmdan og yfirgrips- mikinn gagnagmnn um vistfræði íslenskra vatna. Rannsóknimar em ekki einungis gerðar út frá líffræði- legu sjónarmiði heldur einnig frá sjónarhóli jarðfræðinnar. Við ætlum að gera úttekt á um 100 vötnum hér á landi sem spanna allan fjölbreytileika íslenskra vatna. Uttektin verður afar ítarleg og í raun verður fjallað um vötnin frá A-Z. Kveikjan að þessari rannsókn em rannsóknir sem gerðar hafa verið á Þingvallavatni og Mývatni. Sér í lagi á Þingvallavatni þar sem dokt- or Bjöm Jónasson, fyrrum prófess- or í vatnalíffræði við Kaupmanna- hafnarháskólann, stjórnaði á ámn- um 1974 til 1992 því sem kallað var Þingvallaverkefnið. Verkefni sem ég tók þátt í að vinna og fjallaði síð- an um í doktorsritgerð minni að hluta. Gerð var feiknamikil úttekt á Þingvallavatni og lífríki þess.“ Hvað er svona sérstakt við lífríki Þingvallavatns? „Heilmikið. Það sem er einkum merkilegt við lífríki vatnsins er bleikjustofninn. Þetta em eiginlega Ijögur afbrigði af bleikju sem á ein- ungis 10 þúsund ámm hafa þróast á merkilegan hátt. Vatnið er aðeins 11 þúsund ára gamalt. Upphaflega hafa bleikjumar gengið í vatnið úr sjó og síðan lokast inni í vatninu vegna eldgosa og jarðhæringa. Bleikjuafbrigðin em mjög ólík í hætti og útliti. í rauninni virðist margt benda til að þama sé á ferð- inni ákveðin tegundaþróun. Tíminn sem tekið hefur bleikjuna að kvísl- ast niður er mjög stuttur og skemmtilegur að rannsaka. A síðasta ári var svo gefin út bók um Þingvallaverkefnið og við höf- um verið að birta niðurstöður okkar í ýmsum erlendum fagtímaritum þar sem þær hafa vakið mikla at- hygli vísindamanna. Þingvallavatn er orðið mjög þekkt fyrirbæri, sér- staklega meðal þróunarfræðinga, vegna bleikjuafbrigðanna fjögurra. Sumir hafa líkt þróun þessari við þróun vissrar fuglategundar á Gal- apagos-eyjunum, en þar gerðist svipaður hlutur. Fuglategundin kom til eyjanna, tók sér búsetu á vissum stöðum og tók síðan að þró- ast þannig að í dag er nánast um nokkrar ólíkar tegundir fuglateg- undarinnar að ræða. Þingvallaverkefnið var afar spennandi verkefni og ekki síður spennandi verður að vinna gagna- gmnninn um íslensku vötnin. Hann á eftir að reynast ómetanlegur," sagði Hilmar Malmquist að lokum. Listasafn Gerðar Helgadóttur í Kópavogi. Draumurinn er að við hlið þcss í nánustu framtíð rísi menningarmiðstöð scm meðal annars hýsi Náttúrufræðistofu Kópavogs, Myndlistaskóla Kópavogs, Tónlistarskóla Kópavogs og Bókasafn Kópa- vogs. Allt undir cinu og sama þakinu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.