Alþýðublaðið - 15.11.1994, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRiÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1994
MHDUBUBIB
20822. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Staða
Alþýðuflokksins
Samkvæmt skoðanakönnun sem Morgunpósturinn birti í gær er
fylgi Alþýðuflokksins nú innan við 5%. Þótt könnunin veki
fleiri spurningar en hún svarar - sérstaklega um ótrúlegt fylgi
Sjálfstæðisflokksins - undirstrika þessar tölur að Alþýðuflokk-
urinn gengur nú gegnum eitt mesta erfiðleikatímabil í 78 ára
sögu sinni. Á næstu vikum og mánuðum verður Alþýðuflokk-
urinn að rjúfa þá herkví sem hann hefur verið í uppá síðkastið,
ef takast á að afstýra íylgishruni í kosningum í vor og áhrifa-
leysi í kjölfar þeiiTa.
Afsögn Guðmundar Áma Stefánssonar sem félagsmálaráð-
herra var, einsog hann benti sjálfur á, nauðsynleg til þess að
hægt sé að snúa krappri vöm í sókn. Guðmundur Ámi hefur
með ákvörðun sinni brotið í blað í íslenskum stjómmálum -
þau verða ekki söm aftur. í framtíðinni verða gerðar aðrar og
meiri kröfur til æðstu valdamanna um að starfshættir þeirra þoli
dagsins ljós. Þannig er það kristaltært að aðrir stjómmálamenn
geta nú ekki vikist undan því að fram fari opinská umræða um
þeirra störf. En jafnframt ber að setja fram þá sjálfsögðu kröfu
á hendur fjölmiðlum, að sú umræða sé heiðarleg; sprottin af
sannleiksást en ekki persónulegri eða pólitískri óvild í garð ein-
staklinga.
Erfitt er að meta, hvort hefur skaðað Alþýðuflokkinn meira:
þindarlaus umræðan um spillingarmál eða brotthvarf Jóhönnu
Sigurðardóttur. Samkvæmt skoðanakönnun Morgunpóstsins
nýtur óstofnaður flokkur Jóhönnu stuðnings 13,7% þeirra sem
afstöðu taka. Hún hefur því, að minnsta kosti í bili, misst tals-
vert af þeim meðbyr sem hún hafði. Það er kaldaranaleg stað-
reynd að í könnuninni fá Jóhanna og Alþýðuflokkurinn saman-
lagt 11 þingmenn - en flokkurinn fékk tíu kjöma síðast. Þetta
leiðir hugann að kosningunum 1983 þegar Bandalag jafnaðar-
manna fékk fjóra þingmenn og Alþýðuflokkurinn sex. Báðar
hreyfingamar vom síðan með öllu áhrifalausar um stjóm lands-
ins það kjörtímabil.
Ekki fer á milli mála að mikil getjun er nú á vinstri væng stjóm-
málanna. Háværar raddir kreíjast uppstokkunar flokkakerfisins
með það fyrir augum að stofnaður verði flokkur sem getur orð-
ið mótvægi Sjálfstæðisflokksins. Það er hinsvegar raunalegt að
fylgjast með tilburðum þeirra flokksforingja sem þykjast út-
valdir til forystuhlutverks á þessum vettvangi. Klaufaleg bón-
orð Ólafs Ragnars Grímssonar til Kvennalista og Jóhönnu hafa
engan árangur borið - annan en þann að auka á glundroðann og
reyta fylgið af Alþýðubandalaginu. Kvennalistakonur tóku á
landsfundi sínum af öll tvímæli um það, að flokkur þeirra vill
ekki taka þátt í samfylkingu af neinu tagi. Það kemur ekki á
óvart: Kvennalistakonur hafa tileinkað sér gamaldags flokks-
hollustu langt umfram það sem gerist og gengur í öðmm stjóm-
málaflokkum. Samfylkingartilraunir oddvita Alþýðubanda-
lagsins em því miður ekki annað en orðin tóm; tilraun til þess
að fiska atkvæði í gruggugum sjó. Enda em liðsmenn flokk-
anna sem óðast að koma sér fyrir í gömlu skotgröfunum. Næst
þegar stofna á til hins langþráða stóra flokks á vinstri væng væri
ekki úr vegi að spyija fyrst hvaða málefni menn geti sameinast
um - ella er ekki um annað að ræða en innantómt valdageim.
Alþýðuflokkurinn hefur nú setið í ríkisstjómum samfleytt síð-
an 1987. Imynd flokksins í hugum kjósenda - burtséð frá spill-
ingammræðu síðustu mánaða - hefur breyst, kannski án þess
að forystumenn hans hafi áttað sig á því til fulls: úr því að vera
harðsnúinn flokkur með uppstokkun og umbætur efst á stefnu-
skránni, í það að vera kerfisflokkur, málsvari ríkjandi ástands.
Þetta em næstum óhjákvæmileg örlög flokka sem em lengi í
senn við stjómvölinn. Alþýðuflokkurinn hefur hinsvegar í
stjómartíð sinni komið í höfn ótal mörgum framfaramálum sem
snerta öll svið þjóðlífsins. Þessu þurfa forystumenn Alþýðu-
flokksins að koma rækilega til skila. Og það er líka eina leiðin
til þess að tjúfa herkvína sem flokkurinn er í. Það er orðið tíma-
bært að hefja á nýjan leik alvöm pólitíska umræðu.
„Líklegt er, að hefði Sigmund Freud verið
uppi í Hafnarfirði á ofanverðri tuttugustu
öldinni, þá hefði hann án vafa fundið verðugt
rannsóknaefni í núverandi bæjarstjóra.
Kannski hefði gyðingurinn gamli þá ekki eytt
svo drjúgum tíma í penisöfundina en einbeitt
sér í staðinn að því að skýra pólitíska öfund
út í hörgul.“
Rökstólar
Freudískt
rannsóknaefni
Sigmund Freud skrifaði á sínum
tíma mikinn ópus um kókaínið, sem
hann taldi undralyf, og prófaði með
lítt þekkilegum aíleiðingum á sjálfs
sín skrokki. Eftir það snéri hann sér
hins vegar að rannsóknum á furðum
sálarlífsins og varð vel ágengt. Freud
uppgötvaði penisöfundina sem
seinni tíma fræðingar notuðu til að
skýra öfgar femínismans, en varð þó
frægastur fyrir að skýra ýmsar hliðar
mannlegrar eymdar með tilvísun til
flókinna draumfara.
Líklegt er, að hefði Sigmund
Freud verið uppi í Hafnarfirði á of-
anverðri tuttugustu öldinni, þá hefði
hann án vafa fundið verðugt rann-
sóknaefni í núverandi bæjarstjóra.
Kannski hefði gyðingurinn gamli þá
ekki eytt svo dijúgum tíma í penisöf-
undina en einbeitt sér í staðinn að því
að skýra pólitíska öfund út í hörgul.
Sennilega hefði Freud fengið styrk
frá Ólafi G. Einarssyni, hinum syfj-
aða ráðherra, til að rannsaka Magnús
Jón Amason.
Sem stjómmálamaður er nýi bæj-
arstjórinn í Hafnarfirði nefnilega al-
veg stórmerkilegt rannsóknaefni.
Skammur ferill hans sem eftirmaður
Guðmundar Ama Stefánssonar hef-
ur satt að segja verið með eindæm-
um merkilegur.
Vinir Hafnarfjardar
Flestum bæjarstjómm er annt um
bæinn sinn. Þeir vilja honum allt hið
besta og oftar en ekki em ráðnar heii-
ar auglýsingastofur til að mála kosti
hans skýmm dráttum, - og stundum
ef til vill eilítið sterkari litum en
vemleikinn gefur tilefni til. Þetta
tókst til dæmis Guðmundi Ama ótrú-
lega vel.
Hvort sem það var rétt eða rangt,
þá var þjóðin sannfærð um að undir
stjóm hans væri Hafnarfjörður fyrir-
myndarbær. Það em ekki nema
nokkrar vikur síðan erlendir gestir af
vettvangi sveitarstjómarmála nefndu
Hafnarfjörð sérstaklega í fjölmiðlum
sem einstakt dæmi um vel rekinn bæ.
Hafnfirðingar vom stoltir af bænum
sínum. Jafnvel kverúlantar úr
Reykjavík, sem vom óánægðir með
íhaldsstjóm höfuðborgarinnar, fluttu
á kratastassjónina í stríðum straum-
um. Svo vel tókst Guðmundi Ama
reyndar upp, að fjöldi bærilega
greindra fslendinga kepptist um að
ganga í klúbb, sem hann stofnaði og
kallaði „Vini Hafnarfjarðar".
Klúbburinn var auðvitað tómt
blöff; menn fengu litprentað skírteini
og vom hvattir til að eyða svolitlu af
peningum í Hafnarfirði. En fyrir vik-
ið þá héldu þeir sig vera í hópi út-
valdra, drusluðust af og til suðreftir,
fengu sér fínar vöfflur í Hafnarborg,
og væri drukkinn of mikill bjór ösn-
uðust menn til að láta mynda sig með
geggjuðum víking í Fjörakránni. En
þrátt fyrir timburmennina daginn eft-
ir fannst þeim Guðmundur Ámi og
Hafnarfjörður bara standa sig helvíti
vel.
Öðruvísi bæjarstjóri
Magnús Jón er hins vegar úr Al-
þýðubandalaginu, þar sem arfleifðin
frá tfma gömlu kreppukommanna
stimplar ennþá ótrúlega ómengaða
neikvæðni inn í öll skilningarvit. I
Alþýðubandalaginu em menn ein-
sog Magnús Jón, sem ganga með
dökk gleraugu jafnvel þó þeir búi f
stöðugu myrkri, og sjái aldrei til sól-
ar. Enda er harla ólíklegt að bæjar-
stjórinn hafi nokkm sinni látið plata
sig til að sitja fyrir með brjáluðum
víking á örfáum prómillum handan
þess normala.
Á fimm mánaða tímabili sem bæj-
arstjóri hefur Magnús Jón Ámason
verið meira í fjölmiðlum en nokkur
annar sveitarstjómarmaður á íslandi.
Sumir bæjarstjórar hefðu nýtt það til
að byggja upp álit á bænum sínum.
En Magnús Jón er öðmvísi. Hann er
drifinn af annars konar sannfæringu
en þeirri sem blæs öðmm bæjarstjór-
um í bijóst að styrkja sinn bæ. Magn-
ús Jón hefur notað fjölmiðlasjóið til
að reyna ná sér niður á gömlum sam-
starfsmanni, og það er einsog honum
finnist ekkert eins mikilvægt í allri
veröldinni en slæma höggi á Guð-
mund Áma.
Menn uppskera jafnan einsog þeir
sá. Eftir að hafa horft á bæjarstjórann
níða niður Hafnarljörð samfleytt í
fimm mánuði er gervöll þjóðin kom-
in á þá skoðun, að Hafnarfjörður sé
þriðja flokks bæjarfélag, þar sem
bókstaflega allt sé í skömm og niður-
níðslu. Hvað ætli taki Hafnfirðinga
mörg ár að byggja upp það sem nýi
bæjarstjórinn hefur rifið niður?
Grjótbúinn
Moldviðrið sem þyrlað var upp í
kringum Listahátíð Hafnarfjarðar
var gott dæmi. Vikunt saman fjallaði
bæjarstjórinn um fjármál hátíðarinn-
ar einsog þar væri á ferðinni stórfellt
glæpsamlegt atferli. Sérstakur starfs-
maður Listahátíðarinnar, Amór Ben-
ónýsson, var útmálaður þannig af
vömm bæjarstjórans, að þjóðin gat
ekki skilið annað en þar væri á ferð-
inni hreinræktaður glæpamaður.
Þetta gerði bæjarstjórinn auðvitað í
þeim tilgangi að koma höggi á Guð-
mund Ama, sem hratt hátíðinni af
stað. Og trúr þeirri hefð gömlu
kommanna að tilgangurinn helgi
meðalið, þá var honum nákvæmlega
sama þó í leiðinni slátraði hann
mannorði vesæls starfsmanns, - það
þjónaði því einfaldlega, að koma
höggi á gamlan keppinaut úr hafn-
firskri pólitík.
Þegar skynsamir og reyndir starfs-
menn bæjarins komu loks vitinu fyr-
ir bæjarstjórann nýja upplýstist strax,
að meintur fjárdráttur var ekki til
staðar. Þá upplýstist líka, sem hver
sæmilega greindur maður vissi, að
sem hlutafélag bar Listahátíð Hafn-
arfjarðar hf. - og þarmeð stjómendur
þess - lagalega ábyrgð á öllu bixinu.
I millitíðinni var hins vegar búið að
reisa krossa og negla menn.
Freud hefði skilið þetta. Árum
saman stóð Magnús Jón í skugga
vinsæls og afkastamikils bæjarstjóra,
og nú átti að greiða þá skuld í fríðu.
Gantli sálkönnuðurinn hefði getað
skrifað herjans skraddu unt hina pól-
itísku öfund og afleiðingar hennar á
sálarlífið, - hefði hann borið gæfu til
að þekkja Magnús Jón.
En hverrúg brást Magnús Jón við,
þegar hans eigin starfsmenn vom
búnir að leiðrétta mglið úr honum ?
Amór Benónýsson bíður ömgglega
enn eftir afsökunarbeiðni vegna fjár-
dráttarbrigslanna og verður væntan-
lega að nota aðrar leiðir til að fá
hana. Sálarlíf bæjarstjórans reyndist
vera á því stigi, að þegar hann kom
enn á ný í sjónvarp, eftir að starfs-
menn hans vom búnir að upplýsa
málið, þá notaði hann tækifærið og
hélt brigslum sínum áfram. Og
ósjálfrátt koma upp í hugann Ijóðlín-
ur Tómasar:
„ Úr grjótinu gœgist ratta“...
Dagatal 15. nóvember
Atburdir dagsins
1902 Anarkistinn Gennaro Rubin
gerir misheppnaða tilraun til að ráða
Leopold II. Belgfukóng af dögum.
1923 1 tilraun til þess að hemja vit-
firringslega verðbólgu - eitt brauð
kostar 200.000.000 mörk - er settur
á markað splúnkunýr seðill:
1.000.000.000 mörk. Milljarður
semsagt. 1954 Lionel Barrymore
deyr, víðfrægur kvikmyndaleikari,
bundinn við hjólastól undir það síð-
asta en lét það ekki aftra sér frá því
að leika áfram. 1956 Fyrsta kvik-
mynd Elvis Presleys frumsýnd: Love
Me Tender.
Afmælisbörn dagsins
William Pitt eldri, jarl af Chatham,
enskur stjómmálamaður, 1708. Ger-
hart Hauptmann þýskt leikskáld og
rithöfundur, 1862. Erwin Rommel
þýskur herforingi, öðlaðist mikla
frægð fyrir frammistöðu sfna í Norð-
ur-Afríku í öðm heimsstríði. Daniel
Barenboim ísraelskur píanóleikari
og stjómandi.
Annálsbrot dagsins
Krefðuvetur allmikill; fylgdu þar
með aðrar kynjasóttir, fyrst augn-
verkur, þá nýrnaverkur, þrútnuðu
upp á sköpin með hörðum verk; hér
með fór sú sótt svo, að blés upp á
kverkamar og andlit, og batnaði öll-
um mjög skjótt.
Nýi annáll, 1426.
Málsháttur dagsins
Oft er múlsnjall miðlungi sannorður.
Lokaorð dagsins
Ég er ekki lengur hrceddur.
Hinstu orð Georges S. Kaufmans leikskálds
(1889-1961).
Munnangur dagsins
Róm var ekki byggð d hverjum degi.
Móðgun dagsins
Þorstein Valdimarsson hef ég aldrei
kunnað að meta. Mér finnst kveð-
skapur hans óekta, þmglkenndur og
lífvana tilbúningur, uppblásinn af
einhvers konar gamaldags og um-
fram allt leiðinlegri rómantík.
Steinn Steinarr, Birtingur 1955.
Orð dagsins
Völt íflestu veröldin er,
vænn er sessinn lægri;
að sínu láni sjái hver
seint á endadægri.
Benedikt Jónsson Gröndal.
Á sunnudaginn var, 13. nóvember,
voru liðin 230 ár frá fæðingu hans.
Skák dagsins
I dag skoðum við snöfurmannlega
taflmennsku Cabrilos, sem hefur
hvítt og á leik gegn Petronic. Þessi
er kannski í þyngri kantinum og
krefst dálítils tíma, einkum 2. leikur
hvíts.
1. Re5! Hxg3 2. Dxf7!! Rc6 Ekki 2
... Hxf7 3. Rxí7+ Kg8 4. Rxd6. En
svarti em hvorteðer allar bjargir
bannaðar. 3. Dxd7 Rxd5 4. Dxd6
cxd6 5. hxg3 og dagar hins ólán-
sama Petronic em taldir.