Alþýðublaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 ALÞYÐUBLAÐID IÞ i n 9 s e t n i n ?r ■ Ávarpforseta íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, við setningu Alþingis 1. október 1996 Þjóðin sjálf er herra okkar allra Vandi þjóðþinga á okkar tímum felst í þeirri þversögn að annars vegar styrkist krafan um aukið lýðræði og opnari stjórnunarhætti og hins vegar hafa samtök sérhagsmuna eflst að skipulagi og sérfræði ásamt því að embættis- stofnanir framkvæmdavaldsins verða sífellt öfl- ugri bakhjarl ríkisstjórna sem löngum vilja beita þingin agavaldi. Alþingi skipar veglegan sess í sögu þjóðarinnar. Engin önn- ur stofnun vísar jafn skýrt til uppruna íslendinga og örlaga lands- manna á liðnum öldum. Eftir endur- reisn var Alþingi vettvangur sigra í baráttu þjóðarinnar fyrir sjálfstæði, lýðréttindum og alhliða framförum. Hér var staðfestur árangur í langri og oft erfiðri sókn fólks í landinu til auk- ins réttar og bættra kjara. Þingmennimir sem fýrst komu sam- an í sal Lærða skólans en síðan hér við Austurvöll hafa orðin ein að vopni. Þeir studdust við söguleg rök og fom- an rétt, vísuðu til þjóðlegrar 'menning- ar og arfleifðar, en byggðu málflutn- ing sinn á alþjóðlegum frelsishug- myndum samtímans. A þennan hátt unnu þeir hvern sigurinn af öðrum með orðsins brandi einum saman. Flestar aðrar þjóðir hafa orðið að færa mannfómir til að öðlast fullveldi og festa í sessi lýðræðisskipan og þingræði. Þúsundir hafa látið lífið, þolað fangelsun eða refsingar í þágu þessara hugsjóna. Enn á okkar dögum eru þjóðir og samfélög víða um heim að öðlast á dýrkeyptan hátt þau lýð- réttindi sem við íslendingar teljurn sjálfsögð og eðlileg, jafnvel svo hvers- dagsleg að varla taki því að minnast á þau við hátíðleg tækifæri. Skyldan að vera demókratískur Lýðræðið kann á stundum að þykja litlaust og starfsvettvangur þingsins viðburðasnauður, en væri hvort tveggja á brott numið yrðum við fóm- arlömb umskipta sem myndu koll- steypa flestu því sem okkur finnst eðlilegt og sjálfsagt í mannlegu sam- félagi. Þegar Ásgeir Ásgeirsson kom hér í þingsalinn í fyrsta sinn sem forseti lýðveldisins vék hann nokkuð að stöðu Alþingis og sagði: „Á Alþingi heyr þjóðin sitt hags- muna- og hugsjónastríð. Kosningar og flokkaskipting er sú borgun sem vér greiðum fyrir afnám hnefaréttarins. Þarfimar segja til sín um land allt og í öllum stéttum. Flokkar semja sér stefnuskrár og bræða þær saman í stjórnarsamvinnu. Svo kemur veru- leikinn máske og takmarkar getuna. Það hendir jafnvel þingmenn, án þess að sé um að sakast, og ríkisstjómir að þurfa stundum að gera fleira en gott þykir og annað en vonir stóðu til. En hvað sem því líður, þá er allt þetta framför og hámenning borið saman við það þegar höfðingjar kölluðu menn frá vinnu um hábjargræðistím- ann og fóm um hémð fylktu liði, drep- andi, eyðandi og étandi upp búfé bænda á Sturlungaöld." Ásgeir Ásgeirsson forseti sagði einnig við þingsetninguna 1952, hina fyrstu að loknum forsetakosningum, að hann væri þakklátur fyrir að hafa átt sæti á Alþingi um langt skeið, og bætti svo við: „Það er ekki einungis vegna þess að þar er gott að fylgjast með því hvað gerist í löggjöf og þjóðmálum, heldur einnig hinu hvemig það gerist. Ég segi það umbúðalaust að þingmenn eru heiðarlegir menn og áhugasamir um að láta gott af sér leiða. Á Alþingi þró- ast engin spilling sem ekki gætir eins á öðmm sviðum mannlegs samstarfs. Flokkar lúta að vísu að sumu leyti öðrum lögmálum en einstaklingar, hver út af fýrir sig, en bæði flokkar og einstakir þingmenn hafa sinn metnað sem getur verið hvort tveggja, heil- brigður og óhóflegur. Það mætti miklu góðu koma til leiðar ef ofmetnaður tmflaði aldrei almenningsheill. Lýð- ræðinu er hætta búin þegar harðstjóm og einræði ná tökum á flokkum. Þeirra er ekki síst skyldan að vera demókra- tískir, ef þjóðfélagið á að vera það í heild.“ Það er hollt að hugleiða þessa áminningu Ásgeirs Ásgeirssonar. Hún hefur haldið gildi sínu í rösk fjörtíu ár. Allir hafa fyrirrennarar mínir flutt hér við upphaf þings hvatningarorð og hugleiðingar um brýn viðfangsefni á hverri tíð. Og það er fróðlegt og lær- dómsríkt að skoða málflutning forset- anna fjögurra í þessum sal. Þær ræður veita margvíslegar vísbendingar um samband forseta við þing og þjóð. Þegar ég nú feta í þeirra fótspor og kem hér til þings með nýja ábyrgð á herðum vil ég þakka alþingismönnum öllum samstarf og vináttu á liðnum ár- um og láta í ljósi ósk um farsæl sam- skipti við Alþingi og ríkisstjóm. Vöm þjóðþinganna Islenskt þjóðfélag hefúr tekið mikl- um stakkaskiptum á síðustu áratugum. Þær breytingar hafa haft margvísleg áhrif á stöðu og viðfangsefni Alþingis. Að vissu leyti heyr þingið nú vamar- baráttu til að tryggja að það vald sem því ber samkvæmt lýðræðisgrundvelli íslenskrar stjórnskipunar flytjist í reynd ekki smátt og smátt til sérfræði- stofnana framkvæmdavaldsins eða til starfsliðs og stjórnenda hagsmuna- samtaka. Þessi þróun er ekki einstök fyrir okkar samfélag. Við þennan vanda er glímt í þjóðþingum allra þróaðra lýð- ræðisríkja og bmgðist við með mis- munandi hætti: Tvennt ber þó hæst í vöm þjóðþinganna. I fýrsta lagi að nýta sér tækni sjón- varps, útvarps og alnets til að gera umræður og þingskjöl jafnóðum að- gengileg alþjóð. Beinar útsendingar frá umræðum í löggjafarstofnun og jafnvel endurtekningar um kvöld og helgar þegar fólk hefur tóm til að hlýða á málflutning kjörinna fulltrúa sinna eru nú víða í þróuðum lýðræðis- ríkjum talin mikilvæg aðferð til að styrkja lýðræðislega stöðu þingsins. Það er fróðlegt í þessu sambandi að minnast þess að við endurreisn Al- þingis árið 1845 var það helsta krafa frelsissinna að þinghaldið yrði allt í heyranda hljóði. Hannes Stephensen prófastur og alþingismaður benti kon- ungsfulltrúa á mikilvægi þessarar kröfu, „enda væm opnar dyr það sem allir hér á landi mundu óska eftir, með því alþing hið foma hefði og verið haldið í heyranda hljóði,“ eins og seg- ir í Tíðindum frá Alþingi íslendinga 1845. Kandídat Jón Sigurðsson eins og hann var þá nefhdur í þingtíðindum, „- kvaðst hafa meðferðis bænarskrá um þetta efni, og lét í ljósi, að þetta mundi vera skýlaus vilji allrar þjóðarinnar", eins og einnig er frá greint í þingtíð- indum. Forystumönnum sjálfstæðisbarátt- unnar var á fyrsta fundi hins endur- reista Alþingis ljóst að forsenda fyrir áhrifum þingsins og gagnsemi var að landsmenn allir ættu rétt á að fýlgjast með störfum þingsins. Nú hefur ný tækni gert okkur kleift að veita öllum þennan rétt hvar sem menn búa á landinu og í krafti alnetsins einnig þeim sem dvelja um langa eða skamma hríð fjarri fósturjörðinni. í öðm lagi hafa þjóðþing víð'a stigið skref í þá átt að styrkja starfsnefndir þingsins og efla getu þeirra til að vega og meta kröfur og álit ólíkra hags- munaafla. Að nokkm hefur hér á landi á síðustu árum verið haldið inn á þessa braut og er það vel. En vissulega kæmi til greina að veita þjóðinni allri einnig áheymarrétt að umræðum um mikilvægustu efnisþætti á vettvangi nefhda þingsins líkt og gert er vfða í erlendum þjóðþingum. Slík skipan væri vissulega í samræmi við þau sjónarmið Jóns Sigurðssonar og sam- herja hans á Alþingi að þingið yrði háð í heyranda hljóði enda væm það „fom réttindi er íslendingar hefðu áð- ur notið“ eins og Jón forseti komst að orði í umræðunum 1845. Vandi þjóðþinga á okkar tímum felst í þeirri þversögn að annars vegar styrkist krafan um aukið lýðræði og opnari stjómunarhætti og hins vegar hafa samtök sérhagsmuna eflst að skipulagi og sérfræði ásamt því að embættisstofnanir framkvæmdavalds- ins verða sífellt öflugri bakhjarl ríkis- stjóma sem löngum vilja beita þingin agavaldi. í þessari þraut er engin lausn án erf- iðleika eða togstreitu. Hollt er að minnast þess að gmndvöllur lýðræðis og lýðveldis í stjómskipan okkar ís- lendinga er að valdið er hjá fólkinu, þjóðinni sjálfri. Ekki aðeins á kjördag á nokkurra ára fresti, heldur ávallt og ævinlega. Almannahagur - viðmiðun sem mestu skiptir Það er í samræmi við þennan lýð- ræðislega grundvöll stjómskipunar- innar að þjóðin velur sjálf forseta lýð- veldisins. Umboð hans er frá fólkinu í landinu. Við embættistökuna 1. ágúst síðastliðinn sagði ég að starf forseta Islands fælist fyrst og fremst í þjón- ustu við þjóðina. Einungis dómgreind, lífsreynsla og lifandi tengsl við fólkið í landinu gætu vísað forseta rétta leið í starfi. Þessa leiðsögn árétta ég nú, en rninni jafnframt á að þótt kjördæmi og stjómmálaflokkar eigi hlut að skipan Alþingis þá er þjóðin sjálf herra okkar allra. Almannahagur er sú viðmiðun sem mestu máli skiptir. Kristján Eldjám, þriðji forseti ís- lands, orðaði þessa skyldu Alþingis svo í ræðu við þingsetningu árið 1970: „Ábyrgð Alþingis er því mikil, bæði einstakra þingmanna og þingsins í heild. Þeim öflum sem að verki em í þjóðfélaginu, félagslegum hreyfingum þess, þörfum og kröfum og úrlausnar- efnum hvers konar og á öllum sviðum má líkja við fjölþætt og flókið kerfi stórra og smárra vatna sem koma langt og víða að en hníga þó öll að lokum að einum miklum farvegi. Al- þingi er slíkur farvegur, farvegur landsmálanna. í þeim farvegi hljóta að verða straumköst, en traustur farvegur á að hemja þau öfl sem innan hans byltast, og skila öllu að ósi farsællega án þess að bresta. Sú er ætíð ósk og von þjóðarinnar í hvert sinn sem Al- þingi kemur saman.“ Þessi orð Kristjáns Eldjárns við þingsetninguna 1970 geri ég nú að mínum. Á komandi vetri bíða þingsins mörg erfið úrlausnarefni. Mikilvægt er að varðveita þann stöðugleika í verðlags- málum sem haldist hefur í rúman hálf- an áratug. Einnig þarf jafnt og þétt að ná jafnvægi í viðskiptum okkar við umheiminn, draga úr erlendum skuld- um og styrkja hér innanlands í senn rekstrargrundvöll ríkissjóðs og fjár- hagsstöðu heimilanna. Þessi viðfangsefni kunna á næst- unni að reyna á þolrif þings og þjóðar vegna ólíkra viðhorfa til þess hvemig best er að nýta þann ávinning sem er í vændum og að hluta er ávöxtur þeirra fóma sem almenningur hefur fært á undanfömum árum. Erfiðleikar hafa löngum fært íslendinga saman en með betri tíð hefur á stundum losnað um samfylgdina. Nú ríður á að þing og þjóð beri gæfu til að finna leiðir sem í senn styrkja efnahagslífið og bæta lífskjör heimilanna. Ég óska Alþingi alls velfamaðar í vandasömum störfum og bið alþingis- menn að rísa úr sætum og minnast fósturjarðarinnar. Millifyrirsagnir eru blaðsins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.