Alþýðublaðið - 02.07.1997, Blaðsíða 8
WOfílOW/Oe EXPfíESS
Nýtt aðalnúmer
5351100
EMMBIOIÐ
Miðvikudagur 2. júlí 1997
85. tölublað - 78. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
WOfíLOW/OE EXPfíESS
Nýtt aðalnúmer
5351100
■ Saksóknari brýtur upplýsingalögin, segir Guðrún Jónsdóttir
Fær ekki að sjá kæruna
frá biskupi um rógburð
„Það er ekki hægt að opinber
starfsmaður hagi sér svona, annað
hvort þola þessi skjöl dagsins ljós
eða ekki,“ segir Guðrún Jónsdóttir
hjá Stígamótum en hún hefur ítrekað
reynt að fá upplýsingar um ákæru
biskups gagnvart sér, en hún var tal-
in meðsek konunum sem tengdust
biskupsmálinu um rógburð. A skrif-
stofu ríkissaksóknara fær hún jafnan
þau svör að gögnin séu ekki tiltæk.
“Forsaga málsins er sú að þegar
upplýsingalögin gengu í gildi um
áramótin hugsaði ég með mér að
samkvæmt nýju lögunum ætti ég rétt
á því að fá að sjá öll þau gögn sem
snertu mig í kæru biskups.
í biskupsmálinu svokallaða ákærði
biskup konumar sem kærðu hann um
kynferðislega áreitni, fyrir rógburð
og fleiri atriði, og þar var ég talin
meðsek. Nú vil ég fá að sjá kæmna
gegn mér, öll lögreglugögn sem
tengjast henni og skriflega niður-
stöðu ríkissaksóknara sem ákveður
að aðhafast ekkert í málinu.
Það er borgaralegur réttur minn að
fá einhver svör og ég skil ekki hvaða
tilgangi það á að þjóna að halda
þessu leyndu og afhverju gögnin em
inni hjá honum en ekki í skjala-
geymslu.
í Apríl hringdi ég upp á skrifstofu
ríkissaksóknara og þar fékk ég þau
svör að gögnin væru inni hjá honum
og því ekki aðgengileg. Ég hringdi
aftur og fékk sömu svör og náði jafn-
framt ekki tali af honum sjálfum.
Þegar ég hringdi í þriðja sinnið var
mér sagt að ég þyrfti að senda skrif-
lega beiðni. 27 maí sendi ég hana og
■ Vinnur Tryggingastofnun
eftir tyrkneskum lögum?
Meðlög til Sophíu
felld niour
Sophía Hansen fær ekki greidd
meðlög vegna bama sinna frá Trygg-
ingastofnun frá fyrsta júlí, vegna
þess að Hæstiréttur í Tyrklandi hefur
úrskurðað Halim A1 forræðið. Þetta
kemur Sophíu í gersamlega opna
skjöldu enda var henni á sínum tíma
úrskurða forræði telpnanna tveggja
fyrir íslenskum dómstóli. Það skýtur
skökku við að Tryggingastofnun ís-
lands skuli fara að tyrkneskum lög-
um.
Þann 6. júní síðastliðinn sendi
Hilmar Björgvinsson yfirmaður í
Líftryggingadeild Tryggingastofnun-
ar bréf til forstjóra stofnunarinnar þar
sem segir að nú hafi Hæstiréttur í
Tyrklandi fellt sinn dóm í forræðis-
deilu Halims A1 og Sophíu Hansen
og Halim A1 sé nú með forræðið því
skuli fella niður allar greiðslur til
Sophíu vegna bama hennar frá 1.
júlí.
Ákvörðunin var ekki tilkynnt
Sophíu, en þegar hún vitjaði um
meðlagsgreiðslur í morgun vom þær
ekki inni á reikningnum.
Sophía fékk ekki að sjá telpumar í
gær en hæstiréttur í Tyrklandi kvað
svo á um að hún skildi hafa dætumar
hjá sér frá 1. júlí til 31. ágúst.
hef ég ekki heyrt neitt síðan, hvorki
fengið hringingu né bréf frá embætt-
inu. Eftir það hef ég hringt þrisvar.
síðast í gær og fékk ég að heyra það
sama, að gögnin væm ekki tiltæk,
þau væru inni hjá ríkissaksóknara.
Nú ætla ég að ræða við lögfræðing
og fá hann til að ganga í málið, það
er óþolandi að fólk þurfi að kaupa
lögfræðiaðstoð til að ná fram ský-
lausum rétti sínum, gagnvart hinu
opinbera,“ segir Guðrún Jónsdóttir.
mesi
UNGMENNAFÉLAGS ISLANDS
^orgarfjörðurinn verður fullur af fjöri 3,- 6. júlí
á 22. Landsmóti UMFÍ. Keppt verður í yfir 20
íþróttagreinum. Jón Arnar Magnússon reynir við
íslandsmet í frjálsum og topplið eigast við í körfubolta.
Fjölskyldan getur tekið þátt í gönguferðum,
skemmtiskokki og skógarhlaupi. Einnig verða ýmis
leiktæki á svæðinu ásamt götuleikhúsi, sýningu á
ólympískum lyftingum, ökuleikni o.fl.
Sannkölluð
fjölskyldu- og
íþróttahátíð
Enginn
aðgangseyrir
inn á mótið
jTÁý læsileg setningarathöfn verður á föstudag kl. 20.
fj/Á laugardag verður kvöldvaka með söng, leikjum
og fjölbreyttum skemmtiatriðum m.a. Spaugstofunni
og Magnúsi Scheving.
Barna- og fjölskylduball verður laugardagskvöld
og dansleikir með Draumalandinu og Stuðbandalaginu
á föstudags- og laugardagskvöld.
Landbúnaðarsýning verður á Hvanneyri 4,- 6. júlí.
Landsmótsstemningin er engu lík. Ekki missa af henni.
Fimmtudagur 3. júlí Föstudagur 4. júlí Laugardagur 5. júlí Sunnudagur 6. júlí
BORGARNES:
Körfubolti, sund, fijálsar
iþróttir, skák, fimleikar
og fótbolti (Sjóvá -
Almennra deildin
kl. 20 Skallagrímur
og Stjarnan).
BORGARNES:
Borðtennis, körfubolti, sund, fijálsar
íþróttir, íþróttir fatlaðra, skák, æsku-
hlaup, golf, hcstaíþróttir og hand-
bolti. Setningarathöfn á
Skallagrímsvelli kl. 20.
HVANNEYRI:
Fótbolti og Bridds.
AKRANES:
Blak og körfubolti
Reyklaust
landsmót
TÓBAKSVARNANEFND
HVANNEYRI:
Fótbolti, bridds, drátta-
vélaakstur, jurtagreining
og lagt á borð.
Landbúnaðarsýning hefst: Búfé á
beit, vélasýning - gömul og ný tæki,
kynningar Borgfirskra fyrirtækja
og stofnana, hestaleiga o.fl.
AKRANES:
Blak og körfubolti.
BORGARNES:
Körfubolti, glima, sund, fijálsar
íþróttir, íþróttir fatlaðra, starfshlaup,
skák, línubeiting, pönnukökubakstur,
golf, hestaíþróttir, handbolti og
skógarhlaup. Kvöldvaka á
Skallagrímsvelli kl. 20.
HVANNEYRI:
Fótbolti og Bridds.
Landbúnaðarsýning:
Setning, nautasýn-
ing, pijónakeppni, trjáplöntun og
leiksýning (Bjartur í Sumarhúsum).
AKRANES:
Blak og körfubolti.
BORGARNES:
Körfubolti, blak,
frjálsar rþróttir, skák,
fótbolti og handbolti.
Mótsslit á Skalla-
grímsvelli kl. 14:30.
HVANNEYRI:
Bridds.
Landbúnaðarsýning: Helgistund,
nautasýning og leiksýning.
/7
Ungmennasamband
•J\ Borgarfjarðar
UNGMENNAFÉIAG ÍSIANDS
VÖRUHÚS KB
SPARISJÓÐUR
MÝRASÝSLU
Sjáumst á
landsmóti
vimmmtv