Vísir - 10.02.1976, Blaðsíða 4
4
Þriöjudagur 10. febrúar 1976 vism
Klúbbmálið, spíramálið, hvarf Geirfinns, hvarf Guðmundar: hversu mikið tengd?
Klúbbnum ekki
lokað þrátt
fyrir vanskil
á sðluskatti
Þegar Visir leitaði
eftir upplýsingum um
það hvernig skattamál
Klúbbsins stæðu, varð
viðast litið um svör.
Halldúr E. Sigurðsson, sam-
göngumálaráðherra, sem
gegndi embætti fjármálaráð-
herra á árinu 1972, gaf það upp á
Alþingi 2. febr. s.l., að endan-
iegir skattar fyrirtækisins væru
Mmilljónir króna. Reyndi blað-
ið fyrst að komast að þvi hvort
sú upphæð væri að meðtöldum
sektum vegna ófullkomins
framtals.
Fulltrúi rikisskattstjóra sagð-
ist ekki geta sagt neitt um þetta
atriði, þar sem það væri
trúnaðarmál.
Guðmundur Skaftason, for-
maður rikisskattanefndar,
sagðist ekki geta gefið slikar
upplýsingar og vildi ekkert láta
hafa eftir sér um þetta mál.
Þvi næst var leitað eftir upp-
lýsingum um það, hvernig stæði
á þvi, að Klúbbnum hefur ekki
veriðlokað vegna ógreidds sölu-
skatts, eins og öðrum fyrirtækj-
um, sem lenda i vanskilum með
söluskattinn.
Fulltrúi tollstjóra sagði ekk-
ert vera hægt að segja um ein-
stök fyrirtæki. Söluskattur væri
mjög flókinn skattur og erfitt að
gera grein fyrir i smáatriðum
hvernig innheimta hans fer
fram.
A það má þó benda, að um-
ræddur söluskattur Klúbbsins
var frá árunum 1971 og 1972 og
var úrskurður kveðinn upp i
þessu máli þann 18. september
1973. Samkvæmt upplýsingum
Ólafs Nilssonar, fyrrverandi
skattrannsóknastjóra, skilaði
hann málinu frá sér i mai 1973.
Til samanburðar er hægt að
benda á það, að veitingahúsinu
Cesar var lokað vegna vangold-
ins söluskatts I janúar s.l., en
veitingahúsið var fyrst opnað
s.l. haust og hefur þvi ekki liðið
mjög langur timi frá gjalddaga
söluskattsins þar til staðnum
var lokað.
Einu upplýsingarnar, sem
lágu á lausu um stöðu skatta-
mála Klúbbsins, voru þær sem
Einar Ingimundarson, sýslu-
maður Kjósarsýslu gaf blaðinu.
Hann sagði, að uppboð á Álfs-
nesi á Kjalarnesi, þinglesinni
eign Sigurbjörns Eirikssonar,
yrði tekið fyrir 13. febr. n.k.
Gert hafi verið lögtak i jörðinni
á árinu 1974 til tryggingar
greiðslu á söluskatti og þing-
gjöldum, sem þá voru til sam-
ans að upphæð rúmar 12
milljónir króna.
Rikisinnheimtan bað fyrst um
uppboð á eign þessari 18. april
1975 og hefur verið gefinn frest-
ur á uppboðinu nokkrum sinn-
um siðan og voru þeir frestir
samþykktir af rikisinnheimt-
unni og auk þess fleiri aðilum,
sem áttu aðild að uppboðsbeiðn-
inni.
Ekkert uppboð er fyrirhugað
á eigninni Borgartún 32, þar
sem veitingahúsið Klúbburinn
er til húsa, eftir þvi sem upplýst
var i uppboðsrétti borgar-
fógetaembættisins i Reykjavik.
Þó hafði verið farið fram á upp-
boðá eigninni. Sú uppboðsbeiðni
var um tima i frestun, eða þar
til hún var afturkölluð, að öllum
likindum vegna uppboðsbeiðn-
innar á Álfsnesi. Er þvi ekkert,
sem bendir til þess, að rekstur
Klúbbsins verði fyrir truflunum
af þessum sökum.
— SJ
K.R.R. K.D.R.
Knattspyrnudómara-
námskeið í Reykjavík
Knattspyrnudómaranámskeið verður
haldið 22. til 28. febrúar i Valsheimilinu
við Hliðarenda.
Þátttaka tilkynnist til formanna knatt-
spyrnudeilda Reykjavikurfélaganna.
Stjórn Knattspyrnudómarafélags
Reykjavikur
Nauðungaruppboð
annaö og siðasta á Selásdal v/Suðurlandsveg þingl. eign
Gunnars Jenssonar, fer fram á eigninni sjálfri, fimmtu-
dag 12. febrúar 1976 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta i Sólheimum 27, talinni eign Her-
berts Guðmundssonar, fer fram á eigninni sjálfri,
fimmtudag 12. febrúar 1976 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavík.
Skyld
Kiúbbmálið/ spíramál-
ið, hvarf Geirfinns
Einarssonar, morðið á
Guðmundi Einarssyni,
grunur um stöðvun á
rannsókn nokkurra þess-
ara mála. öll þessi atriði
eru talin tengjast meira
eða minna saman. Mörgu
hefur verið varpað fram
manna á meðal og í f jöl-
miðlum um þessi mál.
Lítið hefur fengist stað-
fest hjá réttum yfirvöld-
um.
Engin endanleg úrslit hafa
fengist i þessum málum. Þau
mál
virðast flækjast óendanlega
saman, og sérhver tilraun utan-
aðkomandi til að fá botn, verður
til þess að viðkomandi ruglast
bara enn meir. Ekki bætir úr
skák að rannsóknaraðilar hafa
verið tregir á að gefa upplýsing-
ar. Þær rannsóknir sem standa
nú yfir á mannshvörfunum
tveimur eru einna mest lokaðar.
Rannsóknum Klúbbmálsins
og spiramálsins telst lokið, og
eru málin bæöi til umfjöllunar
hjá rikissaksóknara.
Asakanir um að rannsókn
þriggja þessara mála hafi að
sumu leyti verið heftar, eru
mest til umfjöllunar hjá fjöl-
miðlum, ef svo má að orði kom-
ast. Enda hvilir engin leynd yfir
þeirri „rannsókn”, þótt endan-
leg niðurstaða hafi ekki fengist.
Visir ræddi við nokkra aðila
þessara mála i gær, aðallega þá
sem snerta Klúbbmálið svo-
nefnda. Klúbburinn og Fram-
sóknarflokkurinn eru sakaðir
um fjármálaleg tengsl, og hafi
þau tengsl haft áhrif á það að
rannsókn á meintri ólöglegri
starfsemi Klúbbsins var heft.
Þá er rætt um að spiramálið
tengist Klúbbmálinu, spirinn
hafi verið seldur þar að ein-
hverju leyti. Framkvæmda-
stjóri Klúbbsins situr i gæslu-
varðhaldi vegna Geirfinnsmáls-
ins, ásamt öðrum, vegna nýrra
upplýsinga sem komu fram við
rannsókn á hvarfi Guðmundar
Einarssonar. Einnig er rætt um
að spiramálið tengist hvarfi
Geirfinns Einarssonar. A.m.k.
hefur komið fram að Geirfinnur
var beðinn um að eima sjó-
blandaðan spira.
— ÓH
Kristján mótmœlir
„kauða" naf nbótinni
tel mig manna ólíklegastan til að skýla mér bakvið einhvern
Eftir lestur leiðara sunnu-
dagsblaðs Tímans hafa margir
spurt hvort átt hafi verið við
„kauða” ólafs Jóhannessonar,
þar sem sagöi að á baksviði her-
feröarinnar gegn dómsmála-
ráðherra væri sérkennilegur
matreiðslumaður hulinna afla,
rikisstarfsmaöur á Keflavikur-
flugvelli.
Óneitanlega dettur mörgum i
hug að þarna sé átt við Kristján
Pétursson, deildarstjóra i toll-
gæslunni á Keflavikurflugvelli.
Visir spurði Kristján hvort
hann vildi kannast við að vera
sá kauði sem dómsmálaráð-
herra sagði á Alþingi að stæði
að baki Visisskrifunum.
„Ég mótmæli þvi að mér sé
ætlað kauðanafnið. Allir sem til
min þekkja, vita mætavel að ég
fer aldrei leynt meö skoðanir
minar. Ég tel mig manna ólik-
legastan til að þurfa að skýla
mér á bak við einhvern. Ef ein-
hverjum hefur dottið i hug að ég
sé sá kauði sem standi að baki
skrifum Visis þá vil ég minna á,
hvernig ég hef komið opinber-
lega fram og tekið á mig þau
óþægindi sem ég hef haft af þvi
að vekja athygli á ýmsum mál-
um. Menn ættu að vera minnug-
ir um áralanga baráttu mina
vegna fikniefnamála, og
ómyrka skoðun mina á dóms-
málakerfinu. Ég lýsi furðu
minni á þessari hugmynd að
bendla nafn mitt við kauðanafn-
bótina.
Það ljótasta sem ég get látið
segja um miger það að ég skýli
mér að baki einhverjum.
En ef ég get veitt dómsmála-
ráðherra aðstoð til aö finna
kauða, vil ég gjarna gera það.
Ég veit þvi miður ekki hver
hann er” sagði Kristján.
ÓII
Iþjóðar. í framhaldi af þessu hefur þess hvað eftirl
lannað verið krafizt i forystugreinum i Visi. að Geirl
íHallgrimsson bæðist lausnar fyrir Ölaf Jóhannes-
son. Það er eins og unnið sé eftir nákvæmri hernað-|
laráætlun, sem gerð hafi verið fyrirfram. Á baksvið-l
linu er svo sérkennilegur matreiðslumaöur hulinna
afla, rikisstarfsmaður á Keflavikurflugvelli. Þettal
ier heil breiðfylking. sem teflt er fram. og hvert peðj
[og hver riddari á sinum stað.
Hver þeirra fer m
Kristján
Kristján Pétursson, deildar-
stjóri á Keflavikurflugvelli,
staðfesti ummæli sln úr sjón-
varpsþættinum Kastljós siðast-
liðiö föstudagskvöld I samtali
viö Visi I gær.
Efnislega eru þau á þá lund,
að hann, Haukur Guðmundsson,
rannsóknarlögreglumaður i
Keflavik og Rúnar Sigurðsson,
lögreglumaður úr Reykjavik,
hófu rannsókn á spiramálinu
svonefnda 6. janúar 1975. Að
viku liðinni hafi Sakadómur
Reykjavikur tekið viö rannsókn
málsins.
Þá höfðu þeirfundið 3200 litra
af spira, 3000 flöskur af áfengi
ogverulegt magn af vindlingum
og kjötvörum. Rannsókn
Sakadóms hafi ekki borið
saman við þeirra niðurstöðu,
þremenninganna. Hafi smygl-
varningurinn minnkað verulega
i rannsókn Sakadóms. Bætti
Kristján þvi við i samtalinu við
Visi, að þetta magn hafi minnk-
að um hartnær helming.
Þessum niðurstöðum undu
þeir þremenningarnir illa og
var leitað eftir þvi við dóms-
málaráðuneytið að það skipaði
sérstakan setudómara og fékkst
það i april.
Enn var málið tekið úr
þeirra höndum
Rannsókn var nú tekin upp á
ný og stóðu að henni sömu
menn.
Málið stóð þannig þar til
þremur vikum siðar að Bjarki
Elíasson yfirlögregluþjónn i
Reykjavik, kom með skilaboð
frá Baldri Möller, ráðuneytis-
stjóra i Dómsmálaráðuneytinu,
þess efnis að þeir ættu tafar-
laust að hætta rannsókn þessa
máls. Viðbrögð þeirra félaga
urðu þau að þeir Kristján og
Haukur kváðust ekki verða við
þessum tilmælum nema þau
kæmu frá þeirra yfirmanni.
Rúnar hætti strax, enda undir
lögreglustjórann i Reykjavik
settur.
Þessi ummæli Kristjáns stað-
festi Haukur i sjónvarpsþættin-
um strax. Rúnar staðfesti þessi
ummæli aftur viö blaðamann
Visis i gær. Sagði hann að þetta
væri rétt nema að nafn Baldurs
Möllers man hann ekki eftir að
hafa heyrt nefnt.
Kristján bætti þvi við I sam-
talinu við blaðamann Visis að i
orðsendingu þeirri sem Bjarki
bar þeim hafi einnig verið tekið
fram að Sakadómur Reykjavik-
ur tæki nú við rannsókninni.
Þessi ummæli Kristjáns bar
Bjarki til baka sem ranga i
sjónvarpsþættinum. A blaða-
mannafundi i gær lét Bjarki frá
sér fara greinargerð um þetta
mál. Er hún efnislega á öðrum
stað hér á opnunni.
Málið var siðan til rannsóknar
hjá Sakadómi þar til Asgeir
Friðjónsson var skipaður sér-
stakur rannsóknardómari i
málinu. Að lokinni rannsókn
sendi hann málið til Sakadóms
og þaðan fór það til saksóknara.
— Vitni að þvi að ég fer
með rétt mál
— Ég skil ekki hvað Bjarki er
að fara með þessu, sagði
Kristján i samtalinu við Visi. —
Bæði Haukur og Rúnar voru
viðstaddir þegar Bjarki flutti
þessi skilaboð og báðir bera það
sama og ég. Þar að auki eru
vitni að þvi, að ég tók strax
simann og reyndi að ná sam-
bandi við Baldur Möller. En
hann var þá á leið út úr bænum
og mér tókst þess vegna ekki að
fá skýringar hjá honum á þessu.