Vísir - 10.02.1976, Blaðsíða 6
-fiBHS
N NwWVVV^
Mótmxlenda
garta
tóþólsk*
straét
é V]
1 land
É|l|
Patty í
vitna-
stúkunni
Rœningjar hennar nauðguðu henni,
börðu og drógu hana á milli
felustaða í öskutunnu
Meö tárin í augunum
lýsti Patty Hearst þvi
fyrir rétti í glr, hvernig
hún heföi mátt þola það,
Verjandi Patty llearst, Bailcy
lögfræöingur, leiddi skjólstæft-
ing sinn i vitnastúku.
að ræningjar hennar úr
SLA hefðu nauðgað henni
inn í skáp, meðan hún var
fangi þeirra. — Meðal
þeirra var maðurinn sem
hún eitt sinn kallaði byit-
ingarelskhuga sinn.
Patty sat sjálf i vitnastúkunni
i gær og bar þar af sér allar sak-
ir um að hafa tekið af fúsum
vilja þátt i bankaráni symbio-
nesiska frelsishersins.
Sagði hún réttinum, að ræn-
ingjar hennar hefðu margsinnis
hótað að drepa hana, og hún
heföi verið orðin þeirrar skoð-
unar, að henni þýddi ekki að
reyna að flýja. — Þeir mundu
alltaf finna hana aftur og fyrir-
koma henni.
Verði Patricia Hearst fundin
sek um þær sakir, sem á hana
eru bornar, á hún yfir höfði sér
allt að 35 ára fangelsi. En lög-
menn hennar byggja vörnina á
þvi, að hún hafi verið saklaust
fórnarlamb ræningja sinna.
I fjórar klukkustundir sat
Patty i vitnastúkunni i gær og
svaraði spurningum verjanda
sins. Henni hafði verið nauðgað,
hótað lifláti, gefið glóðarauga
fjórum sinnum og dregin úr einu
Patty Hearst gengur i réttarsal-
inn.
fylgsninu i annað i öskutunnu.
Röddin brast og hún táraðist,
þegar hún skýrði frá þvi, að
William Wolfe, sem hún eitt sinn
lýsti á segulbandi sem ,,bliöasta
og fallegasta manninum, sem
hún hefði kynnst” hefði nauðgað
henni. — Fyrir réttinum neitaði
hún, að hafa nokkurn tima elsk-
að Wolfe, sem lét lifið ásamt
flestum öðrum félögum SLA i
skotbardaga við lögregluna i
Los Angeles 17. mai 1974.
Patty lýsti þvi, hvernig hún
hefði verið neydd til að segja inn
á segulband, að hún hefði sjálf-
viljug tekið þátt i bankaráninu i
april 1974.
Saksóknarinn gekk fast á
Patty og klifaði á þvi, að hún
hefði ekki gert neina tilraun til
að flýja þetta eina og hálfa ár,
sem hún var með ræningjunum.
Spurði hann hana, hvi hún hefði
hafið skothrið til að hjálpa hjón-
unum William og Emily.Harris,
þegar þau voru staðin að verki i
sportvöruverslun i Los Angeles.
,,Ég gat ekki sloppið, þvi að
SLA hefði leitað mig uppi. Og ég
hélt, að yfirvöld teldu sig eiga
eitthvað sökótt við mig lika,”
sagði Patty.
Jarðskjálfta-
ráðstefna
Jarðskjálftafræðingar meira en
50landa þinga i Paris i dag i kjölfar
jarðskjálftanna miklu i Guate-
mala. Ræða þeir leiðir til að draga
úr hættu á manntjóni af völdum
jarðskjálfta. -
Ráðstefna þessi mun standa
næstu tiu daga og er haldin á veg-
um UNESCO.
Alyktanir ráöstefnunnar verða
lagðar fyrir aðalfund UNESCO i
október næsta, en stofnunin hefur
látið jarðskjálftann i Guatemala
mikið til sin taka. T.d. hefur hún
boðið þjónustu fjögurra sérfræð-
inga sinna til að rannsaka tildrög
jarðskjálftans þar og afleiðingar,
og einnig til aö leggja hönd á plóg-
inn við endurreisnarstarfið.
Plötusnillingurinn
Faith
Percy Faith, einn af þekktustu
lagasmiðum heims, lést i Los
Angeles i gær 67 ára að aldri. Það
var krabbamein sem dró hann til
dauða.
Mörg laga hans urðu „gullplöt-
ur” vegna metsölu. Svo sem eins og
„Moulin Rouge” árið 1953 og lagið
úr myndinni „Summer Place” árið
1960.
Faith hóf feril sinn sem pianisti i
leikhúsum og gistihúsum. Hann
starfaði i tónlistardeild kanadiska
útvarpsins frá 1933 til 1940, en flutti
þá til Bandarikjanna, þar sem
hann starfaði hjá hljómplötugerð
Columbia.
Enginn þótti taka honum fram við
útsetningu laga fyrir hljómplötur
eða stjórnun tónlistar og undirleik.
Hann lagði hönd að verki við gerð
hljómskifa eins og „Time for
Love”, „Raindrops Keep Fallin’”,
„Love Story”, „Jesus Christ,
Superstar” og „Day by Day” svo
nokkrar séu nefndar.
Kennedy vinsœlasta
forsetaefnið
Úrslit skoðanakönnunar, sem
birt voru i gær, sýna, aö Edward
Kennedy, öldungadeildarþingmað-
ur, er langvinsælasta frambjóð-
andaefni meðal demókrata og ó-
háðra til forsetakosninganna.
í könnun Louis Harris kemur i
ljós, að 29% þeirra 2.500. sem
spurðir voru, studdu Kennedy,
meðan 18% studdu Hubert Humph-
ey.
Hvorugur þeirra hefur hlotið út-
nefningu flokks sins, og Kennedy
hefur lýst þvi yfir, að hann muni
ekki gefa nokkurn kost á sér.
Af þeim tiu demókrötum, sem
keppa að þvi að ná útnefningu, fékk
George Wallace 12%, Henry Jack-
son 7% og aörir 4% eða minna.
Hentugur stimpill
Fyrir konur, sem vilja þekja og
innsigla bréfin sin með kossum, er
nú kominn á markaðinn gýmmi-
stimpill i laginu eins og varir. Hon-
um fylgir rósrautt blek að sjálf-
sögðu.
Vœndiskonan þoldi
ekki glápið
26ára vændiskona, sem á dögun-
um fór með sigur af hólmi I mála-
ferlum vegna setu hennar létt-
klæddrar i glugga i „Rauð-
ljósa”hverfi Southampton, hefur
gefist upp i iðninni.
Það komu of margir til að glápa á
hana, eftir að málaferlin vöktu á
henni athygli. — Allt þetta gláp
reyndi of mikið á taugarnar til
lengdar.
Nú ætlar hún að snúa sér aftur að
kjólasaum.
Diplómatinn með
úlfhundinn
Fyrrum sendiherra Barbados
hjá Sameinuðu þjóðunum, sem
kallaður var heim vegna milli-
rikjadeilu. sem spratt upp þegar
hundurinn hans tók að leggjast á
fólk i New York. hefur verið ráðinn
til mannfiölgunarnefndar S.þ.
Waldo Valdron-Ramsey verður
ráðgjafi sjóðs nefndarinnar sem
starfar að þvi að takmarka barn-
eignir.
Úlfhundur sendiherrans hafði
nær bundið enda á diplómatiskan
feril hans þegar lögreglan i New
York varð þess vör aö liann hafði
bitið sjö eða átta manneskjur. —
Borgarstjóri Long Island hótaði að
láta skjóta hundinn. ef ambassa-
dorinn ekki gætti hans betur.
Brást sendiherrann illa við og
vildi meina að friðhelgi diplómats-
ins næði einnig til hundsins. Varð af
þessu mikið fjaðrafok og lauk með
þvi að stjórn Barbadoseyja kallaði
sendiherrann heim.
Tengdadóttirin varð
fyrir sprengjunni
Tengdadóttir fyrrum forseta
Argentinu, Alejandros Lanusse
hershöfðingja, lét lifið i gær af
völdum sprengju, sem sprakk á
heimili hennar.
Hin 28 ára gamla Maria Caride
de Lanusse lann við útidyrnar
böggul, sem hún tók með inn, og i
sömu andránni sprakk vitisvélin.
Eiginmaður hennar, Marcos Lan-
usse særðist litillega.
Lanusse hershöfðingi var forseti
Argentinu 1971- 73 en þá lét hann
fara fram kosningar til forseta-
cmbættis og vék fyrir perónista.
I
Kippurinn mœldist
6 stig á Richter
Mikilí jarðskjálfti gerði i gær
vart við sig á strönd Mexikó norð-
vestur af Guatemala, þar sem
jarðskjálíti lagði mannabyggðir i
rúst i siðustu viku.
Jarðskjálftafræðingar segja að
kippurinn hafi átt upptök sin um
290 km vestur af Guadalajara i
Kyrrahafi. Mældist hann 6,0 stig á
Richterkvarða, en jarðskjálftinn i
Guatemala mældist 7,5 stig.
Ekki er vitað enn um neitt tjón af
völdum jarðskjálftans i Mexikó.