Vísir - 10.02.1976, Side 24
VfSIR
Þriðjudagur 10. febrúar 1976
Sólar-
ferðir
gengis-
lœkka
— Gengislækkun pesetans —
um tíu prósent — hlýtur að
sjálfsögðu að lækka eitthvað
verð á sólarlandaferðum héð-
an, sagði Steinn Lárusson,
framkvæmdastjóri Ferða-
skrifstofunnar Orval, við Visi i
morgun.
— Það er auðvitað að þvi til-
skyldu að gengi krónunnar
haldist óbreytt. Pesetinn hefur
verið að siga undanfarna tvo
mánuði og allt fram á föstu-
dag að afgreiðsla á honum var
stöðvuð og gengið formlega
fellt.
-Við erum nú ekki búnir að
reikna út ennþá hver munur-
inn verður. Okkar ferðir byrja
ekki fyrr en i april, um pásk-
ana svo við höfum tima til að
doka aðeins við. En lækkun
verður semsagt að óbreyttu
ástandi.
—ÓT
Dregið úr
kennara-
róðningum
Skólastjórar grunnskóla i
Kcykjavik hafa verið beðnir að
fara varlega i að ráða þá kennara
aftur til starfa í vor sem ekki eru i
föstum stöðum, þ.e. stundakenn-
ara og setta kennara.
Kristján J. Gunnarsson,
fræðslustjóri upplýsti i viðtali við
Visi i morgun hverjar væru á-
stæður þessarar beiðni. Sagði
hann að óvenju margir kennarar
væru i orlofi þetta ár, en kæmu
aftur til starfa næsta skólaár. Þá
hefðu fjárframlög til skólamála
verið lækkuð um 50 milljónir
króna á fjárlögum og væri
hugsanlegt, að það ylli niður-
skurði á kennslu.
Loks sagði Kristján að fækkun
nemenda við eldri skóla borg-
arinnar yrði ef til vill til þess að
færa þyrfti fastráðna kennara frá
þeim til nýrri og fjölmennari
skólanna. — SJ
BROTIST INN Á 2
STAÐI Á AKUREYRI
Brotist var inn i iþróttavallar-
húsið og kornvöruhús KEA á
Akureyri i fyrrinótt. Þúsund
krónum var stolið á öörum
staðnum, en ekki var vitað um
neitt horfið úr kornvöruhúsinu.
Inn i iþróttavallarhúsið var
komist með þvi að sparka upp
hurð, en auðveldara var að
komast inn i kornvöruhúsið.
Talsvert hefur verið um innbrot
á Akureyri að undanförnu og sér-
lega mikið bæði i desember og
janúar. — EA
„Ekki svo erfitt að
synda í sjónum..."
,,Mér brá ekki svo mik-
iö þegar jakann fór aö
reka f rá landi. Ég sá bara
að það var ekkert um
annað að ræða en skutla
sér i sjóinn," sagði 12 ára
drengur, Sverrir
Kristinsson á Akureyri,
sem tók það til bragðs að
fleygja sér í sjóinn og
synda um 50 metra í land
þegar hann hafði rekið á
ísjaka um 50 metra frá.
,,Ég fór út á jaka sem var al-
veg við landið hjá hraðbrautinni
sem liggur inn að flugvellinum.
Svö fór jakann að reka frá landi
og þegar hann var kominn dálit-
ið frá skutlaði ég mér.
Það var ansi kalt að synda i
sjónum. En það var samt ekki
svo erfitt. Það versta var að ég
— segir 12 úra
drengur sem
synti í land
eftir að hann
hafði rekið á
ísjaka
missti anpað stigvélið mitt.
Þegar ég kom i land voru fjór-
ir menn i fjörunni. Það var lika
búið að kalla á lögregluna og
hún ök mér heim.
Ég er ekkert eftir mig. Og er
hinn hressasti.”
EKG/EA
Hvað kemur mikið sorp frá reykvikingum? Við þessari spurn-
ingu fæst von bráðar svar. Það er nefnilega byrjað að vigta allt
sorp sem ekið er á öskuhaugana.
Pétur Hannesson, deildarstjóri hjá Hreinsunardeild Reykjavfk-
urborgar, sagði að þetta væri gert I sambandi við að núverandi
sorphaugar væru fullnýttir og þvi stæði nú yfir athugun, á hvað
gera skyldi i sorpeyðingarmálum höfuðborgarinnar.
Væri meðal annars athugað, hvort áfram skyldu notaðir sorp-
haugar eða hvort betra væri að setja upp annað kerfi sorpeyðing-
ar. Nú störfuðu sérfræðingar sem ynnu að gerð tillagna um þessi
mál.
Myndina tók Einar þar sem verið var að vigta sorp á leið á ösku-
haugana. —EKG
„Yfirnefndin
opinberar hlut-
drœgni sína"
— segir samstarfsnefnd sjómanna
„Sjómcnn og útgerðarmenn
hafa á undanförnum árum haft
grun um hlutdrægni verðlags-
ráðs, en nú hefur það sannast að
sá grunur er réttur þvi yfirnefnd
hefur með yfirlýsingu algjörlega
opinberað hlutdrægni sina.
Skal Ingólfur Ingólfsson enn
einu sinni minntur á að hann er
kosinn i yfirnefnd til að gæta
hagsmuna sjómanna en ekki sem
böðull þeirra.
Kristján Ragnarsson formaður
LtO skal einnig minntur á að
hann cr fulltrúi seljenda i yfir-
nefnd en ekki fulltrúi kaupenda
þó svo að allir meðstjórnendur
hans i Ltú séu fiskverkendur.”
Þetta segir meðal annars i
harðorðri yfirlýsingu sem sam-
starfsneínd sjómanna hefur sent
frá sér. I yfirlýsingu samstarfs-
nefndarinnar eru gerðar athuga-
semdir við yfirlýsingu yfirnefnd-
ar verðlagsráðs sem sjómenn
segja aðeins taka mið af hags-
munum fiskverkenda en ekki sjó-
manna.
Benda þeir á að upplýsingar um
hluta ufsa i afla vertiðarbáta suð-
vestanlands séu einungis frá fisk-
kaupendum. „Aftur á móti ætlar
verðlagsnefnd að gera úrbót og
upplýsa verðlagsráð um verð sem
heístu fiskseljendur fá fyrir fisk-
inn og tekur þá eðlilega dæmi frá
aflahæstu bátunum sem veiða
með ufsanet við sunnanvert
landið.”
Samstarfsnefndin segir að 60%
þess afla sé 1. flokks fiskur. 2. og
3. flokks fiskur sé um 20% hvor.
Yfrirnefnd verðlagsráðs taldi
hins vegar 60-80% ufsaaflans vera
1. flokks fisk.
Vart svaravert
Kristján Ragnarsson formaður
LIÚ sagði að hann teldi yfirlýs-
ingu samstarfsnefndarinnar vart
svaraverða. Yfirnefnd verðlags-
ráðs sjávarútvegsins byggði á
upplýsingum frá hlutlausúm
aðila sem væri Fiskifélag Islands,
eins og raunar hefði alltaf verið
gert.
Þá væri sér kunnugt um að
samstarfsnefndin hefði undir
höndum upplýsingar um sundur-
liðun á stærð og fiskmagni fyrir
timabilið október-janúar. Og af
þeim mætti sjá að yfirnefndin
styddist við réttar tölur.
— EKG
Líkið ófundið
Likið af manninum sem
drukknaði i Olfusá er enn
ófundið. Leitað var i allan
gærdag. 1 morgun þegar Visir
hafði samband við lögregluna
var leit ekki hafin, enda veður
óhagstætt. En leitað verður
áfram, og er það björgunar-
sveitin Tryggvi sem sér um
leitina.
— EA
Engir varnarliðsmenn
utan vallar haustið 1978
„Það hefur verið gerð áætlun
til þriggja ára. Nú eru i bygg-
ingu 132 ibúðir á Keflavikur-
flugvelli sem ætlaðar eru fyrir
varnarliðsmenn og á þeim að
vcra lokið I október næst kom-
andi.
Aætlað er að hefja byggingar
á ibúðum I vor. i upphafi var
gert ráð fyrir að þær yrðu 250
talsins. En vegna verðhækkana
cr ekki fyrirsjáanlegt hversu
margar vcrða cndanlega reistar
i þeim áfanga. En þeim á að
vera lokið haustið 1977.
Loks cr gert ráð fyrir að
vorþið 1977 hefjist lokaáfanginn
þannig að haustið 1978 vcrði
þetta mál komið á hreint.”
Þetta var svar Páls Ásgeirs
Tryggvasonar deildarstjóra i
Varnarmáladeild utanrikis-
ráðuneytisins er Visir spurði
hvað liði byggingum ibúða fyrir
varnarliðsmenn innan flugvall-
argirðingarinnar.
Visir skýrði frá þvi i gær að
bæjarstjórn Keflavikur vildi fá
bættan tekjumissi vegna'búsetu
útlendinga það er varnarliðs-
manna i Keflavik. Kom fram að
10-15% ibúa Keflavikur væri
bandarikjamenn. Þar sem þeir
njóta ýmiss konar opinberrar
þjónustu án þess að greiða neitt
útsvar telur bæjarstjórn
Keflavikur að bærinn verði fyrir
verulegum tekjumissi af þeim
sökum.
Páll sagði að aliar timaáætl-
anir varðandi byggingu
ibúðanna hefðu algjörlega stað-
ist til þessa. En ibúðirnar hefðu
hins vegar reynst dýrari en
áætlað hefði verið i upphafi.
Lausnar er skammt
að bíða
„Ákveðinn fjöldi varnarliðs-
manna fær leyfi til þess að búa
utan vallar . Heldur varnarliðið
nákvæma skýrslu um fjölda
þeirra. Við höfum fengið
upplýsingar um fjölda þeirra
manna, ’ sagði Jóhann Ein-
varðsson, bæjarstjóri i Kefla-
vik, i samtali við Visi.
„Nokkrir varnarliðsmann-
anna eru á svokölluðum
„túrista status” sem þýðir að
þeir fá enga fyrirgreiðslu frá
varnarliðinu. Það var um fjölda
þeirra manna sem við höfðum
engar upplýsingar.”
Jóhann sagði að bæjarstjórn
Keflavikur hefði haldið fund
með Varnarmáladeildinni og-
skýrt mál sitt. Hann sagði að á
fundinum hefðu komið fram
ýmsar upplýsingar frá Varnar-
máladeildinni og myndi þetta
vandamál verða úr sögunni á
nokkrum árum.
— EKG