Vísir - 29.03.1976, Blaðsíða 9

Vísir - 29.03.1976, Blaðsíða 9
visra Mánudagur 29. mars Umsjón: Guðmundur Pétursson Þessi kúvending hans á sveif með egyptum mun ekki aðeins krefjast þess, að hann snúist gegn fyrri skoðanabræðrum sinum, sýrlendingum, sem stóðu við hlið honum i gagnrýn- inni i fyrra á friðarumleitanir Sadats. Hann verður jafnframt að skrúfa niður i mesta ofsanum i sínum eigin krofum. Háðir gestrisni og velvild annarra Einir og óstuddir geta hinir landlausu palestinuárabar ekki staðið. An stuðnings annað hvort egypta eða sýrlendinga geta þeir ekkert. Og eins og sak- ir standa á Arafat meiri mögu- leika á þvi að koma sér inn undir hjá stjórninni i Kairó, en hjá stjórninni i Damaskus. — Það er að segja, ef Arafat er reiðubúinn til að taka sér stöðu að baki friðarstefnu Sadats. Stjórnmálaveður skipast fljótt i lofti hjá arabarikjunum. Bandamennirnir úr Yom Kipp- ur-striðinu við tsrael, egyptar og sýrlendingar, elda nú grátt silfur saman á siðum áróðurs- málganga sinna. Einingin fór út um þúfur, þegar Sadat lagði eyrun við samningatali Kissing- ers, en þá sökuðu sýrlendingar hann um að ætla að svikja málstað araba i hinni eilifu deilu við israel til þess að ná hagkvæmum sérfriðarsamning- um fyrir Egyptaland. Sýrlendingar, sem algerlega eru háðir sovétmönnum um vopnabúnað, hafa kynt enn ákafar óvildarbálið, eftir að Sadat sagði skilið við sovét- stjórnina. Þeir kalla Sadat leið- toga uppgjafarsinna og útvarp- ið i Damaskus sendir daglega út áskoranir til egypsku þjóðar- innar um að bylta af sér svik- ráðastjórn Sadats. Straumhvörf i skæruliða- samtökunum Það vaknar sú spurning, hvort menn næstu mánuðina, verði ekki vitni að þvi, hvernig fer að f júka i flest skjól hryðju- verkamanna palestinuaraba, rétt eins og upp úr miðöldum lokaðist hver griðastaður sjó- ræningja á eftir öðrum, og á sið- ustu árum hæli flugræningja, sem eiga ekki lengur i önnur hús að venda en Libýu og Alsir. Ef Arafat fær inni hjá egypta- landsforseta, er viðbúið að hann verði að binda hendur morð- varga sinna. Sadat sem snúið hefur sér til vesturs og skorið á tengslin við Kreml, ætti óhægt um vik við að leita þar aðstoðar, ef hann hýsti útsendara „svarta september” og annarra morð- samtaka. sem enn eru flekkuð blóði iþróttamanna frá ólympi'uleikunum i Munchen og annars saklauss fólks. Diplömatinn Arafat Arafat gerir sér þetta væntan- lega vel ljóst, eftir að hann hefur fengiö smjörþefinn af andrúmslofi diplómataheimsins i þingsölum sameinuðu þjóð- anna. Hann hefur vafalitið rekið sig á það, þegar hann hefur leit- að liðshónar og atkvæðafylgis við tillögur palestinuaraba á. fundum Sameinuðu jóðanna, að margir, sem hafa út af fyrir sig samúð með málstað hins bág- stadda flóttafólks Palestinu, veigra sér við að taka i blóð- flekkaðar hendur skæruliðanna. Enda hafa skæruliðasamtök hans haft sig æ minna i frammi með hryðjuverk á borð við sprengingar i flugvélum, eða sprengjubréfasendingum til stjórnmálamanna eða öðrum flugum. Er sú atferlisbreyting án vafa áhrif af stjórn Arafats, sem hefur kappkostað að iklæða þjóðfrelsishreyfingu palestinu- araba skikkju stjórnmálasam- taka. Það hefur svo um leið kallað yfir hann óánægju hinna yngri og róttækari, sem álita það hámark hetjuskapar að ryðjast inn i afgreiðslusali alþjóðaflug- hafna og murka lifið úr konum og börnum með rússnesku vél- byssunum sinum. ) 1976 9 MIK MAGNÚSSON SKRIFAR: Rússneskir kafbátar eru erfiðasta vandamál hins vestræna hciins. Á island að bjóða hættunni heim með úrsögn úr NATO Sovétrikin eiga stærsta kaf- bátaflota sem riki hefur átt á friðartimum. Það er raunar stærsti kafbátafloti sem nokkru sinni hefur verið til i heiminum. Og hvað kemur það islandi svo- sem við? Það er auðvelt að svara þvi. i hernaðaráætlunum Sovétrikjanna er island fremsta viglinan i hugsanlegum átökum við vesturveldin. NÝ ÁRÁSARVOPN Arið 1972 urðu Sovétrikin fær um að skjóta eldflaugum með kjarnaoddum frá kafbátum i allt að 4200 milna fjarlægð frá skotmarkinu. Það voru hinir nýju Delta kafbátar (Delta 1 9000 tonn, Delta 2 16000 tonn) vopnaðir hinum nýju SSN-8 flaugum. Rússnesku kafbátarn- ir gátu þarmeð hitt skotmörk i Evrópu og Bandarikjunum án þess að fara i gegnum sundið milli Islands og Grænlands. „ÁRÁSIR” Á HERSKIP NATO Á nýafstöðnum flotaæfingum á Atlantshafi (Vesna og Okean 2) sýndi norðurhafsfloti Sovét- rikjanna óvenjumikinn áhuga á birgðaleiðum vesturlanda á hafinu. Sovéskar herflugvélar æfðu eldflaugaárásir á herskip og kafbátasveitir „lokuðu” sigl- ingaleiðum milli Islands og Noregs. NJÓSNAHNÖTTUR YFIR REYKJAVÍK Sovétrikin hafa skotiö upp fjarskipta- og njósnahnöttum. Þeir eru i sex hundruð milna hæð og fara yfir 65 breiddar- Er fiskveiði- deilan við NATO? gráðu, en Reykjavik er einmitt á sextugustu og fimmtu gráðu. Þessir hnettir geta sent upplýs- ingar um skipaferðir, annað- hvort til eigin skipa eöa til mót- tökustöðva á jörðu niöri, I allt að 2200 milna fjarlægð. NORÐUR- ATLANTSHAFIÐ MIKILVÆGAST Af þessu er aðeins hægt að draga tvær ályktanir. önnur er sú að hemaðaráætlanir flotans byggja á kafbátastyrk gegn skotmörkum á landi og á sjó. Hin er sú að langmikilvægasta svæðið ef til átaka kemur, verður Norður-Atlantshafið. KÍNVERJAR HÖFUÐVERKUR Það væri rangt að halda að Sovétrikin hugsuðu aðeins um bandamennina i vestri. Kina er ennþá alvarlegur höfuðverkur i varnarmálum. En landamæri þessara rikja liggja saman og þótt bar séu fiölmennar rúss- neskar hersveitir eru aðeins 92 kafbátar i Kyrrahafsflota Sovétrikjanna. Þetta þarf aðhafa i huga þeg- ar litið er á þá staðreynd að i norður-flota Sovétrikjanna eru helmingi fleiri kafbátar. 1 Eystrasaltsf lotanum — sem einnig ógnar Evrópu — eru 76 kafbátar. Flotastöðvarnar i Severo- morsk og Polyarny, á Kola- skaga eru þvi erfiöasta hernað- arvandamál sem vesturlönd hafa nokkru sinni staðiö and- spænis. Það er auðvelt að láta glepj- ast af hinni mjög svo básúnuöu Helsinki-samþykkt. Það sem hún i rauninni afrekaöi var að tryggja austurveldunum undir stjórn Sovétrikjanna landa- mæri. Hún náði hins vegar ekki að tryggja að Sovétrlkin legðu eitthvað verulegt til „de- tente”-stefnunnar með þvi að „milda” aðeins áætlanir sinar um heimsyfirráð. SAMASAGANí SALT-VH)RÆÐUNUM Þetta sama er hægt að segja um viðræðurnar milli Sovétrikj- anna og Bandarikjanna um tak- mörkun kjarnorkuvigbúnaðar. Það samkomulag sem nú er i gildi leyfir Sovétrikjunum að eiga 62 nýtisku kafbáta, vopn- aða 920 kjarnorkuflaugum. Bandarikin mega eiga 44 kaf- báta, búna 710 flaugum. önnur NATO-riki bæta við kjarnorkuvopnabirgðir vestur- veldanna á hafinu, þannig að meira jafnvægi næst. ÖNNUR VOPN En þetta skyggir aðeins á aðalatriðið. Þetta samkomulag er um kjarnorkuvigbúnað. „Venjulegir” kafbátar falla ekki undir þetta og Sovétrikin eiga 318 slika. Sovétrikin kunna að sætta sig við jafnvægi i kjarnorkuvopnum, en þau eru ekki hætt við að reyna að ná yfirburðum i „venjulegum" vopnum. MIKLAR NÝSMÍÐAR Sovéski flotinn fær árlega um 13 kafbáta af ýmsum gerðum (Delta 1, Delta 2, Charlie, Victor, Uniform og Tango). Og það er ekki bara verið að verja milljörðum til að fólk hafi at- vinnu. Sovétrikin ætla sér yfir- ráð á höfunum. Og til að ná þeim, verða þau að ráða á haf- inu umhverfis ísland. ÓSKÖP AUÐVELT > Auðveldasta leiðin til að ná þessu er að reka áróður gegn NATO-herstöðinni i Keflavik og láta loka henni. NATO gæti að visu haldið áfram varnarstarf- inu frá stöðvum i Noregi og frá Thule á Grænlandi, en kostnað- urinn yrði ofboðslegur. Það gæti lika oröið Islandi dýrkeypt. FISKVEEÐIDEILA VIÐ NATO? Ef NATO fatast varnarstarfið hrynur lýðræðið á vesturlönd- um. Frelsið sem við þekkjum i dag, þar á meðal frelsi til að velja okkar. eigin rikisstjórn. va'ri ur sögunni. i’etta þarf að muna þegar hugsað er um Iramtið herstöðvarinnar i Keflavik. Fiskveiðideilan er við Bretland. En er hún við NATO? Þessi deila er senn úr sögunni. Væri rétt hjá Islandi að rjúfa tengslin við NATO núna og láta ráðast um framtiðina?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.