Vísir - 03.09.1976, Síða 8

Vísir - 03.09.1976, Síða 8
8 VÍSIR Útgcfandi: Keykjaprent hf. Frainkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson Kitstjórar: Þorsteinn Páisson, ábm. Ólafur Kagnarsson Kitstjórnarfulitrúi: Bragi Guömundsson Fréttastj. erl. frétta: Guöniundur Pétursson Blaöamenn: Anders Hansen, Anna Heiður Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir, Einar K. Guðfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálsson, Ólafur Hauksson, Óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriður Egilsdóttir, Sigurveig Jóns- dóttir, Þrúður G. Haraldsdóttir. tþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Útlitstciknun: Jón Óskar Hafsteinsson Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurðsson. Dreifingacstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar: llvcrfísgötu 44. Simar 116G0 86611 Afgreiðsla: llverfisgötu 44. Sinri 86611 Kitstjórn: Siöumúla 14. Simi86611.7 línur Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. _______________i lausasölu 50 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Að snúa bökum saman gegn upplausn Umræður um skattamál að undanförnu hafa á margan hátt verið þarflegar. Þær hafa ekki ein- vörðungu beint athygli manna að misrétti i þeim efnum, heldur einnig og ekki siður opnað augu manna fyrir þeirri siðferðilegu upplausn, sem fylgir i kjölfar þeirrar óðaverðbólgu, sem við höfum búið við. Að visu hefur það lengi verið ljóst, að verð- bólgan kippti ekki einungis stoðunum undan heil- brigðu efnahagslifi, heldur veikti hún almennt allt þjóðfélagslegt siðferði. Menn hafa jafnvel haldið þvi fram, að verðbólgan ógnaði stjórnar- farslegu lýðræði. Og er vissulega margt til i þeirri kenningu. Brandt fyrrum kanslari Vestur Þýskalands hefur meðal annarra haldið henni fram. Allt eru þetta óhugnanlegar staðreyndir. Fram til þessa hafa menn látið við það sitja að skegg- ræða um þessi vandamál. Nú er hins vegar komið að þvi, að stjórnvöld og forvigismenn hagsmuna- samtaka þurfi að breyta i samræmi við þennan kalda veruleika. Hann verður ekki umflúinn. Verðbólgan skaðar ekki aðeins þjóðfélagsheild- ina, heldur gengur hún i berhögg við hagsmuni hvers einstaks borgara. Stundum er staðhæft að tilteknir hópar, hagnist á verðbólgunni. Þvi er t.a.m. haldið fram, að verðbólgan hafi gert mönnum kleift að eignast eigin húsnæði og gefi atvinnurekendum möguleika til þess að ná til sin óeðlilegum söluhagnaði. Vitaskuld eru til dæmi hér um, en þegar á allar aðstæður er litið má ljóst vera, að verðbólgan skaðar jafnt launþega og þá sem atvinnurekstur stunda. Verst af öllu leikur hún þá, sem minnst hafa umleikis. Öll skynsamleg rök hniga þvi i þá átt, að annars ólikir hagsmunahópar geti sam- einast i baráttunni gegn verðbólgunni. Þetta blað hefur jafnan lagt á það mikla áherslu að rikisstjórn, stjórnmálaflokkar stjórn- armegin og stjórnarandstöðumegin og hags- munasamtök launþega og atvinnurekenda legðust á eitt til þess að auðvelda aðgerðir i þvi skyni að draga úr verðbólgu. Af þessari samstöðu hefur ekki orðið, þó að i einstökum tilvikum hafi örlað á vilja i þessa átt. Hefðbundinn hagsmunaágreiningur og þrætur stjórnmálaflokka, oft á tiðum um keisarans skegg, hafa setið í fyrirrúmi. Nú hefur forsætis- ráðherra hins vegar boðað, að rikisstjórnin hafi i hyggju að leita eftir aukinni samstöðu þessara aðila gagngert til að auðvelda viðnám gegn verð- bólgu. Það er tiltölulega auðvelt að koma i veg fyrir að samstarf af þessu tagi beri árangur. En á hitt er að lita, að borgararnir ætlast til þess, að of al- gengum barnaskap i stjórnmála- og hagsmuna- átökum verði vikið til hliðar i þeim tilgangi að uppræta böl óðaverðbólgunnar. Hafa verður i huga i þessu sambandi, að or- sakir verðbólgunnar eru margþættar og eins, að ákvörðunarvaldið er svo dreift, að samstaða er forsenda raunhæfra aðgerða á þessu sviði. Þannig eru aðstæðurnar og þeir sem völdin hafa á hverjum stað verða að skipa málum i samræmi við það. Föstudagur 3. september 1976 VISIR Umsjón: Guömundur Pétursson Norömönnum er mest I mun aö lenda ekki i „þorskastriöi” eins og islendingar, þegar þeir færa fisk- veiöilögsögu sina út i 200 milurnar, sem ekki veröur langt aö biöa úr þessu. 200 mílur nœst á dag- skrá norð- manna Það er búist við þvi, að Noregur lýsi i dag fyrirætlunum sinum varðandi 200 milna fiskveiðilögsögu, sem þeir hafa um hrið stefnt að með hægðinni og undirbúið með samn- ingum fyrst um friðun veiðisvæði fyrir tog- veiðum. Stjórnin þykir likleg til að leggja fljótlega fyrir stórþingið frumvarp, sem felur i sér út- færslu fiskveiðilögsögunnar i meðförum þingsins i haust mundi ákveðinn endanlega sá dagur, er nýja lögsagan tæki gildi, en kvisast hefur að norð- menn hafi augastað á 1. janúar næsta árs til þess. An efa hefur þetta borist i tal i viðræðum Odvars Nordli, for- sætisráðherra, við islenska ráð- herra i heimsókn hans hingað. Norðmenn, sem fylgst hafa mjög náið með útfærslu okkar fiskveiðilögsögu og þorska- striðinuvið breta, eru staðráðn- ir i þvi að reyna að komast hjá slikum illdeilum við þær fisk- veiðiþjóðir, sem telja sig eiga orðið hefðbundinn rétt til veiða á miðunum undan Noregs- ströndum. Þeir létu þau sjónarmið strax ráða, þegar Janes Evensen, hafréttarmálaráðherra þeirra, átti i löngum sanningaviðræö- um við rússa, belga, þjóðverja breta og frakka, áður en látið var af þvi verða að loka alveg fyrir togveiðum á ákveönum veiðisvæðum við Noreg. Þær viðræður áttu sér stað á árinu áður en islendingar lýstu yfir 200 milna lögsögunni. Höfðu norðmenn samt i huga fyrri reynslu islendinga af fiskveiði- deilum við breta. Siðan hafa þeir haft gott tæki- færi til þess að fylgjast með þvi, hvernig tókst til, þegar islend- ingar með einhliða yfirlýsingu færðu út lögsögu sina. Höfðu þeir á stundum milligöngu i sáttatilraununum og skutu að lokum skjólshúsi yfir lokafund- inn i júni i sumar, þegar bráða- birgðasamkomulagið var undirritað milli breta og islend- inga. Leggur norska stjórnin mikla áherslu á það, að hún leitist við að leysa vandamálin, sem út- færsla fiskveiðilögsögunnar mun hafa i för með sér, áður en þau koma upp með samningum við þær evrópuþjóðir, sem hlut geta átt að máli. Það er á allra vitortii, að meirihluta-fylgi er á Hafrétt- arráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna fyrir 200 milna efnahags- lögsögu, sem veitir strand- vikjum forgangsrétt til að nytja fiskimið og aðrar lífrænar auðlindir hafsins innan þeirra marka. Sama mun um nytjarétt auðlinda, málma, oliuog fleira á hafsbotninum innan þessara 20C milna. En samkvæmt þvi sem frést hefur frá Noregi, mun stjórnin að þessu sinni aðeins leita umboðs þingsins til þess að færa út fiskveiðilögsöguna, meöan annað lagafrumvarp mun vera i undirbúningi, sem tekur til nýt- ingar auðlinda ólifrænna afurða innan efnahagslögsögu, sem siðar verði ákveðin. Astæðan fyrir þessu er sögf sú, að forráðamenn Verka mannaflokksins i Noregi, serr fer með minnihlutastjórr landsins, telur æskilegt ah biða með útfærsluna uns 20<) mflurnar hafa hlotið almenna viðurkenningu allra þjóða heims, en treystir sér ekki til þess, vegna þess hve fast út- eerðin.einkanlega i norðurhluta Noregs, leggur að henni aft hraða útfærslunni. Fiskafurð- irnar eru þessum byggðarlög- um litlu þýðingarminni en is- lendingum. Þar við bætist, að fiskifræðingar skora eindregið á stjórnina að færa út fiskveiði- lögsöguna vegna fiskverndar- sjónarmiða, en þeim stendur stuggur af þvi, hvað gengift hefur á fiskstofnana. Þótt eitt ár sé til næstu þing- kosninga i Noregi, er stjórn Verkamannaflokksins ljóst, að þetta málgetur haft úrslitaáhrif á það, hvort flokknum tekst að vinna eitthvað upp af glötnðum þingsætum sinum i þessum kjördæmum. Embættismenn, sem unnið hafa að undirbúningi 200 milna frumvarpsins segja, að hún nái til allrar strandar Noregs, allt norðan frá Spitsbergen og Jan Mayen og suður úr. — Hugsast getur þó, að norðmenn færi út lögsöguna i' áföngum. Þá yrði byrjað undan strönd Norður-Noregs, en Norðursjór- inn geymdur þar til siðar. í frumvarpinu mun gert ráð fyrir þeirri meginreglu, að norskir sjómennhafieinkarétt á veiðum innan lögsögunnar, en vafalaust verða á þvi gerð ein- hver frávik. Norskir fiskimenn hafa lengi sótt mið, sem ienda munu innan 200 milna fiskveiði- lögsögu annarra rikja, og getur það orðið lifsspursmál sumum sjávarþorpum á vesturströnd Noregs, að bátar þeirra fái t.d. að sækja áfram á mið, sem lenda munu innan efnahagslög- sögu Bretlands, þegar fram liða stundir. Slikt þyrftu þeir naum- ast að nefna, ef þeir lokuðu sin- um miðum fyrir hinum. Þvi leitar norska stjórnin hóf- anna um sanninga, sem fela i sér skipti á veiðiréttindum á sfld og makril i staðinn fyrir veiði- leyfi á þorsk- og ýsumiöum þeirra. — En f jöldi evrópuþjóða, sem sótthafa á mið norðmanna, munu lokast úti, þar sem þau hafa upp á litið eða ekkert að bjóða i veiðileyfum i staðinn. I þeim hópi gætu lent frakkar, v-þjóðver jar, pólverjar og a-þjóðverjar. Norðmenn vænta þess, að samningar muni ganga greið- lega við frændur þeirra á Norð- urlöndunum og jafnvel við breta. Hins vegar verður flókn- ara að leysa úr ágreiningi við sovétmenn varðandi t.d. skipt- ingu Barentshafs.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.