Vísir - 12.11.1976, Blaðsíða 24

Vísir - 12.11.1976, Blaðsíða 24
VÍSIH Föstudagur 12. nóvember 1976 ........... ..." .1 Brauð hœkk - aði enn í morgun Enn uröu nokkrar hækkanir á neysluvörum, er verð á brauöi hækkaöi i morgun. Kranskbra>iö og heilhveiti- brauð hækkuöu um 8,1% úr 74 krónum hvert brauð i 80 krón- ur. Kúgbrauð hækkar aftur á móti i verði um 5,4%. Slikt brauð kostaöi i gær 110 krónur en kostar nú 116 krónur stykk- ið. Astæður þessarar hækkunar eru sagðar hækkanir á launum og vcrði á hráefni til brauð- geröar. 20 órekstrar Tuttugu árekstrar urðu si - asta sólarhring, eða frá klukk- an 6 i gærmorgun til klukkan 6 i inorgun. 20 árekstrar þykja allmikið, en sem betur fer urðu engin alvarleg slys i neinum þeirra. t fjórum af þessum árekstrum var þó Bakkus með i för. — EA Dýr spila- peningur Lögreglan tók i gær tvo unga menn um tvitugt eftir að þeir höfðu svikið út fé. Mennirnir komu inn i Isbúð i miðborginni i Reykjavik. Voru þeir með brasiliskan seðil, likiega spilapening á sér, og spurðu þeir afgreiðslustúlku sem fyrir’ varö, hvort hún vildi ekki kaupa peninginn. Ekki vilja allir láta gjaideyri framhjá sér fara, svo stúikan sló til og keypti peninginn á 8400 krónur. Hún hljóp siðan i næsta banka og hugðist skipta pen- ingnum. Kom þá i ljós að pen- ingurinn var ógjaldgengur. Þessir sömu piltar höfðu farið i áfengisverslun fyrr um daginn fyrir nokkra unglinga. Létu unglingarnir þá fá tæp- lega 12000 krónur fyrir áfeng- inu. Biðu þeir siðan i nálægu húsi eftir vökvanum. En ekkert bólaði á honum og þaðan af siður mönnunum tveimur. Höfðu þeir þá stungið af með peningana. En lögreglan haföi hendur i hári þeirra fljótlega. —EA Fleiri hóhyrn- ingar veiddir Tveir háhyrningar veiddust i nótt. Eru þeir nú I geymslu i Vestmannaeyjum. Ætlunin var að fljúga með háhyrning- ana til Kalifornlu I Bandaríkj- unum þar sem átti að koma þeim fyrir. Ekki fékkst leyfi til að flytja dýrin þangað og verður þvi sennilega flogiö ineð þau tii Hoilands i nótt með flugvél frá tscargó. — EKG Bahrainflugið Aætlunarfiugi Loftleiða tii Bahrain sem ákveðið var að hæfist hinn 24. þessa mánaðar hefur nú verið frestað fram yf- ir áramót og mun hefjast 12. janúar 1977. Astæðan fyrir þessari breyt- ingu er að undirbúningur reyndist viðameiri en gert var ráö fyrir og ennfremur aö um jól og nýár raskast áætlun nokkuö vegna aukaferða og helgidaga. LAGAPROFESSORARNIR NEITA AÐ BRJÓTA LÖG Kennt í lagadeild ó mónudag ,,Við kennum lög og viljum þess vegna halda lög”, sagöi Jónatan Þórmundsson prófess- or i Lagadeild Háskóla tslands I samtali við Visi i morgun. Þrátt fyrir að Bandalag háskóla- manna hafi mælst til þess að menn innan þess mæti ekki til vinnu á mánudag tii þess að mótmæla kjörum sinum ætla lagaprófcssorar að mæta. Jónatan Þórmundsson sagði að lagaprófessorar teldu að þessi verkfallsboðun Banda- lags háskólamanna væri ekki lögleg og þvi vildu þeir ekki taka þátt I verkfallinu. Þætti þeim það ekki á neinn hátt rökrétt að menn sem kenndu lögfræði brytu þannig lög. Vinnustöðvun Bandalags há- skólamanna kemur til með að hafa viðtæk áhrif. Menn innan bandalagsins starfa á mörgum og mismunandi vinnustöðum. Oft er starf þeirra þannig að vinnustöðvunin kann að hafa mikil og margvisleg áhrif. —EKG Jónas Sen æfði af kappi f morgun undir handleiðslu Karsten Andersen. (Ljósm. Loftur.) 14 ára einleikari með Sinfóníunni A f jölskyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar i Há- skólabiói á morgun kemur fram 14 ára gamall einleikari, Jónas Sen. t samtali við Visi i morgun sagðist Jón vera dálítið spenntur, en kvaðst álita að allfr hefðu gott af þvi að koma fram meö Sinfóniunni. Jónas hefur numið pianóleik i fimm ár og er nú á þriðja ári i Tónlistarskólanum. A hljóm- leikunum á morgun leikur hann einleik i tveimur verkum eftir Chopin, Andante spianato og Grande Polonaise. Auk þess flytur hljómsveitin kafla úr Hnetubrjótnum og verk eftir Strauss og Dukas. Hljómleikarnir eru ætlaðir börnum á skólaskyldualdri i fylgd með foreldrum sinum og hefjast þeir klukkan 14. Stjórn- andi er Karsten Andersen en kynnir Þorgerður Ingólfsdóttir. — SG Hagnaður af Listahátíð Fulltrúaráð Listahátlðar kemur saman til fundar 17. nóvember n.k. Þar verða lagöir fram reikningar Listahátiðar '76. Visir hefur það eftir áreiðanlegum heimildum aö hagnaður af hátföinni hafi numiö 6,5-7 milljónum króna, en það mun vera í fyrsta skipti sem Listahátið skilar hagnaöi. Vísir tókst ekki að ná tali af Knúti Hallssyni, formanni framkvæmdanefndar Listahá- tiðar. þar sem hann er nú erlendis og Hrafn Gunnlaugsson framkvæmdastjóri hátiðar- innar vildi ekkert um málið segja. Guðrún Jónsdóttir arkitekt er i framkvæmda- að ekki væri búið að kynna nefndinni hver útkoman hefði orðið, en hins vegar væri vitað að hún hefði ekki verið óhagstæð fjárhagslega. Guðrún sagði að ástæða þess væri m.a. sú að mikil vinna hefði verið lögð fram án endur- Skattarnir lœkkuðu um 165 milljónir Tekjuskattur einstaklinga hér á landi lækkaði um 165 inilljónir króna vegna þeirra breytinga, sem gerðar voru eftir að álagning hafði verið kærð. Aftur á móti urðu þær breyt- ingar á álögðum tekjuskatti félaga vegna kæra, að hann lækkaði 63 milljónir króna. A siðasta ári bárust hlut- fallslega flestar kærur vegna álagðra gjalda i Vestfjarða- umdæmi eða 55 kærur á hverja 1000 ibúa. Næstflestar kærur bárust i Reykjavik og Reykjanesumdæmi um 40 kærur miðað viðhverja 1000 ibúa. Þessar upplýsingar komu fram á Alþingi i gær, er Stein- grimur Hermannsson mælti fyrir þingsályktunartillögu um að rikisstjórnin láti fara fram rannsókn á framkvæmd skattalaga i hinum ýmsu skattaumdæmum. UMFERÐARNEFND VILL MEIRI HÁMARKSHRAÐA Cmferðarnefnd Reykja- vikurborgar samþykkti á fundi i gær að mæla með þvi að hámarkshraöi i þéttbýli yrði hækkaður i 50 kilómetra i stað 45 eins og hann er nú. Guttormur Þormar fram- kvæmdastjóri nefndarinnar sagði i samtali við Visi i morg- un að þar með væri ekki sagt að hámarkshraöinn yrði hækkaður. Breytingar á hon- um væru lagaspursmál og að- eins Alþingi gæti breytt lögun- um. —EKG 76 gjalds. Sem dæmi mætti nefna nefndinni og tjáði hún blaðinu að sýningarskrá og auglýsinga- spjöld hefðu verið gerð ókeypis, tónlistarmenn hefðu ekki þegið laun fyrir störf sin, ljóðskáld flutt ljóð sin án endurgjalds og arkitektar ekki tekið neitt fyrir uppsetningu sýninga.—SJ Mikill áhugi virtist rlkja f fundarsalnum, er ferskvatnsráöstefnan hófst I morgun. — Mynd: LA. Þingað um mengun ferskvatns í dag Klukkan 9,30 i morgun hófst að Hótel Sögu ráöstefna um mengun ferskvatns. Þar flytja 10 sérfræðingar erindi um hin ýmsu viðfangsefni, en Lands- sambánd stangveiðifélaga hef- ur haft forgöngu um aö boöa til ráöstefnunnar og Hákon Jó- hannsson, formaöur sambands- ins, flutti ávarp við setinguna i morgun. Tilgangurinn með þessari ráðstefnu er ekki sá að þykjast alls staðar sjá mengun, heldur að upplýsa menn um þessi mál, skýra frá ástandinu eins og það er i dag, benda á hvar helst er hætta á ferðum og visa á leiðir til úrbóta. Aðilar að ráðstefnunni auk Landssambands stangveiðifé- laga eru Búnaðarfélag Islands, Heilbrigðiseftirlit rikisins, heil- brigðisráðuneytið, land- búnaðarráðuneytið, Landssam- band veiðifélaga, Landvernd, Náttúruverndarráð, Veiðimála- nefnd og Veiöimálastofnunin. — SG.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.