Vísir - 07.01.1977, Blaðsíða 4

Vísir - 07.01.1977, Blaðsíða 4
Föstudagur 7. janúar 1977 vism í fulltrúa- deildinni Hvort sem þiB trúift þvt eða ekki, þá er þessi mynd úr fulltrúadeild bandartkjaþings við setningu 95. þingsins. Þótt þar séu margir nýbyrjaðir göngu sina á þingmannsbrautinni, eru þeir samt ekki svona ungir að árum. En þingmennirnir tóku margir börn stn með sér inn-á þingfundinn, sem setti óneitanlega barnslegan svip á þing- heim. Ekki gátu litlu skinnin setið kyrr eins og brúður undir löngum og ekki alltof skemmtilegum ræðunum. Vonbetri um árang- ur Genfarráðstefnu Vildi flytja úr Sovét, en þó lokuð inni á geðspítala Eiginkona sovésks fóttamanns hefur verið flutt með valdi og lögð inn á geðsjúkrahús eftir að hafa angrað innanrikisráðuneytið með stöðugum heim- sóknum og nauði um vegabréfsáritun til brottflutnings úr landi. Tengdamóðirhennar, Antonia Agapov sagði fréttamönnum i gær, að Ljudmilu Agapov hefði verið ekið i lögreglubifreið burt frá innanrikisráðuneytinu i gær eftir fimmtu heimsókn hennar þangað á siðustu tiu vikum. Staðfest var á einu geðsjúkra- húsanna i Moskvu, að Ljudmila hefði veriö lögð þar inn. Frá þvi að Valentin Agapov strauk af skipi i Sviþjóð fyrir tveim árum, hefur Ljudmila reynt árangurslaust að fá leyfi fyrir sig, tengdamóður sina og Liliu 13 gamla dóttur sina til þess að flytja úr landi. Þrátt fyrir ákvæði Heilsinki- sáttmálans um frjálsari ferða- lög borgara, sem sovétmenn skrifuðu undir, hefur litið slaknað á þess konar leyfisveit- ingum i Sovétrikjunum. Mál Ljudmilu ber upp á skömmu eftir að yfirvöld hófu ofsóknir gegn nefnd andófsmanna, sem gefa gaum orðheldni sovét- stjórnarinnar á þessum og öðrum mannréttindaákvæðum Helsinkisáttmálans. Er nefndarmönnum gefið að sök að breiða Ut óhróður um Sovétrikin ,,og láta i veðri vaka að sovét- menn haldi ekki gerða milli- rikjasamninga”. Jakob Malik leystur af hólmi S.þ. Ivor Richard, formað- ur Genfarráðstefnunnar um framtið Ródesiu, á i dag fund tneð Júliusi Nyerere, forseta Tanza- niu og fyrirsvarsmanni blökkumannalýðveld- anna, sem næst liggja Ródesiu. bar með hefur Richard hitt að máli leiötoga allra sex rikjanna i suðurhluta Afriku, sem láta sér Raymond Barre, forsætisráð- herra Frakklands, sagði á fundi með fréttamönnum í gær, að viöskiptahalli Frakklands við út- lönd væri fimm milljörðum franka öhagstæðari um áramótin, en svartsýnustu menn höfðu spáð Genfarráðstefnuna og framtið Ródesiu mestu skipta. En hann heíur að undanförnu verið á ferðalagi á milli landanna i von um að koma skriði aftur á Genf- arráðstefnuna, þar sem viðræður voru nánast strandaðar fyrir jólahléð. Eftir komuna til Tanzaniu frá Mozambique i gær sagði Richard að samkomulagsmöguleikar hefðu aukist að sinu mati eftir viðbrögð, sem hann hafði fundið. Viðræður hans i dag við Nyerere hafa sérstaka þýðingu, þvi að ðlyerere er áhrifamestur ' blökkumannaleiðtoganna fyrir einu ári. Ætlar hann, að viðskiptahallinn sé nú orðinn um 20 milljaröar franka,en eftirfyrstu ellefu mán- uði siðasta árs var hann orðinn 18,28 milljarðar. Jacob Malik þótti þurr á mann- inn og vék hvergi út af hörðustu linu Kremlar. Það þótti annar blær yfir hinum nýja sendi- herra Sovétrikjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, Oleg Troyanovsky, heldur en fyrirrennara hans, Jacob Malik. Troyanovsky, sem dvaldi unglingsár sin i Bandarikjunum, kom blaðamönnum fyrir sjónir eins og hver annar amerikani. Kannski skemmtilegri en gengur og gerist þvi að hann lék á als oddi á fundi, sem hann efndi til með fréttamönnum i gær eftir komuna til aðalstöðvanna. — Hreif hann blaðamennina með sér. En svörin, sem hann veitti við spurningum þeirra, hefðu fullt- eins — ef ekki hefði verið munur- inn á enskuframburðinum — getað verið gefin af fyrirrennara hans Jacob Malik. Hann vék ekki eitt spor út af klakabundinni KremÚinunni. Fréttamönnunum fannst þó viðbrigði að mannaskiptunum. Jacob Malik þótti fremur þurr á manninn og þungur og þau niu ár, sem hann var sendiherra Sovét- rikjanna hjá Sameinuðu þjóðun- um, varaðist hann eins og heitan eldinn að efna nokkurn tima til fundar með blaðamönnum. VIÐSKIPTAHALLI EYKST HJÁ FRÖKKUM Laus eftir ótta mónaða fangavist í óbyggðum Tylerfjölskyldan breska naut i morgun hvildar við fyllstu þæg- indi í Khartoum, ný- sloppin úr átta mánaða prisund i óbyggðum Eþiópiu á valch skæru- liða. Lindsay Tyler, 34 ára skurð- læknir, kona hans Stephanie, og börn þeirra Robert (8 ára) og Sarah (5 ára) voru látin laus i hafnarbænum Súdan við Rauða- haf á miðvikudag og komu i gær til Khartoum. Þau voru öll fjögur tekin til fanga af skæruliðum f Tigre- héraði i Eþiópiu i mai i vor. Taka þeirra vakti mikla athygli um heim allan og bænarskrár og áköll voru send yfirvöldum og st jórnarandstæðingum i Eþíópi'u,semkomtillitils. t átta mánuði voru þau fangar skæru- liðanna, sem höfðust við úti á viðavangi. Máttu þau leggjast til svefns á nakinni jörðinni úti undir berum himni fyrstu 6 mánuði fangavistarinnar. Þeg- ar regntiminn gekk i garð, fengu þau tjald, sem rúmaði þó aðeinsþrjá.svoaðLindsay varð að láta fyrir berast úti i væt- unni. I dagsbirtunni var þeim uppá- lagt að sýna ekki minnstu hreyf- ingu vegna flughers eþiópiu- stjórnar, sem stöðugt var i eftir- litsflugi yfir óbyggðunum og gerði loftárás, hvar sem flug- mennirnir urðu varir minnstu hreyfingar. Lindsay læknir var i Eþiópiu á vegum alþjóðahjálpar við liknarstörf, þegar hann var tek- inn til fanga. Hinn nýi sendiherra, sem er 57 ára að aldri, er sonur fyrsta sendiherra Sovét i Bandarikjun- um. Talin af Panamaoliuskipið, Grand Zenith, er nú talið af eftir árangurslausa leit úr lofti og af legi i heila viku. Ahöfn þess voru 38 menn, flestir frá Taiwan. Si'ðast fréttist af skipinu 60 mil- ur suður af Yarmouth i Nova Scotia, en þá var skipið statt i stórsjó og hvassviðri og þurfti að hægja á ferð til þess að halda sjó. Þrátt fyrir leitina hefur ekki fpndisttangurnétetur úr skipinu, ekki svo mikið sem brak. En oliu- flákar sáust á sjónum og gruna menn það, að sú olia sé Ur Grand Zenith.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.