Vísir - 27.06.1977, Blaðsíða 4

Vísir - 27.06.1977, Blaðsíða 4
Þaö sannaðist rétt einu sinni vestur á isafirði þegar isfirðingar fengu selfyssinga I heimsókn í tslandsmótinu i knattspyrnu i 2. deild á laugardaginn, að það er ekki nóg að sækja að marki and- stæðingsins allan leikinn og geta ekki skorað. Þaö eru mörkin sem gilda. Leikurinn í heild var nokkuö vel leikinn af beggja hálfu þótt stifur varnarleikur væri þar hafður of- an á. En samt var leikurinn ekki nema 30 minútna gamall þegar isfirðingar tóku forystuna með góðu marki örnólfs Oddssonar. Eftir markiö sóttu isfirðingar án afláts en án árangurs. Gættu þeir sin ekki nægilega vel þvi er líða tdk aö lokum leiksins hófu selfyssingar að sækja i sig veðriö og þegar fjórar minútur voru til leiksloka skeði mjög umdeilt at- Taugaspenna í Laugardal Einn af úrslitaleikjum i 2. deildar keppni islandsmótsins i knattspyrnu var ieikinn á föstu- dagskvöldiö. Þá áttust viö lið Ármanns og Hauka, og lauk leiknum með jafntefli, bæði liöin skoruðu eitt mark. Þaö er óhætt að segja að þetta hafi veriö leikur taugaspennunnar. Hvorugu iiöinu tókst að ná sér almennilega á strik og taugaspenna setti mikil mörk á hann. Það voru haukarnir sem urðu fyrri til að skora. Kom það mark eftir fyrirgjöf frá endamörkum og barst boltinn til Andrésar Kristjánssonar sem sendi hann rakleitti markið með góöu skoti. 1:0. Svo var þaö eftir aðeins fimm mlnútur aö ármenningar jöfnuðu. Dæmd var aukaspyma á hauka rétt utan viö vitateig þeirra og úr henni skoraði Sveinn Guönason jöfnunarmarkið með föstu skoti framhjá varnarvegg haukanna og I bláhorni, — 1:1. Þaö er varla hægt aö segja ann- að en þetta stig sem ármenningar hlutu þarna hafi verið óverö- skuldað þvi Haukarnir sóttu meira,sérstaklega i siðari hálf- leik. Fengu þeir nokkur hættuleg tækifæri sem þeim tókst ekki að nýta. Baldur Þórðarson dæmdi leik- inn þokkalega. —SK. Magnúsamir í aðalhlutverkum Það má segja að Þróttur Nes- kaupstaö hafi sigrað Magnús Jónatansson með tveimur mörk- um gegn engu á laugardaginn þegar liðin mættusti 2. deildinni á Neskaupsstaðarvelli. Magnús gerir næstum allt sem gert er hjá reynismönnum, tekur innköst, aukaspyrnur, horn- spyrnur og markspymur. Þegar alltbyggistsvona á einúm manni, er aldrei von á göðu. Það sannað- ist á Neskaupsstaðarvelli I fyrra- dag. 1 leikhléi var staðan 0:0. Þegar 25 minútur voru liðnar af siöari hálfleik kom fyrra mark Þróttara. Það var fyrrverandi valsmaður Helgi Benediktsson sem kom þrótturum á bragðið með marki úr þvögu. Og aðeins átta mlnútum seinna jók Sigurður Friðjónsson forskot þróttara þegar hann skoraði með skalla. Það sem eftirlifði leiksins sóttu þróttarar stanslaust og áttu aragrúa af tækifærum sem þeim tókst ekki að nýta. Hjá þrótturum voru þeir Helgi Benediktsson Siguröur Friðjóns- son og Magnús Jónatansson best- ir en hjá Reyni var hinn fyrrver- andi leikmaður með Þór frá Ak- ureyri, Magnús Jónatansson, allt i öllu eins og áður sagði. Leikinn dæmdi Óli Fossberg og gerði hann þaö vel. —SK Morkaregn á Akureyri Það er óhætt aö segja að það hafi verið markaregn er sand- gerðismenn heimsóttu akureyr- ingana f KA á laugardaginn. Ak- ureyringarnir sigruðu með sex mörkum gegn þremur og veröur ekki annað sagt en áhorfendur hafi fengið talsvert fyrir aurana sina. Leikurinn var oftast mjög vel leikinn af beggja hálfu, þó sóttu KA-menn öllu meira og uppskáru lika eftir þvi. Gunnar Blöndal hinn mark- sækni leikmaður KA skoraði ,,hat trick” gegn reynismönnum og átti mjög góðan leik. Aðrir sem skoruöu fyrir KA voru Guöjón Haröarson, Arni Sveinbjörnsson og Sigb.iörn _ Gunnarsson, aiíir með eitt mark hver. Sá siðast- nefndi brenndi af vitaspymu i leiknum. Fyrir reynismenn var Pétur Sveinsson drýgstur skoraði tvö mörk og átti góðan leik en Ómar Bjarnason skoraði þriðja markið. Svo virðist sem reynismenn séu að missa af lestinni en KA-menn tróna nú á toppi 2. deildar ásamt Þrótti Reykjavik og virðist svo sem erfitt verði aö stoppa akur- eyringana undir stjórn hins góö- kunna leikmanns og þjálfara Jó- hannesar Atlasonar. — S.K. vik. Gefinn var fastur stungubolti i átt að marki ísfirðinga og þar lenti varnarmanni og sóknar- manni saman sem endaði með þvi að dómarinn dæmdi vitaspyrnu á markvörðinn? Úr vitinu skoraði Halldór Sigurðsson örugglega og jafnaði þvi leikinn 1:1. Og þannig lauk leiknum. Hjá Isafirði voru þeir bestir ömólfur Oddson og Jón Oddson, en hjá selfyssingum bar einna mest á Gylfa Þ. Gislasyni fyrrverandi þjálfara isfirðiriga. Leikinn dæmdi ólafur Kristjánsson og gerði hann það vel. —SK. ■ ' Þvaga við Haukamarkið og boltinn viðs fjarri Enn skoraði Páll sigurmarkið — og Þróttarar flugu suður með bœði stigin Reykjavikur þróttarar geröu góða ferð norður á Húsavik um helgina er þeir lögðu völsunga að velli. Þeir sigruðu með tveimur mörkum gegn einu, og stefna þróttara er nú á topp deildarinnar og eru eflaust staðráðnir i að end- urheimta sæti sitt I 1. deild. Leikið var viö erfiðar aðstæður, Nœslu leikir Næstu leikir i islandsmótinu i knattspyrnu 2. deild verða 1. júli en þá leika Reynir A gegn Topp- liðinu KA. Sama dag á Laugar- dalsvelli þá leika Þróttur og Þróttur. Mánudaginn 4. júli leika á Sandgerðisvelli Reynir og Ar- mann og sama dag leika á Selfoss velli Selfoss gegn Haukum Hafn- arfiröi. rok og rigningarkulda. Það voru liðnar um það bil 42 mfnútur af leiknum þegar Halldór Arason kom þrótturum yfir með góöu marki eftir homspyrnu sem Þor- valdur Þrovaldsson fram- kvæmdi. Siðan hélst leikurinn i jámum þar til á áttugustu og þriöju min- útu að Hafþór Júliusson jafnaði fyrir völsung. En aðeins tveimur minútum siðar fékk hinn markheppni mið- herji þróttar Páll Ölafsson góða „stungusendingu” innfyrir vörn völsungs og hann skoraði örugg- lega og þar með var sigurinn i höfn. Tvö dýrmæt stig sem án efa eiga eftir að koma að góðum not- um I toppbaráttunni i sumar. Leikinn dæmdi Hreiðar Jóns- son. — SK í staðan ) Staðan i 2. deild I knattspyrnu eftirleiki helgarinnar ernú þessi: KA-ReynirS 6:3 Þrdttur N- Reynir A 2:0 Ármann- Haukar 1:1 Völsungur -ÞrótturR 1:2 1B1 -Selfoss 1:1 KA 7 5 11 15:7 11 Þróttur R 7 5 11 12:7 11 Haukar 7 4 3 0 9:4 10 Ármann 6 3 12 11:5 8 ReynirS 7 3 13 12:14 7 ÍBt 7 2 2 3 7:10 6 Seifoss 6 2 13 6:7 5 Völsun gur 7 2 14 7:10 5 Þróttur N 7 13 3 6:9 5 Reynir A 7 0 16 3:14 1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.