Vísir - 28.04.1978, Blaðsíða 14

Vísir - 28.04.1978, Blaðsíða 14
Föstudagur 28. apríl 1978 vism vísm Föstudagur 28. apríl 1978 Umsjón: Gylfi Kristjánsson —». Kjartan L. Pálsson 'Iprpttír 19 J Hörkuleikir í Höllinni! l>aö veröur mikiö um aö vera i Laugardals- höll i kvöld, og þá ráöast sennilega úrslit i tveimur flokkum tslandsmótsins i hand- knattleik. KI. 19 hefst úrslitaleikur 2. flokks, en þar eigast við Þróttur og FH, tvö stórefnileg liö. Kl. 20 mætast svo Fram og FH i siöari úrslitaleik sínum i 1. deild kvenna, en Fram vann fyrri leikinn I Hafnarfiröi meö 11 mörkum gegn 9 og stendur þvi betur aö vigi þótt allt gcti gerst. Kl. 21 leika svo KR og Fram siöari leik sinn um það hvort liöiö leikur viö HK um sæti i 1. deild karla að ári. Þar standa KR-ingar vel aö vigi, en þeir unnu fyrri leikinn 24:18. Fylkir enn ón sigurs Þróttur sigraöi Fylki 2:0 i Reykjavikur- mótinu i knattspyrnu á Melavelli i gærkvöldi, Þróttarar tóku forustuna i leiknum i sinar hendur strax á 2. minútu meö marki Páls Ólafssonar, og þannig var staöan þar til 5 minútur voru til leiksloka aö Páll bætti ööru marki viö mjög glæsilega. Staöan i mótinu er nú þessi: KR Víkingur Valur Þróttur Fram Fylkir Ármann 2 2 0 3 0 1 2 0 2 2 0 2 1 1 1 0 2 3 1 0 3 6:1 9:3 13:4 5:3 3:3 0:7 2:17 Næsti leikur er á sunnudag kl. 17, en þá leika efstu liöin, KR og Vikingur á Melavelli. Áhongendur Stondard fengu sekt! Fimm áhangendur belgiska knattspyrnu- liösins Standárd Liege, liðsins hans Ásgeirs Sigurvinssonar, hafa verið dæmdir fyrir rétti i Liege til að greiöa háar sektir til Standard. Ástæöan er sú, aö þegar Standard var aö leika gegn a-þýska liöinu Carl Zeiss Jena i UEFA keppninni i vetur, geröu þessir áhang- endur Standard sig seka um að kasta tómum bjórflöskum inn á völlinn. UFFÁ lók ekkl neinum silkihönskum á málinu, ogdæmdi Standard til þess aö leika næsta hcimaleik sinn i Evrópukeppni a.m.k. 150 km frá Liege. Þetta mun kosta Standard stórpening, og þvikærði félagiö sökudólgana, og fyrir rétti i Liege voru þeir dæmdir til aö greiða hver um sig upphæö sem nemur um 185 þúsund is- lenskum krónum. . gk-- Ballesteros með forustu Spánverjinn Severiano Ballesteros hefur tvcggja högga forustu eftir tvo fyrstu keppnisdagana I „Madrid opnu” golfkeppti- inni. Eftir fyrsta daginn hafði Ballesteros fjögur högg i' forskot á Brétann lloward Clark, en þá lék Ballesteros á 66 höggum.eöa 6 undir pari vallarins. i gær tókst Clark hinsvegar mjög vel upp, og þá lék hann á 70 höggum eins og hann geröi reyndar fyrsta daginn einnig, en Balle- steros lék i gær á 72 liöggum á pari vallarins. Ballesteros er þvi mcð 138 liögg cftir tvo fyrstu dagana i keppninni (6 undir pari) en Clark er á 140 höggum. i þriöja sæti kemur annar Breti, Peter Townsend, á 142 höggum og Spánverjinn Jose Avelino Cabo er fjóröi á 143 höggum. Keppninni lýkur á laugardag- inn. AKRANES íslandsmeistarar 1977 leika í Adidas .. . leika laugordog kl. 13.30 ó MELAVELLI Meistarakeppni KSI ■ VALUR -VESTMANNAEYJAR Komið og sjóið Vestmannaeyingana í fyrsta skipti í Reykjavík í ór - VALUR Á 17 mfnútna kafla í fyrri hálf- leik i gærkvöldi skoraöi Valur ekki mark gegn Vikingi i undan- úrslitum Bikarkeppni HSÍ og á þeim tima náöi Vikingur aö kom- ast yfir svo vel aö það nægöi þeim til sigurs i leiknum 19:16 þrátt fyrir að Valsmenn gerðu harða lirið að Vikingsmarkinu i siöari hálfleik. Þaö veröa þvi Vikingur og FH sem mætast i úrslitaleik keppninnar kl. 18 á morgun. Já, Islandsmeistarar Vals fóru illa að ráði sinu i fyrri hálfleikn- um i gærkvöldi og Vikingar voru ekki seinir að ganga á lagið og breyta stöðunni úr 2:2 i 9:2. A þessum kafla var Valsvörnin eins og grófgert gatasigti og mark- varsla Brynjars Kvaran þar af leiðandi slök. En þvi má ekki gleyma að Víkingar léku ákveðinn sóknarleik og gáfu hvergi eftir i vörn. Má reyndar segja að harka þeirra i vörninni hafi keyrtúr hófi á köflum, enda eru þar innan um afar harð- skeyttir varnarmenn sem taka ekki með silkihönskum á and- stæðingunum En Stefán Gunnarsson skoraði loks fyrir Val á 26. minútu.staðan 9:3 og i hálfleik leiddi Vikingur 11:4. Þor.björn Jensson byrjaði siðari hálfleikinn með miklum látum og skoraði hvert markið af öðru. Munurinn minnkaði óðum þvi að vonleysi greipum sig i sóknarleik Vikings við meiri mótspyrnu varnarmanna Vals ogum miðjan siðari hálfleikinn munaði aðeins þremur mörkum,16:13. er hafin í Tékkó- slóvakiu. Bæöi liðin hafa ieikið tvo leiki, og unnið báða. Sviarnir léku fyrst gegn Bandarikjunum og unnu 5:1, og siðan unnu þeir V-Þýskaland sannfærandi 6:2. Sovétmenn áttu hinsvegar i miklu basli með Bandarikja- mennina (sém tefla fram áhuga- mönnum sinum) en tókst samt að vinna þá 9:5. Siðan unnu þeir sovésku lið V-Þýskalands 7:4. Gestgjafarnir, Tékkar, eru greinilega með mjög sterkt lið, og i eina leik sinum i mótinu fram að þessu unnu þeir A-Þýskaland 8:0. Þau úrslit sem hafa komið mest á óvart til þessa eru þó 6:4 sigur Netið verður lœkkað fyrir gamlingiana! Gisli Blöndal á auöum sjó og skorar 14. mark Vals, en stað- an var þá 14:16, en Vfkingar tryggðu sér siðan öruggan sigur. — Visismynd Einar. Þótt liðin sem þarna keppi séu þar undir nöfnum iþróttafélaga eins og Vikings, Þróttar, HK o.fl. er þarna i fæstu tilfellum um félagsbundna menn að ræða. Mest eru þetta hópar manna — vinnufélaga, gamalla skóla- bræðra eða annarra, sem hafa komið saman af og til á veturna til að leika blak og svitna svolitið. Þetta er i þriðja sinn sem ,,öld- ungakeppnin” i blaki fer fram, og að þessu sinni eru það tiu lið sem taka þátt i mótinu. Flest þeirra koma utan af landi — tvö eru frá Siglufirði, tvö frá Akureyri, en þau nefnast Óðinn og Skautafélag Akureyrar. Þá kemur lið frá Hvanneyri svo og Isafirði, en auk þess eru þarna lið eins og Vikingur, Þróttur, HK og Stjarnan, Garðabæ. Heldur er slakað á reglum i keppninni. Netið er t.d. lækkað örlitið — til að „þeir gömlu” geti slegið boltann yfir það — og einníg er farið heldur frjálslega með að dæma boltameðferðina, þótt hert sé aðeins á reglunum ár frá ári. Keppnin hefst i kvöld i Haga- skóla með leikjum i A-riðli, Stjarnan, Vikingur, HK, Skauta- félag Akureyrar og Siglufjörður B, en keppnin i hinum riðlinum hefst á sama stað i fyrramálið. Á sunnudaginn verða svo úrslita- leikirnir og hefjast þeir kl. 14.?9. -klp- Gisli Blöndal minnkaði siðan muninn i 14:16 og nú var greini- lega farið að fara um stuðnings- menn Víkings. En Þorbergur Aðalsteinsson reif sig lausan og skoraði 17. mark Vikings og þá var sigurinn reyndar i höfn þótt Jón Karlsson skoraði úr vitakasti 15:17 þvi að Þorbergur var aftur á ferðinni strax á eftir. Lokatölur sem fyrr sagði 19:16 fyrir Viking. Mörk Vikings: Viggó Sigurðs- son 6(1) Þorbergur 4, Björgvin Björgvinsson 3, Ólafur Jónsson 2, Arni Indriðason, Magnús Guð- mundsson, Sigurður Gunnarsson og Páll Björgvinsson eitt hver. Mörk Vals: Þorbjörn Jensson 5, Jón Karlsson 4(3), Gisli Blöndal og Þorbjörn Guðmundsson 3 hvor, Stefán Gunnarsson 1. Dómarar voru Gunnlaugur Hjálmarsson og Jón Friðsteins- son. Þeir leyfðu mikil átök i vörn- innienhöfðusamtávallt góð tök á leiknum. gk-. Sviar og Sovétmenn hafa tekið forustuna i heimsmeistarakeppn- inni i isknattleik, sem nú Finna gegn Kanada, en Kanada- menn tefla fram áhugamönnum sinum á mótinu. Þetta var fyrsti sigursem Finnarhafa unniðgegn Kanada. ISovétmenn, Sviar, Tékkar og Finnar eru þvi enn án ósigurs i mótinu, en Kanada, Bandarikin, og báðar þýsku þjóðirnar hafa tapað sinum leikjum. Þaö á örugglega mikið eftir að ganga á i iþróttahúsi Hagaskól- ans i kvöld og um helgina. Þar fer þá fram siðasta stórmót þessa keppnistimabils i blaki -~ Is- landsmót öldunga. Varla er hægt að kalla þessa keppni öldungakeppni þótt það sé gert. Aldurstakmarkið er 30 ára og eldri, og þritugir menn eru engir öldungar i blaki frekar en i öðrum iþróttagreinum. Netið er ekki haft i fullri hæð I kcppni „öldunganna” f blaki, sem hefst I kvöld. Þeir þurfa að koma boltanum yfir það, en það getur gengiö erfiö- lega...sérstaklega ef aukaklló- in eru oröin of mörg.... Visismynd Einar SOVÉTMENN OG SVÍAR EFSTIR — Víkingarnir notfœrðu sér hinsvegar tímann vel og nóðu þó góðu forskoti sem nœgði þeim til 19:16 sigurs og þeir leika í úrslitum Bikarkeppni HSÍ gegn FH ó morgun Úrslitin ó morgun Hvort verður það FH eða Víkingur sem hreppir bikar- meistaratitiiinn i handknattleik 1978? Úr þvi fæst skorið i Laugardals- höllinni kl. 18 á morgun. Já for- ráðamenn liðanna og mótanefnd- in ákváðu i gærkvöldi að setja leikinn á kl. 18 á morgunog er það vafasöm ákvörðun svo að ekki sé meira sagt. Var haft á orði að al- veg eins hefði verið hægt að spila leikinn kl. 8 á sunnudagsmorgni. En hvað um það. Eflaust eru þeir margir sem hafa áhuga á að skreppa inn i Höll ogfylgjast með viðureign liðanna. FH-ingarnir sýndu sinn besta leik i langan tima er þeir slógu Hauka út i undanúrslitunum og þótt Viking- ar séu e.t.v. sigurstranglegri fyrirfram, þá eru þeir ekki búnir að vinna Hafnfirðingana. Þetta er5. bikarkeppnin ihand- knattleik og leikmenn FH hafa sýnt að þeir eru með mikíð bikar- lið þvi að þrivegis hefur liðið sigrað, Valur einu sinni. Bikarinn sem keppt er um er nú i umferð siðasta árið og hafa FH-ingar þegar unnið hann til eignar. Vikingar hafa þó ekki áhuga á að láta hann fara i bikar- safn FH án þess að fá nafn sitt grafið á hann, en auk hans eru glæsileg verðlaun i húíi fyrir hvern leikmann. Það verður þvi örugglega mikil barátta i Höllinni á morgun. adsdas best þekktar — mest seldar. * íslandsmeistararnir skor- uðu ekki mark í 17 mínútur

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.