Morgunblaðið - 04.03.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.03.2001, Blaðsíða 18
LISTIR 18 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Nýtt Litaðu tilveruna með snyrtivörum frá Útsölustaðir: Árbæjarapótek, Borgarapótek, Hringbrautarapótek, Rimaapótek og Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. PARIS NÚNA! Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar L minnir á næstu námskeið á vorönn 2001 Pantaðu bækling! Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar Nánari upplýsingar eru veittar á: Fræðslu- og þjónustudeild kirkjunnar, Biskupsstofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík, sími 535 1500, bréfsími 551 3284 Netfang: frd@kirkjan.is Hið kristna guðshugtak. Kennari: dr. Arnfríður Guðmundsdóttir. Staður: Háskóli Íslands. Tími: 4 mánudaga 12/3, 19/3, 26/3, 2/4 kl. 18-20 Stefnumót á sextándu öld. Kennari: sr. Kristján Valur Ingólfsson. Staður: Háskóli Íslands. Tími: 4 mánudaga 12/3, 19/3, 26/3, 2/4 kl. 20-22 Heilsurækt fyrir hugsandi fólk. Kennari: sr. María Ágústsdóttir. Staður: Háskóli Íslands. Tími: 4 miðvikudaga 14/3, 21/3, 28/3, 4/4 kl. 20-22 Konur eru konum bestar. Kennari: Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Staður: Háskóli Íslands. Tími: 2 miðvikudaga 28/3 og 4/4 kl. 19-22 Biblían og sálgreining. Kennari: sr. Yrsa Þórðardóttir. Staður: Háskóli Íslands. Tími: 4 miðvikudaga 18/4, 25/4, 2/5, 9/5 kl. 18-20 Draumar. Kennari: Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Staður: Háskóli Íslands. Tími: 4 miðvikudaga 18/4, 25/4, 2/5, 9/5 kl. 20-22 Í fótspor pílagríma. Kennari: Ragnheiður Sverrisdóttir, djákni. Staður: Háskóli Íslands. Tími: (2 skipti) fimmtudaginn 26/4 kl. 20-22 og sunnudaginn 29/4 Tómasarguðspjall. Kennari: Jón Ma. Ásgeirsson. Staður: Háskóli Íslands. Tími: 4 mánudaga 23/4, 30/4, 7/5, 14/5 kl. 18-20 List og trú. Kennari: sr. Kristján Valur Ingólfsson. Staður: Háskóli Íslands. Tími: 4 mánudaga 23/4, 30/4, 7/5, 14/5 kl. 20-22 Flísar og parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri VALGERÐUR Andrésdóttir píanó- leikari heldur tónleika í Salnum í Kópavogi, þriðjudagkvöldið 6. mars næstkomandi. Á efnisskrá eru tvö stór verk eftir Claude Debussy og Robert Schumann. Fyrir hlé mun Valgerður flytja prelúdíur úr bók eitt eftir Debussy. „Heftið er gefið út árið 1910 en alls samdi Debussy tvö slík hefti. Í hvoru hefti eru tólf prelúdíur, og er nokkuð sjaldgæft að þær séu fluttar í heild sinni á tónleikum, a.m.k. hér á landi,“ segir Valgerður. Hún bætir því við að verkinu megi best lýsa sem tólf perl- um. „Þar er farið vítt og breitt og áheyrandanum sýnt inn í ólíka heima. Allar hafa þær sína undirtitla og allar lýsa þær ólíkum stemmning- um. Ein prelúdían hefur t.d undirtitil sem fenginn er úr ljóði eftir Baude- laire og lýsir hljóðunum og lyktinni í andrúmsloftinu að kvöldi til. Aðrar lýsa þungstígum dönsurum í Delfí, sporum í köldum snjónum, stúlkunni með hörgula hárið, vindinum á akr- inum og misheppnaðri tilraun gítar- leikara til að heilla draumadísina. Þannig beitir Debussy hljóðfærinu til að tjá ólíkar tilfinningar og myndir sem birtast skýrt fyrir hugskotssjón- um þegar tónlistin hljómar.“ Eftir hlé leikur Valgerður húmor- esku eftir Schumann sem samin var árið 1839 en þar er einnig um að ræða verk sem er mjög sjaldan flutt hér á landi. „Húmoreskan er ópus 20, þ.e.a.s. númer tuttugu í verkaröð Schumanns. Öll verkin sem hann hafði samið fram til þessa voru til- einkuð Clöru Wieck, heitmey hans. Þetta verk er samið árinu áður en Schumann fær að giftast henni og má því segja að hann sé orðinn nokkuð örvæntingarfullur þegar hér er kom- ið sögu,“ segir Valgerður og bætir því við að verkið sé mjög einlægt og mjög persónulegt. Nafnið Húmor- eska (gletta) getur því verið nokkuð misvísandi, en tónskáldið sagði sjálft að verkið væri „ekki sérlega glaðlegt, kannski tregafyllsta verkið hans.“ Verkið myndar eina heild, í því eru engin hlé þó svo að finna megi nokk- urs konar kaflaskipti. Það tekur um 35 mínútur í flutningi. „Ég er farin að leita mikið í heil, stór verk í efnisvali mínu, í stað minni brota úr ólíkum áttum eins og áður,“ segir Valgerður og bætir því við að bæði verkin á efn- isskránni séu mjög falleg. „Fólki gefst hér gott tækifæri til að heyra prelúdíurnar úr fyrri bókinni leiknar í heild sinni, en flestir þekkja líklega eina og eina úr heftinu.“ Valgerður hélt síðast einleikstón- leika í Hafnarborg fyrir tveimur ár- um. Hún hefur haldið fjölmarga tón- leika hérlendis og erlendis, starfað með söngvurum og í kammermúsík auk þess sem hún kennir við Tónlist- arskólann í Hafnarfirði. Valgerður stundaði framhaldsnám við Listahá- skólann í Berlín hjá prófessor Georg Sava, en þaðan lauk hún burtfarar- prófi árið 1992. Þá leikur Valgerður í tríói með Sigurlaugu Eðvaldsdóttur fiðluleikara og Guðrúnu Th. Sigurð- ardóttur sellóleikara, en þær eru um þessar mundir að setja saman dag- skrá fyrir sumarið. Tónleikarnir í Salnum á þriðjudag- inn eru liður í tónleikaröð Tónlistar- skóla Kópavogs og hefjast kl. 20. Leikur tólf prelúdíur eftir Debussy í Salnum Morgunblaðið/Ásdís Valgerður Andrésdóttir píanóleikari. Í GERÐUBERGI stendur nú yfir sýning á íslenskum stólum en á sýn- ingunni eru sýnishorn af íslenskri stólahönnun fá upphafi síðustu aldar til dagsins í dag. Í tilefni af því munu tveir af þekkt- ustu stóla- og húsgagnahönnuðum landsins halda erindi um stóla sína, feril sinn og hönnun stóla í Gerðu- bergi, þriðjudaginn 6. mars kl. 20. Það eru þeir Gunnar Magnússon húsgagnarkitekt og Valdimar Harð- arson arkitekt og húsgagnahönnuð- ur, en báðir eiga þeir stóla á sýning- unni. Í kjölfar erindanna verða umræður og mun Aðalsteinn Ing- ólfsson listfræðingur stjórna þeim. Aðgangur er ókeypis. Erindi um hönnun stóla SÝNING blaðaljósmyndara hefur verið sett upp í ráðhúsinu á Dalvík í boði Sparisjóðs Dal- víkur. Sýningin hefur að geyma úrval um 150 ljósmynda eftir 33 blaðaljósmyndara á Íslandi, sýningin var í Listasafni Kópa- vogs, Gerðarsafni, 27. janúar til 11. febrúar 2001, þar sem hún var sótt af hátt á fjórða þúsund gestum á tveimur vikum. Blaðaljós- myndir á Dalvík SPÆNSKI tenórsöngvarinn Plac- ido Domingo sést hér í hlutverki Parsífals í samnefndri óperu eftir Richard Wagner sem frumsýnd var í Konunglega leikhúsinu í Madríd um helgina. Með honum eru finnski bassasöngvarinn Matti Salminen sem Gúrnemanz og gríska messó- sópransöngkonan Agnes Baltsa í hlutverki Kúndrý. Parsífal var síðast á fjölunum í Madríd árið 1921. Reuters Parsífal loks í Madríd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.