Morgunblaðið - 14.03.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.03.2001, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR 2 C MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ GUNNUR Sveinsdóttir hand- knattleikskona gekk til liðs við þýska úrvalsdeildarliðið HSG Blomberg Lippe ekki alls fyrir löngu en hún lék með FH-ingum framan af vetri. Gunnur skoraði tvö mörk fyrir liðið um síðustu helgi þegar það tapaði fyrir Bay- er Leverkusen, 31:24, og er Blom- berg Lippe í 9.-10. sæti af tólf lið- um með 14 stig í átján leikjum. Gunnur er á samningi við liðið fram til vorsins en forráðamenn félagsins hafa lýst yfir áhuga á að framlengja hann eftir tímabilið. Unnusti Gunnar, Brynjar Geirs- son, er einnig að spila handknatt- leik í Þýskalandi. Hann leikur með 4. deildarliðinu Augustdorf- Hövelhof en sami stuðningsaðli er hjá liðinu og Blomberg Lippe. Brynjar gerði eins og hálfs árs samning við félagið sem vænta- lega kemst upp um deild en Augusdorf er með stjö stiga for- skot á toppnum. Njarðvík í 1. deild NJARÐVÍK tryggði sér sæti í 1. deild kvenna í körfuknattleik sl. sunnudag. Mikil spenna var fyrir lokaumferðina í 2. deild þar sem Njarðvík sigraði ÍR/Breiðablik, 58:38, og tryggði sér sigur í deildinni. Þrjú lið voru jöfn að stigum í 2. deild, Njarðvík, ÍR/ Breiðablik og Haukar. Stórsigur Njarðvíkinga á ÍR/Breiðablik gerði það að verkum að Njarðvík varð sigurvegari í 2. deild með hagstæðara stigaskor í innbyrðis viðureignum þessara þriggja félaga. Gunnur leikur með Blomberg ÚRSLIT KNATTSPYRNA Meistaradeild Evrópu A-RIÐILL: Valencia - Panathinaikos........................ 2:1 Juan Sanchez 39., Jocelyn Angloma 75. - Angelos Basinas 27. (víti) - 30.000. Manchester United - Sturm Graz .......... 3:0 Nicky Butt 5., Teddy Sheringham 20., Roy Keane 86. - 66.404. Valencia ....................6 3 3 0 10:2 12 Manch. Utd ..............6 3 3 0 10:3 12 Sturm Graz ..............6 2 0 4 4:13 6 Panathinaikos ..........6 0 2 4 4:10 2 B-RIÐILL: AC Milan - Deportivo Coruna ................ 1:1 Andriy Shevchenko 86. (víti) - Djalminha 74. (víti) - 70.103. Paris SG - Galatasaray............................ 2:0 Christian 3., 26. Rautt spjald: Pierre Duc- rocq (PSG) 87. - 31.254. Deportivo .................6 3 1 2 10:7 10 Galatasaray..............6 3 1 2 6:6 10 Milan.........................6 1 4 1 6:7 7 Paris SG ...................6 1 2 3 8:10 5 England 1.deild Crewe - Nottingham Forest.................... 1:0 Grimsby - Wimbledon.............................. 1:1 Watford - Burnley .................................... 0:1  Heiðar Helguson fór af velli hjá Watford á 69. mínútu. 2. deild Bristol Rovers - Peterborough ........ frestað Wycombe - Stoke...................................... 0:1 3. deild: Carlisle - Leyton Orient .......................... 1:0 Kidderminster - Scunthorpe ................... 0:0  Bjarnólfur Lárusson lék allan leikinn með Scunthorpe. Plymouth - Hull ........................................ 1:1 Shrewsbury - Cardiff ............................... 0:4 York - Darlington ..................................... 2:0 Bikarkeppni neðrideildarliða Undanúrslit, fyrri leikir: Lincoln - Port Vale ................................... 0:2 Southend - Brentford............................... 1:2  Ólafur Gottskálksson og Ívar Ingimars- son léku allan leikinn með Brentford sem á nú mikla möguleika á að komast í úrslita- leik keppninnar, sem verður væntanlega gegn Port Vale. Skotland Úrvalsdeild: Aberdeen - Hibernian .............................. 1:0 Frakkland Bikarkeppnin: Troyes - Nantes........................................ 0:1 Austurríki Austria Wien - Graz AK........................... 0:1 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Leikir aðfaranótt þriðjudags: Charlotte - Chicago.............................102:94 Minnesota - Miami ...............................94:77 San Antonio - LA Clippers ..................99:81 Golden State - Denver ..........................79:84 HANDKNATTLEIKUR Nissandeild 1. deild karla: Austurberg: ÍR – Valur ............................20 Digranes: HK – Breiðablik ......................20 Framhús: Fram – ÍBV..............................20 Kaplakriki: FH – Stjarnan.......................20 KA-heimili: KA – Grótta/KR ...................20 Varmá: Afturelding – Haukar..................20 Í KVÖLD  CLAUDIO Ranieri knattspyrnu- stjóri Chelsea var á leik Manchester United og Sturm Graz á Old Traf- ford í gær en þar var hann aðallega að fylgjast með austurríska lands- liðsmanninum Markusi Schoop. Leikmaður þessi, sem er 27 ára gam- all miðjumaður, hefur leikið einstak- lega vel með Sturm Graz á leiktíð- inni og var í síðasta mánuði útnefndur knattspyrnumaður ársins í Austurríki.  GYLFI Einarsson fær hrós frá Lars Tjærnås, aðstoðarþjálfara norska úrvalsdeildarliðsins Lille- ström. Á heimasíðu félagsins segir Tjærnås að Gylfi hafi sýnt mikinn styrk að undanförnu en Gylfi hefur átt við hnémeiðsli að stríða í langan tíma.  ÁSTHILDUR Helgadóttir og stöllur hennar í Carolina Courage gerðu jafntefli, 1:1, við Boston Brea- kers í fyrsta opinbera leik félagsins sem fram fór í fyrrakvöld. Sömu félög mætast í fyrstu umferð nýju bandarísku atvinnudeildarinnar hinn 21. apríl.  STÅLE Solbakken, margreyndur norskur landsliðsmaður í knatt- spyrnu, hneig niður á æfingu hjá félagi sínu í Danmörku, FC Köben- havn, í gær. Hjarta hans sló ekki í sjö mínútur en læknum tókst að lífga hann við með rafmagnshöggum. Sol- bakken var í léttri upphitun þegar atvikið átti sér stað.  SOLBAKKEN, sem er 33 ára, var kominn úr öndunarvél í gærkvöld en nánari upplýsingar verða ekki gefn- ar um heilsu hans og batahorfur fyrr en í dag. Vonir eru bundnar við að snögg viðbrögð læknis FC Köben- havn sem blés stöðugt lofti ofan í Solbakken hafi komið í veg fyrir al- varlegar heilaskemmdir.  ÞJÓÐVERJAR sigruðu Norð- menn, 23:16, í vináttulandsleik í handknattleik sem fram fór í Ro- stock í gærkvöld. Florian Kehr- mann skoraði 5 mörk fyrir Þjóðverja en þeir Frode Hagen og Preben Vildalen gerðu 4 mörk hvor fyrir Norðmenn.  RENE Higuita, hinn frægi knatt- spyrnumarkvörður frá Kólumbíu, var í gær rekinn frá félagi sínu, Jun- ior Barranquilla, fyrir slaka æfinga- sókn. Ferli hans lauk á nákvæmlega sama hátt hjá fyrri liðum hans í heimalandinu, Millonarios og Real Cartagena. FÓLK STOKE City lyfti sér upp í 5. sæti ensku 2. deildarinnar í knattspyrnu í gærkvöld með því að sigra bik- arliðið magnaða, Wycombe Wand- erers, 1:0 á útivelli. Graham Kav- anagh skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 11. mínútu eftir að Peter Thorne var felldur. Birkir Kristinsson, Brynjar Björn Gunnarsson og Bjarni Guðjónsson léku allan leikinn með Stoke. Stef- án Þórðarson kom inn á sem vara- maður á 73. mínútu og Ríkharður Daðason sjö mínútum síðar. Millwall er með 72 stig á toppn- um, Rotherham 68, Reading 64, Walsall 63, Stoke 61 og Wigan 60. Stoke á leik til góða á Walsall og Wigan en hefur leikið fleiri leiki en Rotherham og Reading. Stoke upp í fimmta sætið Heimamenn í Valencia lentu ívandræðum í upphafi leiksins með Helga Sigurðsson og félaga í gríska liðinu Panathinaikos því Angelos Basinas kom þeim yfir með marki úr vítaspyrnu á 27. mínútu. Hector Cuper, þjálfari Spánverj- anna, brást við þessu með því að setja varnarmanninn Joachim Björklund inn á í stað miðjumanns- ins Didier Deschamps og tók leikur heimamanna stökkbreytingum við þetta. Juan Sanchez jafnaði sex mínút- um fyrir leikhlé með skalla og í upp- hafi síðari hálfleiks fékk hann gullið tækifæri til að koma liði sínu yfir en skalli hans var varinn. Varnarmað- urinn Jocelyn Angloma gerði sigur- markið stundarfjórðungi fyrir leiks- lok og þar með var ljóst að Valencia yrði í efsta sæti riðilsins. Helgi sat á varamannabekknum allt þar til 18 mínútur voru til leiks- loka. Þá kom hann inn á og varð þar með þriðji Íslendingurinn til að leika í Meistaradeildinni, hinir eru Árni Gautur Arason hjá Rosenborg og Eyjólfur Sverrisson hjá Herthu Berlín. Auðvelt hjá United Manchester United átti ekki í telj- andi erfiðleikum með Sturm Graz, liðið sem hefur komið einna mest á óvart í deildinni í vetur. Það vakti athygli fyrir leikinn að David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, var ekki í byrjunarliði United og ekki heldur þeir Andy Cole og Dwight Yorke, en þeir voru allir á varamannabekknum. Nicky Butt kom heimamönnum yfir á 5. mínútu og Teddy Shering- ham kom þeim í 2:0 á 19. mínútu. Markvörður Austurríkismanna varði vel í leiknum og kom í veg fyrir enn stærra tap, en hann kom engum vörnum við þegar Roy Keane skor- aði þriðja mark leiksins undir lok hans. „Það er ekki auðvelt að stjórna leik í 90 mínútur og eftir að við kom- umst í 2:0 náðu þeir aðeins að láta vita af sér, en sigurinn var ekki í hættu. Áhorfendur eiga stóran hlut í sigrinum því þeir voru frábærir í kvöld,“ sagði Alex Ferguson, knatt- spyrnustjóri United, eftir leikinn. Ivica Osim, þjálfari Sturm Graz, var samþykkur því að United hefði verið sterkara liðið. „Þeir voru miklu öruggari og sjálfstraustið var í lagi. Það eru ekki mörg lið í heiminum sem hafa jafnsterku liði á að skipa,“ sagði hann. Valencia og United áfram VALENCIA og Manchester United tryggðu sér í gær rétt til að leika í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Spánska liðið varð í efsta sæti A-riðils, eftir 2:1-sigur á Panathinaikos, og United í öðru sæti með jafnmörg stig, en liðið vann Sturm Graz nokkuð örugglega, 3:0. Ole Gunnar Solskjær lék vel fyrir United í gær, lagði m.a. upp mark ÍSLAND hlaut bronsverðlaun í liða- keppni pilta á Norðurlandamóti ung- linga í keilu sem lauk í Kaupmanna- höfn á sunnudaginn. Íslensku piltarnir skutu Svíum og Finnum aftur fyrir sig en Danir sigruðu og Norðmenn hrepptu silfrið. Íslensku sveitina skipuðu þeir Atli Þór Annelsson, Árni Þór Finnsson, Björgvin Harðarson, Eiríkur Arnar Björgvinsson, Gústaf Smári Björns- son og Magnús Magnússon. Í einstaklingskeppni stóð Gústaf sig best og hafnaði í 20. sæti af 30 keppendum. Ein íslensk stúlka, Dagný Edda Þórisdóttir, tók þátt í mótinu og varð í 22. sæti af 25 kepp- endum. Piltarnir fengu brons á NM í keilu Fyrri hálfleikurinn í Mílanó var af-skaplega rólegur og leiðinlegur og virtust leikmenn AC Milan ekk gera sér grein fyrir því að þeir yrðu að sigra til að komast áfram. Gestirnir létu sér þetta vel lynda og fóru sér hægt í að sækja, sáust ekki oft margir fyrir framan miðlínu. Eftir hlé léku heimamenn mun betur og nýttu breidd vallarins mun skárr en fyrir hlé þegar aðeins var sótt upp miðjuna. En eins og stundum vill verða þegar annað liðið sækir án afláts þá skorar hitt. Það gerðist í gær því á 74. mínútu skoraði Djalminha úr vítaspyrnu sem góður dómari dæmdi þegar varamað- urinn Capdevila var felldur nokkra sentimetra fyrir innan vítateigslínuna. Eftir markið fengu gestirnir tvö mjög góð færi, skutu í stöng og Emer- son hitti ekki boltann þegar hann var einn fyrir opnu marki. Heimamenn náðu sér þó fljótlega og héldu áfram stífri sókn og uppskáru vítaspyrnu þegar fjórar mínútur voru eftir og úr henni skoraði Shevchenko. Fjórum mínútum var bætt við en þær dugðu heimamönnum ekki til að skora aftur og leikmenn AC Milan voru daufir í dálkinn er þeir gengu af velli. Draumur Ítala var á enda, ekkert lið þaðan er eftir í Evrópukeppninni. Síða Ítala MIKIÐ gekk á í síðustu leikjum B-r spyrnu í gærkvöldi. Fyrir leiki AC M Galatasaray var staðan þannig að Deportivo með 7, AC Milan með 6 kostnað Deportivo. PSG hafði leik menn í raun ekki við miklu af liðin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.