Morgunblaðið - 21.07.2001, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.07.2001, Blaðsíða 37
arhönd og róa okkur niður fyrir keppnina miklu. Þú hjálpaðir okkur meira að segja að klára matinn okk- ar þegar við vorum lystarlaus af stressi, eða af öðrum ástæðum. Þarna úti varstu hrókur alls fagn- aðar og máttarstólpi skemmtana- deildar liðsins, sem útnefnt var vin- sælasta lið keppninnar. Þú skaraðir fram úr í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur, sem íþrótta- maður, sem námsmaður og ekki síst sem góður félagi. Allar minningar mínar um þig eru af sama meiði, þú varst hlýr, traustur og á allan hátt góður drengur. Því er missir okkar, sem vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að þekkja þig, mikill og sár. Samúðarkveðjur vil ég senda fjöl- skyldu og aðstandendum vinar míns, Bergs. Sérstaka kveðju vil ég bera Huldu Maríu, mínum elsku- lega vini. Kæri vinur. Það er sárt að missa svo góðan dreng. Vertu blessaður og megi Guð geyma þig. Þinn vinur Geir. „Þungt er að deyja, skelfilega þungt, meðan hjartað er enn ungt.“ Ég kynntist Huldu Maríu og Bergi í lagadeild en einhvern veginn var sem við hefðum alltaf þekkst. Bergur var rólegur og yfirvegaður og gat alltaf séð hið spaugilega í hversdagsleikanum. Hlátur hans smitaði svo frá sér að maður gat ekki annað en hlegið með. Hann var einstaklega góð eftirherma og náði fljótt töktum hjá fólki. Ég dáðist að því hvað hann var skipulagður. Hann var duglegur í námi, stóð sig vel í stjórn Orators, stundaði íþrótt- ir, vann með skólanum og sinnti vin- um og ættingjum. Hulda María var samt alltaf númer eitt, þau voru eitt. Voru saman í lagadeild, saman í stjórn Orators, unnu saman á kvöld- in og lærðu við sama skrifborð. Orð Aristótelesar að sönn vinátta sé ein sál í tveimur líkömum eiga vel við um þau. Gamlárskvöld árið 2000 er ógleymanlegt. Þá voru þau nýbúin að trúlofa sig og gleðin skein úr aug- um þeirra. Minnisstæð er ferð nokkurra laganema til Washington í apríl, þar sem málflutningskeppni milli allra helstu lagaháskóla heims fór fram. Ástin blómstraði á milli þeirra er þau leiddust hönd í hönd um götur borgarinnar. Einstök er minningin um gönguferðina frá þinghúsinu að Hvíta húsinu að kvöldlagi. Eins fann maður hversu sterkt samband þeirra var þegar við tvær fórum í helgarferð til London. Hann hugsaði svo vel til hennar og hún til hans. Sviplegt fráfall góðs vinar kemur sem þruma úr heiðskíru lofti. Hannes Pétursson orti: Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Elskuleg vinkona mín þarf nú að horfast í augu við lífið án hans. Án besta vinar síns sem var henni allt, án ástarinnar í lífi hennar. Ég bið góðan Guð að veita Huldu Maríu æðri styrk til að takast á við þessa miklu sorg. Ég er og verð ætíð hjá þér. Þín vinkona, Sigþrúður Ármann. Kæri vinur. Það er erfitt að trúa því að þú sért farinn. Minningar um samverustundir okkar streyma fram í huga mínum. Leiðir okkar lágu fyrst saman fyrir rúmum þremur árum, þar sem ég hóf mitt fyrsta sumar sem afleysingamaður í lögreglunni í Keflavík. Fyrsta hugs- un mín þegar ég sá þig á stöðinni var: „Mikið er ég feginn því að hafa hann í mínu liði.“ Kom það berlega í ljós að það var ómetanlegt að fá að starfa með þér. Ráðleggingunum sem þú gafst mér í starfi og sem vin- ur gleymi ég aldrei. Eftir að hafa kynnst þér nokkuð vel fyrsta sum- arið kom það nokkrum á óvart að þú skyldir hefja nám ásamt Huldu Maríu þinni í lögfræði þar sem þú varst búinn að fá inngöngu í Lög- regluskólann. En að sjálfsögðu stóðstu þig vel í lögfræðinni enda ekki við öðru að búast af þér. Það var mikil gleði fyrir mig að geta sagt vinum mínum í lagadeildinni frá þér því þeir reyndust afar for- vitnir og spenntir að vita hver þessi stóri væri. Annað sumarið mitt í lögreglunni reyndist dýrmætt. Vinátta okkar jókst með hverri ferð sem við ókum saman til Keflavíkur og var mér þá ljóst hversu mikil persóna þú varst. Á þessum tíma eyddum við meiri tíma saman utan vinnunnar og fékk ég að kynnast öðlingnum í þér og prakkarastrikum. Þær voru ófáar klukkustundirnar sem við eyddum í Techno að lyfta lóðum. Öðrum hefur eflaust þótt það skondið að sjá okk- ur lyfta saman, þig náttúrubarnið og mig sem reyndi hvað ég gat að lyfta helmingnum sem þú gast. Með sannfæringarkrafti þínum og góðum hugmyndum tókst þér að fá mig til að vinna eitt sumarið í við- bót í Keflavík. Jafnframt tókstu lof- orð af mér um að fara á árshátíð lög- reglumanna það vor. Þú lofaðir mér að við myndum stoppa stutt en ég ílengdist fram undir morgun af góðri ástæðu og þakka ég þér það að hafa beðið eftir mér. Það eru margir hlutir sem við ætluðum okkur en þeir verða að bíða betri tíma. Þetta er aðeins brot af þeim minningum sem ég á um þig. Elsku Hulda María mín og að- standendur. Ykkar missir er mikill. Megi algóður Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Ég kveð þig með trega, kæri vin- ur. Traustari vin er vart hægt að hugsa sér. Þinn vinur, Gunnar Thoroddsen. Við þökkum Bergi samfylgdina og vináttuna með þessari kveðju: Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Við sendum Huldu Maríu og öðr- um aðstandendum innilegustu sam- úðarkveðjur okkar og biðjum algóð- an Guð að styrkja þau og leiða í þeirra miklu sorg. Bekkjarfélagar úr lagadeildinni. Í dag kveðjum við hinstu kveðju kæran vin og félaga, Berg Kristin Eðvarðsson, sem látinn er langt fyr- ir aldur fram. Við fráfall hans er höggvið stórt skarð í okkar hóp sem er búinn að vera samhentur í lengri tíma en stjórnarstörfin hafa varað. Við bundumst sterkum vinaböndum fljótlega eftir að laganámið hófst og hefur margt verið brallað síðan þá. Minnisstæð er sumarbústaðarferð fyrir rúmu ári þar sem Hulda María og Bergur sinntu gestgjafahlut- verkinu af stakri prýði. Þrátt fyrir að gasið hafi klárast og vatn hætti að renna lét enginn það á sig fá og einhvern veginn var klárað að elda og heiti potturinn slapp ekki við heimsókn okkar. Eftir þetta varð ekki aftur snúið og buðum við okkur fram til stjórn- arstarfa í Orator haustið eftir. Það var einstakt ánægjuefni að Bergur skyldi ákveða að bjóða sig fram í embætti alþjóðaritara, sem hann var kosinn í með glæsibrag. Það kom strax í ljós að Bergur var gæddur mörgum góðum eiginleik- um sem kom okkur ekki á óvart. Hann var einstaklega skipulagður, tók hlutunum með jafnaðargeði, áreiðanlegur með afbrigðum og brosið var aldrei langt undan. Hann kom hlutunum í framkvæmd og undir hans stjórn var haldin glæsi- leg norræn vika og með stuttum fyr- irvara náði hann að undirbúa frá- bæra bandaríska viku. Þátttakan í norrænu vikunni fór fram úr björt- ustu vonum og fór Bergur hreinlega á kostum í henni. Hann lét einnig til sín taka í almennum stjórnarstörf- um og var hann ómissandi á fundum og öllum atburðum á okkar vegum. Samband Huldu Maríu og Bergs var einstakt og þau studdu hvort annað í einu og öllu. Missir hennar er mikill og sár. Við munum standa við hlið hennar um ókomin ár og leggja okkar af mörkum til að styrkja hana á þessum erfiðu tím- um. Við þökkum fyrir þann tíma sem við fengum að eiga með Bergi. Minningin um yndislegan dreng mun ávallt lifa í hjarta okkar. Stjórn Orators, félags laganema. Með mikla sorg í hjarta kveðjum við kæran vin okkar, Berg Kr. Eð- varðsson, sem allt of fljótt er horf- inn frá fjölskyldu og vinum. Kynni okkar tókust fljótlega eftir að hann og Hulda María hófu nám við laga- deild og þótt ekki sé langt um liðið frá þeim tíma er óhætt að segja að vinskapurinn hafi frá upphafi verið bundinn sterkum böndum. Bergur var einstakt ljúfmenni og mátti ekki vamm sitt vita. Það lýsir honum kannski best að hann var ávallt reiðubúinn til að rétta fram hjálp- arhönd við hvaða aðstæður sem var og hann var einfaldlega sannur vin- ur vina sinna. Minningarnar streyma fram, ferðir okkar saman, stundirnar við grillið þar sem heimsmálin voru rædd á meðan smakkað var á kræs- ingunum eða samstarfið innan stjórnar Orators – þær eru allar góðar. Bergur og Hulda María voru ákaflega samrýnd enda búin að þekkjast nánast alla ævi og urðum við fljótt áskynja að þeirra samband var afar ástríkt og fullt af kærleika. Fór það ekki fram hjá neinum að þau voru svo miklu meira en par, þau voru bestu vinir og sálufélagar. En nú hefur ský dregið fyrir sólu og á óskiljanlegan hátt er Bergur horf- inn og snýr aldrei til baka. Það verð- ur tómlegt um að litast í skólastof- unni í haust þegar hann vantar en tómið er ekki síst í hjarta okkar. Elsku Hulda María, sorg þín og missir er mikill. Megi góður Guð styðja þig og styrkja á þessum erf- iðu tímum. Við samhryggjumst þér og fjölskyldum ykkar Bergs inni- lega, við grátum einstakan gullmola við hlið ykkar. Hann mun lifa í minningunni um ókomna tíð. Árni og Guðrún. Kveðja frá Lögreglufélagi Gullbringusýslu Góður félagi okkar og samstarfs- maður, Bergur Kristinn Eðvarðs- son, er nú fallinn frá, langt fyrir ald- ur fram. Eftir stendur stórt skarð í lögregluliði Keflavíkur. Bergur starfaði við sumarafleys- ingar í lögreglunni með laganámi og reyndist framúrskarandi starfs- kraftur en þó fyrst og fremst traust- ur og áreiðanlegur vinur. Það var gott að hafa hann við hlið sér og hann sinnti störfum sínum af alúð og hlýju. Kímnigáfa hans var einstök og ófáar gleðistundirnar sem hann skilur eftir hjá vinum og félögum. Á slíkri stundu verða orðin afar vanmáttug og fátt hægt að segja sem lýsir viðbrögðum, huggar eða sefar sorg þeirra sem eftir standa. Lögreglufélag Gullbringusýslu vottar unnustu, skyldmennum og öllum aðstandendum Bergs Eð- varðssonar sína innilegustu samúð. Hljóðlátur, hógvær, langur og mjór. Þannig minnumst við Bergs þegar hann mætti á sínar fyrstu æf- ingar hjá okkur. Við komumst samt fljótt að því að þar fór drengur með metnað og gífurlegan viljastyrk. Hann byrjaði töluvert seinna að æfa en jafnaldrar hans, en bætti það upp með mikilli elju. Hann var hugljúfi hvers þjálfara og tók tilsögn og til- einkaði sér hana. Þær voru ófáar stundirnar sem hann eyddi í inn- keyrslunni heima hjá sér eða á skólalóðinni. Hann lét ekki duga að æfa sig með boltann heldur tók hann allt í gegn, t.d. mataræði, lyft- ingar og teygjur. Hann uppskar mjög fljótt og var valinn í unglinga- landslið 18 ára og yngri á sínum tíma. Hann var ein af hetjum okkar í bikarmeistaraliðinu 1998. Þegar Bergur fór síðan í háskóla- nám ákvað hann að leggja körfu- boltann til hliðar og einbeita sér að því. Hann tók á náminu með sömu elju og samviskusemi, enda gekk það mjög vel. Við söknuðum hans, en vonuðum að eftir að þessu verk- efni hans væri lokið kæmi hann aft- ur. Sá söknuður er lítilvægur eftir áfallið við fráfall hans. Farinn er góður drengur. Við sendum unnustu hans og aðstandendum þeirra beggja okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Guð styrki ykkur. F.h. körfuknattleiksdeildar UMFG Eyjólfur Þór Guðlaugsson. Kæri vinur, þegar sest er niður til að skrifa minningarorð um þig lend- ir maður í vandræðum um hvar skal byrja, ef vel ætti að vera þyrfti að skrifa heila bók. Þegar þú og Hulda María byrjuðuð saman var ég ekki alveg viss um hvernig ætti að taka þér þar sem ég þekkti þig lítið þrátt fyrir að hafa vitað af þér síðan við vorum öll saman í leikskóla, en ég komst brátt að því að betri lífsföru- naut hefði hún ekki getað fundið sér. Með tímanum höfum við orðið góðir vinir sem höfum átt margar góðar stundir saman. Ofarlega í huga er Flórídaferðin sem fjöl- skyldan fór í um páskana 1999. Þá áttu Ásta og Hulda María eitthvað erfitt með að aðlagast tímamismun- inum og þegar þær voru sofnaðar komst þú niður og við sátum úti og spjölluðum saman fram á nótt. Síð- ast þegar við hittum þig var mikil gleði á ykkar heimili í 25 ára afmæl- inu hennar Huldu Maríu, og að sjálfsögðu var minnst á driver- brandarann eins og svo oft áður. Margar aðrar minningar um þig berum við í brjósti og er söknuður okkar mikill, munum við ávallt geyma þær í hjartastað, kæri vinur. Elsku Hulda María, þú átt hug okkar allan á þessum erfiðu tímum og mundu að þegar við erum ekki hjá þér í persónu þá erum við það í huga okkar. Guð gefi þér styrk til að ráða fram úr þessari erfiðu þraut og finna leið til að lifa lífinu áfram. Stebbi, Erla og fjölskylda, megið þið vera hvert öðru stoð og stytta á þessum erfiðu tímum og ekki gleyma því að þið eigið góða að. Helga, Lilli og fjölskylda ykkar, missir ykkar er mikill og vottum við ykkur okkar dýpstu samúð. „… ef við hittumst aldrei aftur fyndist mér sem allt ævintýri tilverunnar væri réttlætt með því að hafa hitt þig.“ (Lewis Mumford, 1895–1990.) Heiðar og Ásta. Ég kynntist Bergi fyrst þegar við hófum báðir nám við lagadeild Há- skóla Íslands. Bergur var ekki bara stór maður, hann var líka stór- menni. Ljúfur drengur og góður félagi. Enda eignuðust Bergur og Hulda María, unnusta hans, fljótt stóran vinahóp í Háskólanum og voru bæði kosin til trúnaðarstarfa af félögum sínum í lagadeild. Ég held að afar fáir menn geti haft sterkar skoðanir á hlutunum og verið áber- andi í félagslífi án þess að verða um leið umdeildir. Þannig var því nú samt farið með Berg. Aldrei heyrði ég nokkurn mann segja styggð- aryrði í garð þessa góða drengs. Við laganemar kvörtum stundum undan strembnu náminu. Mikið eru nú viðfangsefni námsbókanna samt léttvæg í samanburði við þá raun sem blasir við Huldu Maríu; að halda áfram án Bergs. Ég votta henni og fjölskyldum þeirra beggja samúð mína. Heimspekingurinn Sókrates komst svo að orði rétt fyrir dauða sinn: „… nú er mál komið, að vér göngum héðan, ég til þess að deyja, en þér til þess að lifa. Hvorir okkar fari betri för, er öllum hulið nema guðinum einum.“ Og hver veit nema þeir látnu dvelji eftir allt saman á betri stað. En mikið hefði nú samt verið gott að hafa hann Berg lengur hjá okkur, sem lifum. Hafsteinn Þór Hauksson, bekkjarbróðir í HÍ. Það var alltaf jafngaman að hitta hann Berg hvort sem það var í Gils- árstekknum eða á lögfræðiskemmt- unum. Hann var alltaf jafn rólegur og yfirvegaður, og alltaf hress og kátur. Það sem stendur upp úr í huga okkar er kvöldið sem við þrír grill- uðum saman. Skemmtum okkur konunglega í félagsskap hver ann- ars og tókum hressilega til matar okkar. Bergur, við þökkum þér fyrir margar ánægjulegar stundir sem við áttum með þér. Vonandi ertu kominn á einhvern góðan stað þarna uppi. Elsku Hulda María, hugur okkar er hjá þér og fjölskyldum ykkar beggja. Kjartan og Ásmundur. Við kynntumst Bergi fyrst vegna vinskapar okkar og Huldu Maríu en bundumst honum síðan sterkum böndum í ferðalagi laganema til Washington í apríl síðastliðnum. Það var ógleymanleg ferð og erum við mjög þakklátir fyrir að hafa fengið að kynnast þessum einstaka og góða pilti svo vel sem raun bar vitni. Þegar við hugsum til baka um Berg sjáum við hann fyrir okkur við hlið Huldu Maríu, glaðan í bragði, góðhjartaðan og með bros á vör. Þannig var hann og þannig munum við alltaf minnast hans. Eggert og Ragnar. Við sitjum hérna saman og reyn- um að koma orðum á blað um þenn- an hræðilega atburð sem við viljum ekki trúa að sé veruleikinn. Við vit- um ekki hvað við eigum að segja og við finnum engin orð til að lýsa því hvernig okkur líður. Við trúum því ekki að Bergur sé farinn. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. Elsku Hulda María og aðrir að- standendur, hugur okkar er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum og við vottum ykkur dýpstu samúð. Guð blessi minningu Bergs. Svana og Júlía. „Einstakur á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og þeirra skarð verður aldrei fyllt.“ Bergur var einn af gullmolunum okkar í Technosport, algjör fyrir- mynd í líkamsræktinni. Það var unun að fá að fylgjast með Bergi, við bárum mikla virðingu fyrir honum. Hann var fallegur og framkoma hans í alla staði til fyrirmyndar. Stutt í brosið og ef einhver þurfti á hjálp að halda var hann alltaf boðinn og búinn. Með þessum orðum viljum við kveðja þig, Bergur, og sendum unnustu þinni, foreldrum og öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Starfsfólk og eigendur Technosports. Bergur Kristinn Eðvarðsson, laganemi, starfaði í fimm sumur við sumarafleysingar hjá lögreglunni í Keflavík frá 1. júní 1997. Hann afl- aði sér virðingar samstarfsmanna sinna og sinnti starfi sínu af sam- viskusemi og dugnaði. Hans er sár- lega saknað af öllu samstarfsfólki og er hann kvaddur með virðingu. Unnustu Bergs, foreldrum og öðrum aðstandendum votta ég mína innilegustu samúð. Jón Eysteinsson, sýslumaður í Keflavík. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 37

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.