Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 14
AKUREYRI 14 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Handmáluð eplabörn sími 462 2900 Blómin í bænum AKUREYRARKIRKJA: Messa kl. 11 á morgun, sunnudag. Kór Lundarskóla og félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Fræðsla eftir messu, Svavar A. Jónsson flytur stutt erindi sem hann nefnir „Sjálf- stakmörkun Guðs“. Sunnudagaskóli kl. 11. Fundur í Æskulýðsfélaginu kl. 17. Morgunsöngur kl. 9 á þriðjudag. Mömmumorgunn kl. 10 til 12 á fimmtu- dag, Bryndís Arnardóttir forvarnafulltrúi fræðir foreldra um starf sitt. TTT-starf kl. 17 til 18 í safnaðarheimili. Biblíulestur kl. 20.30 um kvöldið. Kyrrðar- og fyr- irbænastund kl. 12 á fimmtudag. Bæna- efnum má koma til prestanna. Kven- félagið sér um sölu á léttum hádegisverði á eftir. GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera kl. 11, á morgun fyrsta aðventuljósið tendrað. Messa kl. 14. Félagar úr Kvenfélaginu Baldursbrá taka þátt í athöfninni. Sigríð- ur Halldórsdóttir prófessor flytur hugleið- ingu, félagar úr kór Glerárkirkju syngja, Sigríður Elliðadóttir syngur einsöng, org- anisti er Hjörtur Steinbergsson. Veiting- ar í safnaðarsal að athöfn lokinni, en ágóði rennur í söfnun fyrir steindum glugga. Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl. 18.10 á þriðjudag, fyrirbænir. Hádegis- samvera í kirkjunni kl. 12 til 13 á mið- vikudag. Orgelleikur, helgistund, fyrir- bænir og sakramenti. Opið hús fyrir mæður og börn kl. 10 til 12 á fimmtu- dag. Aðventusamkoma eldri borgara kl. 15 á fimmtudag. Sr. Pétur Þórarinsson verður gestur samkomunnar, félagar úr Kór Glerárkirkju syngja, helgistund og veitingar. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli kl. 11 á morgun, bænastund kl. 19.30, almenn samkoma kl. 20, ræðumaður Er- lingur Níelsson. Heimilasamband kl. 15 á mánudag, Örkin fyrir 6–7 ára kl. 17. Hjálparflokkur fyrir konur kl. 20 á þriðju- dag, mannakorn fyrir 10 til 12 ára kl. 17.30 á miðvikudag. Krakkaklúbbur fyirr 8–9 ára kl. 17 á fimmtudag, söngæfing kl. 19.30 og unglingasamvera kl. 20.30 um kvöldið. Flóamarkaður kl. 10 til 18 á föstudögum. HRÍSEYJARPRESTAKALL: Sunnudaga- skóli í Stærri-Árskógskirkju kl. 11 á morgun, sunnudag. Sunnudagaskóli í Hríseyjarkirkju kl. 11 á morgun. Aðventu- kvöld í kirkjunni kl. 20 um kvöldið. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Brauðsbrotning kl. 20 í kvöld, Anna G. Sigurðardóttir pre- dikar. Sunnudagaskóli fjölskyldunnar kl. 11.30 á morgun, sunnudag. Kennsla fyr- ir alla aldurshópa, Snorri Óskarsson sér um kennslu fullorðinna. Vakningasam- koma kl. 16.30 sama dag, lofgjörðartón- list, fyrirbænaþjónusta og barnapössun. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í dag,laug- ardag, kl. 18 og á morgun, sunnudag kl. 11 í Péturskirkju við Hrafnagilsstræti 2 á Akureyri. KFUM og K: Hátíðarsamkoma kl. 20.30 í kvöld í tilefni af 50 ára afmæli félags- ins. Gamlir félagar sérstaklega hvattir til að mæta. Fundur í yngri deild kl. 17.30 á mánudag fyrir 10 til 12 ára börn. LAUGALANDSPRESTAKALL: Æðruleys- ismessa verður í Munkaþverárkirkju á morgun, sunnudaginn 2. desember kl. 21. Prestur er sr. Jóna Lísa Þorsteins- dóttir. Hljómsveitin Kolesterol undir stjórn Eika Bó stýrir söng. Kaffi og með því í Kapítulinu á eftir. MÖÐRUVALLAKIRKJA: Aðventukvöld fyr- ir allt prestakallið í Möðruvallakirkju ann- að kvöld, sunnudagkvöldið 2. desember kl. 20.30. Kirkjukór Möðruvallaklaustur- sprestakalls syngur aðventulög. Börn syngja Lúsíu. Fermingarbörn lesa helgi- leik. Sigfríður Angantýsdóttir skólastjóri Þelamerkurskóla flytur hátíðaræðu. Mik- ill almennur söngur. Helgistund í umsjá sóknarprests. SJÓNARHÆÐ: Fótsporið fyrir 6–12 ára kl. 13.30 á morgun í Lundarskóla. Sam- koma á Sjónarhæð, Hafnarstræti 63 kl. 17. Fótsporið kl. 17 á Sjónarhæð, Ástirningar sérstaklega velkomnir. Kirkjustarf SAMNINGUR um tölvurekstrar- þjónustu fyrir Fasteignamat ríkis- ins vegna Landsskrár fasteigna var undirritaður á Akureyri í gær, en það gerðu þeir Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Haukur Ingi- bergsson, forstjóri Fasteignamats ríksins, og Guðni B. Guðnason, framkvæmdastjóri Anza. Samning- urinn er til þriggja ára. Í honum felst að rekstur á gagnagrunnsþjóni fyrir Landsskrá fasteigna, varsla Landsskrárinnar á honum og sífellt aðgengi að skránni fyrir starfsmenn Fast- eignamats ríkisins, sýslumanns- embætta og byggingafulltrúa sveit- arfélaga og aðra sem skrá eða tengja gögn við skrána eða fá úr henni upplýsingar. Einnig leggur Anza til tengingar frá kerfisrými sínu til Fasteignamats ríkisins á Akureyri, sér um fjarskiptateng- ingar við Fasteignamat ríkisins í Reykjavík og tengingar við skrána yfir Netið. Landsskrá fasteigna er gagna- og upplýsingakerfi sem Fasteigna- mat ríkisins heldur þar sem skrá skal allar fasteignir í landinu og er hún grundvöllur skráningar fast- eigna og hnitsettra landamerkja, þinglýsingarbóka fasteigna, mats fasteigna, húsaskrár Hagstofu Ís- lands, þjóðskrár auk þess að vera stoðgagn í landsupplýsingakerfum. Verður til á fjórum árum Geir H. Haarde fjármálaráð- herra sagði að meðvituð pólitísk ákvörðun hefði verið tekin um að landsskráin yrði á Akureyri. Hann sagði að skráin yrði til smám sam- an, en áætlanir gerðu ráð fyrir að hún yrði til á fjórum árum. Geir sagði Landsskrá fasteigna eina að mikilvægustu skrám þjóðfélagsins. Guðni B. Guðnason, fram- kvæmdastjóri Anza, sagði starfs- menn fyrirtækisins stolta af því að fá þetta framsækna verkefni og menn hlökkuðu til að takast á við það. Áætlanir gerðu ráð fyrir að 25 þúsund fasteignir yrðu skráðar í grunninn fyrsta árið. Haukur Ingi- bergsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins, sagði að stofnunin gerði ævinlega langtímasamninga og því ættu samningaaðilar væntanlega fyrir höndum langa vegferð. Fjármálaráðuneytið, Fasteignamat ríkisins og Anza Samningur um tölvuþjónustu vegna Landsskrár fasteigna KARLAKÓR Akureyrar – Geysir heldur jólatónleika í Akureyr- arkirkju á sunnudag, 2. desem- ber, kl. 15. Þórhildur Örvarsdóttir sópr- ansöngkona syngur einsöng með kórnum, en Björn Steinar Sól- bergsson leikur undir á orgel. Stjórnandi kórsins er Erla Þór- ólfsdóttir. Á efnisskrá tónleikanna eru fjölbreytt jólalög, bæði innlend og erlend, og verða þau ýmist sungin með eða án undirleiks. Að tónleikum loknum verður boðið til glæsilegs kaffihlaðborðs sem Sóroptimistakonur sjá um, þannig að gestir fá aðventunær- ingu bæði fyrir sál og líkama á þessum tónleikum. Starfsemi Karlakórs Akureyrar – Geysis hefur verið afar fjöl- breytt síðustu vikur, kórinn söng hefðbundna karlakórstónleika í Reykjavík í haust auk þess að flytja þar einnig „bítladagskrá“. Nýlokið er gríðarvinsælli upp- færslu kórfélaga á revíunni „Allra meina bót“ eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni en nú söðlar kórinn um og skiptir úr gríninu yfir í helgi jólanna. Söngur og kaffiboð Karlakór Akureyrar – Geysir KVEIKT verður á jólatrénu í Verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð í dag laugardaginn 1. desember, kl. 13.30. Séra Gunnlaugur Garð- arsson flytur stutta hugvekju, jólasveinar koma í heimsókn, létt jólalög verða flutt af unglingakór og handverksfólk verður á göng- um. Kristjáns bakarí býður kaffi og piparkökur og verslanir verða opnar til kl 16. Starfsfólk og verslunareig- endur hafa eins og venjulega komið upp skemmtulegu jólalandi á göngum og pöllum versl- unarmiðstöðvarinnar. Ljósmynd/Myndrún ehf. Starfsmenn í óðaönn að setja upp jólalandið í Verslunarmið- stöðinni Sunnuhlíð. Kveikt á jólatré Í DAG verður athöfn við útilista- verkið Íslandsklukkuna við Sólborg og hefst hún kl. 15. Íslandsklukk- unni verður þá hringt í fyrsta skipti. Kristján Þór Júlíusson bæj- arstjóri flytur ávarp og Hermann Óskarsson varaforseti háskólaráðs kynnir framtíðarhlutverk Íslands- klukkunnar í starfsemi háskólans. Þá syngur háskólakórinn tvö lög og leikskólabörn og börn í yngstu bekkjum grunnskólanna syngja. Íslandsklukk- unni hringt í fyrsta sinn JÓLATÓNLEIKAR verða í Íþróttahöllinni á Akureyri á morg- un, 2. desember, kl. 17. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni þess að geisla- diskurinn „Á jólunum“ sem JP-fjöl- miðlun á Akureyri gefur út til styrktar barnadeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri er kominn út. Fjölmargir landsþekktir lista- menn flytja og eiga lög á þessum geisladiski. Meðal þeirra er Helena Eyjólfs, sem nú syngur í fyrsta skipti í 20 ár á plötu, Óskar Péturs- son, Pálmi Gunnarsson, Erna Gunn- arsdóttir, Hera Björk, Friðrik Óm- ar, Erna Hrönn Ólafsdóttir, Júlíus Guðmundsson, Erna Varðardóttir og hljómsveitin Bylting. Auk þeirra munu koma fram á tónleikunum barnastjarnan Jóhanna Guðrún, söngkonan Margrét Eir, leikkonan Helga Braga og Lóa ókurteisa ásamt Ástu Hrafnhildi úr Stundinni okkar, auk fleiri óvæntra gesta. All- ur ágóði tónleikanna rennur óskipt- ur til barnadeildarinnar. Geisladiskur til styrkt- ar barnadeild FSA Jólatónleikar í íþróttahöll FYRSTA sunnudag í aðventu, eftir messu, verða félagskonur í Kven- félaginu Baldursbrá með heitt kakó og smákökur, jólamuni, brauð og tertur til sölu í safnaðarsal Gler- árkirkju. Kynnt verður hönnun Leifs Breiðfjörð á skreytingum í glugga kirkjunnar. Einnig mun Sigríður Elliðadóttir syngja nokk- ur lög. Allur ágóði rennur í söfnun fyrir steindum glugga. Baldursbrá með samkomu Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því KFUM á Akureyri var stofnað verður hátíðarsamkoma haldin í kvöld kl. 20.30 í Sunnuhlíð. Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, flytur ræðu og Óskar Pétursson syngur. Þá verða sýndar myndir frá liðnum árum. Nú stendur félagið fyrir al- mennu samkomuhaldi og bæna- stundum á sunnudögum og fundum fyrir 10 til 12 ára á mánudögum. KFUM á Akur- eyri 50 ára BJÖRN Steinar Sólbergsson org- anisti Akureyrarkirkju heldur tón- leika í kirkjunni kl. 12 á hádegi í dag, laugardaginn 1. desember. Á efnisskránni verður Svíta op. 5 eftir franska tónskáldið Maurice Duruflé. . Lesari á tónleikunum er sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Að- gangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir. Hádegis- tónleikar Á MORGUN sunnudag er liðið eitt ár frá því að Bónusverslun var opn- uð við Langholt á Akureyri. Að sögn Óðins Svans Geirssonar versl- unarstjóra hafa viðtökur verið frá- bærar, mikil stígandi í verslun allt þetta ár og þá sé spennandi tími framundan í jólaversluninni. Óðinn Svan sagði að hörð sam- keppni væri í verslunarrekstri á Akureyri en að þar stæði Bónus vel að vígi. „Þessi verslun er mikil kjarabót fyrir Akureyringa og aðra Norðlendinga og fólk er alltaf að verða jákvæðara í okkar garð. Við- skiptavinirnir hafa gert okkur stóra – það eru þeir sem ráða ferðinni. En þetta er góð verslun með gott aðgengi og það skiptir miklu máli.“ Hjá Bónus starfa 20–30 manns, þar af um 10 fastráðnir starfsmenn. Óðinn Svan sagði að gríðarleg ásókn væri í vinnu í versluninni um þessar mundir, „hingað koma 10 manns á dag í leit að vinnu.“ Bónus eins árs Viðtökur verið frábærar SAMSÝNING fjölda listamanna verður opnuð á efri hæð Ketil- hússins kl. 14 á morgun en til hennar er efnt í tilefni af 10 ára afmæli Gilfélagsins. Yfirskrift sýningarinnar er „10x10“. Á sama tíma verður á jarðhæð hússins opnuð sýning á verkum í eigu Listasafnsins á Akureyri. Sýning- arnar verða opnar til 9. desember næstkomandi og eru opnar frá kl. 14 til 18 virka daga og 13 til 16 um helgar. Óli G. Jóhannsson, sem sýnir á Listasafninu, verður staddur í Deiglunni á sunnudag og gefst gestum þá tækifæri á að spjalla við listamanninn. Á Punkt- inum verður boðið upp á kerta- og kortagerð og á næstunni verða meðal annars tónleikar og upp- lestrar. Sýningar í Ketilhúsi RÆÐISMAÐUR Bandaríkjanna á Íslandi verður til viðtals þriðjudag- inn 4. desember frá kl. 11:30 til 13:30 í viðtalsherbergi bæjarskrif- stofa Akureyrar á 1. hæð á Geisla- götu 9. Ræðismaðurinn tekur við umsóknum um vegabréfsáritanir til Bandaríkjanna og endurnýjun á bandarískum vegabréfum. Ræðis- maðurinn mun einnig veita þjón- ustu sem lögbókandi. Ræðismaður Bandaríkjanna Viðtalstími á Akureyri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.