Morgunblaðið - 09.12.2001, Blaðsíða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2001 27
Það er engin tilviljun að þeir sem einu sinni fara til Prag, kjósa
að fara þangað aftur og aftur, enda er borgin ógleymanleg þeim
sem henni kynnast og engin borg Evrópu kemur ferðamanninum
eins á óvart með fegurð sinni og einstöku andrúmlofti.
Gullna borgin, borg hinna þúsund turna, gimsteinn Evrópu, borg
töfranna. Það er engin tilviljun að Prag hefur verið nefnd öllum
þessum nöfnum. Eftir
að Karl IV keisari
gerði Prag að aðsetri
sínu um miðja 14. öld
varð borgin ein helsta
efnahags- og
menningarmiðstöð
Evrópu. Stórkostlegar
byggingar, listaverk og
sögulegar minjar bera
vott um ríkidæmi og völd, baráttu og hugsjónir, vísindi og
listsköpun allt fram til dagsins í dag. Nú streyma milljónir
ferðamanna á hverju ári til Prag, enda er borgin tvímælalaust ein
fegursta borg heims.
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast þessari
ótrúlegu borg. Í boði eru góð 3 og 4 stjörnu hótel og spennandi
kynnisferðir um kastalann og gamla bæinn, eða til hins
einstaklega fagra heilsubæjar Karlovy Vary,
með íslenskum fararstjórum Heimsferða.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Flug fimmtudaga og mánudaga í mars og apríl
Vorið í
Prag
Ævintýri Heimsferða til Prag
frá kr. 24.770*
Verð kr. 29.970
Flug og hótel í 3 nætur, m.v. 2 í
herbergi á Quality Hotel, 4. mars,
með 8.000 kr. afslætti.
Verð kr. 24.770
Flugsæti til Prag, 4. mars, með
8.000 kr. afslætti ef bókað fyrir
15. janúar. *Aðeins 300 sæti í boði.
8.000 kr. afsláttur
Ef þú bókar í ferð frá mánudegi til
fimmtudags fyrir 15. janúar, getur
þú tryggt þér 8.000 kr. afslátt.
Kynnisferðir með
fararstjórum Heimsferða
Gamli bærinn
Kastalaferð
Karlsbad
Grensáskirkja Barnakór Grens-
áskirkju heldur tónleika kl. 16. Flutt
verða jólalög og sálmar frá ýmsum
tímum. Gestakór á tónleikunum
verður Kór Snælandsskóla í Kópa-
vogi. Kórarnir munu syngja sitt í
hvoru lagi og flytja saman nokkur
lög. Undirleikarar eru Ástríður Har-
aldsdóttir píanóleikari og Guðrún
Birgisdóttir flautuleikari. Stjórnandi
er Heiðrún Hákonardóttir.
Neskirkja Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna heldur jólatónleika kl.
17. Á efnisskránni er píanókonsert
nr. 1 eftir Beethoven. Einleikari á pí-
anó er Jón Sigurðsson. Þá verður
flutt 8. sinfónía Schuberts, sú sem
gjarnan er nefnd „hin ófullgerða“.
Að lokum er almennur söngur og
verða sungin nokkur jólalög.
Einsöng syngja Fífa Jónsdóttir,
Árný Ingvarsdóttir, Dóra Steinunn
Ármannsdóttir og Regína Unnur
Ólafsdóttir. Stjórnandi er Ingvar
Jónasson.
Næsti bar við Ingólfsstræti Skáld-
kvennakvöld hið fyrra hefst kl.
21.Þar lesa úr nýjum bókum sínum
Rakel Pálsdóttir, Kristín Marja
Baldursdóttir, Steinunn Jóhann-
esdóttir, Oddný Sen og Valgerður
Benediktsdóttir. Kynning og umsjón
Hjalti Rögnvaldsson og Aristóteles.
Ráðhús Reykjavíkur Harmoniku-
tónleikar verða kl. 15. Fram koma
nemendur frá Harmonikumiðstöð-
inni, Karl Jónatansson, Jóna Ein-
arsdóttir, Reynir Jónasson, Karl
Adolfsson og félagar, Matthías Kor-
máksson, Margrét Arnardóttir og
félagar frá Harmonikuunnendum á
Suðurnesjum. Kynnir er er Ingi
Karlsson.
Selfosskirkja Aðventutónleikar
verða kl. 16 og 20. Á fyrri tónleik-
unum koma fram Unglingakór Sel-
fosskirkju, Barnakór Sólvallaskóla,
Yngri banakór Selfosskirkju, Eldri
barnakór Selfosskirkju, Samkór Sel-
foss og félagar úr Strengjasveit Tón-
listarskóla Árnessýslu.
Á seinni tónleikunum koma fram
Lúðrasveit Selfoss, félagar úr
Strengjasveit Tónlistarskóla Árnes-
sýslu, Hörpukórinn, Kór Fjölbrauta-
skóla Suðurlands.
Digraneskirkja Jólatónleikar Sam-
kórs Kópavogs og Kvennakórs
Garðabæjar eru kl. 17.
Álafoss-föt bezt, Mosfellsbæ Ein-
ar Már Guðmundsson, Hallgrímur
Helgason og Súsanna Svavarsdóttir
lesa úr nýjum bókum sínum kl. 20.
Seltjarnarneskirkja Tónleikar með
yfirskriftinni Næturljóð hefjast kl.
20. Flytjendur eru Gerður Bolladótt-
ir sópransöngkona, Berglind María
Tómasdóttir flautuleikari og Júl-
íanna Rún Indriðadóttir píanóleik-
ari. Flutt verða verk eftir frönsk og
íslensk tónskáld, sem flest öll fjalla á
einhvern hátt um nóttina og næt-
urstemmingu. Seinni hluti tón-
leikanna er helgaður jólatónlist eftir
samtíðarmennina Frank Martin og
Pál Ísólfsson.
MÍR, Vatnssíg 10 Hlýja handa
þinna (Teplo tvoikh rúk) nefnist
kvikmyndin sem sýnd verður í bíó-
salnum kl. 15. Myndin var gerð árið
1972 í Kákasuslýðveldinu Georgíu og
voru leikstjórar Sjota og Nodar
Mamagadze. Í aðalhlutverki er leik-
konan Sofiko Tsiaureli. Enskur texti
er með myndinni. Aðgangur er
ókeypis.
Perlan Kóramót barna og unglinga
verður haldið kl. 13 og stendur til kl.
14.30.
Bústaðakirkja Kór Átthagafélags
Strandamanna heldur aðventu-
tónleika kl. 16.30. Kórarnir flytja
hefðbundin jólalög úr ýmsum áttum.
Einsöngvari er Pétur Pétursson,
kenndur við Álftagerði. Stjórnandi
er Þóra Vigdís Guðmundsdóttir.
Einn kórfélaganna, Ragnar Torfa-
son, hefur æft barnakór sem einnig
kemur fram á tónleikunum.
Safnaðarheimili Áskirkju Jóla-
kaffitónleikar Árnesingakórsins í
Reykjavík verða kl. 15. M.a. verður
frumflutt verkið Jólanótt eftir Sig-
urð Bragason. Stjórnandi er Gunnar
Benediktsson og undirleikari er
Bjarni Jónatansson.
Dómkirkjan Dómkórinn syngur kl.
20 á aðventukvöldi sem kiw-
anismenn og konur gangast fyrir.
Háteigskirkja Skagfirska söng-
sveitin, Kirkjukór Bústaðakirkju og
einsöngvarar syngja á aðventuhátíð
Líknar og vináttufélaginu Bergmál
kl. 16.
Verslun Sævars Karls, Banka-
stræti 4klassískar kynna nýja
geislaplötu sína frá kl. 14-17.
Norræna húsið Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra les sögu fyrir
börnin í kl. 13 í tengslum við Æv-
intýrasýninguna Köttur úti í mýri.
Leikfélag Kópavogs Aukasýning
verður á leikritinu „Hinn eini
sanni“ eftir Tom Stoppard, kl. 20 í
Hjáleigunni í Félagsheimili Kópa-
vogs.
Hveragerðiskirkja Söngsveit
Hveragerðis heldur tónleika kl. 17.
Innlend og erlend jólalög, einsöngur,
tvísöngur, kór úr Grunnskólanum í
Hveragerði syngur nokkur lög. Und-
irleikari Ester Ólafsdóttir. Bás-
únuleikari Ian Wilkinson. Stjórnandi
er Margrét S. Stefánsdóttir.
Mánudagur
Hlaðvarpinn Bókaupplestrarkvöl
verður kl. 20.30 og er það síðasta
bókakvöldið fyrir jól. Þær sem lesa
eru Steinunn Sigurðardóttir, Jökla-
leikhúsið; Erla D. Halldórsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og Hildur Her-
móðsdóttir, Heilsubók konunnar;
Inga Lára Baldvinsdóttir, Ljós-
myndarar á Íslandi 1845-1945;
Oddný Sen, Medúsan og Sigrún
Árnadóttir, Hann var kallaður
„Þetta“. Að loknum upplestri gestum
gefst tækifæri til að spyrja höfunda
og þýðendur spurninga.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvals-
staðir Tríó Hafdísar ásamt söng-
konunni Caroline Skriver hafa
spunnið tónlist um tékknesku gler-
listarsýninguna sem nú stendur yfir í
safninu og verður hún flutt kl. 15.45
að lokinni leiðsögn um sýninguna
sem hefst kl. 15.
Tríóið skipa Hafdís Bjarnadóttir
gítar, Ragnar Emilsson gítar, Grím-
ur Helgason klarinett.
Í DAG
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna heldur jólatónleika í Neskirkju.
MÉR þykir Svona stór! alveg frá-
bær bók fyrir yngstu lesendurna, og
börn á aldrinum 1-3 ára ættu að geta
haft mjög gaman af henni. Í þessari
litlu bók koma fyrir ótrúlega margir
áhugaverðir hlutir fyrir þessa litlu
heimspekinga sem eru að læra á lífið.
Aðalhetjan er hún Tóta sem er
alltaf kölluð Tóta litla, en er samt
SVONA stór! Hún lendir í því óláni
að týna bangsanum sínum, og geng-
ur því á milli manna til að leita að
þessu uppáhaldsleikfangi.
Öll börn geta
skilið vel þær til-
finningar sem
felast í því að
týna bangsa sín-
um og ættu auð-
veldlega að fá
áhuga á sögunni
og lifa sig inn í
þegar Tóta verð-
ur leið og græt-
ur, reið og stapp-
ar niður fætinum, glöð og fer að
hlæja. Það er mjög sniðug hugmynd
hjá Þóru að láta börnin taka þátt í
sögunni með því að láta þau endur-
taka það sem gerist á hverri blað-
síðu, t.d. hvernig geispar þú. Einn
lítill vinur minn var smá feiminn að
vera með í fyrsta sinn sem ég las
bókina fyrir hann, en ekki í annað,
hvað þá í það þriðja eða fjórða. Rosa
stuð!
Tóta hittir dýr á leiðinni, sem er
voða gaman, krakka sem leika sér í
skemmtilegum leikjum og líka
mömmu og pabba. Að lokum finnur
hún bangsa sjálf því hún er svo dug-
leg. Já, það gerist margt á fáum
blaðsíðum.
Teikningar Margrétar E. Laxness
eru skemmtilegar, sætar og skýrar.
Þær eru litríkar með sterkum litum,
sem er mikill kostur, og á hverri
blaðsíðu er nýr bakgrunnslitur, svo
einnig má nota bókina til að kenna
litina, eins og þegar mamma og
pabbi verða orðin leið á að lesa sög-
una í hundraðasta skipti.
BÆKUR
Smábarnabók
Eftir Þóru Másdóttur. Teikningar eftir
Margréti E. Laxness. Mál og menning
2001. 20 bls.
SVONA STÓR!
Hildur Loftsdóttir
Þóra
Másdóttir
Margþætt smábarnabók