Morgunblaðið - 09.12.2001, Síða 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2001 45
GIMLI GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, ÞÓRSGÖTU 26, FAX 552 0421, SÍMI 552 5099
BRAGAGATA 31B - EINB. Í ÞINGHOLTUNUM
OPIÐ HÚS
Nýtt á skrá í hjarta Þingholtanna
mikið endurnýjað einbýli á einni
hæð ásamt nýbyggðu 20 fm stúdíói
sem er teiknað af Eon-arkitektum
og nýtt sem vinnu-aðstaða í dag.
Húsið sjálft er skráð 70,5 fm hjá
Fasteignamati ríkisins en sam-
kvæmt mælingu á staðnum er það
80 fm. Húsið er mjög vel skipulagt
og snyrtilegt að innan, parket á öllu
rýminu nema á forstofu og baðherbergi en þar er gólfið flísalagt. Húsinu hefur
verið vel viðhaldið síðustu ár, m.a. búið að endurnýja rafmagn, skólp, gera
við sprungur og mála innan sem utan, plan hellulagt með hita undir, nýlegir
gluggar og fleira. Spennandi eign á afar eftirsóttum stað. Verð 14,2 millj. Áhv.
6,1 millj. Eigendur taka vel á móti ykkur í dag frá kl. 14-17. Ath. að húsið
stendur við Válastíg og ekið/gengið niður frá Freyjugötu.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Vandað 318 fm tvílyft einbýlishús auk 26 fm bílskúrs. Á neðri hæð er
anddyri, 2 herbergi, skáli, baðherbergi, geymsla og innb. bílskúr auk 2ja
herb. íbúðar, með sérinngangi, einnig er innangengt úr íbúð í stærri
hluta hússins. Á efri hæð eru skáli, eldhús með góðri borðaðstöðu,
þvottaherbergi, stórar saml. stofur, 3 herbergi og baðherbergi. Þrennar
svalir. Mikil lofthæð, m.a. í stofum, skála og eldhúsi. Fallegur ræktaður
garður með trjám og runnum. Nuddpottur á lóð umlukinn skjólveggjum.
Hellulagt terrasse. Hiti í stéttum. Frábær staðsetning. Allar nánari
upplýsingar á skrifstofu.
Seljugerði – vandað einbýli m/aukaíbúð
Einbýlishús - Mosfellsbæ
Fallegt 276 fm einbýlishús
með bílskúr, við Leirutanga 2
í Mosfellsbæ. 5 svefnherbergi,
fallegur garður með timbur-
verönd og heitum potti.
Verð 22,9 m. Áhv. 9,9 m.
Ekkert greiðslumat.
Þverholti 2 270 Mosfellsbæ Sími 586 8080 Fax 586 8081 www.fastmos.is
OPIÐ HÚS - Ásta og Atli bjóða
ykkur velkomin í dag á milli
kl. 14-17, uppl. í síma 565 9072
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Bæjargil - Garðabæ. endaraðh.
Nýkomið í einkasölu glæsi-
legt pallabyggt endaraðhús
auk góðs bílskúrs, samtals
220 fm. 4 svefnherbergi.
Stofa og borðstofa, sólskáli
o.fl. Glæsilegur garður,
verönd, nuddpottur o.fl.
Frábær staðs. Fullbúin eign
í sérflokki. Myndir á netinu.
Áhv. Byggingasj. ríkisins ca
5,6 millj. Verð 23,4 millj.
Til sölu 416 fm glæsilegt steinsteypt verslunar-, þjónustu- og skrifstofu-
húsnæði við Fiskislóð. Húsnæðið skiptist í 240,5 fm jarðhæð og 176,4 fm
skrifstofur á 2. hæð. Hægt að nýta húsnæðið sem 3 einingar. Seljandi vill
leigja húsnæðið til 8 ára og greiða í leigu 1% af söluverði á mánuði. Verð
37 millj.
FJÁRFESTAR – LEIGUSAMNINGUR
Suðurlandsbraut 54,
við Faxafen, 108 Reykjavík, sími 568 2444, fax 568 2446
ÁSBYRGI
KVENNADEILD Reykjavík-
urdeildar Rauða kross Íslands var
stofnuð 12. desember 1966 og er því
35 ára núna. Ragnheiður Guð-
mundsdóttir augnlæknir átti hug-
myndina að stofnun deildarinnar,
en Ragnheiður hafði kynnst sjálf-
boðastörfum kvenna í Rauðakross-
starfi í Bandaríkjunum og Bret-
landi, og vissi að mikil þörf var
fyrir slíka starfsemi hérlendis.
Frá upphafi hefur meginmark-
mið deildarinnar verið að bæta líð-
an sjúkra og aldraðra og stuðla að
bættri læknisþjónustu við almenn-
ing með kaupum á fullkomnum
tækjum til rannsókna og aðgerða.
Í tilefni 35 ára afmælisins gaf
kvennadeildin allan húsbúnað í níu
sjúkrastofur á líknardeild öldr-
unardeildar Háskólasjúkrahúss
Landakoti, en deildin var formlega
opnuð 26. október sl. Andvirði gjaf-
arinnar er þrjár milljónir króna.
Einnig styrkti kvennadeildin fyrr á
þessu ári félagið „Einstök börn“
með framlagi að upphæð einni
milljón króna.
Kvennadeildin rekur sölubúðir á
fjórum sjúkrastofnunum í Reykja-
vík. Þar starfa sjálfboðaliðar og
vegna þessa endurgjaldslausa
vinnuframlags er nokkur hagnaður
af sölubúðunum og honum ver
Kvennadeildin til kaupa á ýmsum
lækninga- og rannsóknartækjum
og til stuðnings öðrum líkn-
arfélögum.
Sjálfboðaliðar kvennadeild-
arinnar sjá einnig um sjúklinga-
bókasöfn sjúkrahúsanna, fara viku-
lega á deildir þeirra og lána
sjúklingum bækur. Einnig er starf-
rækt heimsóknarþjónusta, en hún
hefur það markmið að rjúfa ein-
angrun sjúkra og aldraðra í heima-
húsum.
Föndur og kökubasar er árlega,
og þar eru seldir handunnir munir
sem kvennadeildarkonur útbúa og
fyrir ágóðann af basarnum eru
keyptar bækur fyrir bókasöfnin.
Í dag starfa um 270 sjálfboðaliðar
innan kvennadeildarinnar, segir í
frétt frá Kvennadeild Reykjavík-
urdeildar Rauða kross Íslands.
Kvenna-
deild RKÍ
35 ára
Pálmi V. Jónsson forstöðulæknir, Guðlaug Þórsdóttir læknir, Bryndís
Gestsdóttir deildarstjóri og Hulda Ó. Perry, formaður kvennadeildar
RKÍ, við afhendingu á húsbúnaði sem gefinn var líknardeild öldrunar-
deildar Landakots – Háskólasjúkrahúss.
LITBRÁ hefur gefið út 8 kort eftir
listakonuna Þorbjörgu Höskulds-
dóttur. Kortin eru gerð eftir olíu-
og akrílmyndum Þorbjargar.
Einnig er komið út kort af mál-
verki eftir Jóhannes Kjarval, sem
heitir Móðurást, það er málað 1950
og er í eigu Listasafns Reykajvíkur.
Þetta er 19. kortið sem Litbrá gefur
út eftir Kjarval. Kortin eru –til sölu
í flestum bóka-, blóma-, og gjafa-
vöruverslunum, segir í frétta-
tilkynningu.
Lista-
verkakort
LJÓSMYNDASAMKEPPNI
stendur yfir á vefsíðunni www.ljos-
myndari.is sem allir geta tekið þátt
í. Hver einstaklingur getur sent inn
allt að 3 myndir í tölvupósti. Hægt
er að senda inn myndir til 23. des-
ember, en á milli jóla og nýárs fer
fram kosning á netinu um bestu
myndirnar. Úrslit munu svo liggja
fyrir strax á nýju ári.
Þrjár stigahæstu myndirnar
verða verðlaunaðar. Í verðlaun eru
ljósmyndabækurnar „Land“ og
„1881 km“ eftir Pál Stefánsson,
sem Iceland Review gefur út og
ljósmyndabókin „Land birtunnar““
með myndum eftir Hauk Snorra-
son, sem Snerruútgáfan gefur út.
Allar nánari upplýsingar um fyr-
irkomulag keppninnar er svo að
finna á vefsíðunni www.ljosmynd-
ari.is
Ljósmynda-
samkeppni