Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ „VIÐ höfðum látið okkur dreyma um þann möguleika að ég fengi að taka þátt í að taka á móti barninu á Landspítalanum en fengum að vita að ljósmæðurnar leyfðu það ekki,“ segir Ólafur Ingi Grettisson slökkviliðsmaður, sem nú er skráð- ur sem ljósmóðir í fæðingarskýrslu sonar síns, sem fæddist í sjúkrabíl á Hafnarfjarðarveginum á laugar- daginn. Kona hans, Ingunn Þóra Hallsdóttir, ól þá annað barn þeirra hjóna, 15 marka strák, sem er 53,5 cm og heilsast móður og barni vel. Ólafur tók á móti syni sínum, sem lá svo á í heiminn að hann var fæddur áður en félagi Ólafs, sem var við stýrið á sjúkrabílnum, náði að stöðva hann við Nesti í Kópavogi. „Við áttum von á barninu á sunnudaginn en á laugardags- morgun fannst okkur vera farið að líða að fæðingu. Síðdegis á laug- ardaginn var ljóst að stutt var í fæð- inguna og ég hringdi í félaga mína í slökkviliðinu og fékk þá til að koma á sjúkrabíl.“ Ekki aftur snúið þegar höfuðið var komið í ljós Ólafur var með tilbúinn ýmsan sjúkrahússfarangur í einkabíl þeirra hjóna og bað því annan fé- laga sinn að aka honum á sjúkra- húsið en var sjálfur í sjúkrabílnum hjá konu sinni. „Ég ætlaði ekki að trúa því þegar konan mín sagði að barnið væri að koma í heiminn, enda vorum við rétt komin út úr hverfinu hér í Garðabæ á leið á spít- alann. Þegar ég fór að kanna málið var höfuð barnsins komið í ljós og þá varð ekki aftur snúið. Við vorum bara tvö aftur í auk ökumanns sjúkrabílsins. Ég sagði honum að barnið væri að koma í heiminn og þá leitaði hann að stað til að stoppa, en á meðan við ókum frá Arnar- neshæð að Kópavogsbrú fæddist barnið og gekk fæðingin mjög vel.“ Haldið var síðan áfram á sjúkra- húsið þar sem fylgjan fæddist og fæðingin þar með að fullu yfirstað- in. Ólafur hefur neyðarbílspróf og hefur því hlotið þjálfun í fæðing- arhjálp, en í náminu var þó notast við dúkkur í verklega hlutanum. Hann segir að sig hefði ekki grunað að þessi hluti námsins myndi nýtast í fyrsta skipti við fæðingu sonar síns á fullri ferð í sjúkrabíl. „Þetta var ógleymanleg stund. Ég hef sjaldan orðið eins stressaður í sjúkrabíl en það kom mér á óvart hvað handtökin úr náminu rifjuðust vel upp fyrir manni þegar á hólm- inn var komið. Þegar allt var yfir- staðið fékk ég vægt áfall og skalf á beinunum.“ Ólafur fékk góða umsögn fyrir frammistöðu sína hjá lækni sem kom á móti þeim á neyðarbíl. Drengurinn nýfæddi er ónefndur en fyrir eiga þau hjónin soninn Axel Inga, 5 ára. Slökkviliðsmaður tók á móti eigin barni í sjúkrabíl á leið á fæðingardeildina Morgunblaðið/Júlíus Ólafur Ingi Grettisson og Ingunn Þóra Hallsdóttir með sonum sínum, þeim Axel Inga, 5 ára, og litla bróður hans sem fæddist í sjúkrabílnum. „Þetta var ógleymanleg stund“ HALLDÓR Halldórsson, bæjar- stjóri á Ísafirði, segir tillögu rík- isstjórnarinnar að byggðaáætlun, sem kynnt var um helgina, að miklu leyti upptalningu á verk- efnum sem þegar eru fyrir hendi. Hann segir vanta í áætlunina að tilgreina sérstök svæðisbundin verkefni til uppbyggingar á lands- byggðinni. Halldór segir margt gagnrýni- vert við áætlunina. „Það er svo margt sem er tíundað þarna sem er hvort sem er í gangi, s.s. sí- menntunarmiðstöðvar og annað slíkt, en mér finnst að byggðaáætl- un eigi að tilgreina einhver ákveð- in verkefni til þess að fólki fækki ekki meira á landsvæðum á borð við Austfirði og Vestfirði.“ Hann segir að það eina sem komi skýrt fram í áætluninni sé að Akureyri eigi að vera mótvægi við höfuðborgarsvæðið. „Þar er búið að tiltaka þá tvo staði á landinu þar sem staðan er hvað best. Ann- ars vegar höfuðborgarsvæðið og svo Akureyri, þar sem staðan er best á landsbyggðinni.“ Að mati Halldórs eru önnur landsvæði en Eyjarfjarðarsvæðið útundan í áætluninni. „Ég fagna þessari áherslu á Akureyri og er ánægður með hana en mér finnst að menn hefðu átt að segja að þeir vildu sjá fleiri byggðarkjarna. Byggðanefndin sem Samband ís- lenskra sveitarfélaga skipaði og skilaði af sér í fyrra nefndi þrjá byggðarkjarna sem voru Ísafjörð- ur, Akureyri og þriðji staðurinn á Austfjörðum.“ „Hægt að snúa hlutunum við“ Hann bendir á að Ísafjörður er annar stærsti staðurinn úti á landi og því hefði verið mikilvægt að skilgreina hann sem byggðar- kjarna í uppbyggingu. „Fólkið sem býr hér á þessum svæðum les þessa byggðaáætlun þar sem stendur að ekki sé ráðlegt að reikna með að fólki fjölgi á Vest- fjörðum. Þetta er það sem Alþingi og ríkisstjórnin eru að segja við okkur. Hvaða skilaboð eru þetta? Við vitum það að fólki hefur ekki fjölgað hér undanfarin ár en við vitum líka að víða erlendis hefur verið hægt að snúa hlutunum við. Og við viljum að Alþingi segi við okkur að það sé vilji okkar að snúa því við. Fólk á allt sitt undir hérna, húsin sín, atvinnufyrirtækin og annað. Það vill búa hér áfram og vill finna fyrir því að það sé með í þessu þjóðfélagi og ríkis- stjórnin sé ekki að skilja það eft- ir.“ Halldór segir ranghugmynda gæta í umræðunni um peninga í byggðamálum. „Þegar verið er að tala um hvort réttlætanlegt sé að halda uppi byggð er ég ekki alltaf viss um að fólk viti hvað um er að ræða því byggðirnar reka sig sjálf- ar. Það þarf að leggja þangað vegi og það fé kemur úr sameiginlegum sjóðum landsmanna, en að öðru leyti reka sveitarfélögin sig.“ Milljarðar í þróunarstarfsemi á höfuðborgarsvæðinu Hann segir að á sama tíma og lagður er milljarður í atvinnuþró- unarmál á landsbyggðinni á fjór- um árum fari margir milljarðar í þróunarstarfsemi á höfuðborgar- svæðinu. Tónninn sé annar þegar verið er að leggja pening í at- vinnuþróunarmál í Reykjavík og þessar andstæður séu of miklar. Vantar ákveðin verkefni og fleiri byggðarkjarna Bæjarstjóri Ísafjarðar gagnrýnir nýja byggðaáætlun ríkisstjórnarinnar og telur svæðisbundin verkefni skorta ÞEIM brá í brún, próf- arkalesurum á Morg- unblaðinu, þegar starfs- menn Egils Skalla- grímssonar fylltu herbergi þeirra í gær með 640 flöskum af Egils Kristal á einu bretti en starfsmenn deildarinnar höfðu aðeins búist við að fá sendar 80 flöskur eftir að hafa tekið þátt í lukku- leik sem í boði var á vef- svæðinu femin.is. Einn prófarkalesaranna tók þátt í leiknum fyrir hönd deildarinnar og vann 80 flöskur af Egils Kristal og átti að fá þær sendar á vinnustað. Fyrir misskiln- ing voru hins vegar send- ar 640 flöskur sem gerðu að verkum að vinnuaðstaða prófarkalesara varð líkari vörugeymslu en skrifstofu. Þegar haft var samband við gosverksmiðjuna kom misskiln- ingurinn í ljós og ætluðu starfs- menn að sækja þær umfram- flöskur sem eftir voru. Starfsfólk Morgunblaðsins hafði svalað þorstanum á nokkrum flöskum áður en mistökin voru uppgötvuð. Prófarkalesararnir Helga Magnúsdóttir og Árni Hallgrímsson við hluta vatns- birgðanna sem þeim bárust í gær. Morgunblaðið/Sverrir. Fengu 640 flöskur í stað 80 MEÐ samruna þeirra sveitar- félaga sem átt hefur sér stað að undanförnu er ljóst að við sveitastjórnarkosningarnar í maþi n.k. mun sveitarfélögum á Íslandi fækka um að minnsta kosti 13, eða úr 122 í 109. Enn frekari fækkun gæti átt sér stað þar sem þrjár at- kvæðagreiðslur um samein- ingu fara fram í næsta mán- uði. Fimmta fjölmennasta sveitarfélag Suðurlands Síðustu sveitarfélögin til að ákveða sameiningu voru Þing- vallahreppur, Laugardals- hreppur og Biskupstungna- hreppur. Þá varð til fimmta fjölmennasta sveitarfélagið á Suðurlandi og jafnframt eitt hið víðfeðmasta hér á landi, að því er fram kemur í nýrri frétt sem birtist á fréttavef Sambands íslenskra sveitarfé- laga. Aðrar nýlegar sameiningar sem nefndar eru á vefnum eru hjá Gnjúpverjahreppi og Skeiðahreppi á Suðurlandi, í A-Húnavatnssýslu annars vegar hjá Vindhælishreppi og Skagahreppi og hins vegar Engihlíðarhreppi og Blöndu- ósbæ, hjá Hálshreppi, Ljósa- vatnshreppi, Bárðdælahreppi og Reykdælahreppi í S-Þing- eyjarsýslu og loks hjá A-Eyja- fjallahreppi, V-Eyjafjalla- hreppi, A-Landeyjahreppi, V-Landeyjahreppi, Fljótshlíð- arhreppi og Hvolhreppi í Rangárvallasýslu. Sveitar- félögum fækkar um 13 hið minnsta Sveitarstjórnar- kosningarnar næsta vor
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.