Morgunblaðið - 08.03.2002, Page 20

Morgunblaðið - 08.03.2002, Page 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 20 FÖSTUDAGUR 8. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ MARGT bendir til þess að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi kveðið upp úrskurð um húsleit Samkeppnisstofnunar hjá olíufélög- unum í desember á síðasta ári á röngum for- sendum, að sögn Benedikts Jóhannessonar, formanns stjórnar Skeljungs hf. Hann sagði á aðalfundi félagsins í gær að í ljós hafi komið, með því að lesa úrskurð héraðsdóms, að Samkeppnisstofnun hafi í veigamiklum atriðum mistúlkað málefni olíufélagnna. Þá sagði hann að Verslunarráð Íslands hafi vakið athygli viðskiptaráðhera á meintum lögbrotum sem fólust í framkvæmd Sam- keppnisstofnunar við húsleitina en ráðherra hafi vísað málinu frá og bent mönnum á dómstólaleiðina. Því verði sú leið farin. Innrás ríkisins í einkalíf manna er hafin Stór hluti af ræðu Benedikts á aðalfundi Skeljungs í gær, undir dagskrárliðnum skýrsla stjórnar fyrir árið 2001, fór í að ræða húsleit Samkeppnisstofnunar hjá olíu- félögunum. Ástæðu þess sagði hann meðal annars vera þá að það sé öllu viðskiptalífinu nauðsynlegt að axarsköft af því tagi, sem hann sagði að Samkeppnisstofnun hafi gert í tengslum við húsleitina hjá olíufélögunum, verði ekki hluti af venjubundnu starfi stofn- unarinnar. Benedikt sagði að ábyrgð dómara, sem samþykkir heimildir til húsleitar, sé mikil, þótt hann hljóti að gera slíkt í góðri trú um að gögn sem fram eru lögð séu ekki villandi og að heimildum verði ekki misbeitt. Nú sé stofnun ríkisins farin að ráðast inn í fyr- irtæki. „Ætlum við að bíða þangað til ríkið fer að ráðast inn á heimilin í skjóli einhliða dómsúrskurðar,“ spurði Benedikt. Hann sagði að innrás ríkisins í einkalíf manna væri þegar hafin þar sem Samkeppnisstofn- un hafi afritað tölvupóst, persónulegan jafnt sem þann sem viðkom vinnunni í framhaldi af húsleitinni hjá olíufélögunum í desember. Þingnefnd sagt rangt til Benedikt hélt því fram í ræðu sinni að mjög margt í vinnubrögðum Samkeppnis- stofnunar í tengslum við húsleit stofnunar- innar hjá olíufélögunum kalli á svör. Í því sambandi nefndi hann meðal annars að í greinargerðum um málið frá Verslunarráði og Samtökum atvinnulífsins, sem hafi farið hörðum orðum um aðfarir Samkeppnisstofn- unar, komi fram að þingnefnd hafi verið sagt rangt til um ákvæði í samkeppnislögum erlendis. Hann spurði hver bæri ábyrgð á því. Hann sagði að mörgum spurningum um aðferðir Samkeppnisstofnunar væri ósvarað. Svo margt virðist vera að vinnuaðferðum stofnunarinnar að það kunni að kalla á sjálf- stæða rannsókn á henni. Þá væri mjög al- varlegt að stofnun sem hefur jafnmikil völd og Samkeppnisstofnun skuli ekki heyra und- ir stjórn sem beri ábyrgð á gerðum hennar og geti tekið í taumana þegar stofnunin mis- stígur sig. Um efnisatriði húsleitarinnar sagðist Benedikt verða fáorður. Rétt væri þó að upplýsa að stjórn Skeljungs hafi verið það mæta vel ljóst að félögin reki saman bens- ínstöðvar á nokkrum stöðum á landinu. Yfir því sé engin leynd og þær stöðvar kirfilega merktar. Jafnframt sé stjórninni vel ljóst að félögin eigi nokkur fyrirtæki sameiginlega og hafi gert lengi, m.a. Úthafsolíu hf., sem hefur selt olíu á miðunum. „Þetta kemur jafnframt fram í ársskýrslum félaganna fyr- ir þá sem lesa kunna,“ sagði Benedikt. Þá sagði hann að Skeljungur hafi árum saman gagnrýnt það fyrirkomulag og reynt að fá því hnekkt, að starfsmenn olíufélag- anna komi saman ásamt forstjóra Sam- keppnisstofnunar á fundum í Flutningsjöfn- unarsjóði og ræði verð. Mesta markaðshlutdeild annað árið í röð Í umfjöllun um olíumarkaðinn á Íslandi sagði Benedikt að 5% samdráttur hafi orðið í heildarsölu á bensíni og olíuvörum á árinu 2001. Í byrjun maí hafi keppinautar Skelj- ungs hækkað verð á eldsneyti vegna geng- isbreytinga en félagið hafi ákveðið að bíða átekta. Í kjölfarið hafi brostið á verðstríð. Markaðurinn hafi hins vegar leitað jafn- vægis eftir nokkra daga. Hann sagði að heildarsala Skeljungs á ol- íuvörum hafi aukist um tæplega 1% á árinu 2001 frá fyrra ári. Aukningin skýrist fyrst og fremst af meiri sölu á svartolíu. Mark- aðshlutdeild félagsins á íslenska olíumark- aðnum hafi aukist úr liðlega 37% árið 2000 í tæplega 40% á síðasta ári. Skeljungur hafi verið með mesta markaðshlutdeild olíufélag- anna í seldu eldsneytismagni annað árið í röð. Benedikt sagði um horfur á olíumarkaði að vísbendingar væru um að samdráttur í flugsamgöngum verði ekki eins mikill og spáð hafi verið fljótlega eftir árásirnar á Bandaríkin 11. september í fyrra. Þá sé lík- legt að olíuverð verði í jafnvægi á næstu mánuðum. Gunnar Scheving aftur í stjórn Gunnar Scheving Thorsteinsson, fyrrver- andi stjórnarmaður í Skeljungi, sem fór úr stjórninni á síðasta aðalfundi félagsins, var aftur kosinn í stjórnina á fundinum í gær. Hallgrímur Gunnarsson vék úr stjórninni en hann var kjörinn í hana í stað Gunnars á síðasta aðalfundi. Aðrir stjórnarmenn voru endurkjörnir, en þeir eru auk Benedikts og Gunnars þeir Hörður Sigurgestsson, Har- aldur Sturlaugsson og Gunnar Þór Ólafsson. Skeljungur ætlar að láta reyna á lögmæti húsleitar Samkeppnisstofnunar fyrir dómstólum Úrskurður hér- aðsdóms á röng- um forsendum Benedikt Jóhannesson, formaður stjórnar Skeljungs hf., fór hörðum orðum um hús- leit Samkeppnisstofnunar hjá olíufélögun- um í desember síðastliðnum á aðalfundi fé- lagsins í gær. Innheimtuþjónusta AM Kredit Býður fjármögnun vanskilakrafna Í VIÐSKIPTABLAÐI Morgun- blaðsins í gær var umfjöllun um þær breytingar sem hafa verið að eiga sér stað á allra síðustu árum á því hvernig stofnanir, fyrirtæki og aðrir standa að innheimtumálum. Breytingarnar fela það í sér að sér- hæfð innheimtufyrirtæki hafa tekið við verkefnum innheimtudeilda fjár- málafyrirtækja og sjá um allt inn- heimtuferlið, frá útsendingu greiðsluseðla til löginnheimtu. Í umfjölluninni kom fram að eftir því sem næst verði komist séu nú hér á landi fimm sérhæfð innheimtuþjón- ustufyrirtæki, sem skilgreind eru á þann hátt, og sem ekki sinna öðrum verkefnum. AM Kredit ehf. vantaði í þessa umfjöllun þannig að fyrir- tækin eru a.m.k. sex. AM Kredit var stofnað á árinu 2001, eins og fjögur hinna fimm fyrirtækjanna sem starfrækt eru á þessu sviði, og eru í eigu lögmannsstofunnar AM Praxis sem á rætur að rekja til árs- ins 1941. Jónas Jónatansson, fram- kvæmdastjóri AM Kredit, segir að fyrirtækið annist allt innheimtuferl- ið frá útsendingu greiðsluseðla til vanskilainnheimtu og löginnheimtu. Lögð sé mikil áhersla á að nýta upplýsingatæknina til að veita við- skiptavinum sem besta og hag- kvæmasta þjónustu. Að sögn Jónasar býður AM Kredit viðskiptavinum sínum einnig upp á þá nýjung að fjármagna van- skilakröfur. Kröfuhafar eiga kost á því að fá tiltekinn hluta krafna, sem eru í innheimtumeðferð hjá AM Kredit, greiddan út strax að upp- fylltum ákveðnum skilyrðum og þurfa ekki að bíða eftir að innheimt- an beri árangur. Hann segir að með samstarfi við greiðsluþjónustufyrirtækið Midt Factoring á Íslandi, sem er dótt- urfyrirtæki Midt Factoring í Dan- mörku, standi viðskiptavinum AM Kredit til boða mun víðtækari þjón- usta en ella. Megi þar nefna fjár- mögnun viðskiptakrafna, mat á fjár- hagslegum styrk og greiðslugetu innlendra og erlendra greiðenda, greiðslu- og gengistryggingar, um- sýslu viðskiptamannabókhalds og betri og öruggari þjónustu við inn- heimtu milli landa. Jónas segir að hjá AM Kredit starfi nú 15 manns og að fyrirtækið hafi vaxið hratt á því rúma ári sem það hefur verið starfrækt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.