Morgunblaðið - 14.03.2002, Síða 60
DAGBÓK
60 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Goðafoss kemur og fer
í dag. Bjarni Sæ-
mundsson, Mánafoss
og Atlas koma í dag.
Arnarfell fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss fór í gær.
Pólar, Siglir og Rán
komu í gær, Ocean
Tiger fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl 9
vinnustofa, kl 10
boccia, kl 13 vinnu-
stofa, myndmennt og
bað. Á morgun syngur
Kór eldri borgara í
kaffitímanum. Farið
verður í Borgarleik-
húsið laugard. 16.
mars, að sjá Boðorðin
níu. Ath. sýningin hefst
kl. 17. Rútuferð frá
Aflagranda 40 kl. 16.15.
Aðstoð við skattafram-
tal verður veitt
fimmtud. 21 mars.
Skráning í afgreiðslu,
s. 562-2571.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan, bók-
band og öskjugerð, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13–16.30 op-
in smíðastofan. Allar
upplýsingar í s.
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 böðun, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–17
fótaaðgerð, kl. 13 gler-
list. Félagsvist á morg-
un kl. 13.30.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið í
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga á föstu-
dögum kl. 11. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í
Mosfellsbæ í Hlað-
hömrum fimmtudaga
kl. 17–19.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9–12
aðstoð við böðun, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan
opin, kl. 9–13 handa-
vinnustofan opin, kl.
9.30 danskennsla, kl.
14.30 söngstund.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
9 fótaaðgerð, kl. 10
hársnyrting, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna. Kl. 15
bingó.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Fimmtud. 14.
mars félagsvist á Álfta-
nesi kl. 19.30 á vegum
Kvenfélags Bessastaða-
hr., 21. mars félagsvist
á Garðaholti kl. 19. 30
á vegum Kvenfélags
Garðabæjar. Fimmtud.
14. mars kl. 9 vinnu-
stofa, gler, kl. 12.15
spænska, kl. 13 postu-
línsmálun, kl. 14 málun
og keramik.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir í Ásgarði
„Í lífsins ólgusjó“ og
„Fugl í Búri“, miðviku-
og föstud. kl. 14 og
sunnud. kl. 16. Miða-
pantanir í s: 588-2111,
568-8092 og 551-2203.
Fimmtud: Brids kl. 13.
Framsögn kl. 16.15.
Brids fyrir byrjendur
kl. 19.30. Heilsa og
hamingja, fyrirlestrar
laugardaginn 16. mars
nk. kl. 13.30 í Ásgarði.
Framtalsaðstoð frá
Skattstofu Reykjavíkur
þriðjud. 19. mars á
skrifstofu félagsins,
panta þarf tíma í síma
588-2111 fyrir hádegi.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Bingó spilað
í Gullsmára 13 á morg-
un, föstudag, kl. 14.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli
, Flatahrauni 3. Pútt í
Bæjarútgerð kl 10–
11.30, opið hús í boði
Sjálfstæðisfél. í Hafn-
arfirði kl. 14. Á morg-
un, föstudag, myndlist
og brids kl. 13.30.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 9–13
hárgreiðsla, kl. 9–16
böðun, kl. 10 leikfimi,
kl. 15.15 dans. Opið
alla sunnudaga frá kl.
14–16 blöðin og kaffi.
Ath. sunnudagana 17.,
24. og 31. mars er lok-
að.
Félagsstarfið, Furu-
gerði. Kl. 9 aðstoð við
böðun, smíðar og út-
skurður, leirmunagerð
og glerskurðarnám-
skeið, enn eru laus
pláss á glerskurðar-
námskeiðið, kl. 9. 45.
verslunarferð í Aust-
urver kl. 13.30 boccia.
Á morgun föstudag
verður messa kl. 14,
Furugerðiskórinn
syngur. Félagsstarfið
er opið fyrir alla ald-
urshópa.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug
kl. 9.30, Helgistund kl.
10.30. Frá hád. vinnu-
stofur og spilasalur op-
inn. Aðstoð við skatt-
framtal verður veitt
miðvikud. 20. mars,
skráning hafin.
Fimmtud. 21. mars
verður félagsvist í sam-
starfi við Hólabrekku-
skóla.Veitingar í veit-
ingabúð. Upplýsingar
um starfsemina á
staðnum og í síma 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9 handavinna, kl.
9.05 og kl. 9.50 leik-
fimi, kl. 9.30 klippi-
myndir, kl. 15 ramma-
vefnaður, kl. 13 gler og
postulín, kl. 16.20 og
kl. 17.15 kínversk leik-
fimi, kl. 17 myndlist.
Handverksmarkaður
verður fimmtud. 14.
mars kl. 14–16.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 böðun og bútasaum-
ur, kl. 10 boccia, kl. 13
handavinna, kl. 14 fé-
lagsvist. Fótaaðgerð,
hársnyrting.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og kl. 10 jóga,
kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 13 brids og glerlist,
kl. 13–16 handavinnu-
stofan opin, leiðbein-
andi á staðnum, kl. 17
línudans.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, búta-
saumur, kortagerð og
perlusaumur, kl. 9.45
boccia, kl. 11 leikfimi,
kl. 14 félagsvist. Á
morgun kl. 14 verður
spilað Bingó. Starfs-
maður frá Lyf & heilsu
verður með kynningu á
lyfjaskömmtum.
Norðurbrún 1. Kl. 9
tréskurður og opin
vinnustofa, kl. 10–11
ganga, kl. 10–15 leir-
munanámskeið. Fé-
lagsstarfið er opið öll-
um aldurshópum.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 10 boccia, kl. 13–14
leikfimi, kl. 13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Kl. 9 smíði
og hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, fatasaum-
urog morgunstund, kl.
10 fótaaðgerðir og
boccia, kl. 13 hand-
mennt og frjálst spil,
kl. 14. leikfimi. Laus
pláss eru í fatasaum,
körfugerð og búta-
saumsnámskeið. Spiluð
verður vist í kvöld kl.
20.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Sjálfsbjörg, félags-
heimilið, Hátúni 12. Kl.
19 tafl.
Sjálfboðamiðstöð
Rauða krossins, Hverf-
isgötu 105. Kl. 13–16
prjónað fyrir hjálpar-
þurfi erlendis. Efni á
staðnum. Allir vel-
komnir.
Kívanis-klúbburinn
Geysir, Mosfellsbæ, fé-
lagsvist spiluð í Kív-
anishúsinu í Mos-
fellsbæ í kvöld kl.
20.30.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Ásgarði,
Glæsibæ.
Lífeyrisþegadeild Sfr.
Skemmtifundur verður
laugardaginn 26. mars
kl. 14 í félagsmiðstöð-
inni, Grettisgötu 89, 4.
hæð. Þátttaka tilkynn-
ist á skrifstofu Sfr., s.
525-8340.
Spurningakeppni átt-
hagafélaga hefst í
Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, kl. 20.
Snæfellingar eru meðal
keppenda í kvöld. Snæ-
fellingar og aðrir vel-
unnarar eru hvattir til
að mæta.
Íslenska bútasaums-
félagið. Félagsfundur í
kvöld kl. 20 í safnaðar-
heimili Háteigskirkju.
Töskukvöld & 20x20
köflótt og röndótt. Ný-
ir félagar velkomnir.
Í dag er fimmtudagur 14. mars, 73.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Eins og ritað er: „Sá, sem hrósar
sér, hrósi sér í Drottni.“
(I. Kor. 1, 31.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 fávís, 4 gleðjast yfir, 7
mjúkir, 8 dökk, 9 rödd, 11
fæða, 13 flanar, 14 á fiski,
15 sorg, 17 grotta, 20
bókstafur, 22 tölum, 23
bleytukrap, 24 langloka,
25 fundvísa.
LÓÐRÉTT:
1 stygg, 2 kvenmenn, 3
líffæri, 4 viljugt, 5 mjó, 6
virðir, 10 skrökvuðum, 12
sár, 13 óhljóð, 15 klettur,
16 leiktækjum, 18 úr-
komu, 19 kaka, 20 æpa,
21 tjón
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 reffilegt, 8 lækur, 9 kamar, 10 net, 11 strit, 13
arinn, 15 stöng, 18 safna, 21 rót, 22 launi, 23 akarn, 24
handlanga.
Lóðrétt: 2 eykur, 3 fornt, 4 lykta, 4 gemsi, 6 flas, 7 grín,
12 inn, 14 róa, 15 sæla, 16 önuga, 17 grind, 18 staka, 19
flagg, 20 asni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI fór um síðustu helgiút í búð til að kaupa í matinn.
Sonur Víkverja kom þar auga á
morgunkorn sem heitir „Kellogg’s
Frosties“ sem hann vildi endilega
kaupa. Ástæðan fyrir þessu var sú að
með pakkanum fylgdi tölvuleikur.
Þegar heim kom settist drengur-
inn fyrir framan tölvuna með nýja
tölvuleikinn. Í ljós kom að leikurinn
sem fylgdi hét „Desperados – Want-
ed Dead or Alive“ (Desperados –
dauður eða lifandi). Leikurinn gekk
út á að kúreki mætir í bæ þar sem
hann lendir fljótlega í miklum bar-
daga. Sá sem spilar leikinn á að
reyna að drepa sem flesta og þegar
hann hefur drepið einhvern verður
hann að taka líkið og fela það svo
„vondu karlarnir“ átti sig ekki á að
„hetjan“ er mætt á svæðið. Með
markvissum vinnubrögðum og
skipulögðum manndrápum getur sá
sem spilar þennan skemmtilega leik
„unnið“.
Víkverja finnst alveg makalaust
að reynt skuli að lokka börn til að
kaupa morgunkorn með manndráp-
um, þó að um leik sé að ræða. Þess
ber að geta að á pakkanum er tekið
fram að þessi leikur er bannaður
börnum innan ellefu ára, en því átt-
aði Víkverji sig ekki á fyrr en heim
var komið. Víkverji er að velta fyrir
sér hvort hann eigi að fylgja þessum
leiðbeiningum og banna drengnum
að spila hann aftur fyrr en eftir eitt
og hálft ár þegar hann hefur náð til-
skildum aldri.
x x x
PÉTUR H. Blöndal alþingismað-ur kemur oft með athyglisverð
sjónarmið í ræðustól á Alþingi. Í um-
ræðum um jafnréttismál, sem fram
fóru á alþjóðlegum baráttudegi
kvenna, sagði Pétur að það væri ekki
nóg að berjast fyrir launajafnrétti og
jöfnum tækifærum kvenna á vinnu-
markaði, sem hann sagði að væru
góð markmið sem bæri að vinna að,
það þyrfti líka að vinna að jafnrétti
inni á heimilunum. „Er drengjum
kennt að skúra og þrífa klósett?“
spurði Pétur.
Víkverji er innilega sammála
Pétri. Karlar þurfa að taka þátt í
heimilisverkum til jafns við konur og
það gerist ekki nema að börnum sé
innrætt að það sé sjálfsagt mál að
bæði drengir og stúlkur taki þátt í
heimilisverkum. Það vill svo til að
um svipað leyti og Pétur lét þessi orð
falla fór fram umræða á heimili Vík-
verja um heimilisverk. Eiginkona
Víkverja spurði son sinn hvert hann
teldi að væri eðlilegt vinnuframlag
hans á heimilinu. Drengurinn leit á
móður sína og skildi greinilega ekki
hvað hún var að tala um. „Við pabbi
þinn vinnum fyrir peningum svo að
við getum keypt mat og ég og pabbi
þinn vöskum upp, þvoum þvott og
skúrum gólf. Okkur finnst að þú eig-
ir líka að vinna eitthvað á heimilinu.
Hvað finnst þér að þú eigir að gera?“
Drengurinn, sem er skynsamur og
vel af guði gerður, leit hugsandi á
móður sína og sagði loks: „Ég skal
sjá um að horfa á sjónvarpið!“ Móðir
hans sagði að það eitt og sér væri
ekki nóg; hann yrði að leggja eitt-
hvað meira á sig. Drengurinn hugs-
aði sig enn lengur um og sagði að
lokum: „Allt í lagi, ég skal sjá um að
þrífa litla klósettið.“ Og við það stóð
hann. Þegar faðir hans kom heim úr
vinnunni blasti við skínandi hreint
klósett. Nú er bara að sjá hvort þessi
dugnaður drengsins endist eitthvað.
Góð reynsla
af birkiösku
FYRIR nokkrum árum var
ég orðinn mjög mikill sjúk-
lingur. Lifrin var illa farin,
sökkið var allt of hátt og
lungun full af vatni. Ég
þurfti að fá aðstoð heimilis-
hjálpar eftir erfiða sjúkra-
húsdvöl. Það var ekki sjón
að sjá mig með sokkin augu
og mikinn bjúg. Heimilis-
hjálpin, yndisleg kona,
benti mér á það væri reyn-
andi að taka inn birkiösku.
Fór ég að ráðum hennar og
útvegaði mér birkiöskuna.
Í framhaldi af því fór ég öll
að hjarna við og í dag þarf
ég ekki á heimilishjálp að
halda.
Síðastliðið sumar fór ég í
frí í Ölfusborgir og var
markmiðið að njóta hvíldar
og hlaða batteríin. Þegar
ég og sambýlismaður minn
vorum komin austur hellt-
ist yfir mig gigt svo ég var
viðþolslaus af verkjum.
Hafði ég gleymt að taka
með mér birkiöskuna sem
ég tek að staðaldri. Ég hélt
því til Selfoss til þess að
kaupa verkjalyf til þess að
slá á verkina. Er ég kom í
apótekið sá ég að þeir höfðu
birkiösku til sölu. Í stað
þess að kaupa verkjalyf
greip ég glas af birkiösk-
unni. Askan sló á gigtar-
kastið og ég gat notið dval-
arinnar í Ölfusborgum eins
og ætlunin var í upphafi.
Ástæða þess að ég skrifa
þessa sögu er sú að mig
langar að miðla af reynslu
minni til annarra gigtar-
sjúklinga. Sjálf hef ég
þjáðst af psoriasis-liðagigt í
mörg ár auk þess sem ég er
með þvagsýrugigt, liðagigt
og slitgigt. Ef ég tek birki-
öskuna líður mér betur og
ég þarf ekki að kvarta. Ým-
islegt sem hrjáði mig áður
hefur einnig lagast, blóð-
þrýstingurinn er í jafnvægi
en hann var rokkandi áður
og helst til hár. Alltaf annað
slagið var ég með blöðru-
bólgu en hún heyrir nú sög-
unni til sem betur fer. Rist-
illinn hefur oft angrað mig
en er nú ótrúlega hreinn
sagði læknirinn eftir síð-
ustu ristilspeglun. Spurði
hann mig hvort ég borðaði
óvenjumikið grænmeti en
svo er ekki.
Þegar líkaminn er í jafn-
vægi sefur maður betur og
er orkumeiri. Ég þakka það
birkiöskunni og hafa marg-
ir þakkað mér fyrir að
segja sér frá henni. Því
finnst mér brýnt að fleiri fái
að vita af birkiöskunni.
María E Jónsdóttir,
Hjallabraut 4, Hf.
Þakkir fyrir
veitta aðstoð
11. FEBRÚAR sl. datt ég í
hálku á horni Bankastrætis
og Lækjargötu og brotnaði.
Þar komu að nokkrir menn
mér til hjálpar og kölluðu á
sjúkrabifreið. Vil ég senda
þeim öllum, og sérstaklega
Herberti Marinóssyni,
mínar bestu þakkir fyrir
aðstoðina. Ég er komin
heim af spítalanum og
fannst mér verst að vita
ekki nöfn allra til að senda
þeim þakklæti mitt.
Bella Sigurjónsson.
Þakka fyrir grein
ÉG vil koma á framfæri
þakklæti fyrir grein um
innflytjendur og trúmál
sem Albert Jensen skrifaði
í Bréfi til blaðsins laugar-
daginn 9. mars. Þessi grein
var eins og töluð út úr mínu
hjarta. Veit ég um marga
sem taka heilshugar undir
hans viðhorf.
Vil ég hvetja fleiri til að
láta í sér heyra um þessi
mál.
Kristbjörg.
Hvar fæst fólk í vinnu?
ÉG vil koma á framfæri
spurningu til Sjálfstæðis-
flokksins vegna kosninga-
loforða þeirra um aukningu
á leikskólaplássum hvernig
þeir ætli að fá fólk til að
vinna á þessum leikskólum
sem reisa á þegar hverja
einustu helgi er óskað eftir
starfsfólki á þessa staði og
ekkert fólk fæst.
Leikskólaleiðbeinandi.
Tapað/fundið
GSM-sími týndist
NOKIA 3310 GSM-sími
týndist sl. föstudag 8. mars
v/ Menntaskólann í Hamra-
hlíð á leið í strætóskýlið kl.
17–17:30. Síminn er dökk-
blár í svartri tösku. Skilvís
finnandi er vinamlega beð-
inn að hafa samband í síma
557-4275.
GSM-sími
í óskilum
GSM-sími er í óskilum.
Hann fannst í miðbænum.
Uppl. í síma 552 1509.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÉG fór fyrir stuttu að
versla fyrir fermingu í
verslun systranna í
Karmelklaustrinu í
Hafnarfirði. Varð ég
undrandi að koma þarna
og sjá hvað fékkst í þess-
ari verslun. Þarna eru
fallega skreyttar sálma-
bækur, gestabækur,
kerti og margt annarra
fallegra muna. Á þessum
stað er góður andi og líð-
ur manni vel í sálinni að
koma þarna inn. Vil ég
benda fólki á að þangað
er frábært að koma.
Hafliði Helgason.
Staður með góðan anda