Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 C 33HeimiliFasteignir STEINÁS GARÐABÆ Glæsilegt nýtt 174 fm einbýlishús auk 42,4 fm bílskúrs alls 216,4 fm á einni hæð. Húsið er í smíðum og ekki fullbúið en íbúðarhæft. 4 góð svefnherbergi öll með fataskápum, borðstofa, stofa, glæsilegt fullfrágengið flísalagt baðherbergi. Stór bílskúr með flísalagt gólf. tilv. 4127-14 SELÁS - FRÁBÆRT ÚTSÝNI Glæsilegt nýtt framúrstefnuhús 183 fm á tveimur hæðum auk 49,3 fm tvöfalds bíl- skúrs. Innréttingar eru allar sérsmíðaðar mjög nýtískulegar og vandaðar. Gólfefni eru náttúruflísar og gegnheilt parket. Mikil lofthæð á efri hæð, stórar svalir. Útsýni er frábært yfir Elliðaárdalinn. Áhv. 8,5 millj. Verð 35 millj. tilv. 30600-1 SÉRHÆÐIR RAUÐALÆKUR - SÉRHÆÐ M. BÍLSKÚR Mjög skemmtileg 129,3 fm efri sérhæð í fallegu þríbýlishúsi. Tvær samliggjandi stofur, 2 stór svefnherbergi, stórt eldhús, baðherb. með glugga, stórt hol. Möguleiki á nýtingu á hluta í risi. Bílskúr 28 fm. Laus strax. Verð 16,3 millj. tilv. 31911-1 4RA - 5 HERB. BARÐASTAÐIR - LYFTUHÚS Mjög góð fullfrágengin vönduð ný 119 fm íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi, 3 góð her- bergi og stór stofa, þvottahús innan íbúð- ar. Verð 14,3 áhv. ca 8,3 tilv. 30022-1 DÚFNAHÓLAR - LYFTA Góð 4ra herb. 103 fm íbúð á 6. hæð í góðu lyftu- húsi með frábæru útsýni yfir Reykjavíkur- borg. Yfirbyggðar svalir og hús klætt að utan. Áhv. 4,7 millj. Verð 11,9 millj. tilv. 31435-1 ENGJASEL - MEÐ BÍLSKÝLI 4ra-5 herb mjög góð íbúð á 1. hæð ásamt stæði í lokuðu bílskýli. Stór stofa, góðar innréttingar, parket. Tengi f. þvottavél og þurrkarar á baði. Húsið klætt. Verðlauna- lóð . Verð 12,9 millj. tilv 27303-1 SÓLHEIMAR-ÚTSÝNI Einstaklega góð 123,4 fm 5 herb. endaí- búð á 8. hæð í Sólheimum í mjög góðu lyftuhúsi, auk 24,6 fm bílskúrs. Samliggj- andi skiptanlegar stofur með parketi. Þrjú svefnherbergi. Eldhús með endurn. innr. Suðursvalir. Mjög góð sameign. Frábært útsýni. tilv. 30375-1 3 HERBERGJA HRÍSATEIGUR - TVÆR ÍBÚÐIR - BÍLSK. Tvær góðar 3ja herbergja íbúðir í þessu húsi auk bílskúrs. Íbúðirnar eru 68 og 69 fm og geta selst sitt í hvoru lagi eða húsið allt og bílskúrinn. Íbúðin á jarðhæð er öll nýstandsett. Stór lóð. Laust fljótlega. Allar frekari uppl. á skrifstofu. tilv. 28809-1 VESTURBERG - ÚTSÝNI 3ja her- bergja 86 fm íbúð á efstu hæð í mjög góðu fjölbýli. Parket á allri íbúðinni, góðar innréttingar, stórar vestursvalir. Frábært útsýni. tilv.31214-1 HJALLABRAUT HAFNARFIRÐI Mjög góð 94,2 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð í nýviðgerðu fjölbýli. Stór stofa, tvö góð svefnherbergi, stórt eldhús, gott baðher- bergi og þvottaherbergi í íbúð. Parket. Verð 10,9 millj. tilv.29624-1 Í SMÍÐUM SÚLUHÖFÐI - PARHÚS Glæsi- legt parhús 152,5 fm auk 37,2 fm bílskúrs alls 189,7 fm, allt á einni hæð. Húsið af- hendist fullbúið að utan en fokhelt að inn- an. 3 svefnherbergi, vinnuherbergi og björt stofa. Afhendist strax. verð 14,8 millj. 4127-6 ATVINNUHÚSNÆÐI BÆJARFLÖT - LAUST FLJÓT- LEGA 100 fm mjög glæsilegt iðnaðar- húsnæði með mikilli lofthæð og stórum innkeyrsludyrum, auk um 30 fm millilofts. Allt frágengið, malbikuð bílastæði. Laust fljótlega. Verð 10,9 millj. tilv. 29094-1 TIL LEIGU ELDSHÖFÐI - MIKIL LOFT- HÆÐ Til leigu u.þ.b. 330 fm mjög gott iðnaðar- eða lagerhúsnæði með stórum innkeyrslu- dyrum og lofthæð um 9 m. Möguleiki á að setja milliloft að hluta eða allt. Stór malbik- uð lóð. Laust 1.4.02. tilv 18247-3 ELDSHÖFÐI - 165 FM Til leigu u.þ.b. 165 fm iðn.húsn. á jarðhæð. Stórar innkeyrsludyr og hátt til lofts. Húsnæðið er einn stór salur, í enda er wc og kaffistofa. Gott plan fyrir utan. Tilv.18247-4 HLÍÐARSMÁRI 19 - VIÐ SMÁRALIND Til leigu 400 fm mjög bjart og gott verslun- arhúsnæði á jarðhæð í sama húsi og Sparisjóður Kópavogs. Húsnæðið leigist í einingum frá um 100 fm. Mikið auglýsinga- gildi. Til afhendingar strax. tilv. 15599-2 VIÐARHÖFÐI Mjög gott iðnaðarhúsnæði með stórum innkeyrsludyrum. Húsnæðið skiptist í u.þ.b. 230 fm sal og u.þ.b. 100 fm vandað skrifstofuhúnæði. tilv.31216-1 STÆRRI EIGNIR HRYGGJASEL - 2 ÍBÚÐIR Mjög vandað 272 fm einbýlishús, kjallari og tvær hæðir, auk 54,6 fm tvöfalds bíl- skúrs. Í kjallara er mjög góð 2ja herbergja íbúð auk geymslurýmis. Á 1. hæð eru meðal annars stórt eldhús, stórar stofur og sjónvarpsherbergi. Á 2. hæð eru 4 góð svefnherbergi og baðherbergi. Tvöfaldur stór bílskúr. Verð 26,0 millj. tilv.31428-1 NAUSTABRYGGJA - RAÐHÚS Þrjú ný raðhús á þessum sérstaka stað al- veg við sjóinn. Hús u.þ.b. 230 fm og bíl- skúrar 36-40 fm. Húsin afhendast fullfrá- gengin að utan. en tilbúin til innréttinga að innan. tilv. 16017-1 BRÚNASTAÐIR - RAÐHÚS Mjög vel skipulagt 131 fm raðhús á einni hæð, þar af er 21,5 fm bílskúr. Í húsinu er m.a. 3 góð svefnherb., sjónvarpshol, stór stofa, gott eldhús með sprautulakkaðri innréttingu og borðkrók. Húsið er nær full- búið. Verð 17,5 millj. tilv.31220-1 Suðurlandsbraut 54 - við Faxafen - 108 Reykjavík Sími 568 2444 - Fax 568 2446 INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali. ÞÓRÐUR JÓNSSON SÖLUM., SJÖFN ÓLAFSDÓTTIR SKJALAGERÐ, MARÍA ÞÓRARINSDÓTTIR. BARÐASTAÐIR - RAÐHÚS GLÆSILEGT, FOKHELT, STEINSTEYPT RAÐHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM M. TVÖFÖLDUM INNBYGGÐUM BÍLSKÚR, ALLS 225,6 FM. Húsið afhendist fullfrá- gengið að utan, en í fokh. ástandi að innan, steinað að utan með kvarsi. 4 stór svefnherbergi, stofa og borðstofa með frábæru útsýni. Verð frá 15,5 millj. Tilv.-19808-15 FROSTAFOLD - BÍLSKÚR - ÚTSÝNI Falleg 6 herb. 158 fm íbúð á tveimur hæðum í mjög góðu 6 íbúða húsi, ásamt 25 fm bílskúr. 4 góð svefnherb. möguleiki á 5. Góð stofa, stórt sjónvarpshol, þvottaherb. og baðherbergi. Gríðastórar suðursvalir, Frábært útsýni. Verð 17,9 millj. Tilv.-30483-1 asbyrgi@asbyrgi.is www.asbyrgi.is MYNDIR á veggjum og fjöl- skyldumyndir setja gjarnan mikinn svip á heimili fólks og þær eru líka mikilvægar á veggjum fyrirtækja og stofnana. Innrömmun Sigurjóns Fákafeni 11 hefur rammað inn myndir af ýmsu tagi sl. 25 ár. „Við keyptum fyrirtækið fyrir sex árum og þá var það komið hingað inn í Fákafen, en það var starfrækt áður á ýmsum stöðum á liðnum ár- um,“ segir Ragnheiður Torfadóttir sem er annar eigenda að Inn- römmun Sigurjóns. Hinn er maður hennar Sigurður Kristinn Finnsson. En höfðu þau unnið við inn- römmun áður en þau slógu til og keyptu þessa starfsemi? „Nei, en maðurinn minn er hús- gagnasmiður og hafði unnið mörg ár við smíði í Þjóðleikhúsinu,“ svar- ar Ragnheiður. Gamlir kjólar og gallabuxur rammaðar inn Er mikið að gera í innrömmun mynda? „Já, hér eru reyndar ekki bara rammaðar inn myndir, allt mögulegt sem tengist ungbörnum er rammað inn hér, svo sem skór, skírnarkjólar, gamlir kjólar eða fallegar gallabuxur eða eitthvað sem tengist minn- ingum um börn. Við vorum að auka starfsemina um síðustu áramót og opnuðum þá sal þar sem við höfum á veggjum málverk sem við seljum. Þessi málverk eru eftir ýmsa listamenn. Svo erum við tekin til við að flytja inn platta til að hafa á veggjum eftir kanadískan lista- mann, Sid Dickens, þeir eru úr tré og steyptir í gips. Plastaðar myndir endast betur en hinar Í hverju er mest að gera hjá ykk- ur? „Það er innrömmun. Við erum með margskonar lista til sölu utan um myndir, bæði fyrir málverk og alls kyns listaverk, teikningar og fjölskyldumyndir. Við gerum einnig mikið af því að líma upp ljósmyndir á „foam“, sem er mjúkt efni en samt nægilegt hart fyrir myndir. Límt er í vacumpressu og kostur er að það er hægt að plasta yfir mynd- irnar. Myndir verða fyrir út- fjólubláum geislum sem gerir þær forgengilegri, plastaðar myndir endast betur.“ „Hvaða listaefni eru vinsælust? „Gylltir listar eru alltaf vinsæl- astir og algengastir, bæði utan um myndir og spegla, en við seljum spegla hér af ýmsum stærðum og gerðum – allt eftir óskum við- skiptavinarins.“ Hvernig myndir er mest komið með í innrömmun? „Mest er komið með listaverk af ýmsu tagi. Í flestum tilvikum eru sérstakir rammar notaðir fyrir olíu- málverk, dýpri en fyrir aðrar mynd- ir. “ Hvernig gler er best að nota? „Tveggja millimetra gler er mest notað, við eru bæði með venjulegt gler og matt gler en það venjulega er vinsælla. Við römmum einnig inn óskaplega mikið af útsaumuðum myndum. Bæði í ramma og á blind- ramma.“ Hvað er blindrammi? „Það er rammi sem efnið er strekkt utan um. Slíkir rammar eru mikið notaðir bæði til að strekkja á olíumálverk og útsaum.“ Ramma inn myndir, útsaum og minjagripi Morgunblaðið/Kristinn Innrömmun Sigurjóns býður m.a. upp á spegla eins og hver vill hafa þá. Ragnheiður Torfadóttir Hjá Innrömmun má fá málverk eftir yngri sem eldri listmálara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.