Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 33 DJASSHÁTÍÐIN Dagar lita tóna og tóna verður nú haldin í 11. skipti í Akogeshúsinu um hvítasunnuhelgina á vegum Listvinafélags Vestmanna- eyja. Hátíðin hefst að vanda í kvöld, föstudagskvöld, með opnun málverkasýningar Kristínar Þorkelsdóttur. Á opnuninni koma fram nem- endur Tónlistarskóla Vest- mannaeyja. Sýningin er opin kl. 14-18 en til kl. 22 á sunnu- dagskvöld. Á morgun, laugardag, kl. 16 verða stórsveitartónleikar í sal Listaskóla Vestmannaeyja. Þar leikur Stórsveit Tónskóla Suðurnesja undir stjórn Kar- enar Sturlaugsson. Sveitin mun einnig taka þátt í djass- tónleikum á laugardags- og sunnudagskvöld. Þungamiðja djasstón- leikanna í Akoges verður að þessu sinni borin uppi af kvartett Kára Árnasonar trommuleikara en með honum leika Sigurður Flosason alto- sax, Ómar Guðjónsson gítar og Þorgrímur Jónsson kontra- bassi. Fyrra kvöldið verða leikin lög eftir Wayne Shorter og seinna kvöldið verða fluttir hefðbundnir djassstandardar. Þá halda þeir Gunnar Gunnarsson orgelleikari og Sigurður Flosason tónleika á vegum Listvinafélagsins í Landakirkju á hvítasunnudag kl. 16 en Gunnar tekur einnig þátt í djassveislunni í Akoges. Þá verða gestir hátíðarinn- ar Sveiflukvartett Baldurs Geirssonar saxafónleikara. Auk hans skipa bandið Gunn- ar Pálsson bassi, Þorsteinn Eiríksson trommari og Svavar Sölvason píanó. Eitt margra tryggðartrölla Daga lita og tóna er Ómar Axelsson. Með honum leikur trommuleikarinn Þorsteinn Eiríksson (Steini Krupa) Leif- ur Kristinsson á bassa og Hans Kraag á saxafón. Óli Stolzenwald bassaleikari og Ragnheiður Gröndal eru einn- ig gestir hátíðarinnar. Með þeim koma fram Eyjamaður- inn Birkir Matthíasson, Karl Petersen á trommur og Kjart- an Valdemarsson á píanó. Dagar lita og tóna í Eyjum MEXÍKÓSKA framleiðslan Amores Perros, sem frumsýnd verður í dag, var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin árið 2001, en myndin hefur verið valin besta myndin á fjölmörgum kvik- myndahátíðum vítt og breitt um heiminn. Handritshöfundur er Guill- ermo Arriaga, en leikstjórinn Alej- andro González Inárritu, sem fædd- ur er árið 1963, hefur gert tvær aðrar myndir, 21 Gramos og Powd- er Keg. Myndin byrjar á skæðu bílslysi þar sem allar helstu persónur koma fram. Hinsvegar hefur myndin að geyma þrjár smásögur, sem samein- ast í eina heildarsögu í lokin þegar bílslysið verður. Fyrsta sagan fjallar um Octavio, ungan og fremur óheppinn mann, sem er ástsjúkur út í konu bróður síns. Honum fer hins- vegar að vegna betur í lífinu og græðir á tá og fingri þegar hann fer út í hundaat. Bróðirinn Ramiro er aftur á móti mikill hrotti, sem á lítið gott skilið. Önnur sagan fjallar um ritstjórann Daniel, sem skilur við konu sína svo hann geti búið með sýningardömunni og ofurfyrirsæt- unni Valeria. Þriðja sagan fjallar um fyrrverandi glæpamann, El Chivo, sem gerist launmorðingi. Hann heillast af ungri stúlku og fær síðan það verkefni að drepa vellauðugan kaupsýslumann, en morðið á eftir að draga dilk á eftir sér. Líf allra þess- ara persóna tvinnast svo saman í blóðugum endalokum myndarinnar. Þrjár sögur í einni mynd Sambíóin frumsýna Amores Perros með Emilio Echevarría, Gael García Bernal, Goya Toledo, Álvaro Guerrero, Vanessa Bauche og Jorge Salinas. Emilio Echevarría í kvikmyndinni Amores Perros. Nýja myndin er byggð á skáldsög- unni Heart of Darkness eftir Joseph Conrad, en sögusviðið er Víetnam- stríðið. Höfuðsmaðurinn Willard, sem misst hefur trúna á lífið, fær það verkefni að hafa uppi á og handtaka Kurtz ofursta sem háir persónulegt stríð í skógum Kambódíu. Svo virðist sem hann hafi misst tökin á tilverunni og þykir bæði stórhættulegur og geð- veikur í meira lagi þar sem hann lítur á sjálfan sig sem Guð þjóðflokks í frumskógum Kambódíu. Í stuttu máli fjallar myndin um ferðalag Willards, sem leikinn er af Martin Sheen, og manna hans og lokauppgjörið við ofursta Kurtz, sem leikinn er af Marl- on Brando. Margir telja að myndin falli undir eina af mögnuðustu stríðsádeilum, sem gerðar hafa verið á hvíta tjaldinu, þar sem hún sýni í reynd á miskunn- arlausan jafnt sem persónulegan hátt þær afleiðingar, sem stríðsrekstur getur haft á þá, sem þátt taka í hon- um. Leikarar: Marlon Brando (On the Water- front, Godfather, Last Tango in Paris); Robert Duvall (John Q, The 6th Day); Martin Sheen (The Papp Project, We the People); Frederic Forrest (The House Next Door, The Spreading Ground); Al- bert Hall (Ali, Beloved); Sam Bottoms (Crime of Passion, The Unsaid); Laur- ence Fishburne (Once in the Life, The Matrix); Dennis Hopper (The Piano Play- er, Unspeakable); Harrison Ford (What Lies Beneath, Six Days Seven Nights). Leikstjóri: Francis Ford Coppola. APOCALYPSE Now: Redux eftir leikstjórann og framleiðandann Francis Ford Coppola er endurgerð upprunalegrar útgáfu frá 1979 og er hún um 50 mínútum lengri en sú fyrri. Coppola þurfti fyrir 23 árum að stytta fyrri mynd sína talsvert til að þóknast framleiðendunum Paramount og United Artists, sem annars hefðu hafnað myndinni. Honum hugnaðist það lítt og hefur því nú bætt um bet- ur. Myndin hefur löngum verið talin til meistaraverka Coppola, sem hefur verið afar athafnasamur á sviði kvik- mynda- og sjónvarpsþáttagerðar á síðustu 40 árum, en sjálfur er hann fæddur í Detroit í apríl árið 1939. Afleiðing- ar stríðs- reksturs Háskólabíó frumsýnir Apocalypse Now: Redux með Marlon Brando, Robert Duvall, Martin Sheen, Frederic Forrest, Albert Hall, Sam Bottoms, Laurence Fishburne, Dennis Hopper og Harrison Ford. Atriði úr kvikmyndinni Apocalypse now. ANNAR hluti Star Wars-vísinda- skáldsögunnar lítur nú dagsins ljós í myndinni Star Wars: Episode II Attack of the Clones eða Árás klón- anna. Margir muna eflaust eftir stjörnustríðsmyndinni Star Wars I sem var ein vinsælasta mynd ársins 1999 á Íslandi með yfir 64 þúsund áhorfendur. Hún er jafnframt fjórða vinsælasta mynd allra tíma á Íslandi síðan farið var að kanna áhorf, en óhætt er að segja að myndina megi í senn flokka bæði sem spennumynd og ævintýramynd. Hún er framleidd af Lucasfilm Ltd. og JAK Product- ions Ltd. Leikstjóri og framleiðandi mynd- arinnar er sem fyrr George Lucas, sem jafnframt er handritshöfundur ásamt Jonathan Hales, og lofa þeir félagar nýjum brellum, nýjum per- sónum og nýjum hættulegum and- stæðingum. Söguþráðurinn er í stuttu máli á þá leið að Anakin Skywalker, sem leik- inn er af Hayden Christensen, er ungur væringjanemi (Jedi) sem þarf að glíma við stöðugt áreiti hinnar dökku hliðar máttarins. Allir vita hvernig sú barátta fór, en enginn veit þó framvindu þeirra mála, sem urðu til þess að væringinn ungi gekk hinu illa á vald og varð hinn hataði Svart- höfði. Senn fá áhorfendur nú að vita allan sannleikann um þau Anakin, Padmi, Obi-Wan og keisaraefnið ill- gjarna Sidious/Palpatin. Leikarar: Ewan McGregor (Black Hawk Down, Moulin Rouge, Anno Domini); Natalie Portman (Zoolander, Anywhere But Here, Where The Heart Is); Hayden Christensen (Life as a House, The Virgin Suicides, Strike!); Ian McDiarmid (Sleepy Hollow, Restoration, Dirty Rotten Scoundrels); Pernilla August (Gossip, Anna, Födselsdagen); Samuel L. Jackson (No Good Dead, Changing Lanes, Un- breakable). Leikstjóri: George Lucas. Árás klónanna hafin Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri, Kringlubíó og Nýja bíó Keflavík frumsýna Star Wars: Episode II Attack of the Clones með Ew- an McGregor, Natalie Portman, Hayden Christensen, Ian McDiarmid, Pernilla August og Samuel L. Jackson. Ewan McGregor, t.v., og Hayden Christensen í kvikmyndinni Star Wars Episode II. KRISTJÁN Þórður Hrafnsson er orðinn þekkt leikskáld. Þrátt fyrir nokkuð hefðbundna nálgun við leik- ritsformið hefur hann sterk höfund- areinkenni. Þetta verk er t.d. afar „kristjánskt“, fáar persónur ræða af- markað umræðuefni – heimspekilegt vandamál nátengt daglegum veru- leika. Sviðsverksstíllinn er ríkjandi og hann ásamt uppröðuðum sætaröð- um fyrir áhorfendur mitt í rúmgóð- um salarkynnum kallaði fram ákveðna framsögn hjá sviðsvönum leikurunum sem er nokkuð frábrugð- in því sem tíðkast við flutning út- varpsleikrita, hvað þá í daglegu lífi. Þetta stutta verk hefur ótrúlega margar hliðar. Ein sú athyglisverð- asta er að verkið fjallar um gjörning frá ýmsum hliðum, án þess að hann sé sýndur. Áhorfendur í Landsbank- anum fengu að sjá myndlistarverk eftir Guðlaug Valgarðsson – mynd af jakkafataklæddum uppa með undir- skriftinni „ert þetta þú?“, var mitt í „rýminu“ sem ætlað var gjörningn- um. Þeir gátu því gert sér betri grein fyrir hvernig gjörningurinn gæti litið út en hlustendur heima í stofu, sem flestir þekkja að vísu til í sal Lands- bankans í Austurstræti. Samt virkar örleikritið jafn vel heima sem heim- an, ímyndunaraflið á létt með að nota þær upplýsingar sem höfundur gefur til að fylla upp í sjónrænar eyður í huganum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem list Guðlaugs Valgarðssonar tengist at- vinnulífi landsmanna. Á öðru ári í skúlptúrsviði myndlistardeildar Listaháskóla Íslands tók hann þátt í námskeiðinu List og atvinnustarf- semi, en í því fólst að hann valdi sér Veðurstofu Íslands sem viðfangsefni og vann svo útiverk sem komið var fyrir við höfuðstöðvar hennar. Það er sérstakt við vinnu hans við þetta ör- leikrit að hann setur sig í fótspor annars myndlistarmanns og vinnur verkið út frá þeim forsendum – þ.e. að á ákveðinn hátt leikur hann per- sónu listakonunnar í verkinu og mynd hans er leikmunur sem er hennar verk í sýningunni. Áhorfend- ur heima við verða svo algerlega að ímynda sér verkið út frá persónunni og þeim texta sem er lagður henni í munn. Þessi stutta sýning var vel æfð og gekk snurðulaust fyrir sig. Vel var skipað í hlutverk, gervi Halldórs Gylfasonar og látæði kannski fulllit- ríkt til að hann væri trúverðugur ungur yfirmaður í banka en hann þarf að sjálfsögðu að mynda ákveðna andstæðu við eldri bankamanninn, sem Guðmundur Ólafsson vandaði vel til og gerði hófstillt skil. María Pálsdóttir var litrík og sennileg í hlutverki myndlistarmannsins og fór aldrei yfir strikið, en þremenning- arnir undir styrkri stjórn Hörpu Arnardóttur uppskáru ríkulegan hlátur áhorfenda. Einn meginkostur þessara níu ör- sýninga virðist verða margbreyti- leikinn. Hinn knappi tími sem höf- undunum er gefinn virðist kalla fram mjög ólíkar hliðar á listamönnunum. Kristján Þórður á skilið að fá rós í hnappagatið fyrir þetta verk því þrátt fyrir að það sé örstutt hefur það til að bera sannfærandi heildar- mynd, dramatíska spennu, skýrt dregnar persónur og bráðfyndin til- svör. Sjónræn heild í ósýnilegu rými Sveinn Haraldsson LEIKLIST Útvarpsleikhúsið og Listahátíð í Reykjavík Höfundar: Kristján Þórður Hrafnsson og Guðlaugur Valgarðsson. Leikstjóri: Harpa Arnardóttir. Hljóðstjórn: Hjörtur Svav- arsson. Tæknimaður: Georg Magnússon. Leikarar: Guðmundur Ólafsson, Halldór Gylfason og María Pálsdóttir. Fimmtu- dagur 16. maí. NORRÆNT SAMSTARF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.