Morgunblaðið - 18.05.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SUMARIÐ hefur aðeins heilsað upp
á Reykvíkinga undanfarna daga og
hafa borgarbúar tekið því fagn-
andi. Þó hefur verið haft á orði að
sumarið væri heldur seint á ferð-
inni og hafa menn spurt hvað valdi.
Slíkar yfirsjónir eru yfirleitt fljótar
að gleymast þegar sólin hitar
kroppinn. Þessir piltar notuðu blíð-
viðrið til hins ýtrasta og öttu kappi
í boltaleik á Austurvelli.
Morgunblaðið/Golli
Afslöppuð
á Austurvelli
ÁSBJÖRN Leví Grétarsson, sem réð
Finnboga Sigurbjörnssyni bana 27.
október sl., var sýknaður í gær af
ákæru um manndráp vegna geðheilsu
sinnar en var gert að sæta ótíma-
bundinni öruggri gæslu á viðeigandi
stofnun.
Ásbjörn Leví var dæmdur til að
greiða móður hins látna tæpar 1,4
milljónir króna í skaðabætur, þar af
milljón vegna miska og 396 þúsund
vegna útfararkostnaðar. Ennfremur
var hann dæmdur til að greiða henni
200 þúsund krónur í bætur fyrir lög-
mannskostnað.
Þar eð ákærði var sýknaður af
manndrápsákæru varð hann ekki
gerður bótaskyldur eftir hinni al-
mennu sakarreglu skaðabótaréttar-
ins. Aftur á móti þótti hann með
verknaðinum hafa leitt yfir sig bóta-
skyldu eftir 8. kapítula mannhelgis-
bálks Jónsbókar frá árinu 1281, „um
óðs manns víg ok hversu með hann
skal fara,“ en í dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur segir að sá bálkur sé enn
í gildi.
Í dómi Héraðsdóms er vitnað til
læknisrannsókna þar sem því var
slegið föstu að Ásbjörn Leví hafi,
vegna geðveiki, verið alls ófær um að
stjórna gerðum sínum þegar hann
varð Finnboga heitnum Sigurbjörns-
syni að bana. Á grundvelli þess bæri,
samkvæmt 15. gr. almennra hegning-
arlaga að sýkna hann af refsikröfu
fyrir manndráp.
Allur annar sakarkostnaður en að
framan greinir, þar með talin 400 þús-
und króna málsvarnarlaun til verj-
anda ákærða, var felldur á ríkissjóð.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Skipaður verjandi
ákærða var Björn L. Bergsson hrl.
Málið sótti Ragnheiður Harðardóttir,
saksóknari hjá ríkissaksóknara.
Sýknaður af
ákæru um
manndráp
kjölfarið. Guðjón átti ekki frum-
kvæði að þessu, þetta var ekki mála-
miðlun og hann var ekki neyddur til
þess að rifta samningnum. Það var
aðeins verið að fylgja eftir því sem
um var samið í upphafi. Við ætlum
ekki að standa í deilum við Guðjón,
og óskum honum alls hins besta í
framtíðinni. Málinu er lokið af okkar
hálfu.“
Gunnar sagði að leitin að eftir-
manni Guðjóns væri þegar hafin.
„Við erum að vinna í þessum máli af
krafti og ætlum að hitta þá sem
koma til greina. Það er ætlun okkar
að funda með þeim í þar næstu viku á
Englandi, en það er ekki víst að það
takist að gera það í einni lotu. Við
stefnum að því,“ sagði Gunnar en
hann vildi ekki staðfesta að Steve
Coppell eða Peter Taylor væru inni í
myndinni nú þegar. „Það á eftir að
koma í ljós og þetta ferli tekur sinn
tíma.“
GUNNAR Þór Gíslason, stjórnar-
formaður Stoke, sagði í gær að nið-
urstaða stjórnarinnar um að ganga
ekki til viðræðna við Guðjón Þórð-
arson knattspyrnustjóra um áfram-
haldandi samstarf yrði kynnt nánar
á fundi með hluthöfum í Stoke Hold-
ing á næstunni.
„Margt af því sem Guðjón Þórð-
arson hefur sagt við fjölmiðla hér á
landi og á Englandi, á leiktíðinni og
eftir að henni lauk formlega í Card-
iff, gaf ekki tilefni til þess að ætla að
grundvöllur hafi verið til farsæls
samstarfs. Við í stjórn Stoke fórum
ítarlega yfir framtíð félagsins, þar
sem við veltum fyrir okkur fleiri
þáttum en knattspyrnustjórastöð-
unni. Það var niðurstaða okkar að
þrátt fyrir að Guðjón næði að koma
liðinu upp um deild væri hagsmun-
um félagsins betur borgið til lengri
tíma litið með öðrum aðila í knatt-
spyrnustjórastöðunni. Það var rauði
þráðurinn sem hafður var að leiðar-
ljósi,“ sagði Gunnar.
„Málinu er lokið
af okkar hálfu“
Hann bætti við að stjórn Stoke
óttaðist ekki að fá stuðningsmenn
liðsins upp á móti sér. „Það gengur
oft mikið á á þessum vígstöðvum,
menn koma og fara, en þegar upp er
staðið stendur félagið alltaf eftir.
Það er það sem stuðningsmennirnir
eru að horfa á – félagið sjálft og
merki þess.“ Gunnar sagði að Guð-
jón Þórðarson hefði ekki alltaf greint
rétt frá ástæðu þess að nýr samn-
ingur var gerður við hann fyrir ári.
„Í upphaflega samningi Guðjóns við
Stoke sem var til fimm ára var
ákvæði þess efnis að tækist liðinu
ekki að komast upp í 1. deild á fyrstu
tveimur árum hans í starfi, yrði
samningnum rift. Það var gert og
nýr eins árs samningur var gerður í
Hagsmunir félagsins
hafðir að leiðarljósi
Stjórn Stoke um brotthvarf Guðjóns Þórðarsonar
Í GÆR slitnaði upp úr samn-
ingaviðræðum Ríkissjónvarps-
ins við Sport Five um beinar út-
sendingar frá landsleikjum
íslenska fótboltalandsliðsins og
bikarkeppni karla í knatt-
spyrnu. Norðurljós gerðu í gær
einkaréttarsamning um beinar
útsendingar frá efstu deild karla
í knattspyrnu, Símadeildina.
Bjarni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins,
segir að meginástæðan fyrir því
að samningaviðræður sigldu í
strand, sé sú að kröfur um
greiðslur hafi verið of háar, um
30–40% hærri en vegna fyrri
samnings. Tæplega 20 milljóna
króna skuld Sjónvarpsins vegna
vanskila Norðurljósa við Sport
Five hafi einnig haft talsverð
áhrif.
Samingaviðræður hafa staðið
yfir í nokkrar vikur en Sjón-
varpið hafði lýst yfir áhuga á
sýningarétti frá landsleikjum,
bikarkeppni og fá að sýna sam-
antekt frá Símadeildinni. Þýska
fyrirtækið Sport Five, áður
UFA, keypti árið 1998 útsend-
ingarréttinn frá íslenskri knatt-
spyrnu, landsleikjum, bikar-
keppni og íslandsmótinu, af
Knattspyrnusambandi Íslands.
Sjónvarpið keypti sýningarrétt-
inn síðan af Sport Five og fram-
seldi hluta hans til Norðurljósa
með öllum réttindum og skyld-
um sem því var samfara, en bar
samt sem áður ábyrgð á
greiðslum Norðurljósa en fyrir-
tækið hefur ekki greitt fyrir
hluta af samningnum. Því hefur
Sport Five krafið Sjónvarpið um
greiðslur.
Verið að vinna
í skuldamálum
Hermann Hermannsson,
framkvæmdastjóri sjónvarps-
sviðs Norðurljósa, segir það rétt
að fyrirtækið eigi eftir að inna af
hendi hluta af greiðslum fyrir
samninginn. Verið væri að vinna
í þessum málum eins og öðrum
skuldamálum Norðurljósa. Skv.
samningnum frá því í gær hafa
Norðurljós einkarétt á beinum
útsendingum frá Símadeild
karla til næstu tveggja ára. Út-
sendingarnar verða á sjónvarps-
stöðinni Sýn, sú fyrsta frá leik
FH og Fylkis á mánudag.
Fótbolta-
sjónvarp
í óvissu
var einnig komið í eigu annarra aðila.
Björn var einn af stofnendum
fyrra fyrirtækisins árið 1986, en það
var stofnað í kringum umsókn til þá-
verandi borgarstjóra, Davíðs Odds-
sonar, um að leigja Laugardalslaug.
Árið 1991 hætti Björn í stjórn fyr-
irtækisins og árið 1996 hættu hinir
stjórnarmennirnir og félagið var selt
öðrum aðilum.
Björn segir að eftir að Laugar ehf.
hafi orðið gjaldþrota hafi nafnið losn-
að. „Ég ákvað því að breyta nafninu á
fyrirtæki mínu, Þrekhúsinu, í Laug-
ar. Ég tengdist ekki rekstri fyrirtæk-
isins sem varð gjaldþrota á neinn
annan hátt en að ég stofnaði það
ásamt nokkrum öðrum mönnum í
kringum umsókn um að leigja Sund-
laugarnar í Laugardal. Ég áttaði mig
ekki einu sinni á því að um sama fyr-
INGA Jóna Þórðardóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn
Reykjavíkur, gerði á fundi í borgar-
stjórn í fyrrinótt að umtalsefni samn-
inga borgarinnar við Laugar ehf.,
fyrirtæki Björns Leifssonar í World
Class, um byggingu heilsuræktar-
stöðvar við Laugardalslaug. Vakti
Inga Jóna athygli á því að Laugar
ehf. hefði orðið gjaldþrota í maí árið
2000 en væri nú orðið til á ný undir
annarri kennitölu og búið að gera
samning við Reykjavíkurborg.
„Sem borgarráðsmaður, sem er í
góðri trú að standa að samþykktum í
borgarráði, kemur mér þetta óþægi-
lega á óvart,“ sagði hún. Hún sagði
mjög mikilvægt að skoða þessi mál
ofan í kjölinn, þar sem við Laugar-
dalslaug væri um að ræða fram-
kvæmdir og fjárfestingar upp á mörg
hundruð milljóna króna. Í umræðum
á borgarstjórnarfundinum kom fram
í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur borgarstjóra að henni hefði
ekki verið kunnugt um þessa mála-
vöxtu og hún gæti því ekki gefið svör
við fyrirspurnum borgarfulltrúans.
Björn ekki tengdur gjaldþroti
fyrirtækis með sama nafni
Morgunblaðið leitaði til Björns
Leifssonar og bar undir hann um-
mæli Ingu Jónu á borgarstjórnar-
fundinum. Hann sagðist ekki hafa
tengst fyrra fyrirtækinu með nafni
Lauga er það varð gjaldþrota.
Samkvæmt gögnum sem Morgun-
blaðið hefur undir höndum var Björn
Kr. Leifsson hættur í stjórn Lauga
ehf., þegar fyrirtækið varð gjald-
þrota fyrir tveimur árum. Fyrirtækið
irtækið hefði verið að ræða,“ segir
hann í samtali við Morgunblaðið.
Aðspurður hvort fyrirtæki með
500 þúsund króna eigið fé sé treyst-
andi fyrir framkvæmd upp á mörg
hundruð milljónir króna segist Björn
vera að vinna að fjármögnun í sam-
vinnu við banka. „Ef bankinn treystir
mínum áætlunum hef ég ekki stórar
áhyggjur,“ segir hann.
Inga Jóna lýsti einnig yfir áhyggj-
um af því að fjárhagsleg ábyrgð
vegna framkvæmdarinnar væri ekki
nægilega vel skilgreind. Björn segist
ekki deila þeim áhyggjum. „Fyrir-
tæki mitt byggir heilsuræktarstöð-
ina, sem kostar samkvæmt áætlun
um 1.250 milljónir króna. Borgin
byggir keppnissundlaugina, sem
kemur til að kosta um það bil millj-
arð.“
Rætt um fyrirtæki Björns Leifssonar á borgarstjórnarfundi
Vill láta skoða samninga
Lauga ehf. við borgina
LÖGREGLUNNI í Keflavík hefur í
þessari viku verið tilkynnt um á
þriðja tug innbrota í bíla. Í flestum
tilvikum hafa þjófarnir ekki þurft að
hafa fyrir því að brjóta rúður eða
spenna upp hurðir því bílarnir hafa í
flestum tilvikum verið ólæstir.
Í sumum tilvikum var talsverðum
verðmætum stolið. Jóhannes Jens-
son, yfirmaður rannsóknardeildar
lögreglunnar í Keflavík, segir að
hluti þessara innbrota sé upplýstur.
Flest hafa innbrotin verið í Njarðvík
og liggur ákveðinn maður undir grun
en hann hefur neitað sök.
Á þriðja tug
bílainnbrota